Morgunblaðið - 20.11.1979, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.11.1979, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979 41 fclk í fréttum 125 manna kröfugöngu + ÞESSI fréttamynd er ekki frá íran eins og ætla mætti í fyrstu vegna áletrunarinnar á kröfuspjaldinu, sem maðurinn heldur á í hægri hendi. Þessi maður, með barnið sitt á háhesti, var meðal 25 göngumanna i kröfugöngu í borginni Denver I Coloradofylki. Göngumenn heimtuðu að íranskeisari yrði framseldur. A spjaldinu stendur að hann sé morðingi! Það sé krafa „amerískrar nefndar“ að hann verði framseldur. Þegar gangan fór framhjá dómshúsi borgarinnar gerðu vegfarendur hróp að göngumönnum, en ekki dró til frekari tíðinda, segir í textanum. + EINN helzti framámaður meðal blökkumanna i Bandaríkjunum, ekkja Martins Luther King, frú Coretta Scott King, var um daginn í borginni Atlanta. Þar kom hún fram á fundi og hélt ræðu. í henni lýsti hún fullum stuðningi við Jimmy Carter Bandaríkja- forseta til endurkjörs á næsta ári. Hún komst meðal annars þannig að orði um forsetann, að honum hefði tekist að koma heilmiklu góðu til leiðar á þeim þrem- ur árum, sem hann hefur setið í forsetastóli Banda- rikjanna. Myndin er tekin af írú Corettu King á þessum fundi í Atlanta á dögunum. Rafmagnsstóll- inn bíöur hans! + Myndin er tekin i fangelsinu Joliet, sem er í Illinoisfylki í Bandarikjunum. Eins og sjá má er um að ræða mynd af brúðhjónum. Brúðguminn ungi er meðal fanganna þar. Hann heitir John Szabo og hefur nú verið dæmdur til að deyja í rafmagnsstól. Mun dóminum verða fullnægt í mafmánuði á næsta vori. Dauðadóminn hlaut hann fyrir morð á tveimur bræðrum. Það sem leiddi til þessa hroðaatburðar var ósætti út af sölu á marijuana, 350 dollara virði! Brúðurin unga er aðeins 16 ára gomul. Þau skála í kampavíni... Þín til dauðans! Eggja- árás á borgar- stjóra + ÞAÐ bar við um daginn í New York að borgarstjórinn þar. Edward I. Koch, varð fyrir árás manns og konu, sem réðust að honum „vopnuð eggjum,“ sem þau létu dynja á borgarstjóranum. Hann hafði snúist gegn árásarmönnunum, snéri manninn í gólfið. Lögreglumenn, sem skárust í leikinn, handtóku konuna. Þessi ósköp dundu yfir Koch borgarstjóra, er hann var í þann veginn að flytja ávarp við fundarbyrjun 3000 manna fundar, sem var haldinn í borginni og fjallaði um heilbrigðismál. Utataður eggjarauðu frá hvirfli til ilja hafði borgarstjórinn gengið róiegur og yfirvegaður að hljóðnemanum og sagt: Þeir sem eru því meðmæltir að þetta fólk verði fjarlægt, gjörið svo vel að rísa úr sætum. Nær allir fundarmenn risu úr sætum sínum. — Og borgarstjórinn sagði við lögregluna: Jæja, drengir. fjarlægið þau! — Þar með lauk þessu óvænta atviki. Utankjör4aðakaaiiiig Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1, símar 39790, 39788, 39789. Sjálfstæöisfólk, vinsamlegast látiö skrif- stofuna vita um alla kjósendur, sem ekki eru heima á kjördegi. Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá. Utankjörstaöakosning fer fram í Miöbæjar- skólanum alla daga 10—12, 14—18 og 20—22 nema sunnudaga 14—18. VANDLÁTA KONAN VELUR imvio FATNAÐ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.