Morgunblaðið - 20.11.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.11.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979 Ágúst Þorsteinsson: Sala ríkisfyrirtækjanna Ábending til Friðriks Sophussonar Ungir sjálfstaeðismenn með Friðrik Sophusson í broddi fylk- ingar eru duglegir við að selja hugmyndina Báknið burt, og þá sérstaklega fyrirtæki sem bera sig og hafa skilað arði til ríkisins. Það sem hefur stungið okkur aðallega í skrifum viðkomandi, er að þegar stefnan um Báknið burt er lögð á borð hjá almenningi er ósannsögli eða leti til að fá réttar upplýs- ingar aðalsmerki í skrifum þeirra, eða hræðsla við að leggja sann- leikann á borðið. í grein Friðriks kemur fram sama ósannsöglin. Þar segir hann „og starfi á venjulegum viðskipta- grundvelli, án skattfríðinda og annara íhlutana". Fyrst er gefið í skyn að fyrirtækin vinni á ein- hverjum óvenjulegum viðskipta- grundvelli, og væri rétt að fá nánari skýringu á þessu orðalagi. BJÖRN Haraldsson hefur skrifað ævisögu Arna Björnssonar tón- skálds. Bókaforlag Odds Björns- sonar gefur bókina út. Hún ber nafnið LÍFSFLETIR. Árni Björnsson tónskáld er fæddur í Lóni í Kelduhverfi 23. desember 1905. Strax í æsku kom í ljós, að Árni var gæddur óvenju- legum tónlistarhæfileikum, og frá því hann man fyrst eftir sér hefur tónlistin átt hug hans allan. Hann hefur samið mikinn fjölda tón- Eru stundaðar mútur, er einokun, eða hvað á hann við? Ljóst er að Landssmiðjan, „óskabarn ungra sjálfstæð- ismanna," er algjörlega rekið eins og önnur járniðnaðarfyrirtæki. Stærsti hluti framleiðslunnar eru vélar og tæki í samkeppni við bæði erlenda og innlenda aðila og svo þátttaka í útboðum á almennum markaði. Svo kemur þetta síðasta, skattfríðindin. Ég er hræddur um að stjórnendur einkafyrirtækja yrðu hissa ef hluthafar mjólkuðu fyrirtæki sitt eins og ríkið gerir, sem eigandi Landssmiðjunnar. Á þessu ári er okkur gert að greiða í gjöld kr. 28.175.781.-, slysatrygg- ingagjald 194.432.-, kirkjugarðs- gjald 254.897.-, aðstöðugjald 11.081.000.-, atvinnuleysistrygg- ingargjald 93.436.-, iðnlánasjóðs- verka, allt frá dægurlögum til klassískra verka. Árið 1952 varð Árni fyrir líkamsáras, sem olli því að hann gat ekki helgað sig tónlistarstarf- inu eins og hann hafði ætlað sér. En þrátt fyrir mikla sjúkdómserf- iðleika semur hann ennþá tónverk. Bókin er 160 blaðsíður, auk 32 myndasíðna, prentuð og bundin í Prentverki Ódds Björnssonar hf. á Akureyri. Káputeikningu gerði Guðbrandur Magnússon. og iðnaðarmálagjald 3.314.500.-, launaskattur 30.104.-, skyldu- sparnaður 1.641.000.- svo og lands- útsvar 1.620.128.-. Ég skora á ykkur ungu menn, fyrst þið viljið breytingar og leggið ykkur fram við að ná tiltrú kjósenda, hættið með yfirborðs- legt skrum. Kynnið ykkur stað- reyndir og leggið sannleikann á borðið, og er ég þá viss um að kjósendur muni leggja við eyru og skoðanir ykkar breytast. Én því miður eru skrumararnir vinsælir í fjölmiðlum landsins og sérstak- lega þeir sem kveða hálfkveðnar vísur. Eitt er mjög áberandi smekklaust í kosningaáróðrinum Báknið burt, það er árás á þá kjósendur sem starfa hjá ríkinu. Það er gefið í skyn að þetta séu einhverjir annarsflokks starfs- menn. Ég sé engan mun á að starfa sem starfsmaður Stjórnun- arfélagsins, hjá ísal eða hjá ríkinu, nema þegar unnið er hjá ríkinu erum við að vinna fyrir okkur sjálf. Ef horft er raunsætt á hlutina, þá eru ekki svo margir eignamenn í landinu. Flestir vinna hjá þessum svonefndu fáu eigna- mönnum. Nú er Sjálfstæðisflokkn- um tækist að gera stærsta hluta þjóðarinnar að eignamönnum, þá ættu Framsóknarmenn og Ál- þýðubandalagsmenn að vera kátir, því um leið yrði landið orðið eitt allsherjar SÍS eða samyrkjubú. Eitt sem fram kemur er að selja núverandi ríkisfyrirtæki til að stofna önnur og þá til að skapa fjölbreyttari iðnað, eða Báknið burt — Báknið upp. Undanfarin ár hafa stjórnmálamenn lýst yfir að nauðsynlegt sé að byggja upp Lífsfletir — ævisaga Árna Björnssonar Fæst í Valhöll v/Háaleitisbraut og á kosninga skrifstofum Sjálfstæðisflokksins um land allt, einnig í flestum söluturnum. og styðja við skipaiðnaðinn í landinu. Þá undrar okkur, í þessu sambandi, á að ríkið, sem á eitt af stærstu skipaþjónustufyrirtækj- um landsins, skuli ekki sýna í verki áhuga sinn og útvega fjár- magn í sitt eigið fyrirtæki til að koma sinni stefnu í framkvæmd. Við skiljum ekki þá formúlu að seija skipaþjónustustöð til að stofnsetja aðra. Er ekki réttara að nota eignir, mannafla og þekkingu sem fyrir er, til eflingar Lands- smiðjunnar og gera henni kleift að geta sinnt þessu verkefni betur, eins og stjórnendur hafa bent á, og lagt tillögur fram þar um. Ríkið á fyrirtæki sem á skömmum tíma gæti hrundið í framkvæmd stefnu ykkar stjórnmálamanna til að skapa fjölbreyttari iðnað, þið eigið sjálfir, stjórnmálamenn, þetta fyrirtæki. Eigum við ekki að segja um sjóhrakta þjóðarskútu: Báknið á þurrt. Ágúst Þorsteinsson 26 listamenn sýna á Akureyri Akureyri. MYNDLISTARHÓPURINN á Akureyri gegst fyrir mikilli mál- verkasýningu í félagsheimilinu Hlíðarbæ og var sýningin opnuð á laugardag klukkan 15. Henni lýkur sunnudaginn 25. nóvember og verður opin um helgar frá klukkan 15—22, en virka daga frá 18-22. Á sýningunni eru 96 verk eftir 26 myndlistarmenn, sem eiga heima á Akureyri og í nágrenni. Sumir þeirra hafa aldrei sýnt áður, þó að þeir hafi starfað að myndlist árum saman. Þar af eru 10 félagsmenn í myndhópnum, en þar að auki 16 utanfélagsmenn, sem myndhópurinn bauð þátttöku. Á sýningunni kennir margra grasa. Þar eru olíumálverk, vatnslitamyndir, pastelmyndir, grafík, lágmyndir, handmálað postulín, keramik og ljósmyndir. Flest verkanna eru til sölu. Listamennirnir, sem sýna, eru þessir: Kristján Vigfússon, Ulfur Ragnarsson, Hörður Jörundsson, Þóra Sigurðardóttir, Rut Hansen, Lóa G. Leonardsdóttir, Soffía Sig- urðardóttir, Gunnar Sigurjónsson, Hörður Gígja, Húnn Snædal, Hallmundur Kristinsson, Sigurð- ur Randversson, Pálmi Guð- mundsson, Ulla Árdal, Iðunn Ágústsdóttir, Aðalsteinn Vest- mann, Alice Sigurðsson, Sigurður Aðalsteinsson, Guðmundur Á. Sigurjónsson, Gréta Berg, Bern- harð Steingrímsson, Lýður Sig- urðsson, Valgarður Stefánsson, Gísli Guðmann og Sigurgeir Þórð- arson. —Sv.P. Mótun hf. afhend- ir 100. bát sinn MÓTUN HF. í Hafnarfirði Færeyinga. afhenti í gær eitt hundrað- Gerðar hafa verið nokkr- asta bátinn sem fyrirtækið ar endurbætur á innrétt- hefur smíðað og er af ingum og fyrirkomulagi, gerðinni Mótun 24. Eru m.a. verið hækkaður bátar af þessari gerð borðstokkur. Hjá fyrirtæk- byggðir á gamalli reynslu inu starfa nú 15 manns. Ásgeir Þórðarson og Björg Óskarsdóttir tóku við eitt hundraðasta bátnum frá Mótun. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Reginn Grimsson. Ljósm. Kristján

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.