Morgunblaðið - 20.11.1979, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
Austurstræti 7
SH=^anrV2feog3000T
Til sölu
Laufvangur
Höfum í einkasölu stóra 3ja
herb. endaíbúö á 2. hæö.
Þvottaherb. á hæðinni.
Hjallabraut
Höfum í einkasölu 100 fm 4ra
herb. íbúö á 2. hæö.
Fagrakinn
Tíl sölu 85 fm 3ja herb. íbúö í
tvíbýli. Þvottaherb. o.fl. í kjall-
ara.
Vesturberg
Til sölu 2ja herb. íbúö á 4. hæö
í lyftuhúsi. Ibúöin er laus.
Stelkshólar
Til sölu góö 4ra herb. íbúö á 1.
hæö ásamt innbyggðum
bílskúr. íbúöln getur losnað
fljótt.
Álfaskeið
tll sölu mjög rúmgóö 3ja herb.
íbúö á 1. hæö í 6 íbúöa húsi.
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Leikfélag Mofellssveitar:
Vaxlíf
eftir Kjartan Heiðberg.
Leikstjóri: Sigríður Þorvaids-
dóttir
Aðstoðarmaður leikstjóra: Aðal-
heiður Erna Gisladóttir.
Ljósamaður: Pétur Friðriksson.
Leikmynd: Sigurður Finnsson.
Umræður um jafnréttismál kynj-
anna hafa verið og eru fyrirferð-
armiklar. Vitanlega hafa margir
rithöfundar fjallað um þessi efni,
ekki síst skáldsagnahöfundar, en
einnig leikritahöfundar. Nú er til
dæmis verið að sýna leikrit af
þessu taki í Iðnó: Kvartett eftir
Pam Gems.
Kjartan Heiðberg er ungur höf-
undur sem vakið hefur athygli
með verkum sem bæði hafa verið
sýnd á Neskaupstað: Grenið (1977)
Leikhópur Leikfélags Mosfellssveitar sem sýnir Vaxlíf eftir Kjartan Heiðberg.
þeirra hafi leikið áður standa þeir
sig með prýði. Ingrid Jónsdóttir,
Kristín Hlín Þorsteinsdóttir og
Herdís Þorgeirsdóttir voru mest
sannfærandi í kvenhlutverkum, en
meðal karlmannanna kvað mest
að þeim Guðmundi Davíðssyni,
Magnúsi Welding og Sigvalda
Kristjánssyni. Hinir tveir síðar
nefndu léku reyndar eins og þeir
væru vanir leikarar. Aðrir sem
komu fram voru Hafdís Heiðars-
dóttir, Jón Haraldsson, Guðrún
Kristjánsdóttir, Ásthildur Jóns-
dóttir, Kristján J. Kristjánsson og
Páll Sturluson.
Leikmynd Sigurðar Finnssonar
er ekki margbrotið verk, en átti
sinn þátt í framgangi sýningar-
innar að Hlégarði.
CIMAR 911 cn — 9197Í1 SÖLUSTJ. LÁRUS Þ. VALDIMARS
ollVIAn ^llDU /IJ/U logm.jóh.þóroarsonhdl.
Leikiist
Bðkmenntlr
Er líf okkar úr vaxi?
og Vaxlíf sem var hluti hátíðar-
dagskrár í tilefni hálfrar aldar
afmælis staðarins. Vaxlíf mun
hafa verið samið beinlínis í þessu
tilefni og leikstýrði Haukur Gunn-
arsson því. Leikfélag Þorlákshafn-
ar glímir nú við Grenið og er
væntanlegt með það á höfuðborg-
arsvæðið innan skamms.
Hjónaband og samskipti kynj-
anna eru sett í brennidepli í
Vaxlífi. Þar koma við sögu ýmis
þau vandamál sem varla verður
framhjá gengið hjá flestum. Karl-
mennirnir leika húsbændur og
stóra karla eins og þeim hefur
verið innrætt. Konurnar eru að
vakna til vitundar um að þær hafi
líka eitthvað að segja. Láta sér
meira að segja detta í hug að þær
eigi sig sjálfar. Hjónin Alla og
Baldur eru dæmigerð hjón í sam-
keppnisþjóðfélagi. Rósa og Matti
sem ekki eru gift eru aftur á móti
dálítið flóknari manngerðir, eink-
um Rósa eins og kemur á daginn
þegar hún verður ólétt. Hún tekur
þá ákvörðun að eyða fóstrinu til
þess að glata ekki sjálfstæði sínu
eins og það heitir. Matti vill aftur
á móti leggja allt í sölurnar til að
hún fæði barnið. Hann vill jafnvel
taka að sér að hugsa um það einn
svo að Rósa fái ekki á tilfinning-
una að hún sé lokuð inni í búri.
Venjulega eru karlmenn skot-
spónn í ádrepum eins og þessum
og það eru þeir líka á vissan hátt,
en hér hallar frakar á konuna
Rósu sem bregst einkennilega við
kalli lífsins. En hún á líka sína
málsvörn. Sambúð þeirra Matta
og hennar er innantóm eins og hjá
mörgum.
Kjartan Heiðberg á ýmislegt
ólært sem leikskáld, en sýnir að
mínu viti töluverðan þroska sem
höfundur við upphaf ferils síns.
Hann er hugkvæmur og fordóma-
laus og forðast margt af því sem
stendur í vegi fyrir ungum leik-
ritahöfundum. Hann hefur ríka
samúð með þeim persónum sem
hann skapar, dæmir þær ekki,
reynir að skilja þær hversu fárán-
legar sem þær annars eru. Boð-
skapur hans er fólginn i verkinu
sjálfu, því sem persónurnar gera
og segja. Predikunartón viðvan-
inga í skáldskap lætur hann lönd
og leið. Ég býst við því að með
fágun verksins og meiri hnitmiðun
megi gera það enn betra. En það
stendur fyrir sínu eins og það er.
Leikfélag Mosfellssveitar hefur
ekki valið sér stórbrotin viðfangs-
efni síðan ég fór að fylgjast með
því að minnsta kosti. En það hefur
sannað eins og fleiri áhugaleikfé-
lög að góður vilji getur komið
mörgu til leiðar. Það hefur verið
þessu leikfélagi ávinningur að fá
Sigríði Þorvaldsdóttur til liðs við
sig. Henni er líka mikið að þakka
hve vel tekst til að þessu sinni.
Strandapósturinn
Strandapósturinn, þrettándi
árgangur, var að koma út nú á
dögunum. Sömu menn hafa löng-
um haft af honum veg og vanda og
svo er enn, þeirra á meðal Ingólfur
Jónsson frá Prestsbakka og Jón
Kristjánsson sem báðir leggja efni
til þessa árgangs. Ingólfur ritar
meðal annars um systkinin á
Fjarðarhorni, Guðmund og Krist-
ínu, sem þar bjuggu í hvorki meira
né minna en fimmtíu og sex ár eða
frá 1898 til 1954. Þórbergur heim-
sótti Kristínu þegar hann var í
vegavinnu í Hrútafirði sumarið
1912 og segir frá því í íslenskum
aðli. Guðmundur og Kristín bár-
ust ekki mikið á en voru þó á
undan flestum í framförum, reistu
stórt steinhús 1914 og raflýstu það
skömmu síðar.
Þá er þarna prentaður alllangur
endurminningaþáttur frá Borð-
eyri um aldamótin eftir Sigur-
bjarna Jóhannesson. Er hann
varðveittur í skjalasafni því sem
síra Jón Guðnason á Prestsbakka
lét eftir sig. Þátturinn er bæði
fróðlegur og skemmtilegur. Er
stafsetning höfundar látin halda
sér óbreytt og óleiðrétt og er, eins
og Ingólfur Jónsson kemst að orði,
«gott sýnishorn frá hans tíma».
Jón Kristjánsson ritar meðal
annars um hestinn sinn, Neista.
«Ég reiddist oft við Neista og
hann sjálfsagt einnig við mig,»
segir Jón, en engan hest kveður
hann hafa haft «vitsmuni hálft á
við Neista.* Vandasamt er að
segja dýrasögur svo vel fari. Jón
Kristjánsson hefur það á valdi
sínu.
Ingólfur Jónsson frá Prests-
bakka.
Ef'til vill hefur þó enginn fyrr
né síðar lagt drýgra efni til
Strandapóstsins en Jóhannes
Jónsson frá Asparvík, bæði
kveðskap, frásöguþætti og al-
mennan þjóðlegan fróðleik. Fram-
lag hans er orðið eins og heilt
byggðasafn í rituðu máli. Af
ritsmíðum hans í þessum árgangi
nefni ég sérstaklega þátt sem
eftir ERLEND
JÓNSSON
hann kallar Talan 7. Efni til
þáttarins hefur hann viðað að sér
úr almanökum hins íslenska þjóð-
vinafélags, biskupasögum, og
postulasögum. Auk þess tilgreinir
hann «frásagnir gamals fólks þeg-
ar ég var unglingur.*
Strandasýslan hefur, aldirnar í
gegnum, alið börn sín upp i blíðu
og stríðu og einatt minnt á sína
norðlægu breiddargráðu. í
Strandapóstinum eru endurminn-
ingar frá frostavetrinum mikla
1918 (Ingi Guðmundsson frá Kol-
beinsvík) og veðrinu mikla og
háskalega 14. desember 1936
(Höskuldur Bjarnason, Drangs-
nesi). Og ékki má gleyma stysta
þættinum, langstysta meira að
segja, um fyrsta bílinn sem skrá-
settur var í Strandasýslu 1929 og
hlaut númerið St 1, eigandi Björn
Kristmundsson á Borðeyri. Þetta
var Chevrolet vörubíll með tæp-
lega tuttugu og sjö hestafla vél,
ellefu hundruð kíló að þyngd; og
mátti flytja einn farþega. Allt
þetta má lesa á skráningarskírt-
eininu sem birt er með þættinum.
Fleiri góðir þættir eru í bókinni,
einnig kveðskapur, þar á meðal
Eintal Olafs pá eftir Ingólf Jóns-
son að ógleymdu forystukvæði
ritsins, Sumarkvöldi, eftir Jó-
hannes frá Asparvík, dýrt kveðnu.
Yfirhöfuð leikur um rit þetta
hressandi andblær sem bæði
minnir á dreymandi sunnanátt og
vekjandi norðankalda sem hvort
með öðru viðrar hinar norðlægu
byggðir ár og síð og alla tíð.
Erlendur Jónsson.
Leikstjórn hennar er nýstárleg og
frumleg og óumdeilanlega sigur
sem hún fylgir vonandi eftir.
Sýningin er lifandi og hlaðin
spennu sérstaklega þegar líður á
leikinn. Það sem gefur túlkuninni
aukið gildi er að þrír leikarar
skipta með sér einu hlutverki;
hlutverkin fjögur eru af þeim
sökum í höndum tólf leikara.
Þetta gæti að sjálfsögðu valdið
ruglingi ef ekki væri vel á haldið.
En tilhögunin verður aftur á móti
til þess að leggja áherslu á hina
almennu skírskotun verksins og
veldur því að lítið er um dauða
punkta í sýningunni. Þetta reynir
nokkuð á leikarana, en þótt fáir
Stórhýsi
við Laufásveg
Hefi í einkasölu húseign viö Laufásveg. í
húsinu eru 9 íbúöir, 3ja og 2ja herb. 3
íbúöanna í góöu standi en 6 þarfnast
viögeröar. Eignin selst í einu lagi eöa í
hlutum. Upplýsingar á skrifstofu minni.
Bergur Guömundsson hdl.
Langholtsvegi 115. Sími 82023.
Til sölu og sýnis m.a.
Efri hæð í tvíbýlishúsi
Um 145 fm 6 herb. meö 50 fm bílskúr og stórt föndurherb.
á neöri hæö. Eignin er í smíðum nú fokheld.
Eignaskipti möguleg
Endurnýjuð íbúð í Þingholtunum
4ra herb. á 2. hæö í suöurenda í góðu steinhúsi, um 105
fm.
Mikiö endurnýjuð
góð íbúð í Hafnarfirði
3ja herb. á 2. hæö um 85 fm. Miklir og góðir skápar.
Sameign í ágætu lagi. Bílskúrsréttur.
Þurfum að útvega
Gott iönaðarhúsnæöi 150—250 fm.
Tvíbýlishús í borginni.
Sórhæö meö bílskúr í Hlíöunum.
Stóra húseign ekki í úthverfi.
Höfum kaupendur
að góöum íbúðum
og einbýlishúsum
AtMENNA
FASTEIGNASALAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370