Morgunblaðið - 20.11.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
11
Þessar tvær dönsuðu al mikilli innlifun og sýndu ýmis tilbrigði.
vandamál. Einhvern tímann verður
allt fyrst ef svo á að verða."
„Getum ekki farið
neitt annað“
Að loknu spjallinu við Sverri
gengum við um meðal unglinganna.
Flestir þeirra sem við ræddum við
kváðust koma í Fellahelli að stað-
aldri. „Við getum ekki farið neitt
annað," sögðu þeir. Þó virtist hellir-
inn ekki vera sóttur einungis vegna
þess að krakkarnir gátu ekki farið
neitt annað, allir virtust mjög
ánægðir með það sem á boðstólum
var og flestir þeirra störfuðu í
einhverjum klúbbum.
„Um helmingur 13—16 ára
unglinga i Breiðholti III
kemur i Fellahelli“
í plötusnúðaherberginu hittum við
þrjá starfsmenn Fellahellis, þau Ól-
öfu Ingimundardóttur, Skúla
Björnsson og Guðlaug Jónsson. Þau
voru öll ánægð með starfið í hellinum
og kváðu það alls ekki erfitt að starfa
innan um unglingana. Aðsóknina
sögðu þau vera mjög misjafna, en
metaðsóknin hefði verið 350 manns.
„Húsið rúmar um 200 manns með
góðu móti og er það mjög æskileg
stærð fyrir hverfið. Hér eru um 500
unglingar á aldrinum 13—16 ára og
við reiknum með að rúmlega helm-
ingur þeirra komi hingað."
— Hvert fara þau 16 ára aldri?
„Þau hafa í raun og veru engan
stað nema þá götuna og ef þeim tekst
að komast inn í vínveitingahús. Hins
vegar er ekkert sem bannar þeim að
koma hingað eftir 16 ára aldur en
það kemur einhvern veginn af sjálfu
sér að þau koma ekki hingað er þau
hafa náð þeim aldri."
Er við kvöddum Fellahelli var öll
starfsemin komin í fullan gang.
Dansað var af innlifun í diskótekinu,
hoppað var á púðunum í „púðaher-
berginu", tennis var spilað af miklum
móði og ferðaklúbburinn hafði hafið
fund. Þau sem ekki höfðu annað að
gera sátu við „sjoppuna" og drukku
kók og spjölluðu saman og enn önnur
sátu og reyktu í anddyrinu. r.m.n.
Það fór vel á með viðskiptavinum og afgreiðslufólki í „sjoppunni“ í
Fellahelli.
REPORT DE LUXE: LÚXUS FYRIR LÍTIÐ
Rafritvél með fisléttum áslætti,
áferðafallegri skrift, dálkastilli
28 eóa 33 sm valsi.
Vél sem er peningana virði
fyrir jafnt leikmenn sem
atvinnumenn.
Fullkomin viðgeröa-
og varahlutaþjónusta.
Leitið nánari upplýsinga.
o
Oiympia
Intemational
cimns
mr w w m m m m m m m &
* x » s w:- -w w- m & -C: w
• * v .* sz cn?. » j?». g& :t n*. ví'
WmMmm KJARAN HF
skrifstofuvélar & verkstæði - Tryggvagötu 8, sími 24140
Erískandi og gott
á fimm sekúnðum.
Það er Fountain.
Engin vcnjulcg kaffivól
Fountain drykkjavélin er
engin venjuleg kaffivél, því að þú
getur valið um sex kaffitegundir,
Fjórar tetegundir, þrjár súkkulaði-
tegundir, sjö súputegundir og fjóra
ávaxtadrjicki.
Þú getur fengið vél með tveim,
fjórum eða sex fyilingum í einu,
með eða án sjálfsala.
Fimm sekúndur
Það tekur þig aðeins fimm
sekúndur að fá frískan og góðan
drykk úr Fountain.
Fountain hentaralls staðar
Fountain hentar vel fyrir
fyrirtæki, stór eða smá, söluskála
og heimili.
Einning eru fáanlegar 24volta
vélar fyrir skip, báta og langferða-
bila.
.4th! Ókeypis hníefni
1. okt.—1. jan.
Kaupir þú Fountain nú, færðu
fyrstu fyllingamar ókeypis.
Síðan er hráefninu ekið til þín, án
endurgjalds, hálfsmánaðarlega eða
efdr samkomulagi.
Ég óska eftir að fá senda Fountain drykkjavél
fyrir:
□ 2 fyllingar □ 4 fyllingar □ 6 fyllingar
- gegn póstkröfu.
□ Ég óska eftir að fá senda mynd- og verölista.
□ Ég óska eftir að fá sölumann í heimsókn.
Nafn
Heimili_______________________________________
Sími
íí
c
lindin
3
Pósthólf 7032
127 Reykjavík
Sími16463
Pýrum logsuðu-
tækjum stolið
íHveragerði
Hveragerði, 16. nóvember.
UM S.L. helgi var brotizt inn í
handavinnudeild skólans i Hvera-
gerði og stolið þaðan dýrum log-
suðutækjum að verðmæti 200—300
þúsund krónur.
Þegar handavinnukennarinn kom
til starfa á mánudag var þarna
ófögur aðkoma. Er þetta í annað
sinn, sem skólinn verður fyrir svona
heimsókn því í skólaþyrjun í haust
var brotizt þar inn og sams konar
tækjum stolið auk mikils af öðrum
verkfærum. Ekki hefur það innbrot
enn verið upplýst. Ráðamenn skól-
ans telja óvíst að járnsmíðakennsla
geti haldið áfram í vetur. Frétta-
maður Morgunblaðsins spurði Her-
geir Kristgeirsson rannsóknarlög-
reglumann á Selfossi um rannsókn
málsins en hann neitaði öllum upp-
lýsingum og sagði að þögnin hæfði
því bezt.
Hvergerðingar eru orðnir þreyttir
á því að þegja málin í hel því hér fer
hnupli og spellvirkjum mjög fjölg-
andi, bensínþjófnaðir eru hér tíðir
og ástæða til að benda bíleigendum á
að læsa bíltönkum sínum.
Skólanefndin hélt fund á dögunum
og samþykkti ályktun þess efnis að
hún, foreldrafélagið og hreppsnefnd-
in tækju höndum saman og reyndu
að finna ráð til bóta.
— Sigrún.
Uppgjör er óvenjulega opinská minninga-
saga. Hér er lýst manneskju i mótun og
leit hennar að persónulegu frelsi. Bente
Clod segir frá persónulegri reynslu sinni
af óvenjulegri bersögli. Hér er sagt frá
nánum samskiptum fólks, m.a. þeim sem
lengst af hefur verið þagað um i bókum.
Uppgjör er áhrifamikil sjálfskrufning, vel
skrifuð og næmleg lýsing konu á tilfinn-
ingalifi slnu og mun verða forvitnilegur
lestur bæði konum og körlum. Bókin
hefur selst I risaupplögum ( Danmörku og
Sviþjóð að undanförnu.
„Hún (Bente Clod) er trú eigin tilfinning-
um og ákaflega heiðarlegur höfundur...
Best tekst henni að lýsa einmanaleik
konu sem frjálsar ástir gera að tilvonandi
móður... Uppgjör er þroskasaga ungrar
konu sem reynir margt... auðnast að túlka
bældar hugsanir margra kvenna með
þeim hætti að allir hafa áhuga á að lesa...
Vandasama þýðingu Uppgjörs leysir hún
(Alfheiöur Kjartansdóttir) vel af hendi.
Hún hefur náð tökum á óþvinguöum
frásagnarmáta höfundarins án þess að
slaka á kröfum til vandaös máls.“
J.H./Morgunblaöiö
OPINSKA minningasaga
BENTECLjOD
UPPGJÖR
Bræöraborgarstíg 16 Sími 12923-19156