Morgunblaðið - 20.11.1979, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
17
enn háður hinum forherta Guy og í
stöðugu vináttusambandi við hann
að undanskildum sex eða sjö mán-
aða aðskilnaði þegar Burgess var í
brezka sendiráðinu í Washington og
bjó á heimili Philbys. Þannig vissi
hann um víðtæka njósnastarfsemi
Burgess og trúlega stjórnaði henni í
innsta griðareit Hector McNeils,
hins alúðlega aðstoðarráðherra í
utanríkisráðuneytinu. A tímanum
1945 til fyrri hluta árs 1948 gat
Burgess grátið á öxl Blunts eftir að
Christopher Mayhew aðstoðarráð-
herra, sem var gæddur meiri skarp-
skyggni, losaði sig við þennan
„skítuga, ósiðsama og ósæmilega
náunga" og lét flytja Burgess í deild
Fjarlægari Austurlanda.
Linkind
Nánast eini embættismaðurinn,
sem grunaði að Burgess væri
hættulegur öryggi og „skíthæll",
George Carey Foster, nýskipaður
forstöðumaður svokallaðrar „Q“
deildar (öryggi), reyndi oftar en
einu sinni að láta reka Guy Bur-
gess, en tilraunir hans voru brotnar
á bak aftur. Honum var sýnd afar
grunsamleg linkind, sem fór yfir öll
réttlætanleg takmörk, á sama hátt
og Donald MacLean. Hvort álit
Blunts og fortöluhæfni hans hefur
óbeinlínis haft áhrif á þá stórfurðu-
legu ákvörðun að halda báðum
mönnunum er merkilegt íhugunar-
efni.
Hlutverk það sem Blunt gegndi
þegar Burgess og MacLean, skjól-
stæðingar hans, forðuðu sér, var
geysimikilvægt. Snemma vors 1951
höfðu tilraunir enskra og banda-
rískra dulmálssérfræðinga gert
MI5 kleift að þrengja hringinn í
leitinni að „moldvörpu" í sendiráði
okkar í Washington er hafði starfað
þar á árunum 1944 til 1948.
Moldvarpan var MacLean og þeg-
ar MacLean kom úr „veikindafríi"
(sem hann fékk fyrir drykkjuskap
sem keyrði úr hófi í Kaíró og
stöðugt mildir og eftirlátir yfir-
menn hans töldu stafa af „of mikilli
vinnu") voru honum falin störf við
Bandarikjadeildina í London. Hugs-
ið ykkur bara.
Kóreustríðið geisaði og alltaf var
til staðar sú hætta, að það magnað-
ist í þriðju heimsstyrjaldarátökin,
þannig að kjarnorkuvopnum yrði
beitt. Tveir njósnarar, Philby og
Burgess, voru saman í Washington,
sá þriðji, MacLean, sat andspænis
þeim og hafði milli handanna mik-
ilvæg ensk-bandarísk leyniskjöl í
London. Sá fjórði, Blunt, var við
höndina, reiðubúinn að hjálpa ef
hættu bæri að höndum.
Það ástand skapaðist 25. maí
1951, sem var föstudagur og 38 ára
afmælisdagur MacLeans, þegar
utanríkisráðherrann, Herbert
Morrison, undirritaði loksins
nauðsynleg skjöl, sem heimiluðu
yfirheyrslu yfir Donald MacLean,
manni sem hafði næstum því með
ólund sætt sig við örlög sín. Burgess
hafði skipulagt heimferð hans til
London í ónáð, en virtist óþarflega
upptekinn af eigin málum, þar sem
hann hafði jafnvel að engu óvenju-
lega ákaft skeyti frá Philby, þar
sem hann varaði við því, að nú væri
næstum því komið að leikslokum.
Þá var Blunt settur í gang. „Svefn-
gengillinn" lét engan tíma fara til
spillis. Ef Blunt hefði mistekizt að
fá nánast eins og af tilviljun
upplýsingar um það hjá MI5, með
aðferðum sem enn hefur ekki verið
skýrt frá opinberlega, nákvæmlega
á hvaða tíma yfirheyrslan yfir
MacLean færi fram, hefði enginn
flótti átt sér stað. Bretum hefði
verið hlíft við öryggismálahneyksl-
um sjötta, sjöunda og áttunda
áratugarins. Blunt hefði sjálfur
náðst og einnig Philby, Burgess,
MacLean og aðrir vitorðsmenn sem
enn ganga lausir.
Goronwy Rees, eðlilegur vinur
Burgess síðan 1932, var fyrsti
maðurinn sem bauð MI5 upplýs-
ingar eftir tímanlegan flótta Bur-
gess og MacLeans að kvöldi föstu-
dagsins 25. maí 1951. Hann sagði
mér frá tilraun Blunts til að fá
hann til að skipta um skoðun. Hann
veitti því líka eftirtekt, að Blunt
hitti Guy Liddell sama daginn og
Rees sagði þessum gamalreynda
starfsmanni MI5 allt sem hann gat
munaö um liðið samband sitt við
Burgess, meðal annars þá játningu
hins síðarnefnda 1936 að Blunt væri
líka útsendari, sem starfaði í þágu
Rússa.
Neitaði
Vafalaust vísaði Anthony Blunt á
bug ásökuninni með kuldalegri fyr-
irlitningu og á sama hátt hefur
hann haldið áfram að hafna henni í
tíu fleiri viðtölum við starfsmenn
MI5 á næstu 13 árum. Eins og ég-
komst að raun um í rannsókn minni
er ein órökstudd sönnun byggð á
líkum ekki nóg til að klófesta
grunaðan mann. Liddell og seinna
Dick White mistókst að fá sannleik-
ann upp úr Blunt og William
Skardon (manninum sem með
mildilegri festu fékk kjarnorku-
njósnarann Klaus Fuchs til að játa,
þótt honum tækist ekki að brjóta
Philby á bak aftur) tókst það
eingöngu vegna þess að Blunt ákvað
að játa allt. Það var dæmigert fyrir
hann, að hann gerði það í staðinn
fyrir loforð um að mál yrði ekki
höfðað gegn honum. Þetta afdrifa-
ríka viðtal fór fram í auðri íbúð
tilvonandi forstöðumanns SIS sem
var fjarverandi.
Aðeins er hægt að leiða getum að
úrslita sönnunargagninu, sem end-
anlega gerði út um Blunt. Þar sem
ég hef ekki aðgang að skjölum MI5
og MI6, get ég ekki verið nákvæm-
ur. Það getur hafa borizt frá
njósnara, sem hefur leitað hælis,
frá bandarískum leyniþjónustu-
mönnum; jafnvel getur verið að um
síðir hafi fundizt skjöl úr eigu
Búrgess. Líklega verður okkur
aldrei sagt það. Ég hafði dregið þá
ályktun, ranglega, að játning
Blunts hefði átt sér stað skömmu
fyrir 1964, sennilega síðla árs 1957
eða snemma árs 1958. Fyrsta flokks
njósnahneyksli í kjölfar Súez-
ófaranna hefði orðið hvaða ríkis-
stjórn sem var að falli.
Mér virtist, þar sem ekki lágu
fyrir leynilegar upplýsingar um hið
gagnstæða, að þetta væri líklegasti
tíminn. Það segir margt um þolin-
mæði MI5, smásmugulega ná-
kvæmni og samvizkusemi, að full-
trúar stofnunarinnar gripu ekki til
hörkulegri ráðstafana í viðureign-
inni við þann mann, sem lá undir
mestum grun. Að gert var sam-
komulag um að Anthony Blunt yrði
ekki lögsóttur er ekki góður vitnis-
burður um stjórnmálaþroska þeirra
sem voru viðriðnir málið, einkum
þáverandi dómsmálaráðherra, Sir
John Hobson heitins. Það var hon-
um og eftirmönnum hans erfiðara
en ella að rifta samkomulaginu, að
Blunt hafði verið sleginn til riddara
svo löngu áður, 1956, og orða hans,
KCVO, var persónuleg gjöf sjálfrar
drottningarinnar, þannig að kon-
ungsfjölskyldunni hefði verið att út
í forað enn eins njósnahneykslisins.
Þetta hefur Sir John augsýnilega
ekki getað hugsað sér og hann hlífði
forsætisráðherra sínum, sem þá var
Sir Alec Douglas-Home, við öllum
subbulegum smáatriðum málsins.
Hann hlífði einnig Rab Butler, þá
utanríkisráðherra, og Henry
Brooke, innanríkisráðherranum.
Þótt tillit sé tekið til þess, að Bretar
hafa leynd og þagmælsku á heilan-
um, hefur þarna verið farið út í
algerar öfgar og úr þessu varð
óþingræðisleg fjarstæða, einkum
vegna þess að drottningin fékk að
vita leyndarmál, sem forsætisráð-
herra hennar fékk ekki aðgang að.
Fimm valdamiklir
Af rúmlega tveimur tugum ann-
arra vitorðsmanna og hjálpar-
manna, sem MI5 segist fyrir löngu
hafa „gert skaðlausa", gegna um
fimm eða sex háum stöðum í
utanríkisþjónustunni, öðrum hlut-
um Whitehall og í háskólaheimin-
um. Þeir voru jafnaldrar Blunts og
njósnavina hans og diplómatarnir
veittu hjálp við að vernda Burgess
og MacLean þegar þeir lágu undir
grun. Þeirra á meðal voru aðals-
menn. Starfsemi þeirra kom smátt
og smátt í ljós og sumpart vegna
jákvæðs yfirheyrsluforms, sem var
innleitt á árunum upp úr 1950.
Hvort afhjúpun Blunts leiðir til
uppljóstrana fleiri nafna er annað
mál. Ég efast um að það muni
gerast; ég hef vissulega alls ekki í
hyggju að birta opinberlega það
sem ég veit og kýs heldur að
yfirvöldin vinni skítverk sín sjálf.
Þess vegna verður „fimmti
maðurinn", kallaður dulnefninu
„Basil“, að bíða þangað til banda-
rísk yfirvöld afhjúpa hann — ef þau
gera það nokkurn tíma. Ég verð
fyrir alla muni að vera sjálfum mér
samkvæmur.
(Birtingarréttur The Observer — öll réttind;
éekillA)
DERTBlEBrt^ft|l
Ný heillandi saga eftir höfund
VETRARBARNA
DEA TRIER M0QCH
KASTANIU
6ÖNGIN
„Það er mikill húmanismi og skilningur
að baki þessari frásögn... ber að fagna
þýðingu og útgáfu hennar... Grafik-
myndir höfundar eru margar I bókinni og
hver annarri betri, hvort heldur þær eru
skoðaðar sem fylgimyndir texta eða
sjálfstæð listaverk. Þær einar væru nóg
rök til að hvetja alla að eignast þessa
bók. Og þá er ógetið þýðingarinnar. Ólöf
Eldjárn hefur unnið mikið ágætisverk.
Allt laust mál bókarinnar veróur að mjög
náttúrulegum og fallegum texta...“
H.P./Helgarpósturinn
„...mikil saga um örlög fólks og svipting-
ar I tlmanum. Það er ekki hægt annað en
hafa samúö með persónum bókarinnar
vegna þess aó höfundurinn gerir þeim
slfk skil... Sá hæfileiki Deu Trier Morch
sem við munum úr Vetrarbörnum að
geta sagt mikið með fáum og einföldum
oróum nýtur sln vel I Kastanlugöngun-
um.“
J.H./Morgunblaðið
Þegar nýtt andlit bætist við fjölskylduna eykst þörfin fyrir trausta og hrað-
virka þvottavél um allan hélming.
Nýja Candy þvottavélin hefur líka nýtt andlit. Andlit, sem þú getur treyst.
Endingin og afköstin sanna gæðin, enda höfum við afgreitt 17000 Candy
þvottavélar á 10 árum.
A bak við andlitið á Candy
er vönduð framleiðsla, sem léttir störfin á stóru heimili.
VERSLUNIN
PFAFF
Borgartúni 20 Bergstaóastræti 7 Sími 26788
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
l>l Al'GIASIR l’M \LLT LAND ÞEGAR
I>1 AIT.LÝSIR I M()R(il NBLADINL