Morgunblaðið - 20.11.1979, Side 20
2 0 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
Vegna þeirrar óreiðu sem nú er í mennta- og menningarmálum eftir
13 mánaða vinstri stjórn er full ástæða til að rifja upp afstöðu
stjórnarandstöðunnar, Sjálfstæðisflokksins, til þessara mála. Þess
má geta, að vegna bruðls ríkisbubbanna með fjármál ríkisins vantar
stórlega upp á að sá slagkraftur sé í menningarmálum sem
nauðsynlegur er í landi, sem telur það frumskyldu við þegnana að efla
menntir í landinu, svo að þjóðlífið geti verið blómlegra og næringar-
meira en ella mundi. En þetta markmið náðist síður en svo undir vinstri
stjórn og raunar hefur hún frekar ýtt undir öngþveiti og upplausn en
eflt eða stutt við bakið á raunverulegum verðmætum. Mikilvægar
menningarstofnanir berjast jafnvel í bökkum.
í stefnu Sjálfstæðisflokksins í menningarmálum segir m.a., aö
flokkurinn telji það hlutverk sitt að efla alla viðleitni í þá átt að bæta
meðferð íslenzkrar tungu í töluðu máli jafnt og rituðu. Ymiss konar
áherzlubrengl í framburði tungunnar í ríkisfjölmiðlunum eru nú að
verða eitt höfuðáhyggjuefni í sambandi við varðveizlu hennar. Gegn
þessu verður að sporna og þá ekki síður að kenna talað íslenzkt mál í
skólum landsins, en það er frumskilyrði þess að við getum átt það erindi
við heiminn, sem arfur okkar gerir kröfur til. Þá þarf auðvitað að vanda
íslenzkt mál í öðrum fjölmiðlum, en það er ekki í verkahring ríkisins og
verður hver fjölmiðlamaður og þeir, sem í blöð skrifa, að líta í eigin
barm.
Þá vill Sjálfstæðisflokkurinn efla skapandi starf á sviði allra
listgreina með því að endurskoða styrkveitingar „með betri nýtingu í
huga". Ennfremur að styðja á sama hátt hvers konar frjálsa lista- og
menningarstarfsemi einstaklinga og félaga, m.a. í skólum og með
almennri þátttöku. Ennfremur að efla listiðn í landinu, jafnvel með
erlendan markað í huga.
Um ríkisútvarpið segir svo í stefnu Sjálfstæðisflokksins:
„Að endurskoða útvarpslögin með það tvennt í huga að tryggja
ríkisútvarpinu aukið sjálfstæði og bolmagn til að rækja ótvírætt
menningarhlutverk sitt og veita jafnframt svigrúm fyrir frjálsan
útvarpsrekstur."
Fræðslumál
ILandsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins um fræðslumál er lögð
höfuðáherzla á þrjú meginatriði: að öllum þjóðfélagsþegnunum verði
gert kleift að ná „sem mestum þroska, sjálfum sér og þjóðfélaginu til
heilla“; að dregið verði úr miðstýringu menntamála og hver skóli verði
sem sjálfstæðust stofnun innan ramma þeirra laga, sem í gildi eru
hverju sinni; og loks að frumkvæði og áhugi heimamanna fái sem bezt
notið sín, enda virðist nú ekki vanþörf á því eftir hneykslin undanfarið
— og er þá Grindavíkurhneykslið ekki sízt víti til varnaðar.
Þá mun Sjálfstæðisflokkurinn m.a. beita sér fyrir löggjöf um
framhaldsskóla, fullorðinsfræðslu og endurmenntun á öllum skólastig-
um, „þar sem námsbrautir og námsáfangar verði skilgreindir
nákvæmlega í samhengi við kröfur framhaldsnáms og atvinnulífs".
Ennfremur að kannað verði, hvort ekki sé ástæða til að sameina
Háskóla íslands og Kennaraháskóla íslands „þar sem hvorug stofnunin
er svo stór, að telja megi hana eðlilega rekstrareiningu á sínu
skólastigi". Þá vill Sjálfstæðisflokkurinn loks, að sveitarfélög taki við
rekstri grunnskólans og að þeim verði séð fyrir tekjustofnum til að
standa undir honum. Jöfnunargjald styrki þau sveitarfélög, sem búa við
verulegan fjárskort.
Umhverfismál
Eins og kunnugt er, unnu vinstri flokkarnir Reykjavík, m.a. vegna
gaspurs um umhverfismál í borginni og fjöldi fólks, sem ber
þennan málaflokk sérstaklega fyrir brjósti, lét ginnast. Nú hafa
efndirnar komið í ljós. Eini áhugi vinstri flokkanna á umhverfisvernd í.
höfuðborginni er sá að gera nú eina allsherjaratlögu að grænu
svæðunum í borginni undir vígorðinu „Þétting byggðar". Morgunblaðið
birti fyrir skemmstu hlemmimyndir frá Þróunarstofnun um þessa
fyrirhuguðu atlögu að grænum svæðum höfuðborgarinnar. Nú á að
kaupa atkvæði með því t.a.m. að breyta mestum hluta Laugardalsins í
steypu, eins og ekkert svigrúm sé lengur í öllu borgarlandinu. En fólk
hefur sem betur fer ekki látið blekkjast. Það hefur mótmælt atlögunni
að umhverfi þess. Og vonandi verður siglt framhjá ógæfunni, hvað sem
„róttækum umhverfisverndarmönnum" líður. En dæmi þessi sýna
lengra inn í tvískinnung vinstri sinnaðra „umhverfisverndarmanna" en
flest annað.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins gerði ályktun um umhverfisvernd-
armál og er ekki unnt að tíunda hana alla hér. Þar er m.a. lögð áherzla á,
að aukin verði fræðsla í skólum um umhverfi í þéttbýli og dreifbýli.
í umhverfisályktun Sjálfstæðisflokksins segir m.a.:
„Að leggja beri aukna áherzlu á að bæta umhverfi fólks bæði í þéttbýli
og dreifbýli, jafnt innan dyra sem utan, jafnframt því að stuðlað verði
að menningarlegri nýmótun umhverfis. Öllum aldurshópum og fólki
með sérþarfir sé gert kleift að njóta umhverfisins og fara um opinberar
byggingar. Sérstök áherzla sé lögð á möguleika fólks á öllum aldri til
fjölbreytilegrar útivistar, félagsstarfsemi og skoðanaskipta á byggða-
svæðum, jafnframt því að möguleikar til almennrar útivistar utan
byggðasvæða séu efldir. I þessu sambandi sé fullt tillit tekið til
séríslenzkra aðstæðna. Að stuðla skuli sérstaklega að bættu umhverfi
fólks á vinnustað, og að hreyfihömluðum sé gert kleift að sækja vinnu
sem víðast".
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
hf. Arvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 200 kr.
eintakiö.
Menningarmál
■VS^URN
MOLSKINNSBUXUR
0G KNIPPLINGAR
Veröbólgan er komin yfir
80%. Dauöakippir fyrrverandi
vinstristjórnar mælast æ sterkar
á veröskjálftamælum hagstof-
unnar. Langt er þó frá því aö öll
kurl séu komin til grafar. En
verkalýðsforystan hefur ekki
sýnilegar áhyggjur, þótt hvert
barn viti, aö dýrtíöin leggst meö
ofurþunga á þá sem þeir eiga aö
vera umboðsmenn fyrir. En
þessum köppum er nær skinnið
en skyrtan og í hold þeirra
margra er greypt flokksskírteini
Alþýöubandalagsins, en skjól-
stæðingarnir, sem hafa ekki
annan rétt en aö greiöa félags-
gjöldin sín, leggja þeim til skyrt-
una. Þaö er einstætt hve for-
sprökkum vinstriflokkanna,
einkum þó kommúnistum, er
lagiö aö laga til hugtök eftir
hentugleikum. Þaö sem þeir
lagfæra stööu íslenzks iönaöar.
Og alltaf mæta forsprakkar
kommúnista í verkalýöshreyf-
ingunni samkvæmt pöntun í
vitnastúkuna. Þeir vita hvaöan
hugtakasniö foringja þeirra eru
fengin. Þau koma úr sniöasafni
þeirra klæðskera sem geröu
nýju fötin keisarans á sínum
tíma.
Enginn hefur gleymt hinni
frækilegu för Guömundar jaka í
pylsuvagninn eftir kjaraskerö-
inguna í desember 1978. Þá
fékk hann sér eina meö hráum
og steiktum, félagslegum um-
bótum og remúlaði og glotti út í
annaö. Umbjóöendur hans
glottu hins vegar ekki, þegar
Jakinn gleypti félagsmálapakk-
ann frá vinstristjórninni hráan,
enda hafa þeir ekki séö þann
Og Guðmundur er þó ekki alveg
einn viö hagsmunagæzluna. Á
aðra hönd er þrautreyndur
menntaskólaverkamaöur og á
hina er sérstakur fulltrúi kvenna
í Alþýðubandalaginu, Ólafur
Ragnar Grímsson. Ólafur hefur
alltaf kunnaö aö laga sig aö
hlutverkum sínum. Meöan hann
var í Framsóknarflokknum gekk
hann jafnan í brotlausum fötum
í sauöalitunum. Úr þeim fötum
fór hann um leiö og flokknum.
Gekk þá í Glaumbæjarhreyfing-
una og var um þær mundir í
litsterkri skyrtu meö blúndum
og kniplingum. Baldur fóstbróö-
ir hans Óskarsson var líka á
fullu í hreyfingunni og ekki
vantaöi hann kniplingana. Svo
fóru þeir í Samtökin og gengu
eftir þaö jafnan í köflóttu. Nú
eru þeir komnir í Alþýöubanda-
kalla vísitölufölsun hjá öörum,
heitir félagsmálapakki hjá þeim.
Það sem héti stórkostlegt kjara-
rán hjá öörum heitir gagnkvæm-
ur skilningur verkalýöshreyf-
ingarinnar og vinsamlegs ríkis-
valds hjá þeim. Um 15% geng-
issig hjá öörum, heitir gengis-
hrun til aö hygla stórgróöa-
mönnum. en 50% gengissig hjá
þeim, heitir gengisaðlögun til aö
pakka síöan. Guðmundur mun
enn vera aö melta hann.
Og nú fær hann loks aö fara á
þing í sérstöku verkalýössæti
flokksins, 2. sætinu í Reykjavík.
Alþýöubandalagiö hefur þaö
nefnilega þannig, aö 14. hvert
þingsæti flokksins er ætlað
verkalýðsforingja af því aö þetta
er svo mikill verkalýösflokkur.
lagið og Ólafur í molskinnsbux-
ur og þegar mikiö liggur viö
gallabuxur. Baldur er feti framar
og jafnan í gallabuxnasamfest-
ing. Því er ekki aö leyna aö
menn bíöa spenntir eftir hverju
Ólafur muni klæöast í flokka-
kynningu Alþýöubandalagsins,
þegar hann kemur fram sem
sérstakur fulltrúi í kvennasætinu
á listanum í Reykjavík.