Morgunblaðið - 20.11.1979, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
45
þurrk, þá hlýtur segldúkur að gera
það líka! Kannski heldur SF að hr.
Búkofski hafi orðið á mismæli og
ætlað að segja að sjúklingarnir
hafi verið vafðir pappírsræmum
til að kvelja þá. Ekki hækkar
hagur Strympu við það. Ég hef
unnið við segldúk og kaðla og línur
úr sama efni í áratugi bæði á sjó
og landi og þarf ekki fræðslu SF
um eðli þeirra í vætu og þurrki.
Segldúkur slaknar við þurrk
hversu mjög sem SF geipar. Það
er eins og segir í gömlu vísunni:
Margur rakki að mána gó,
mest þegar skein í heiði,
en ég vissi hann aldrei þó
aftra sínu skeiði.
Ef SF vill ekki trúa mér vil ég
ráðleggja honum að spyrja ein-
hvern gamalreyndan sjómann, þá
fær hann fræðslu, sem hann hefur
fulla þörf fyrir. Yngri sjómenn
vita kannski minna um þetta, því
nú eru notuð gerviefni, sem ekki
breytast við vætu.
Ég vil um leið benda á aðra
firru hr. Búkovskis. Hann segir að
sumar þjóðir Mið-Asíu hafi „verið
sviptar stafrófi sínu og þar með
ritmáli sínu“. Þessar þjóðir hættu
að nota arabískt letur en tóku upp
kyrilliskt letur í staðinn. Það er
fjarstæða að halda því fram að
ritmál glatist þótt skipt sé um
letur. Ég skal nefna tvö nærtæk
dæmi. Árið 1928 lögðu Tyrkir
niður arabískt letur en tóku í
staðinn latínuletur. Tyrkneskt rit-
mál og bókmenntir hafa aldrei
blómstrað eins og síðustu fimmtíu
árin, m.a. vegna þess að arabískt
letur féll illa að tyrknesku máli. í
tyrknesku eru átta sérhljóð, en í
arabísku letri eru aðeins fjögur
sérhljóðatákn. Mál þessara Mið-
Asíuþjóða í Sovétríkjunum eru
einmitt skyld tyrknesku.
Við íslendingar notuðum gotn-
eskt letur fyrir einni öld eða svo.
Við tókum upp latínuletur. Eigum
við þá ekkert ritmál? Við eigum
nóbelskáld og allar bækur þess eru
prentaðar með latínuletri.
R.Þ.
Þessir hringdu . .
• Megas og
barnaárið
Kona úr Kópavogi hringdi:
Mig langar til að leggja nokk-
ur orð í belg varðandi þær umræð-
ur sem orðið hafa um Megas að
undanförnu. Ég hef ekkert út á
söng hans að setja, mef finnst í
rauninni gaman að hlusta á hann
syngja. En hitt verð ég að segja að
mér fannst framkoma hans í
sjónvarpinu ákaflega leiðinleg og
varð ég fyrir miklum vonbrigðum.
Þá langar mig til að ræða örlítið
um barnaárið sem nú er senn á
enda. Það hefði átt að vera meira
um gerðir á því ári en minna um
hróp og köll í fjölmiðlum. Al-
menningur þarf að breyta hegðun
sinni gagnvart börnum. Maður
heyrir allt of oft „Snáfaðu út,“
eins og það sé ekki rúm fyrir
börnin í heimi fullorðna fólksins.
Fólk talar ekki við börn og
unglinga í dag eins og þau séu
mannverur. Það er þessu sjónar-
miði sem þarf að breyta."
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Sofia í
Búlgaríu í ár kom þessi staða upp
í skák þeirra Ioakimidesar,
Grikklandi, og búlgarska stór-
meistarans Padevskys, sem hafði
svart og átti leik.
27.... e5!, 28. Dxe5 - d2, 29. Hdl
— He8, 30. Dc3 (Eina vörnin gegn
30. ... Hel+) Bxf4, 31. gxf4 —
Dg6+, 32. Kfl — De4, og hvítur
gafst upp. Svartur hótar 33.
... Dhl mát og svarið við 33. Kgl
yrði 33. ... Del+. Tékkneski stór-
meistarinn Plachetka sigraði á
mótinu, hann hlaut 10 v. af 13
mögulegum. Næstur kom Ung-
verjinn Hazai með 9*A v.
• Hreinsun gatna
Eldri kona hringdi til Vel-
vakanda og vildi láta kvarta yfir
því hversu illa er staðið að hreins-
un gatna hér í Reykjavík.
„Sl. sunnudag var svo að segja
ófært fyrir eldra fólk að ætla sér
út fyrir dyr. Ég sá út um gluggann
hjá mér að yngra fólk átti í
erfiðleikum með að fóta sig. Mér
finnst það vera fyrir neðan allar
heliur að gera ekki eitthvað til
þess að auðvelda fólki að komast
leiðar sinnar. Þar sem ég bý,
nálægt miðbænum, virðist ekkert
hafa verið gert til að hreinsa
gangstéttirnar síðan snjórinn kom
fyrst í haust. Skyldi ekki þurfa að
bæta hér um betur?"
HÖGNI HREKKVlSI
INNFLYTJENDUR
SPÁNN — PORTÚGAL
Skeiösfoss mun lesta vörur til íslands í Bilbao
þann 28. nóvember n.k.
Vinsamlegast hafið samband við umboðsaðila
okkar í Bilbao, Centramares SL Espartero 9,5° og
6°, telex 32015, sími 4458600 eöa flutningadeild
okkar sem gefa allar nánari upplýsingar.
EIMSKIP
Sími 27100
Norskt prjónagarn
• Mjúkt babygarn
• Hlýtt peysugarn
• Fjölbreytt
litaúrval
Allt í jólaföndur
Glæsílegt úrval af
rósamáluðum
gjafavörum.
Baitkastrstí
Síml 2 9122
A6ahtrætí4
Símil5005