Morgunblaðið - 20.11.1979, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
47
HARMLEIKUR — Á heimsmeistarakeppni í bátaralli í Mexíkó misstu stjórnendur
eins bátsins stjórn á honum með þeim afleiðingum, að hann kastaðist á land upp og
lenti á áhorfendunum. Sjá má hvar einn áhorfenda kastast undan bátnum. Tveir
biðu bana og sex slösuðust.
16 Pólverjar hafa verið
handteknir í Svíþjóð
Stokkhólmi, 19. nóv. — AP. Reuter.
SÆNSKA lögreglan hefur
handtekið fleiri Pólverja
til viðbótar þeim sem
handteknir voru í síðustu
viku að því er lögregluyf-
irvöld skýrðu frá í Stokk-
hólmi í dag. Fyrstu hand-
tökurnar fóru fram í
síðustu viku þegar leyni-
lögreglan handtók átta
unga Pólverja í M-Svíþjóð.
Þeir fóru um svæði þar
sem sænskar herstöðvar
eru og í fórum þeirra
fundust uppdrættir af
herstöðvum.
Til viðbótar þeim handtók lög-
reglan þrjá Pólverja í N-Svíþjóð
og uppdrættir fundust í húsi
þeirra. Handtökurnar um helgina
fóru fram í S-Svíþjóð. Allir Pól-
verjarnir hafa neitað að vera
njósnarar. Segjast vera ferða-
menn og selja myndir. „Uppdrætt-
irnir sem hafa fundist í fórum
þeirra geta ekki verið skýrðir út
frá viðskiptalegu sjónarmiði,“
sagði talsmaður lögreglunnar í
Stokkhólmi í dag.
Sjö þeirra sem hafa verið hand-
teknir síðustu daga hefur verið
sleppt úr haldi og þeir eru nú
farnir til Póllands. Enn eru átta í
haldi og sænskur ríkisborgari,
fæddur í Póllandi. Allir eru grun-
aðir um njósnir. Umfangsmikil
rannsókn fer nú fram í njósnamáli
þessu.
Sprengdu strætísvagna
en strandhöggið mistókst
Tel Aviv, 19. nóv. — AP.
PALESTÍNSKIR skæruliðar
komu fyrir sprengjum í tveimur
strætisvögnum í Jerúsalem í dag
og reyndu að gera strandhögg
nyrzt í ísrael, sem mistókst. Við
sprengingarnar í strætisvögnun-
um særðust 12 manns, en enginn
alvarlega, að sögn yfirvalda.
Sprengjurnar sprungu í stræt-
isvögnunum í Jerúsalem nokkr-
um klukkustundum áður en
Anwar Sadat forseti Egyptalands
minntist þess á Sinai-fjalli að tvö
áru voru í dag liðin frá þvi hann
fór sína sögulegu íerð til ísraels
tii að friðmælast við ísraela.
Talið er að skæruliðarnir hafi
með árásum sinum viljað leggja
áherzlu á andstöðu sína við það
tveggja ára friðarstarf, sem fram
hefur farið frá þeim degi.
Það var fyrir birtingu í morgun
að ísraelskur varðbátur í eftirlits-
ferð kom að fjórum Palestínu-
skæruliðum í gúmbáti út af norð-
urströnd Israels, skammt sunnan
landamæra Líbanons. Skærulið-
arnir hfou skothríð á varðbátinn
með sprengjuvörpum, og svöruðu
bátsverjar með skothríð, sem
sökkti gúmbátnum. Tveir skæru-
liðanna drukknuðu, en tveimur
var bjargað úr sjónum. Voru þeir
Þota með geislavirk
efni hrapaði í Utah
Ábatasöm
„þrælasala44
Austur-Berlín, 19. nóv. — Reuter.
í TILEFNI 30 ára afmælis „al-
þýðulýðveldis“ í Austur-Þýzka-
landi i fyrra mánuði, ákváðu
yfirvöld þar í landi að náða
20—25 þúsund fanga, og skyldu
þeir látnir lausir fyrir miðjan
desember n.k. Þótt undarlegt
megi virðast urðu mörg hundruð
fanga fyrir miklum vonbrigðum
þegar þeir fréttu af náðuninni.
En þeir höfðu gert sér vonir um
að vera „keyptir" til Vestur-
Þýzkalands. Samfara náðuninni
tilkynntu austur-þýzk yfirvöld
hins vegar að föngum yrði ekki
lengur sleppt úr haldi gegn
greiðslum frá Vestur-Þýzkalandi,
eins og viðgengizt hefur undan-
farin 16 ár.
Ráðamenn í Vestur-Þýzkalandi
hafa skýrt frá því, að frá árinu
1963 haíi þarlend yfirvöld greitt
rúman milljarð v-þýzkra marka
(eða rúmlega 220 milljarða
króna) fyrir 16.400 pólitíska
fanga frá Austur-Þýzkalandi. Á
fjárlögum þessa árs var 91 millj-
ón marka (um 20 milljarðar
króna) til ráðstöfunar í þessu
skyni, og hefur um helmingur
upphæðarinnar þegar verið
greiddur fyrir frelsi 700 fanga
frá Austur-Þýzkalandi.
Nú á þessum viðskiptum að vera
17 og 25 ára. I apríl í ár gerðu
palestínskir skæruliðar strand-
högg á svipuðum slóðum og bátur-
inn fannst nú. í þeirri árás féllu
fjórir ísraelar.
Strætisvagnasprengjurnar í
Jerúsalem sprungu með stundar-
fjórðungs millibili. í fyrra skiptið
hafði farþegi einn komið auga á
sprengjuna. Skipaði þá ökumaður-
inn öllum farþegum að fara út úr
bílnum, og reyndi síðan að aka út
á óbyggt svæði. En sprengjan
sprakk áður en þangað kom, og
særðust vagnstjórinn, tveir lög-
reglumenn og einn vegfarandi.
Síðari sprengingin varð þegar
strætisvagninn var á ferð um
íbúðarsvæði, og særðust þar átta,
þar á meðal tvö börn.
Þetta gerðist
Veður
víða um heim
Akureyri -2 alskýjað
Amsterdam 7 rigning
Aþena 21 heiöskírt
Barceiona 17 heióskírt
Berlín 4 skýjaö
BrUssel 9 rigníng
Chicago 21 skýjaö
Feneyjar 10 rigning
Frankfurt 1 slydda
Genf 8 mistur
Helsinki S skýjaó
Jerúsalem 26 heiöskírt
Jóhannesarborg 23 skýjað
Kaupmannahöfn 5 skýjaó
Las Palmas 21 skýjaö
Lissabon 19 heiöskírt
London 11 heiöskírt
Los Angeles 21 heiöskírt
Madríd 18 heiðskirt
Malaga 21 heiðskírt
Mallorca 21 léttskýjaó
Miami 24 skýjað
Moskva 3 skýjaö
New York 17 heiöskírt
Ósló 4 rigning
París 10 skýjaö
Reykjavík 4 rigning
Rio de Janeiro 33 heiöskýrt
Rómaborg 11 skýjað
Stokkhólmur 5 skýjaó
Tel Aviv 34 heióskírt
Tókýó 15 skýjað
Vancouver 6 skýjaö
Vínarborg 6 rigning
lokið, að því er sagt er vegna
mikillar gagnrýni utan að frá á
austur-þýzk yfirvöld, til dæmis á
fundi Mannréttindanefndar SÞ,
þar sem fulltrúi Bretlands ásakaði
Austur-Þjóðverja fyrir að stunda
„20. aldar þrælasölu". Þessi
„þrælasala" hefur gengið þannig
fyrir sig, að samið hefur verið um
verðið á hverjum einstaklingi.
Algengasta verð er á bilinu 20—40
þúsund mörk (4'/2— 9 milljónir
króna), en í einstökum tilvikum
hefur það farið upp í 120 þúsund
mörk (26,7 milljónir kr.). Ekki
hefur upphæðin verið greidd í
peningum, heldur í úttekt hjá
vestur-þýzkum fyrirtækjum.
Þótt tilkynnt hafi verið að ekki
verði framar um þessi viðskipti að
ræða, eru margir á þeirri skoðun
að við þá tilkynningu verði ekki
staðið. Bent er á að með greiðslum
fyrir fanga hafi Austur-Þjóðverj-
ar átt greiðan aðgang að vestur-
þýzkri tækniþekkingu og varningi,
sem ófáanlegur er frá Sovétríkj-
unum. Bæði í Bonn og Austur-
Berlín eru uppi raddir um að
yfirvöld séu nú að velta fyrir sér
nýjum leiðum til áframhaldandi
viðskipta á þessu sviði. Líklegasta
lausnin er talin sú að ákveðin
verði einhver föst, árleg greiðsla
frá Vestur-Þýzkalandi, gegn því
að ákveðinn fjöldi Austur-Þjóð-
verja fái að flytjast árlega frá
Austur-Þýzkalandi.
Geðveill
hermaður
með skotæði
Ilannut. Belgiu. 19. nóvember. AP.
BELGÍSKUR atvinnuhermaður,
25 ára að aldri, sem var í leyfi frá
geðsjúkrahúsi hersins í Ant-
werpen, hóf skothríð á áhorfend-
ur að víðavangshlaupi við bæinn
Hannut á sunnudag og varð
tveimur konum að bana. en særði
12 áhorfendur aðra.
Að sögn sjónarvotta kom her-
maðurinn, Odon Renard, sér fyrir
bak við girðingu við hlaupabraut-
ina. Var hann með tvo riffla og
hóf fyrirvaralaust skothríð á um
1.000 manna áhorfendahóp. Talið
er að Renard hafi skotið um 50
skotum á mannfjöldann og varð
ekki yfirbugaður fyrr en hann
hafði tæmt skotfærabirgðir sínar.
Konurnar sem létust voru 16 og
24 ára.
Renard hefur um skeið átt við
geðvandamál að stríða og verið til
lækningar í geðsjúkrahúsi hers-
ins, en honum var veitt heimfar-
arleyfi yfir helgina til að heim-
sækja ættingja sína í Hannut.
20. nóvember
19. nóvembor.— AP.
FLUTNINGAVÉL, sem hafði inn-
anborðs geislavirk efni, hrapaði
til jarðar skammt frá Salt Lake
City i Bandaríkjunum i dag.
Þotan sprakk i loft upp aðeins
þremur mínútum eftir flugtak.
Með þotunni voru þrir menn og
fórust þeir allir. Sjónarvottur
likti þotunni við glóandi eldhnött
þar sem hún féll til jarðar. I
þotunni voru geislavirk efni
ásamt sprengiefni, sem þotan var
að flytja fyrir handaríska herinn.
Heilbrigðisyfirvöld í Utah
sögðu, að sáralítil hætta stafaði af
geislavirka efninu þar sem geisla-
virkni þess væri mjög lítil. Engin
geislavirkni mældist á svæðinu
þar sem þotan hrapaði til jarðar.
1977 — Anwar Sadat ávarpar
Israelsþing og býður frið.
1970 — Aðild Kína að Sþ fær
hreinan en ekki tilskilinn meiri-
hluta.
1959 — EFTA stofnað.
1947 — Brúðkaup Elísabetar
Bretaprinsessu (Elísabetar
drottningar II).
1945 — Stríðsglæparéttarhöldin í
Nurnberg hefjast — Bandamenn
samþykkja flutninga sex milljóna
Þjóðverja til V-Þýzkalands frá
Austurríki, Ungverjalandi og Pól-
landi.
1924— Uppreisn Kúrda í Tyrk-
landi bæld niður.
1917 — Orrustan við Cambrai —
Lýst yfir stofnun lýðveldis í Úkra-
ínu.
1873 — Búda og Pest sameinuð og
verða höfuðborg Ungverjalands —
Króatar fá sjálfstjórn.
1870 — Þjóðverjar umkringja
París.
1780 — Bretar segja Hollending-
um stríð á hendur.
1759 — Sjóorrustan á Quiberon-
flóa: Sigur Breta á Frökkum.
1720 — Tordenskjöld aðmíráll
fellur í einvígi við Staél von
Holstein.
1719 — Stokkhólmsfriður
Svíþjóðar og Hannovers sem fær
Bremen.
1656 — Svíar láta Austur-
Prússland af hendi við Branden-
borgara.
1616 — Richelieu kardináli verður
utanríkis- og hermálaráðherra
Frakka.
1449 — Kristján af Aldinborg
krýndur konungur Dana.
Afmæli. Voltaire, franskur heim-
spekingur (1694—1778) — Sir
Wilfrid Laurier, kanadískur
stjórnmálaleiðtogi (1841—1919) —
Selma Lagerlöf, sænsk skáldkona
(1858—1940) — Robert Kennedy,
bandarískur stjórnmálaleiðtogi
(1925—1968) — Gene Tierney,
bandarísk leikkona (1920—).
Andlát. Sir Christopher Hatton,
stjórnmálaleiðtogi, 1591 — Leo
Tolstoy greifi, rithöfundur, 1910
— Jellicoe lávarður, sjóliðsforingi
1935 — Maud Noregsdrottning
1938.
Innlent. Viðreisnarstjórn Ólafs
Thors skipuð 1959 — Karl Knúts-
son Bóndi krýndur konungur Nor-
egs í Þrándheimi 1449 — Hólabar-
dagi (ósigur Björns Jórsalafara)
1393 — Vígð Hóladómkirkja 1763
— d. Sigurður Vigfússon Islands-
tröll 1752 — Jón Bjarnason í
Þórormstungu 1861 — Líkneski
Þorfinns Karlsefnis afhjúpað í
Fíladelfíu 1920 — Samkomulag
við Vestur-Þjóðverja í Bonn 1975.
Orð dagsins. Hann var rithöfund-
ur, sem var svo lítið þekktur, að
rit hans voru nánast trúnaðarmál
— Stanley Walker (bandarískur
blaðamaður (1898—1962).
KGB herðir tökin
Toronto, 19. nóv. — AP.
SOVÉSKA leyniþjónustan KGB
hefur hafið herferð á hendur
andófsmönnum til að koma í
veg fyrir að þeir geti haft
samband við Vesturlandabúa
þegar Ólympíuleikarnir fara
fram i Sovétrikjunum á næsta
ári, að því er Raisa Moroz, kona
andófsmannsins Valentyn Mor-
oz, sagði í viðtali við tímarit í
Toronto. Morozhjónin eru á
þingi úkrainskra útlaga.
Þau komu til New York í
ágúst siðastliðnum i skiptum
fyrir tvo sovéska njósnara. Hún
hafði dvalið i sovéskum fangels-
um, vinnubúðum og geðveikra-
hælum i 13 ár.