Morgunblaðið - 20.11.1979, Síða 48
ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1979
Vestmannaeyjar:
Stærstu fiskviraisluhúsin
sameinast um togarafélag
Fiskimjölsverksmiðjan keypti frystihúsið Eyjaberg
ÞRJÍI stærstu frystihúsin í Vestmanna-
eyjum og Fiskimjölsverksmiðjan h.f. hafa
sameinast um rekstur togaraflota Eyja-
manna, Breka, Klakks og Sindra. Fram-
kvæmdastjóri togarafélagsins hefur ver-
ið ráðinn Gísli Jónasson skipstjóri og
Útgerðarfyrirtækið
Klakkur átti áður Klakk og
Fiskimjölsverksmiðjan átti
Breka og Sindra. Fjórði
skuttogarinn i Eyjum er
Vestmannaey.
Fyrirtækin sem hafa
sameinast um rekstur tog-
tekur hann við starfi 1. jan. n.k. Þá hefur
Fiskimjölsverksmiðjan h.f. keypt frysti-
húsið Eyjaberg af Sigurði Þórðarsyni og
verður það rekið sjálfstætt á vegum
Fiskimjölsverksmiðjunnar undir stjórn
Þorsteins Sigurðss.og HaraldsGíslasonar.
Bjarni Sighvatsson og Sig-
urður Óskarsson. Að sögn
Haralds er markmið tog-
arafélagsins að stuðla að
jafnri öflun hráefnis til
vinnslu fyrir frystihúsin og
halda áfram uppbyggingu
togaraflotans í Eyjum.
aranna þriggja eru Fiskiðj-
an, ísfélag Vestmannaeyja,
Vinnslustöðin og Fiski-
mjölsverksmiðjan. Stjórn-
arformaður togarafél-
agsins er Haraldur Gísla-
son en aðrir í stjórn
eru Eyjólfur Martinsson,
Rangárvallasýsla:
Alþýðubandalagsmenn
segja sig úr flokknum
Á VINNUSTAÐAFUNDI
um borð í Herjólfi í
gærmorgun á leið frá
Vestmannaeyjum til
Þorlákshafnar ræddu
frambjóðendur sjálfstæð-
ismanna og alþýðubanda-
lagsins málin við skip-
verja. Baldur Óskarsson
frambjóðandi Alþýðu-
bandalagsins var m.a.
spurður að því af einum
skipverjanna hvort úr-
sögn Snorra Sigfinnsson-
ar fyrrverandi kjördæm-
isráðsformanns Alþýðu-
bandalagsins á Suður-
landi, úr Alþýðubanda-
laginu hefði ekki áhrif á
fylgi flokksins í kjör-
dæminu. Baldur svaraði
því svo að þetta væri nú
ekki það eina, því nokkr-
ir alþýðubandalagsmenn
í Rangárvallasýslu hefðu
sagt sig úr Alþýðubanda-
laginu til þess að mót-
mæla röðun á lista
flokksins í kjördæminu.
Háhyrningar fyrir 129
milljónir kr. til Japans
SJÖTTI og síðasti háhyrningurinn á þessari vertíð fékkst á
sunnudaginn og var komið með hann í laugina í Sædýrasafninu í
Hafnarfirði í gær. Dýrin verða fljótlega flutt til Japans, jafnvel um
næstu helgi. Hvert dýr er selt á um 21,5 milljónir króna, þannig að
söluverð allra dýranna er um 129 milljónir króna. Sigurgeir Jónasson
ljósmyndari frá Vestmanneyjum tók meðfylgjandi mynd á dögunum
er háhyrningaveiðimenn á Guðrúnu GK fengu 7 háhyrninga og 2
höfrunga í nótina. Aðeins einn háhyrninganna náðist, en frá því
segir nánar í máli og myndum á blaðsíðu 29.
Islenzkir lækn-
ar til aðstoðar
Kambódíubúum
RAUÐI kross íslands hefur
ákveðið að senda tvo lækna og
einn hjúkrunarfræðing til
Thailands til þess að aðstoða
Kambódíufólk í flóttamanna-
búðum. Fram til þessa hefur
verið erfitt fyrir Rauða kross-
inn að koma til hjálpar af
ýmsum ástæðum en á stuttum
tíma hafa nú um 380 þús.
Kambódíumenn flúið til Thai-
lands og munu þeir fyrst um
sinn verða í einum flótta-
mannabúðum sem verið er að
koma upp langt innan landa-
mæranna. Alþjóða Rauði
krossinn er nú að safna liði
lækna og hjúkrunarfræðinga
og mun Sigurður S. Sigurðsson
læknir fara innan skamms auk
Hildar Nielsen hjúkrunarfræð-
ings, en óráðið er hver hinn
læknirinn verður. Hafa nokkrir
kynnt sér málið.
Fiskvinnslan:
67% VEXTIR AF
AFURÐALÁNUM
SAMBAND fiskvinnslustöðva hefur farið fram á, að endurskoðun á vaxtakjörum
fiskvinnslunnar fari þegar fram og að stjórnvöld standi við fyrirheit um að bæta
afkomu fiskvinnslunnar um sem nemur 2% af tekjum. í byrjun þessa árs var
vaxtakjörum endurkeyptra afurðalána breytt þannig, að vextir voru lækkaðir úr
rúmlega 18% í 8,5%, jafnframt því sem lánin voru bundin gengi Bandarikjadollars.
Með þessari ráðstöfun
var stefnt að því að bæta
afkomu fiskvinnslunnar
um 2%, en reynslan hefur
orðið allt önnur. Fyrstu níu
mánuði þessa árs var geng-
issigið að meðaltali 2% á
mánuði, en að mati fisk-
vinnslunnar þýðir það, að
raunverulegir ársvextir
hafa verið um 33%. Yfir
sumarmánuðina var geng-
issigið þó enn meira og að
mati Seðlabankans jafn-
giltu vextir og gengis-
ákvæði tímabilið júní—
ágúst rúmlega 67% árs-
vöxtum.
Stuttu áður en þessi
vaxtabreyting kom til
framkvæmda, var af hálfu
fiskvinnslunnar unnið að
útreikningum á áhrifum
þess fyrirkomulags, sem
síðan var tekið upp. Niður-
stöður bentu til þess, að
ekki yrði um þann aftur-
bata að ræða, sem stjórn-
völd höfðu haldið fram. Var
því farið fram á frestun
málsins þar til frekari at-
huganir hefðu verið gerðar.
Ekki var orðið við þessari
ósk, þrátt fyrir að ýmis
framkvæmdaatriði væru
enn óljós og tók vaxta-
breytingin gildi 10. janúar
á þessu ári.