Morgunblaðið - 13.01.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1980
Þrenn hjón heiðr-
uð í Hveragerði
Hveragerði, 11. jan.
UM þessar mundir eru þrír embættismenn að hætta
störfum hér í Hveragerði vegna aldurs, eftir áratuga
farsæl störf, þeir Stefán hreppstjóri, Magnús læknir og
Tryggvi bankastjóri, eins og þeir eru nefndir í daglegu
tali.
Stefán Guðmundsson bygg-
ingameistari og frú Elín Guðjóns-
dóttir kona hans fluttu hingað
árið 1934 þegar staðurinn var að
byrja að byggjast upp. Hann hefur
verið hér hreppstjóri frá 1948 til
1979 eða alls í 31 ár.
Magnús Ágústsson læknir flutti
hingað 14. janúar 1950 ásamt
eiginkonu sinni, frú Magneu Jó-
„Hvað sögðu engl-
arnir?“ í Þjóðleik-
húskjallaranum
LEIKRIT Nínu Bjarkar Árna-
dóttur, HVAÐ SÖGÐU ENGL-
ARNIR?, er nú sýnt á Litla
sviðinu í Þjóðleikhúskjallaran-
um. Leikritið var frumsýnt í
október síðast liðnum og er í
leikstjórn Stefáns Baldursson-
ar og leikmynd Þórunnar Sig-
ríðar Þorgrímsdóttur, nýstár-
leg athugun á tvöföldu siðgæði
okkar þjóðfélags.
í leiknum segir frá Steini og
Brynju, ungum elskendum sem
fortíðin og kringumstæðurnar í
samfélaginu meina að eigast.
Við sjáum atvik úr fortíð Steins
í draumkenndum myndum og
fáum hugboð um hrikalegt og
ómanneskjulegt misrétti. Sig-
urður Sigurjónsson og Tinna
Guðlaugsdóttir fara með hlut-
verk Steins og Brynju. Önnur
hlutverk leika Bríet Héðinsdótt-
ir, Helga Bachmann, Bessi
Bjarnason, Helgi Skúlason, Sig-
ríður Þorvaldsdóttir, Helga
Jónsdóttir, Þórhallur Sigurðsson
og Arnar Jónsson.
Næsta sýning á HVAÐ
SÖGÐU ENGLARNIR? er mið-
vikudaginn 16. janúar n.k.
(Fréttatilkynning).
hannesdóttur. Hann hefur verið
læknir okkar í 30 ár, þar af
héraðslæknir Hveragerðis og Ölf-
uss í .25 ár.
Tryggvi Pétursson bankastjóri
Búnaðarbankans lætur af störfum
1. febrúar n.k. Hann kom hingað
þegar Búnaðarbankinn opnaði hér
útibú 11. ágúst 1967. Eiginkona
Tryggva er frú Guðrún Jónasdótt-
ir.
Vinir og kunningjar þessara
ágætu hjóna vildu sýna þeim
þakklætisvott fyrir störf þeirra
hér í Hveragerði og halda þeim
samsæti laugardaginn 19. janúar
n.k. klukkan 20.30 í Hótel Hvera-
gerði. Þátttöku má tilkynna þang-
að fyrir 16. janúar eða til Ingólfs
Pálssonar og Hafsteins Kristins-
sonar.
—Sigrún.
KVENNADEILD Reykjavíkur-
deildar Rauða krossins afhenti
milli jóla og nýárs Borgarspitalan-
um bækur að gjöf fyrir sjúklinga-
bókasafn spitalans að verðmæti
ellefu hundruð þúsund krónur.
Á s.l. ári færði deildin spítalanum
ennfremur segulbandstæki og fé til
kaupa á hljóðbókum ásamt ýmsu
fleira, segir í frétt frá Borgarspítal-
anum, þar sem komið er á framfæri
sérstakri þökk til Rauða kross
kvenna.
___________________3_
Árni Berg-
mann segir
lausu rit-
stjórastarfi
„ÉG hef sagt lausu starfi mínu
sem ritstjóri Þjóðviljans, en hef
einnig látið í ljós óskir um að fá
að vinna áfram við blaðið á
afmarkaðra verksviði,en almenn
ritstjórn er,“ sagði Árni Berg-
mann ritstjóri Þjóðviljans í sam-
tali við Mbl. í gær. „Ég hef dálitið
gaman af að skrifa, en er á móti
mannaforráðum og þess vegna
kýs ég nú þessa breytingu.“
Mbl. spurði Kjartan Ólafsson
formann útgáfufélags Þjóðviljans,
hvort búið væri að ráða eftirmann
Árna á ritstjórastóli. „Enn sem
komið er hefur bréf Árna aðeins
verið rætt í fimm manna rekstrar-
stjórn Þjóðviljans, en ég reikna
með að það verði fljótlega haldinn
fundur í útgáfufélaginu til að
ræða það,“ sagði Kjartan. Mbl.
spurði Kjartan, hvort ritstjóra-
starfið freistaði hans sjálfs og
sagði hann það ekki vera.
Betra getur það ekki verið!46
segir Politiken um verk Atla Heimis á nýrri hljómplötu
DANSKA blaðið Politiken dirii 27. desember s.l. umsögn tónlistargagn-
rýnanda síns, Jorgen Falcks, um nýja hljómplötu með íslenzkri og
danskri nútimatónlist. Það er Atli Heimir Sveinsson, sem þarna kemur
fram fyrir Islands hönd, en um verk hans egir jorgen Falck m.a.:
„Ekkert er yndislegra en að
ganga inn í nýja veröld, sem er svo
töfrandi að maður verður gagntek-
inn. Slík veröld er tríó íslenzka
tónskáldsins Atla Heimis Sveins-
sonar fyrir píanó, selló og klarí-
nettu. „Plutot blanche qu’azurée"
(Hvítara en himinblátt), sem ný-
komið er út á hljómplötu hjá De
Fynske Musikkonservatorium, leik-
ið af Den fynske Trio.
Á þessari plötu er það hin hvíta
og himinbláa tónlist Atla Heimis
Sveinssonar, sem hlýjar manni
mest um hjartaræturnar. [Önnur
verk á þessari hljómplötu eru eftir
Danina Sven Erik Werner og Karl
Aage Rasmussen]. Danskur sumar-
dagur á Langalandi frá dagrenn-
ingu til sólarlags hefur orðið hon-
um að yrkisefni. Yfir þessari tón-
list er mikil reisn. Hún er dulræn
og leyndardómsfull í grárri morg-
unskímunni og geislandi af lífi og
fjöri í hita sólarinnar. Hvað hún er
klingjandi! „Plutot blanche qu’az-
urée“ hlýtur að vera eitt af því
mest sannfærandi og kraftmesta,
sem nokkru sinni hefur verið samið
fyrir píanó, klarínettu og selló.
Tónlist Atla Heimis Sveinssonar
orkar á hlustandann eins og hlýtt
Atli Heimir Sveinsson
faðmlag, opinberun fegurðar, sem
heldur hlustandanum föstum af
fúsum vilja.
Þegar sólin rís, lætur
maður undan og kemst í hug-
leiðsluástand þar sem líf, friður og
hamingja ráða ríkjum. Tónlist, sem
á sér lífgjafaruppsprettu. Betra
getur það ekki verið!
Um leið er það ánægjulegt að
fylgjast með þátttöku þriggja tón-
listarmanna í slíkri listsköpun og
hér á sér stað. Einmitt ný og
óþekkt tónlist stendur og fellur
gagnvart hlustendunum með því
hvaða hæfileika flytjendurnir hafa
til að túlka hana. Slíkan hæfileika
hafa Rosalind Bevan, Jens Schou
og Svend Winslo.v."
Helga Einarsdóttir t.h. afhendir gjöfina Öddu . Báru Sigfúsdottur
stjórnarformanni spítalans.
Höfðingleg gjöf
Rauða kross-kvenna
___— __ £
' ' •
’Á'ítV-Tv.v!-'
1
mmmá-j-.r ;á aa .■•■M
W. VERÐ KR. 349.800.-
Innifalið: Flugfargjald, flugvallarskattur, gisting og
morgunverður
Wmmm
:í'VÆ :4Ja ll:
éI'í§»Í2éI
Orfa sæti laus 1
í skíðaferð til Lech
. í Austurríki
Brottfor 16. februar — 14 dagar
Gisting á Haus Mallaun, Bergheim og Hotel Elisabeth
Helgar- og ___
kaupstefnuferðir til Kauþmannahafnar
Brottför: 31. janúar — 05. febrúar
22. febrúar — 20. febrúar
13. marz — 18. marz
03. apríl — 08. apríl
08. maí — 11. maí
VERÐ FRA KR. 208.200.-
Innifalið: Flugfargjald, flugvallarskattur,
gisting og morgunveröur.