Morgunblaðið - 29.03.1980, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 29.03.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980 5 Samtök sykursjúkra: Efnt til sumardvalar fyrir böm og unglinga SAMNINGANEFND aðildarfélaga yfirmanna innan Farmanna- og fi.skimannasambandsins (hægra megin) og fulltrúar Vinnuveitenda- sambandsins, Vinnumálasambands samvinnuféiaganna og vinnumála- nefnd rikisins á fundi á fimmtudaginn. Farmannadeilan til sáttasemjara KJARADEILU yfirmanna á kaupskipunum hefur verið vísað til sáttasemjara. Á fundi á fimmtudaginn höfn- uðu vinnuveitendur kröfum yfir- manna um kauphækkanir, en lýstu sig reiðubúna til viðræðna um mönnun skipa og hagræð- ingarmál. Aðilar urðu svo sammála um að vísa deilunni tii sáttasemjara. Athugasemd frá VÖmundi Gylfasyni Ágæti ritstjóri. í viðtali við Halldór Blöndal, alþingismann, sem birtist í Morg- unblaðinu í dag, gætir nokkurs misskilnings varðandi afstöðu mína til heiðurslauna listamanna. Rétt er að við þremenningar óskuðum eftir fundum í mennta- málanefndum beggja deilda til þess að ræða þessi mál í tengslum við fjárlög. Hins vegar höfum við Halldór aðeins rætt þessi mál mjög lauslega. Svolítill misskiln- ingur varð vegna þess að eftir að ráðherradómi mínum lauk fyrir nokkru átti ég að taka sæti í menntamálanefnd en láðst hafði að tilkynna það til skrifstofu þingsins. Ég var því ekki boðaður á fund, sem ég hafði þó sjálfur óskað eftir og mætti hvergi. Afstaða mín til heiðurslauna listamanna, og raunar afstaða þingflokks Alþýðuflokksins í heild, er hins vegar sú, að ekki beri að fjölga í þeim flokki. Með því er ekki verið að gera tilraun til þess að leggja listrænt mat á einstaka listamenn. Það er eingöngu verið að halda fram þeirri skoðun, að enn frekari fjölgun verði til þess að þessi flokkur útþynnist og þessi mál öll endi í hreinum ógöngum. Ég tel réttara að halda sér við postula- töluna — að heiðurslaunaflokkur- inn telji tólf. Ég gæti út af fyrir sig vel fallizt á, ef gengið væri í minn persónulega skrokk, að fyrir utan þennan flokk séu margir listamenn, sem þar ættu heima fremur en aðrir sem þar eru nú. En samt, höldum okkur við post- ulatölun. Þynnum ekki út. Það er átakaminnst. Eins vara ég við því, að farið verði að leggja fyrir Alþingi nöfn einstakra listamanna og þannig neyða alþingismenn til þess að taka afstöðu með atkvæða- Leikfélag Vestmannaeyja: Sýnir Sjóleið- ina til Bagdad LEIKFÉLAG Vestmannaeyja heldur á þessu ári upp á 70 ára afmæli sitt. I tilefni þess verður sýnt leikrit Jökuls Jakobssonar, Sjóleiðin til Bagdad. Verður frumsýningin miðvikudag 2. apríl í Bæjarleik- húsinu í Vestmannaeyjum. Leik- stjóri er Andrés Sigurvinsson. greiðslu, með eða á móti. Svo viðkvæm mál á heldur að leysa í nefndum þingsins. Virðingarfyllst, Vilmundur Gylfason. II SAMTÖK sykursjúkra í Reykjavík munu í sumar efna til nýrrar starfsemi fyrir öll sykursjúk börn á landinu. RáÖ- gert er að efna til viku sumar- dvalar að heimavistarskólanum að Stóru-Tjörn frá 7, —14. júní n.k., en aðstæður þar eru afar hentugar til slikrar starfsemi þar sem bæði er um sundlaug að ræða, góðan iþróttasal og um- hverfi allt hentugt til útivistar og vettvangskannana. Á Norðurlöndum hefur slík starfsemi verið reynd um margra ára bil og hefur reynsl- an sýnt, að mikil þörf er á sliku starfi þar sem sykursjúk börn geta notið slikrar dvalar undir leiðsögn sérfróðra og reyndra manna, sem munu sjá þeim fyrir verkefni, annast kvöldvökur, fylgjast með líðan þeirra og aðstoða þau á allan hátt. Öil slik starfsemi getur hjálp- að þeim við að öðlast félagslegt öryggi. stuðlað að sjálfsþekk- ingu þeirra og aukið þekkingu á sjúkdómnum og hegðun hans. Rétt er að taka það skýrt fram, að öllum sykursjúkum börnum er boðin þátttaka i þessari sumardvöl óháð þvi, hvort þau eða aðstandendur þeirra eru félagar i Samtökum sykursjúkra eða ekki. Kostnaði verður reynt að halda í lág- marki, en nauðsynlegt er, að fólk lati vita hið allra fyrsta hvort það hefur hug á þátttöku og verða allar nánari upplýs- ingar veittar hjá stjórnarmeð- limum. Einn nemandi í unglingadeild Myndlistaskólans i Reykjavík. I.jósm. Emilía. Vorsýning Mynd- listaskólans í Rvík VORSÝNING Myndlistaskólans í Reykjavik hefst i dag i húsakynn- um skólans að Laugavegi 118. Sýningin verður opin alla daga kl. 14—18 til 9. apríl n.k. Um 300 nemendur stunda nú nám við skólann í 19 deildum. Kennarar eru 17 og er Katrín Briem skólastjóri. Verkin sem sýnd verða eru bæði fullunnin og á vinnslustigi, auk þess sem sýnd verða áhöld og hráefni sem notuð eru í skólanum. Verkin eru úr flestum deildum skólans. AFSLÁTTARVERD 1980 • 1980•1980•1980 Viö fáum viðbótarsendingu af MAZDA 323 5 dyra sedan og 5 dyra Station árgerö 1980 á sérstöku afsláttarverði til afgreiöslu um miöjan og endaðan maí. Pantiö strax, því aöeins er um takmarkaö magn aö ræöa. Söludeild opin 10—4 laugardag. BÍLABORG HF. SMIÐSHÖFÐA 23 Akureyrarumboö: Bjarni Sigurjónsson, sími 21861. Sími81299 Leiðrétting Fyrirsögn á frétt um neyðar- húsnæði Félags einstæðra for- eldra misritaðist í blaðinu í gær. Rétt er hún þannig: Neyðarhús- næði Félags einstæðra foreldra: Flutt inn í fyrstu íbúðirnar í vor.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.