Morgunblaðið - 29.03.1980, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 29.03.1980, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980 Það telst harla óvenjulegt hérlendis, að menn taki sig til og hefji samvinnu við gerð mynd- listarverka eins og þeir Arni Páll og Magnús Kjartansson hafa iðkað undanfarið. Afrakst- ur þessarar samvinnu kemur Ari Páll og Magnús Kjartansson. Skúlptúr í Djúpinu flestum á óvart, sem þekkja þessa menn að flestu öðru en keimlíkum vinnubrögðum, og er hann nú til sýnis í Djúpinu, í kjallara veitingastaðarins vin- sæla, Hornsins í Hafnarstræti. Óþarfi mun að minna á það í framtíðinni, því að nafnið er kröftugt og hljómfagurt, auk þess að eftir örfáar sýningar hefur salurinn getið sér orðs sem einn hinn áhugaverðasti og nota- legasti í höfuðborginni. Djúpið skal það heita í framtíðinni og ekkert annað, stutt og laggott... Samvinna myndlistarmanna Myndlist eftir BRAGA ÁSGEIRSSON er ekkert nýtt fyrirbæri og má þess geta hér, að í nokkur ár vann Guðmundur Erró þannig ásamt tveim góðvinum sínum í málarastétt. Þeir höfðu þann háttinn á að víxla hlutum þann- ig, að einn hóf verkið, sá næsti gerði miðhlutann og hinn þriðji lauk við það. Skiptust þeir á um að deila þessum atriðum á milli sín, og vissi enginn hvernig þróunin æxlaðist fyrr en hann fékk sinn hluta til framkvæmd- ar. Erró sagði mér, að þetta hefði verið mjög lærdómsríkt og margt óvænt komið fram, sem allir höfðu óspart gaman af og er hvert verk var fullunnið, var það afhjúpað og um það fjallað bak og fyrir. Slík samvinna um nokk- urt skeið ætti því að vera öllum holl lífsreynsla og þá einkum, ef um mjög ólíka listamenn er að ræða. — Sýning þeirra Árna og Magnúsar er ein sú skemmtileg- asta, er ég hef lengi séð hér í höfuðborginni. Vinnubrögðin fáguð og vönduð, — hvergi kastað til höndum. Ur ólíkleg- ustu hlutum ná félagarnir mjög heillegum samstæðum, og fer hér saman frjótt hugarflug og algert fordómaleysi. Þeir félagarnir hafa sannarlega gengið út frá því sem meginforsendu, að allt getur orðið að list sé efniviðurinn réttlega meðhöndlaður og hug- kvæmnin virkjuð til hins ítrasta. Sýningin er það heilsteypt, að ég finn ekki hjá mér neina hvöt til að geta einstakra verka, þótt að sjálfsögðu séu þau misjöfn að gæðum. Eg læt það vera, að svipuð vinnubrögð hafa verið iðkuð af erlendum listamönnum hér áður fyrr, aðalatriðið er að hugmyndin er snjöll og í alla staði góð og gild. Full ástæða er til að óska þeim félögum til hamingju með fram- takið og hvetja sem flesta til að skoða þessa sérstæðu sýningu. Bragi Ásgeirsson. Fyrir nokkru skoðaði ég sýn- ingu bandarísks listamanns í fallega húsinu á Suðurgötu 7, er Daniei Defrando nefnist. Ég skal fúslega viðurkenna, að mér fannst þetta ein sú furðulegasta sýning, er ég hefi lengi augum litið og þá ekki síst fyrir þá sök, að hvarvetna blasti við mér andhverfa þess, er nefna má virðingu fyrir öguðu handbragði. Ég ber mikla virðingu fyrir dómgreind ungu kynslóðarinnar, er dæmir það, er hún sér, full- komlega fordómalaust og án þess að skólun, fagurfræðileg sjón- armið, tískuskoðanir eða hags- munir komi þar nærri. Ég var með einum slíkum dreng, er ég skoðaði sýninguna, og kom sá Málverk eftir Patricia E. Halley-Celebciqil. Tveir Bandaríkjamenn allur af fjöllum er hann leit vinnubrögðin og spurði mig, hvað þetta ætti að þýða, — hvort slíkt ætti að heita myndlist. Mér varð svarafátt, því að ég var honum öldungis sammála. Ekki auka slík vinnubrögð áhuga almenn- ings á myndlistum, hversu háleit sem þau kunna að teljast og hversu nútímaleg sem þau eiga að sýnast. Hrafnaspark verður ávallt hrafnaspark, hversu gáfu- leg speki, sem að baki liggur, — allt má réttlæta með furðu- legustu tegund heimspeki, en hér þótti mér einum of langt gengið . Gekk ég galtómur burt frá skoð- un þessara verka og hirði ei að tíunda þau á nokkurn haft. Á Mokka-kaffi sýnir um þessar mundir samlandi nefnds Daniels Defrando, en af andstæðu kyni, Patricia E. Halley-Celebciqil að nafni. —Frúin, sem mun kenna myndlist á Keflavíkurflugvelli, málar ljóðrænar stemninga- myndir, ákaflega þokkafullar fyrir augað, en án mikilla til- þrifa, þó að gerðar séu af mikilli einlægni. Þetta varð mér tilefni nokkurra heilabrota þar sem ég kom beint af fyrrnefndri sýn- ingu, og skal ég viðurkenna, að hvað sem allri listheimspeki líður er ég sáttari við myndir Halley vegna augljósrar natni við handverkið, nautnar við myndsköpunina og viðleitni til upplifunar myndefnanna hverju sinni. Ég gef stórum hærri ein- kunn slíkum vinnubrögðum en allri tilgerð í alþjóðlegri hring- rás nýlista, þótt þar heilli mig einnig margt. En einhvers staðar verður einfaldlega að setja mörk- in, og hjartað verður mér ávallt hugstæðara allri viðleitni til „að vera með“ og láta stjórnast af alþjóðlegu spekúlöntum á sviði myndlista, er einskis svífast við að koma sínum skoðunum á framfæri,— frekar en trúarleið- togar er lifa í bílífi sjálfir og eiga vænar fúlgur í bönkumfÁ sama tíma er áhangendunum boðað að hin sanna hamingja felist í meinlætalifnaði og að gefa eigur sínar til guðs. Hatast skal við sína nánustu en gefa og helst selja blíðu sína öllum öðrum, megi það verða til að auka innstæðurnar á himnum íoftast bankareikningar í Sviss)... Lengra verður þetta ekki að sinni, en þessar hugleiðingar mega gjarnan komast að og eiga fyllsta rétt á sér á vettvangi almennrar myndlistarumræðu því að hér gildir það sem annars staðar „að vera eða ekki vera“ ... Bragi Ásgeirsson. Hið ljósa tré Björk heitir tréð en birki er samheiti fyrir það á sama hátt og forðum var talað um grön sem einstakt tré og greni þegar fleiri stóðu saman, eða ölur og elri, bók og beyki og þar fram eftir götunum. Nafn trésins er skylt orðinu bjartur og heitin björk og birki tákna því ljóst tré, og er það síst ofmælt. Bolur trésins er hvítur eða mjög ljós- gulur, laufið ljósgrænt og grein- ar grannar og gisnar. Trén varpa litlum skugga og er því bjart yfir öllu trénu en birkiskógar hafa sérstaka töfra í langdegi sumarsins. Björkin er tré norðurhvelsins og fer hún víða norðar en aðrar trjátegundir og hærra til fjalla. Hún er nægjusöm og kemst af með lítinn sumarhita. Jafnframt getur hún dregið fram lífið á þurrum móum eða hálfdeigum mýrum, og á áreyrum og örfoka melum er hún með allra fyrstu plöntum til að nema land á ný. Vöxtur hennar er samt mjög háður frjósemi jarðvegs, þannig að hann er afar hægur þar sem næringu skortir. I frjóum jarð- vegi vex björkin allhratt eftir að hún er komin á legg, en það tekur hana oft 5—10 ár að komast á skrið, eins og raunar margar aðrar trjátegundir. íslenska birkið er talið til tegundarinnar Betuia pubesc- ens, en pubescens þýðir dún- hærðir, og á þetta einkenni við loðnuna á yngstu sprotunum. Utbreiðsla tegundarinnar tekur yfir feikna flæmi, héðan frá Islandi um norðanverða Evrópu og Asíu langleiðina austur að Kyrrahafi. Þar tekur önnur skyld tegund við og sú þriðja vex yfir þvera Ameríku frá Alaska að Labrador. Þessi tegund, ilmbjörkin, er afar sundurleit og hafa margir plöntufræðingar spreytt sig á því að greina hana til fleiri tegunda. Þetta hefur þó ekki tekist þótt allir sjái að til eru ýms afbrigði ilmbjarkar. Hér á landi eru vafalaust mörg af- brigði, en sum vaxa hvert innan um annað, svo að erfitt er að henda reiður á. T.d. hefur birki frá Vöglum um hálfum mánuði skemmri vaxtartíma en birki úr Bæjarstaðaskógi. Ennfremur er hér mikið um runnkent birki með tiltölulega lítil, nokkuð stíf og skinnkennd blöð, börkurinn oftast mjög dökkur, stundum rauðbrúnn en sjaldan hvítur eða ljós, nema allra neðst á stofnun- um. Þetta afbrigði hefur verið nefnt tortuosa, sem þýðir undin eða snúin, og á að merkja það, að afbrigðið sé ekki eins og venju- legt tré. Til eru alls konar millistig á milli þessa birkis og hins stærra og beinvaxnara, en svo eru líka til flatvaxin birki, sem fylgja jörð og reisa sig lítið, en blöðin á þeim og reklar geta haft nákvæmlega sömu lögun og á stærstu og fallegustu trjánum. Von er að menn hafi lent í vandræðum með greiningu teg- undarinnar. En þetta getur líka valdið vandræðum þegar velja skal plöntur í garða því enginn getur sagt fyrirfram hvernig vaxtarlag plöntunnar verður meðan hún er á unga aldri. Á norðlægum slóðum er birki eitt helsta garðtréð ásamt reyni og einstaka barrtrjám. Birki er oft haft framanvið hús í hæfi- legri fjarlægð því það skyggir minna á útsýni en önnur tré. Ennfremur er það mjög Ijóselskt og þolir ekki mikinn skugga. Þegar birki vex upp án aðhalds frá öðrum trjám hættir því mjög við að mynda stórar hliðargrein- ar frá aðalstofni, og gildir þetta ekki aðeins hér á landi heldur víðast hvar annars staðar. Af þeim sökum er nauðsynlegt að

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.