Morgunblaðið - 29.03.1980, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980
Mannskaðarnir miklu í Norðursjó
(AP-simamynd)
Þannig var umhorfs i gær á hafinu þar sem ibúðarpallurinn Alexander Kielland var i fyrradag. Neðri endar flotsúlanna sneru nú upp og náðu
rétt upp fyrir yfirborðið.
Oddvar Nordli forsætisráðherra Noregs:
„Mesti harmleikur í
sögu norsku þjóðar-
innar á síðari tímum“
Málmþreyta
eða sprenging
Slysið setti mjög svip sinn á allt
líf í Noregi í gær. Utvarpið breytti
mjög útsendingu sinni, margir
þættir voru felldir niður og í
staðinn leikin sorgarlög og sagðar
fréttir. Bæði útvarp og sjónvarp
Frá NTB. AP ok Jan-Erik I.anrr. fróttaritara MorKunbiaðNÍns i Ösló.
ÓTTAST er að 139 starfsmenn úr ólikum starfsgreinum hafi farizt er
ibúðarpallinum Alexander Kielland hvolfdi skyndilega í fyrrakvöld.
89 þeirra, sem voru um borð björguðust litið eða ekkert slasaðir. Slys
þetta er talið hið mesta i Noregi á friðartímum. Umfangsmiklar
björgunaraðgerðir voru þegar settar af stað er slysið varð um
klukkan 19.30 á fimmtudagskvöld og i gær tóku um 2000 manns þátt
i hjálparstarfinu á 47 skipum, 24 þyrlum og flugvélum og auk
Norðmanna, tóku Danir, Bretar og V-Þjóðverjar þátt i leitar- og
björgunarstarfinu.
Lengi vel var ekki ljóst hversu
margir hefðu verið um borð í
íbúðarpallinum þegar einn „fótur"
pallsins gaf sig skyndilega og
honum hvolfdi á innan við 10
mínútum. í gærkvöldi var talið að
um borð hefðu verið 228 manns,
170 Norðmenn, 35 Bretar, 20
Spánverjar, tveir Finnar, einn
íslendingur og einn Portúgali. 89
var bjargað, 38 höfðu í gærkvöldi
fundizt látnir og 101 er saknað.
Eftir leit gærdagsins eru ekki
taldar miklar líkur á að mennirnir
finnist á lífi.
Það var sorgmæddur hópur,
sem kom með þyrlum til Sola við
Stavanger í gær, þögulir gengu
þeir inn í flugskýlin og það var
þeim greinilega ofar í huga að
minnast félaganna um borð held-
ur en hugsa um hversu vel þeir
höfðu sjálfir sloppið úr þessu
óhugnanlega slysi. Þeir höfðu lifað
óttalegri nótt en svo að þeir fái
henni nokkurn tímann gleymt.
Margir af þeim sem björguðust
höfðu barist lengi í köldum sjón-
um áður en þeir komust um borð í
björgunarbáta. Sjávarhitinn var 7
gráður og í lofti var hitinn 5
gráður. Nöfn þeirra, sem fundist
hafa látnir eða er saknað, verða
ekki tilkynnt fyrr en í dag.
sögðu nær stöðugar fréttir af
atburðum í alla fyrrinótt.
Oddvar Nordli forsætisráðherra
Noregs sagðist í gær ekki vilja
segja neitt um það hvaða afleið-
ingar þetta slys hefði á framtíð
olíuvinnslu og rannsókna í Noregi.
Strax í gærmorgun skipaði ríkis-
stjórn rannsóknanefnd til að
kanna hverjar ástæður lægju fyrir
slysinu.
Oddvar Nordli hélt strax í
fyrrinótt áleiðis til Óslóar og
síðan til Stafangurs, en hann
hafði verið í páskaleyfi á fjöllum.
Hann kom til Stafangurs í gær
ásamt Bjartmar Gjerde olíu- og
orkumálaráðherra og Inger Louise
Valle félagsmálaráðherra.
— Þetta er mesti harmleikur í
sögu norsku þjóðarinnar á síðari
tímum, sagði Oddvar Nordli for-
sætisráðherra í gær.
Ýmsar getgátur eru uppi um
hvað hafi orsakað slysið og það,
sem þykir einna líklegast að hafi
gerzt er að málmþreyta hafi
valdið því, að ein súlan brotnaði
frá pallinum eða þá að sprenging
hafi orðið í gashylkjum á lager, en
hann var skammt frá þeim stað
þar sem súlan var fest við pallinn.
Ekki er talið að veður, sem var
slæmt í fyrrakvöld, hafi eitt sér
valdið slysinu, en pallar sem þessi
eiga að þola mun meiri veður og
ölduhæð.
Nokkrir þeirra, sem björguðust skömmu eftir komuna til Stavanger i gær.
(AP-tiimainynd)
Mann-
skæðasta
slysið d
pöllum
Norður-
sjávar
Ósló 28. marz. AP.
HÉR FER á eftir listi yfir
slys sem áður hafa orðið á
norska svæðinu í Norðursjó í
tengslum við oliuvinnsluna
þar:
Apríl 1978: Sprenging í olíu-
pallinum Bravo veldur því að
þúsundir tonna af olíu flæða i
sjóinn. Ekkert manntjón
verður.
Febrúar 1979: Eldur á Stat-
fjord-olíupallinum verður
fimm norskum verkamönnum
að aldurtila.
Febrúar 1978: Bandarískur
kafari ferst við störf á
Ekofisksvæðinu.
Október 1977: Brezkur kafari
ferst þegar lyftari sem hann
situr í skellur í hafið.
Marz 1976: Olíuborpallur
strandar við Noregsströnd og
sex manns farast þegar björg-
unarbáti hvolfir.
Nóvember 1975: Þrír Norð-
menn farast í sprengingu á
Alfa-pallinum.
Einnig hafa orðið slys á
brezka svæðinu í Norðursjó,
en ekkert í líkingu við það
sem varð í gær.
Skömmu eftir jól 1965 sökk
brezkur pallur í vonskuveðri
og haugasjó 65 km út af
brezku ströndinni. Þrettán
menn dóu og nítján var bjarg-
að.
í nóvember voru 53 brezkir
verkamenn fluttir í skyndingu
frá brezkum palli sem talinn
var í hættu.
„Aldrei unnið
við önnur
eins skilyrði“
Boulmer, EnKÍandi, 28. marz. AP.
„ÉG HEF aldrei unnið við eins
hræðileg skilyrði og á slys-
staðnum við „Alexander Kiel-
land,“ sagði brezkur björgunar-
þyrluflugmaður, Jim Bellingail,
er hann kom til Boulmer á
Englandi til að láta fylla vélina
eldsneyti.
„Við sáum ekki pallinn vegna
þess að skyggni var svo slæmt og
ekki máttum við fara of nálægt
vegna hættu á því að rekast á
hann. Um þetta leyti var mikill
öldugangur og svo lágskýjað að ég
hef sjaldan lent í öðru eins.“ Hann
sagði að hann hefði séð nokkra
björgunarhringi og björgunarbelti
á floti í sjónum en í þeim hefði
enginn verið. Aftur á móti hefðu
nokkrir björgunarbátar verið á
floti í sjónum og hver slíkur bátur
rúmaði tíu menn. Væru einhverjir
um borð í þessum bátum, hefðu
þeir nokkuð góðar lífslíkur. En
kuldinn í sjónum væri slíkur að þó
að menn væru í beltum eða
hringjum væri óhugsandi að þeir
væru á lífi nú.