Morgunblaðið - 29.03.1980, Side 45

Morgunblaðið - 29.03.1980, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1980 45 VELVAKANDI SVARAR Í SÍMA 10100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS eðlilegum dauðdaga, hafi opnað augun á þessum, sem enn í dag ganga erindi Marx-Leníns-Stal- ínismans. Ég vildi nú heldur hafa séð þátt um hvernig hugsjónir sendiherrans fóru með alþýðuna í Rússlandi. Hún var bæði sögð hafa verið trú hugsjónum sínum og Stalín. Einhvern tímann hefur hún átt frí og kost á að sjá Rússland í öll þessi ár, sem hún var í Svíþjóð og reiddi út féð, sam Stalin spanderaði á trúboðanna á hinum Norðurlöndunum. ísland er þar ekki undanskilið. í Rússlandi gat að líta verka- menn, svo voru, eins og Krjússjoff sagði, hungraðir og klæðalitlir og hefði hástéttarhugsjónakonan ferðast með lest yfir Ukraníu voru óteljandi betlarar á járnbraut- arstöðvunum, sem járnbrautar- þjónarnir hristu af lestunum og það var það eina sem þeir fengu. A þessum árum bjó í Moskvu há- menntuð kona, sem komið hafði frá Englandi og vildi taka þátt í uppbyggingunni eftir að byltingin var búin að leggja allt efna- hagslífið í rúst. Miðstéttarkonan enska fór öðru vísi að. Hún skrifaði bók, sem gefin var út í Kaupmannahöfn 1949 og heitir „Brostnar hugsjónir", og hún skrifaði bókina til þess að opna augu allra á bölvun sósíalismans. Hún horfði á það, að það var bara hungur og kúgun, sem sósíalism- inn gaf fólkinu og núna sér maður þetta í Asíu og Afríku, að maður tali nú ekki um lífskjörin í leppríkjunum, sem Rússar blóð- mjólka. Freda Utley fór frá Moskvu 1926 til þess að berjast með kolanámu- mönnum í Englandi. Hún sagði að breska stjórnin hefði verið eins og kærleiksrík móðurhönd saman- borið við kjör verkamannanna í Rússlandi, og átti þó Stalín eftir að gera kjör fólksins miklu verri. Hún var líka lærður hagfræðingur og hætti að trúa á fræði Karl Marx og vildi láta taka upp frjálsa hagkerfið okkar. Utvarpsráð neitaði á sínum tíma að bók Dredu Utley yrði lesin í útvarpinu. Hvað olli því? Má ekki þjóðin fá að heyra sannleikann um sósíalismann. Ég vil að fólk beri saman þessar tvær konur, sem trúðu á Marxismann og dæmi þær svo af verkum þeirra. Sannleikur- inn gerir yður frjálsa sagði Páll postuli. Húsmóðir Þessir hringdu . . . • Viðvarandi vanda- mál í þrjú ár Stefán Ingólfsson deildar- stjóri Fasteignamats ríkisins hringdi: Vegna kvörtunar frá fasteigna- eiganda í Velvakanda í dag (föstu- dag 27. marz) vil ég upplýsa, að kvörtunin á fyllilega rétt á sér og þetta hefur verið viðvarandi vandamál hjá okkur á stofnuninni sl. þrjú ár. Ástæðan er sú, að fljótlega eftir útkomu fasteigna- skrárinnar og ég tala nú ekki um þann tíma sem fólk er upp til hópa að ganga frá skattskýrslum sínum er álag hér geysimikið vegna fyrirspurna. Skiptiborðið hér er eldgamalt og því eru aðeins fjórar línur og annar það engan veginn þessu álagi. Fasteignaeigandinn beinir því til yfirmanna stofnunarinnar, hvort þeir geti ekki bætt hér úr. Sannleikurinn er sá að þetta er opinber stofnun, eins og bent er á, og þurfum við að sækja um allar lagfæringar til hins opinbera. Það er sem sagt ekki í okkar valdi að lagfæra neitt, án aukinnar fjár- veitinga og eygjum við ekki enn neina lausn þessa vegna. Ég vil í lokin sem starfsmaður stofnunarinnar taka það fram að okkur starfsfólkinu þykir mjög miður að geta ekki af þessum ástæðum veitt betri þjónustu, en get ég þó bent fólki á, að álagið er yfirleitt minna fyrri hluta dags. Við opnum kl. átta að morgni og flesta daga er hægt að ná sam- bandi án vandræða við okkur frá opnun og fram til kl. hálftíu til tíu. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU HÖGNI HREKKVÍSI Friðfinnur ólafsson: Ólíkt höf- umst vér að Undanfarið hefur farið fram talsverð umræða í fjölmiðlum um íslenska kvikmyndagerð og þau skilyrði, sem henni eru búin hér á landi. Frumvarp til laga hefur verið lagt fyrir Alþingi um sér- stakan skatt á aðgöngumiða í kvikmyndahúsum henni til styrkt- ar. Félag KvikmyndahúseigerHhi hefur ritað Alþingi bréf af þessu tilefni og bent m.a. á að skatt- heimta af verði bíómiða sé orðin algerlega taumlaus og ekki á bætandi. Hins vegar séu forráða- menn kvikmyndahúsa síður en svo á móti íslenskri kvikmyndagerð. Þvert á móti. Þeir hafa hvað eftir annað lagt til að skattar af bíómiðum renni til styrktar íslenskri kvikmyndagerð en ekki í kassa ríkis og borgar, sem al- mennt eyðslufé hjá þessum aðil- um. Þessi háttur er hafður á í nágrannalöndum okkar. Þar er innheimtur skattur 4—5% af verði bíómiða og rennur hann allur í kvikmyndasjóð viðkomandi lands. Aðrir skattar eru ekki innheimtir en þó er verð bíómiða miklu hærra en hér, sumstaðar tvöfalt til þrefalt hærra. Skatt- greiðslan hér er hins vegar tæp- lega 40%, ríki og borg( taka m.ö.o. tæplega 40 aura af hverri krónu, sem inn kemur og halda um leið verðinu niðri með verðlagsákvæð- um. Þetta er óhófleg skattheimta og mér liggur við að segja siðlaus. Hér er líka svo komið að bíóin geta ekki endurbætt eða haldið við húsum sínum og ekki fylgst með tækninýungum, ,i stuttu máli ekki veitt þá þjónustu, sem þau vilja, og nauðsynleg er. Um þetta má skrifa langt mál þó ekki verði farið út í það að sinni. Félag Kvikmyndahúseigenda hefur líka á undanförnum árum margsinnis vakið athygli stjórnvalda á þessu ástandi en jafnan talað fyrir daufum eyrum. En það sem kom mér til þess að skrifa þessa grein voru fréttir frá tveimur litlum þjóðum Finnlandi og Israel og greinir fréttin frá stefnu þeirra í þessum málum. Fréttir þessar eru í vikuritinu „The Hollywood Reporter" frá 5 og 12 febrúar s.l. Um Finnland segir m.a. svo, lauslega endursagt. Finnar innheimta 4% skatt af verði aðgöngumiða og rennur skatturinn til kvikmyndasjóðs, sem hefur það verkefni að styrkja finnska kvikmyndagerð. Verð bíómiða er mjög lágt, miðað við hin Norðurlöndin, meðalverð á milli 12 og 1300 krónur. Hér á landi er verðið 1100 krónur, þrátt fyrir nær 40% skatt en Finnar greiða 4% eins og áður segir. Þá er einnig sagt frá því að stærsti bíóeigandi í Finnlan<ji Adams Film O.Y., sem á 50 af 320 bíóum í Finnlandi sé að endurnýja öll sín bíó og gera þau aðlaðandi „þægilegt og vinalegt heimili að heiman“, eins og segir í fréttinni. Þetta mælist að sjálfsögðu vel fyrir og eykur aðsóknina. Þetta þyrftu íslenskir bíóeigendur sann- arlega að gera líka, en með núverandi skattheimtu er það, því miður, ekki hægt og þess vegna drabbast húsin niður hjá okkur. Israel: Þar er mikil verðbólga, sem kunnugt er. Þeir slá okkur meira að segja við því að verðbólg- an hjá þeim varð 112% á s.l. ári. Skattar á bíómiða hafa verið geysiháir, eða svipaðir og hér, og hafa þeir runnið til viðkomandi sveitarfélaga. Nú hefur viðskipta- ráðherra ísraels, Gideon Pátt, en undir hann heyrir bíórekstur þar í landi, lagt fram frumvarp til laga á þingi þeirra Israelsmanna, Knesset, um afnám núgildandi skatta, en lagt skuli á lágt gjald, er renni til innlends kvikmynda- iðnaðar. Fram til þessa hefur menntamálaráðuneyti ísraels lagt fram af kostnaðarverði Israelskra kvikmynda, en sá styrkur hefur hvergi nærri nægt og framleiðendur átt í erfiðleikum með að fjárafla sinn hluta eða %. Talið er að meðal framleiðslu- kostnaður sé um 100 milljónir króna á mynd. Islensk stjórnvöld ættu nú að athuga þessi mál betur en gert hefur verið. Forráðamenn bíóanna á Islandi vilja áreiðanlega allir sýna góðar kvikmyndir í góðum húsum, þar sem fólki líður vel, andlega og líkamlega. Verð bíó- miða á að vera lágt svo að allir geti notið góðra mynda en þó svo rýmilegt að eðlilegur rekstur geti borið sig. Svo er ekki nú. Bíóin skrimta á poppkornsáti gestanna. Það er ekki skynsamlegt að loka bíóunum, en en að því hlýtur að koma fyrr en síðar, ef sömu stefnu verður fylgt í framtíðinni og hingað til, að því er snertir óhóflega skattheimtu af verði bíómiða. Friðfinnur Ólafsson Stykkishólmur: Góður afli netabáta Stykkishólmi, 18. marz. AFLI á netabáta hefir verið ágætur hér það sem af er mars- mánuði. Þeir bátar sem veiddu skelfisk fram í febrúar fóru ekki á net fyrr en seinnihluta mánað- arins. Hafa þeir aflað mjög jafnt og enginn orðið útundan að heitið geti miðað við stærð og aðstæður. Þórsnes I hefir fengið á þessum tæpum mánaðartíma um 300 lest- ir og er það mjög gott. Enginn mun vera undir 150—160 lestum. Mikil vinna er nú bæði í hrað- frystihúsi Sig. Ágústssonar h.f. og Þórsnesi h.f. Rækjunes h.f. vinnur ennþá skel því bátar þess hafa ekki enn aflað í tilskilin veiðileyfi, en 3 bátar veiða skel og landa þar. Sjónvarpsendurvarpsstöðin við Stykkishólm, en hún þjónar Vest- urlandi og Vestfjörðum, bilaði í gær og varð að notast við vara- sendi. Voru menn frá Pósti og síma sendir í morgun til viðgerða á stöðinni og gátu þeir ekki lokið viðgerð fyrir venjulegan útsend- ingartíma og því varð sjónvarpið hér meira og minna óvirkt í kvöld. Er nú von til að eðlilegt sjónvarp komist á fyrir næsta kvöld. Lík- lega hefir veðurofsinn og raf- magnið átt sinn þátt í biluninni. Fréttaritari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.