Morgunblaðið - 10.05.1980, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
105. tbl. 67. árg.
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Jan Mayen-viðræöurnar í Ósló:
Samkomulag
liggur í lof tinu
Knut Frydenlund. Ey-
vind Bolle og Matthías
Bjarnason ræðast við í
léttum dúr. þegar hlé var
gert á viðræðunum í Ósló
í gær. Uegar samið var
við Breta í Ósló í lok
landhelgisdeilunnar
1976 var Matthías
Bjarnason sjávarútvegs-
ráðherra og Frydenlund
var þá í hlutverki sátta-
semjara.
Ljósm. Arni Johnsen Símamynd.
Frá Árna Johnsen. hlm. Mhl. í Ósló.
SAMNINGSDRÖG sem talsmenn íslands or Noregs munu geta saett
sig við í deilu landanna um Jan Mayen-svæðið, lÍKKja á borðinu í Ósló.
að því er sagt er. og er útlit fyrir, að gengið verði frá samningum í
dag, laugardag. Eftir mikla óvissu í upphafi viðræðnanna í Ósló rofaði
til í gærmorgun og skriður komst á málið.
íslendingar hofðu látið að því liggja á fimmtudagskvöld. að þeir
myndu slíta viðræðunum daginn eftir. ef ekki kæmu fram jákvæðari
tillögur frá Norðmönnum en þá lágu fyrir.
Knut Frydenlund, utanríkisráð-
herra Noregs, tilkynnti síðan á' fundi
með íslenzku ráðherrunum og full-
trúum íslenzku stjórnmálaflokkanna,
að stefna sú, sem embættismenn
hefðu haldið fram, væri nokkuð á
annan hátt en norska ríkisstjórnin
vildi. Voru nýjar tillögur lagðar fram
á fundum í gær og þær síðan ræddar
í ýmsum hópum daglangt.
Islenzka nefndin á eftir að taka
afstöðu til síðustu tillagna Norð-
manna, en í þeim felast meðal annars
þrjú atriði, sem íslenzku samninga-
nefndarmennirnir hafa talið grund-
vallaratriði fyrir samkomulagi:
viðurkenning Noregs á 200 mílna
útfærslu íslendinga í átt til Jan
Mayen,
viðurkenning á sameiginlegum
rétti Islendinga og Norðmanna til
hafsbotnsins við Jan Mayen
og viðurkenning á því, að Islend-
ingar ákveði hámarksafla á loðnu á
íslands- og Jan Mayen-svæðinu, en
íslenzkir fiskifræðingar gera ráð
fyrir allt að 650 þús. tonna afla á
næstkomandi sumar- ogvetrarvertíð.
Reiknað er með ákveðnu aflahlut-
falli Norðmönnum til handa, en ekki
er vitað, hvað það verður. Er þó rætt
um tölu á bilinu frá 10—20 prósent.
— Það hefur þokazt í rétta átt í
dag og ég vona, að samkomulag sé í
aðsigi, án þess að geta fullyrt um
það, sagði Olafur Jóhannesson utan-
ríkisráðherra í samtali við Mbl. í
Ósló í gærkvöldi að lokinni samn-
ingahrotunni. — Verið er að skoða
þau atriði, sem hafa komið fram hjá
Norðmönnum til móts við óskir
okkar. Að vísu er enginn ánægður.
En mikilvæg atriði hafa fengizt
fram. Þar er um að ræða, að við
teljum viðurkenndan ákvörðunarrétt
Islendinga á hámarksafla á Jan
Mayen-svæðinu, 200 mílna lögsögu
íslands til Jan Mayen, svo og á því,
að íslendingar eigi rétt til land-
grunnsins á Jan Mayen-svæðinu. Þar
er að vísu reiknað með, að ákvörðun
sé að nokkru leyti frestað, meðan mál
eru rædd og könnuð, en viðurkenn-
ingin er staðfest.
Sjá nánar á bls. 27.
KVIÐDÓMUR kvikmyndahátíðarinnar í Cannes samankominn þar í gær. Þetta er 33. hátiðin. Frá vinstri er
Bulajic. Icikstjóri frá Júgóslaviu, Rondi. ítalskur kvikmyndagagnrýnandi. Boisrouvray, kvikmyndaframleiðandi
frá Frakklandi. Delvaux leikstjóri frá Belgíu. Adam, leikmyndateiknari frá Bretlandi, Kirk Douglas forseti
dómsins, kvikmyndalcikari og við hlið honum franska lcikkonan Leslie Caron. síðan er Benayoun frá Frakklandi
og Spenccr frá Kanada.
Afganistan:
Heiftarsókn Sovét-
manna heldur áfram
Nýju-Delhi, 9. mai. AP.
HEIFTARLEGIR hardagar stóðu
enn yfir í gær í Ghaznihéraðinu í
Afganistan milli sovézkra her-
manna og afganskra uppreisnar-
afla. Ghaznihérað er suðvestur af
Kabul, í grennd við þann stað
þar sem fjöldamorð voru framin
á þúsundum óbreyttra borgara
síðla aprilmánaðar að þvi er
fréttir hcrma sem bárust frá
Kabul i dag.
Sagt er að Sovétmenn hafi
byrjað meiri háttar sókn á hendur
uppreisnarmönnum og beiti 6—
900 skriðdrekum, brynvögnum,
þyrlum með vélbyssuútbúnaði og
orrustuvélum. Hafi þessi sókn
byrjað sl. þriðjudag og verjist
uppreisnarmenn Afgana af mikilli
hörku.
í fréttum frá Kabul í dag segir
einnig að um fimm þúsund
menntaskólanemar og háskóla-
stúdentar hafi verið handteknir í
höfuðborginni í gær og dag í
kjölfar hinna miklu óeirða sem
beindust gegn veru Sovétmann-
anna í landinu.
Matthías TT*1‘* j*1
Bjarnason: \ lljl tll
samkomulags
Frá Árna Johnson. blm. Mbl. í Ósló í «ær.
í GÆRKVÖLDI benti margt til
þess, að ekki yrði um frekari
viðræður að ra*ða í samninga-
viðræðunum um Jan Mayen-
svæðið í Ósló, sagði Matthias
Bjarnason fyrrum sjávarút-
vegsráðherra í samtali við Mbl.
En staðan breyttist í morgun.
þegar Norðmenn gáfu þó nokk-
uð eftir í þeim atriðum, sem um
er að ræða.
Jafnhliða fundum samninga-
nefnda héldu norsku utanríkis-
og sjávarútvegsráðherrarnir
fund með íslenzkum ráðherrum
og fulltrúum stjórnmálaflokk-
anna og skipzt var á skoðunum
um tiltekin grundvallaratriði.
Var þar um að ræða óskoraðar
200 mílur í átt til Jan Mayen, um
ákvörðunarrétt Islendinga á há-
marksafla á svæðinu og að
samkomulag næðist um hafs-
botninn á landgrunninu milli
Islands og Jan Mayen. Gott
samstarf er í íslenzku nefndinni
og ríkur skilningur. Flestir
íslenzku fulltrúanna tóku fram,
að þeir vildu gjarnan ná sam-
komulagi við Norðmenn og var
ég einn í þeirra hópi, ef grund-
vallarskilyrðum væri fullnægt,
þannig að við gætum sæmilega
vel við unað. Báðar þjóðirnar
hafa orðið að slaka til og ég tel
skynsamlegast að slá af í tillög-
um okkar til þess að ná sam-
komulagi. Það er mín bjargfasta
skoðun, að við eigum að gera allt
sem í okkar valdi stendur til
þess að ná samkomulagi, en vilja
beggja þjóðanna þarf til. Ég hef
enga ástæðu til að tortryggja
utanríkisráðherra Noregs. Hann
hefur lagt sig mjög fram um að
leysa málið, en á við mikla
erfiðleika að etja eins og við
íslendingar, til þess að sætta
ólik sjónarmið.
Karlar felldu föt við fögnuð
Los Angeles, 9. maí. AP.
KARLMENN héldu áhrifamikla
fatafellusýningu á fimmtudags-
kvöldið við hrifningu þrjú hundr-
uð æpandi jafnréttiskvenna, sem
létu óspart hrifningu sína í ljós.
Það var jafnréttisnefnd Los Ang-
eles sem stóð fyrir skemmtan
þessari og gáfu karlarnir allan
ágóða, sem mun að líkindum vera
um 5 þúsund dollarar. Talsmaður
kvennanna sagði að svo ótt og títt
hefði verið barizt til þess að
útrýma þeim hugsunarhætti að
konan ein væri kyntákn, að tíma-
bært væri nú að karlar og konur
mættust miðja vegu.