Morgunblaðið - 10.05.1980, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. MAÍ1980
41
+ ÞAÐ EINA sem þarf að skrifa með þessari mynd er að hún sé þjóðlifslýsing frá Sviþjóð í maimánuði
anno domini Kristi 1980!
fclk f
fréttum
500.000 - Níu létu lífið!
+ ÞESSI fréttamynd er tekin við helgiathöfn sem fram fór undir
AP-fréttastofunnar er i höfuðborg Afrikurík- berum himni. vígði páf-
úr Afrikuferð Jóhann- isins Zaire, — Kinsh- inn átta Afrikubisk-
esar Páls páfa. — Hún asa. Við þessa athófn. upa. — I fréttum segir
að um 500.000 manns
hafi verið við þessa
helgiathöfn. Svo mikil
voru þrengslin, að í
námunda við hið opna
svæði, þar sem athöfnin
fór fram. höfðu 9
manns látið lifið i
troðningnum. Páfinn
hafði ekki spurnir af
þessu fyrr en síðar.
Þennan sama dag hafði
hann verið á lokuðum
fundi með þjóðhöfðingj-
anum i Zaire, Mobutu
Sese Seko. Ýmsir hafa
haldið því fram að
hann sé ekki með alveg
hreint mjöl i pokanum,
maðurinn sá. Það er
einn hinn nýju biskupa
sem páfinn leggur hönd
sina á öxlina á við
biskupsvigsluna.
Körfu-
bolta-
maður?
Nei
+ SKYLDI þetta vera einhver
frægur körfuboltamaður, þessi
til hægri, á myndinni? — Það er
ekki út i hött að spyrja. Svo er þó
ckki. — Þessi jakalegi maður er
hinn nýi utanrikisráðherra
Handaríkjanna. Edward Muskie.
— Lengst til vinstri er Warren
Christopher, sem var settur utan-
rikisráðherra á undan Muskie.
— Sá sem veifar er Carter
forseti. — Þeir eru að fara á
lokaðan fund, félagarnir.
Afmæliskveðja:
Brynjólfur Ingólfs-
son ráðuneytisstjóri
Stjórn Frjálsíþróttasambands
íslands sendir Brynjólfi Ingólfs-
syni, ráðuneytisstjóra, hugheilar
árnaðaróskir á sextugsafmælinu í
dag 10. maí. Frjálsíþróttasam-
bandið þakkar honum frábær
störf í þágu sambandsins um
áraraðir, en hann var formaður
þess í 6 ár og átti ennþá lengur
sæti í stjórninni.
Eftir að Brynjólfur hætti störf-
um í stjórn Frjálsíþróttasam-
bands Islands hefur hann ávallt
sýnt frjálsum iþróttum hlýhug og
áhuga og er ávallt boðinn og búinn
til að rétta sambandinu og frjáie-
íþróttafólki hjálparhönd, sé hann
um það beðinn. Aður en Brynjólf-
ur hóf afskipti af stjórnun FRÍ
var hann einn af bestu hlaupurum
íslands. Þar eins og á öðrum
sviðum mannlífsins reyndist hann
drengilegur liðsmaður.
Undirritaður sendir Brynjólfi
persónulegar heillaóskir f tilefni
dagsins. Það er hverjum manni
gæfa að hafa átt þess kost að
kynnast Brynjólfi Ingólfssyni. Þar
fer hreinskiptinn drengskapar-
maður.
Örn Eiðsson, form. FRÍ.
Ferðamálaráðstefna á
Akureyri í næstu viku
FERÐAMÁLARÁÐ ís-
lands efnir í næstu viku til
ferðamálaráðstefnu og
hefst hún á Hótel KEA kl.
10 föstudaginn 16. maí og
stendur til laugardags 17.
maí kl. 17.
Að sögn Luðvígs Hjálm-
týssonar ferðamálastjóra
verður ráðstefnan, sem nú
er haldin í 13. sinn, með
svipuðu sniði og áður. Flutt
verður skýrsla Ferðamála-
ráðs og flugmálastjóri flyt-
ur erindi um flugmál, en
dagskrá hefur ekki verið
ákveðin í smáatriðum. Að
loknum erindum skipa
Til sölu
einbýlishús
Höfum til sölu glæsilegt einbýlishús við Markar-
flöt, Garðabæ. Allt á einni hæð um 150 fm.
Skiptist í 4 svefnherbergi, bað, 1—2 stofur, hol,
eldhús, WC, þvottahús, geymslu m.a. Tvöfaldur
bílskúr. Rúmgóð og ræktuö lóö. Verðhugmynd
aðeins 68—70 millj.
Nánari uppl., teikningar og myndir á skrifstof-
unni sunnudag kl. 1—3, (ekki í síma).
Fasteignahúsið Ingólfsstræti 18. B
menn sér í starfsnefndir
sem skila áliti síðari dag-
inn. Ráðstefna þessi er opin
öllum, sem áhuga hafa á
ferðamálum.
Hrossasýningar 1980
Forskoðun kynbótahrossa á Vesturlandi.
15. maí Borgarnes — Mýrarsýsla.
16. maí Skeljabrekka kl. 10.
Skipanes kl. 16. Akranes kl. 18.
17. maí Andakílshreppur. Á Báreksstööum kl. 10.
Borgarfjaröadalir síðdegis.
5. júní Bær — Sigmundarstaöir.
6. júní Snæfellsnes að sunnan.
7. júní Snæfellsnes að norðan.
8. júní Reykhólasveit.
9. júní Strandasýsla.
10. júní Strandasýsia.
11. júní Dalasýsla.
12. júní Dalasýsla.
Þátttöku ber að tilkynna skriflega á skráningarblöð til
ráöunauta Búnaðarsambandanna sem fyrst.
Búnaðarfélag íslands, hrossarækt.