Morgunblaðið - 10.05.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.05.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980 3 Frá opnun fcrðamála- og vörusýningar í Kristalssai Hótels Loftlciða. cn þar voru viðstaddir 80 boðsgcstir. Taiið frá vinstri: Hr. Tringealð, ráðuneytisstjóri fcrðamálaráðuneytis Friuli- Venezia Giulia. hr. Bomben. ferðamálaráðherra Norður-Ítalíu. hr. Giuliemotti. forseti Ferðamálaráðs Ligniano ojí Ingólfur Guðbrandsson forstjóri Utsýnar. sló í gegn SVO mikil aðsókn hefur verið að ítölsku vordösunum á Hótel Loftleiðum að margir hafa orð- ið frá að hverfa. Opnunarhátíðin var í fyrra- kvöld og rikti þar mikii stemmning. Gestir skoðuðu ítalska vörusýningu en síöan var sest að borðum og snædd sex rétta itölsk máltíð . Boðið var upp á 1. flokks ítalska tízkusýningu undir stjórn Ro- berto Beghi og tenórinn Pietro Bottazzo söng við undirleik Luigi Toffolo. Vöktu þessi at- riði mikla hrifningu. Söngkon- an Maria Loredan var forfölluð fyrsta kvöldið. Meðfylgjandi myndir tók Em- Tízkusýningin undir stjórn Roberto Beghi sló í gegn. Hér má sjá svipmyndir frá sýningunni en það f||a Björg Björnsdóttir á opnun- voru meðlimir Mudcls 79, sem sýndu ítalska fatnaðinn. arhátið „ítalska vorsins“. ítalski tenórinn Pietro Bottazzo vakti mikla hrifningu áheyrenda. Undirleikari hans er hljómsveitarstjórinn Luigi Töfíolo. Uppselt var á upnunarkvöld itölsku vikunnar og kumust færri að en vildu. Sagan um Sám kvik- mynduð á næsta ári TÖKU kvikmyndarinnar „Sagan um Sám“, sem gera á eftir bók sænska rithöfundarins Per Olaf Sundmann. hefur verið frestað til ársins 1981. Staðið hefur í stappi með afnot af nokkrum stöðum þar sem fyrirhugaö var að atriði í myndina væru tekin, en kvik- myndafólkið hefur fengið vilyrði fyrir afnot t.d. af Skaftafelli næsta sumar, en þó með ákveðn- um skilyrðum. sem verið er að athuga. Það er v-þýzkt kvikmyndafyr- irtæki, sem ætlar að gera þessa kvikmynd og er áætlaður kostn- aður við myndina 4 milljónir marka eða um einn milljarður króna. Leikstjóri verður Peter Steiner og kvikmyndahandrit ger- ir Botho Strauss, sem er einn fremsti leikritahöfundur í Þýzka- landi, að sögn Sigrúnar Valbergs- dóttur, sem annast hefur undir- búning fyrir kvikmyndafyrirtækið hér á landi. Ekki hefur verið ákveðið hverjir leika Sám og Hrafnkel, aðalhlutverkin í mynd- inni, en fyrirhugað er að þar verði um að ræða einhverja heims- þekkta leikara. Kaupskylda lífeyrissjóðanna: Ríkisstjórn- in fellur frá lagaskyldu um kaup af ríkissjóðunum „ÉG hygg að það sé komið samkomulag milli fjármálaráð- herra og lífeyrissjóðanna um breytingu á frumvarpinu til láns- fjárlaga þess efnis að kaupskylda sjóðanna verði ekki bundin að lögum við kaup skuldabréfa rík- issjóðs, Byggingarsjóðs ríkisins og Framkvæmdasjóðs íslands, heldur geti sjóðirnir einnig keypt bréf af öðrum fjárfestingarlána- sjóðum.“ sagði Bjarni Þórðarson, formaður Landssambands lífeyr- issjóða í samtali við Mbl. í gær. Sú fyrirætlun ríkisstjórnarinn- ar að skylda lífeyrissjóði með lögum til að kaupa skuldabréf af þremur framangreindum sjóðum fyrir að minnsta kosti 40% af ráðstöfunarfé sínu mætti mikilli andstöðu og Guðmundur H. Garð- arson, formaður stjórnar lífeyr- issjóðs VR mótmælti þessu sem broti á stjórnarskránni. Mun ríkisstjórnin hafa séð fram á, að einhverjir lífeyrissjóðir myndu neita að binda kaup sin við þessa þrjá sjóði og fjármálaráðherra þá þurfa að höfða mál á hendur þeim. Sá kostur mun ríkisstjórninni ekki hafa þótt fýsilegur og því sætzt á að lífeyrissjóðir mættu kaupa skuldabréf af fleiri fjárfest- ingarsjóðum. Ólafur ræddi við Nordli ÓLAFUR Jóhannessun utan- ríkisráðherra hitti Odvar Nordli forsætisráðherra Nor- egs að máli í gær. Ræddust þeir við í 20 mínútur á skrif- stofu Nordlis um hádegisbilið í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.