Morgunblaðið - 10.05.1980, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980
NÆRRI hundrað bátar af öllum stærðum eru á ferðinni um
Vestmannaeyjahöfh daglega, svo þar er líf og fjör þegar
vertíðin er í fullum gangi. Við heimsóttum þessa miklu verstöð
fyrir skömmu og ræddum við skipstjóra um vertíðina,
stjórnun fiskveiða og sitthvað fleira.
„Þaö verður ekki ákveð-
ið við skrifboró hvenær
þorskurinn hrygnir"
grein/ÁRNI JOHNSEN myndir/SIGURGEIR JÓNASSON og GUÐRÚN KRISTÍN SIGURGEIRSDÓTTIR
Vertíðin í heild er mjög góð gagnvart afla,
en þó er að merkja að ef kantafiskiríið
hefði ekki verið þá hefði staðan verið
mun slakari. Það var óhemju þorskur í
kantinum og við Eyjamenn höfum í
ríkari mæli sótt þangað, sagði Guðfinnur Þorgeirsson
skipstjóri á Árna í Görðum. „Nýtingin á veðrinu var
mjög góð eftir erfiðan fyrrihluta og það kom heim og
saman við mikla fiskigengd í endaðan febrúar. Það
var mun meira af fiski þá en mörg undanfarin ár á
sama tíma, en núna fyrst er hann að koma upp á
grunnið."
Guðfinnur er í hópi harðsæknustu skipstjóra
Vestmannaeyja um langt árabil og nú er hann
kominn með um 1000 tonn.
„Jú, ég er að glíma við persónulega metið,“ sagði
hann brosandi, „þetta hefur gengið vel hjá mér og ég
er ánægður."
„Fer ekki meira af netum í kantafiskiríið?"
Jú, mun meira, en það skilar sér þótt það sé dýrara
fiskirí með teinum og öllu meðtöldu."
„Kom þessi fiskifengd þér á óvart?"
Já og nei, það hefur verið gott í köntunum fyrr þótt
það hafi verið meira nú. Maður á alltaf von á fiskiríi,
það er fyrst og fremst það hvað veðrið gerir, því það
getur verið erfitt að sækja þetta í vondu.“
„Hvað finnst þér um stjórnunina á fiskveiðunum?"
„Eg er hlynntur stjórnun á þeim, það á að hlífa
stofnunum eins og hægt er, en ég er ekki ánægður
með þessi helvítis skyndistopp eins og um páskana.
Maður tapaði 100—200 tonnum á þeim fjanda. Það
hefði fremur átt að klippa á 20. apríl. Nú er fiskurinn
fyrst að hrygna og verður að því fram í maí.
Eg vil koma til móts við fiskifræðingana, en það á
að gera það eins auðvelt og unnt er. Það er erfitt að
draga þetta og geyma í bátunum og hættulegt einnig.
Við erum líka menn, en ég er á því að það sé
nauðsynlegt að skammta þetta.
Þó sé ég enga ástæðu til þess að skipta þessu eins
og gert er milli landshluta, afli í verstöðvum verður
alltaf misjafn, en mismunurinn getur orðið óeðlilegur
ef bátar frá bannhöfnum fara á önnur mið eftir kúf á
fyrri miðunum. Það er bezt að hlutirnir gangi jafnt
yfir alla í stoppunum.
Annars hefur þessi vertíð bætt húmorinn í þessu
öllu, bragðmeiri sjósókn en oft áður, stífara sótt og
meiri mannsbragur að því, og fleiri stórir netabátar
hafa gert þetta lífrænna. Það er á hreinu að menn
lifna við þegar þeir finna að eitthvað kemur í staðinn
fyrir allt erfiðið og ekki þarf ég að kvarta yfir
mannskapnum, hef alltaf haft góðan mannskap. Nú,
svo á Björn alltaf nóg net (Björn Guðmundsson
útvegsbóndi og eigandi Árna í Görðum) og hann gerir
vel út, telur aldrei hvað fer í sjóinn."
„Hvað hefur þú farið með margar netaslöngur í
vetur?"
„Eitthvað um 1000, það má segja að það sé slanga á
tonn. Veiðarfærin eru vel nýtt hér í Eyjum og við
vitum til þess að bátar ekki langt fjarri hafa farið
með 3000 slöngur. Við höfum ekki misst eitt net í
vetur, en tvo dreka og það er vel sloppið. Nei, maður
verður að sætta sig við að hætta núna, en ég myndi
sætta mig betur við það ef það gengi jafnt yfir alla.“
„Fáránlegt aé setja þorsk-
veiðibann á trillukarlana“
„Þetta hefur verið afburða netavertíð hér, en ósköp
venjuleg og reyndar frekar léleg trollvertíð," sagði
Óskar Kristinsson skipstjóri á Sigurbárunni, „það
vantar ýsuna hér á Suðurlandsmiðin, hún hefur alls
ekki gengið. Það kom engin ýsa með loðnunni að
austan, en hins vegar fréttist af töluverðu magni af
ýsu á eftir vesturgöngunni. Annars er ég hræddur um
að það sé ekki eins mikið af þorski eins og margir
vilja vera láta. Ég held að við verðum að fara töluvert
eftir því sem fiskifræðingarnir segja, þeir hafa lært
þetta og eru að ná meiri og meiri reynslu."
„Hvað finnst þér um landshlutaveiðibönnin?"
„Það er aldrei hægt að setja þau svo öllum líki.
Þetta kom illa við okkur trollbátana frá 1,—7. maí.
Við höfum veitt sáralítið af þorski á vertíðinni í vetur
og svo er okkur bannað að veiða loksins þegar hann
gengur út af hrauninu. Nei, ég tel raunhæfast að láta
eitt yfir alla ganga í þessum efnum. Þó tel ég
þorskveiðibann hjá trillukörlum fáránlegt. Flestir
trillubátarnir eiga möguleika í örstuttan tíma t.d.
trillukarlarnir í Borgarfirði eystri. Þar eru alls
10—15 trillubátar og þeir gætu samtals náð 60—80
tonnum af fiski, eða álíka og togari getur veitt í einu
til tveimur hölum. Það verður að hafa sanngirni í
þessu og skynsemi."
„Hvernig er afkoman á útgerðinni eftir þessa
vertíð?"
„Afkoman er akkúrat engin og þar ræður olían
úrslitum. Ég var að kíkja í marsmánuð, bezta
mánuðinn. Þar fór dálítið mikið í veiðarfæri, en olían
sléttar af þennan bezta mánuð og í janúar og febrúar
var staðan þrælöfug. Það má segja að 40% af
aflaverðmæti fari í olíuna og það er ekki glæsilegt.
Það hlýtur að verða samdráttur á trollinu með þessu
áframhaldi, en hitt er að margir bátarnir geta ekki
stundað aðrar veiðar og af um 60 Eyjabátum hafa um
20 verið á trolli."
„Skynsemin verður að
fylgja lögunum“
„Þetta er greinilega betri vertíð en verið hefur og
meiri fiskgengd þótt segja megi að einnig komi til
meiri sókn á djúpið og meiri eyðsla á veiðarfærum.
Við höfum farið með um 1000 slöngur á þessari vertíð
eða slöngu á tonn,“ sagði Guðni Ólafsson skipstjóri á
Gjafari, en hann var með um 1100 tonn. „Reyndar er
þetta miklu meiri afli en maður reiknaði með, en það
er sýnt að 73 árgangurinn hefur skilað sér vel. Sókn
hefur ekki verið meiri hér en oftast áður, það er alltaf
vel sótt hér, en þetta væri þó betri vertíð ef
fiskveiðistefnan væri rétt rekin. Uppköstin að
undanförnu hafa algjörlega verið út í hött. Það ætti
til dæmis ekki að stoppa um páskana nema eins og
við höfum alltaf gert hér í Eyjum á helgum dögum,
en hins vegar ætti í staðinn að stoppa fyrr vertíðina
ef ástæða þykir til. Þá væru flestir bátanna með 100
tonnum meiri afla a.m.k.
Það er erfitt að eiga við stjórnun fiskveiðanna og
margt er það ágætlega gert þótt hagsmunahóparnir
verði ekki ánægðir og tvímælalaust þarf að skammta
þetta eitthvað. En það þarf að gera meira en ákveða
hlutina við skrifborð. Friðunin í vetur kom ekki að
gagni vegna þess að fiskurinn hrygnir seint og svo er
.togskipum og fleiri skipum hleypt inn á friðuðu
svæðin fyrst í maí, beint í hrygninguna. Skynsemin
verður að fylgja lögunum, það verður ekki ákveðið við
skrifborð hvenær þorskurinn hrygnir. Það var til
dæmis fáránlegt að boða upptöku á netunum í vetur
með þeirri tímasetningu að það ætti að vera búið að
draga upp fyrir hádegi í stað þess að leyfa okkur að
hafa daginn. Það er eins og þessir menn miði aðeins
við vinnutímann hjá sér og kannski að þeir hætti um
hádegi ef þeir mæta á annað borð til vinnu.
Ég tel þó alveg sjálfsagt að koma til móts við
fiskifræðingana og taka tillit til þess sem þeir segja,
en það mætti fara einhverja millileið í þessum efnum
á meðan verið er að ná stofninum upp.“
„Hvað er framundan?"
„Nú er það lúðulína og sigling væntanlega og svo að
líta björtum augum á framtíðina. Bráðlega verður
næg síld allt árið og flestir fiskstofnanna eru
greiniiega á uppleið."
í aögeröinni
Bunkuð net.