Morgunblaðið - 10.05.1980, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980
FÉLAGIÐ Germanía, sem
hefur þaö aðallega á stefnu-
skrá sinni,að efla menningarleg
tengsl íslands við hin þýzku-
mælandi menningarsvæði í
Evrópu, þ.e. Vestur-Þýzka-
lartd, Austurríki og Sviss, á á
þessu ári 60 ára afmæli og
þess verður minnzt í dag
með ýmsum hætti. Mbl. ræddi
að þessu tilefni við Ludwig H.
Siemsen, formann félagsins,
en hann er jafnframt aðal-
ræðismaður Austurríkis á
íslandi.
Germanía 60 ára:
„Aðalverkefni
félagsins hafa verið þýzku-
námskeið fyrir almenning”
ISLAND
DEUTSCH-
ISLANDISCHES
JAHRBUCH
Forsíða árbókar Germanlu »K IslendinBaíélaKsins i Vestur-Þýzkalandi.
„Það var 5. marz 1920, sem
nokkrir háskólamenn komu sam-
an og stofnuðu félagið og það eru
ennþá háskólamenn, sem þá flest-
ir hafa numið í þessum löndum,
sem mynda kjarna félagsmanna,
sem eru í dag um 350,“ sagði
Ludwig.
„Það má segja að aðalverkefni
okkar í gegnum árin hafi verið að
standa fyrir þýzkunámskeiðum
fyrir almenning og ég held að mér
sé óhætt að fullyrða að þar hefur
vel til tekizt. í því sambandi má
geta þess, að alls stunduðu um 120
manns þýzkunám hjá félaginu á
síðasta ári. Námskeiðunum hefur
verið skipt niður í tvo hluta, þ.e.
fyrir byrjendur og lengra komna.
Nemendum í þessum námskeiðum
hefur stöðugt verið að fjölga í
gegnum árin og það má í raun
segja um almennt þýzkunám í
menntaskólum landsins, að þeim
fer fjölgandi sem velja fremur
þýzku en frönsku þegar valið
stendur þar á milli,“ sagði Ludwig
ennfremur.
Þá kom það fram hjá Ludwig að
hin síðari ár hafi þessi námskeið
verið unnin í góðri samvinnu við
þýzka bókasafnið og þýzka sendi-
kennarann. „Þá fórum við af stað í
vetur með sérstök barnanámskeið,
sem ég held að eigi eftir að verða
vinsæl," sagði Ludwig.
Nú er það ýmislegt annað sem
þið hafið fyrir stafni? „Auðvitað,
það má í því sambandi nefna
fyrirlestra sem við stöndum fyrir,
þ.e. við fáum hingað erlenda gesti
til þess að fjalla um ýmis mál. Þá
stöndum við gjarnan fyrir mynd-
listarsýningum þýzkra höfunda,
eins og t.d. nú í tilefni afmælisins.
Þá höfum við haft bíósýningar í
Nýja bíói nokkuð reglulega og
höfum þar verið með til sýningar
ýmsar þýzkar kvikmyndir sem
ella kæmu aldrei hingað til lands.
Nú og svo höfum við verið milli-
göngumenn um ferðir þýzkra tón-
listarmanna hingað til lands,"
sagði Ludwig.
— segir Ludwig
H. Siemsen, for-
maður félagsins,
en um 120 manns
sóttu námskeið
félagsins á sið-
asta ári
Ludwig H. Siemsen,
formaður Germaníu.
Ljósmynd Mhl. RAX.
Hvað með framtíðina, verða
einhver þáttaskil í starfi félagsins
á þessum tímamótum? „Nei, um
þáttaskil verður ekki að ræða, við
munum starfa á sama grunni
áfram, enda höfum við ekki mögu-
leika á neinum stórframkvæmd-
um, þar sem hér er um að ræða
áhugamannafélag sem hefur lítil
fjárráð. í því sambandi vil ég geta
þess, að við njótum mikillar vel-
vildar bæði frá þýzka ríkinu og því
íslenzka og ef fjárstyrkir þeirra
kæmu ekki til myndum við hrein-
lega ekki geta haldið neinni
starfsemi úti, þar sem um mála-
myndaárgjald er að ræða,“ sagði
Ludwig.
Þá gat Ludwig þess að sjö
vönduð ársrit hefðu komið út á
vegum félagSins og væri það
áttunda í burðarliðnum. Þessi
ársrit eru unnin í samvinnu við
íslendingafélögin í Þýzkalandi, en
mjög mikil samvinna er á milli
þeirra annars vegar og Germaníu
hins vegar.
Hvað gerið þið svo til hátíða-
brigða vegna afmælisins? „Við
höldum hátíðarfund í dag á Kjar-
valsstöðum. Þar munu flytja
stuttar ræður dr. Þórir Einarsson,
prófessor, og Karsten Jessen, for-
stjóri útlendingafélagsins í Lú-
beck í Þýzkalandi, en hann er
heiðursgestur félagsins í tilefni
afmælisins. Á hátíðarfundinum
leikur Reykjavíkur Ensemble /erk
eftir Schumann og Jón Ásgeirs-
son.
í beinu framhaldi af hátíðar-
fundinum verður opnuð grafíksýn-
ing með 121 verki þekktra lista-
manna, en sýningin nefnist „Þýzk-
ur expressionismi - grafík" og
kemur hingað á vegum Germaníu
og þýzka bókasafnsins. Sýning
þessi fer síðan um Norðurlöndin í
sumar. Myndirnar eru allar frá
tímabilinu 1905—1920, eða tímabil
expressionismans í Þýzkalandi.
Það má í raun kalla expression-
ismann sérþýzkt fyrirbæri í list-
inni. Þessi hreyfing var mjög
víðfeðm, þ.e.a.s. hún náði bæði yfir
málaralist, höggmyndalist, bók-
menntir og jafnvel tónlist. Á
sýningunni verða grafíkmyndir
eftir alla helztu listamenn þessa
tímabils, m.a. Ernst-Ludwig
Kirchner, Max Beckmann, Max
Pechstein, Lyonel Feininger,
Wassilu Kandinsky, Paul Klee,
Oskar Kokoschka og Franz Marc
og sýningin stendur yfir fram til
18. maí nk.,“ sagði Ludwig H.
Siemsen.
Að síðustu sagði Ludwig að um
mánaðamótin væri von á stórri
þýzkri lúðrasveit frá Baden, en
hún er á leið sinni frá Bandaríkj-
unum. Hljómsveitin mun halda
tónleika í Háskólabíói 31. maí nk.
— sb.
Geir Hallgrímsson.
Aðalfundur
Heimdallar
í dag
AÐALFUNDUR Heimdallar,
samtaka ungra sjálfstæðismanna
verður haldinn í dag klukkan
13.30. Fundurinn verður haldinn
í Sjálfstæðishúsinu Valhöll við
Háaleitisbraut.
Á fundinum mun Geir Hall-
grímsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins flytja ávarp, og síðan
eru á dagskrá fundarins venjuleg
aðalfundarstörf, kosning for-
manns og stjórnar, og ónnur mál.
20 fundir BSRB
á 10 dögum
TUTTUGU fundir hafa nú verið
boðaðir á 10 dögum um land allt,
þar sem fjallað verður um stefnu
Bandaiags starfsmanna ríkis og
bæja í kjaramálunum og viðbrögð
stjórnvalda við henni. Fyrstu
fundirnir hefjast mánudaginn 12.
maí og eru báðir í Reykjavík. Utan
Rcykjavíkur eru fundirnir sameig-
inlegir fyrir bæjarstarfsmenn og
ríkisstarfsmenn á nærliggjandi
sva'ðum.
Fundirnir verða í Reykjavík, á
Akureyri, Vestmannaeyjum, ísa-
firði, Reyðarfirði, Siglufirði, Akra-
nesi, Húsavík, Selfossi, Hafnarfirði,
Sauðárkróki og Keflavík.
Á fundunum verða frummælend-
ur frá stjórn BSRB og skipta menn
milli sín fundunum. Þeir sem verða
frummælendur eru: Kristján Thor-
lacius, Guðmundur Árnason, Val-
geir Gestsson, Haraldur Steinþórs-
son, Ólafur A. Jónsson, Erlingur
Aðalsteinsson, Haukur Helgason,
Einar Ólafsson, Björn Arnórsson,
Þórir Maronsson, Ólafur Jóhann-
esson, Albert Kristinsson, Örlygur
Geirsson, Loftur Magnússon, Ágúst
Geirsson, Eyþór Fannberg og Sig-
urveig Sigurðardóttir.
Herstöðvaand-
stæðingar mótmæla
í DAG munu samtök herstöðva-
andstæðinga efna til aðgerða á
Lækjartorgi í tilefni þess að 40 ár
eru liðin frá því að ísland var
hernumið af Bretum. Megininntak
aðgcrðanna verða mótmæli gegn
kjarnorkuvopnum, en herstöðva-
andstæðingar telja að slík vopn sé
hér að finna. Á Lækjartorgi verða
flutt ávörp, leikþáttur o.fl. en að
aðgerðunum loknum ganga her-
stöðvaandstæðingar að bandaríska
sendiráðinu.
Á fimmtudagsmorgun efndu
herstöðvaandstæðingar til mót-
mæla fyrir utan utanríkisráðuneyt-
ið og afhentu þar bréf til utanríkis-
ráðherra, sem Hannes Hafstein
veitti viðtöku. I bréfinu er þess m.a.
krafist að „erlend víghreiður verði
fjarlægð af landinu" og að „stjórn-
völd láti fjarlægja kjarnorkuvopn
af Islandi og búnað og aðstöðu til
beitingar slíkra vopna“.