Morgunblaðið - 10.05.1980, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. MAI 1980
kaff/nu 1 S®
GRANI GÖSLARI
Gættu þín. — Þetta er ábyggi-
lega nýtt leynivopn, sem þeir
hafa fundið!
Ég held bara hún ætli að syngja sig alla leið á bak við
hjartalokurnar!
Nei, þessi greiðsla dugar ekki!
Fyrirbærið
maður
í bréfi til Valvakanda 29.
apríl sl. þakkaði Þorsteinn Guð-
jónsson mér fyrir leiðréttingu á
fyrri ummælum hans þess efnis,
að lítið sem ekkert hefði verið
fjallað hérlendis um franska
mig að segja álit mitt á heilabrot-
um de Chardins. Því miður verð ég
þó að svo stöddu að færast undan
að ræða á almannafæri helztu bók
de Chardins, „Fyrirbærið maður“,
en um það bil 15 ár eru síðan ég
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Oft veltir lítil þúfa þungu
hlassi, segir máltækið. Og segja
má. að í spili dagsins hafi suður
orðið fórnarlamb þúfu. sem ekki
var há í loftinu. Gott útlit blekkti
og við fyrsta möguleika lék hann
af sér besta vinningnum.
Vestur gaf, allir á hættu.
Norður
S. 975
H. ÁD75
T. K74
L. ÁD2
Vestur
S. ÁKG1063
H. K98
T. G2
L. 53
Austur
S. 82
H. 6
T. D9853
L. G10876
Suður
S. D4
H. G10542
T. Á106
L. K94
Sagnirnar voru eðlilegar:
heimspekinginn Teilhard de Char-
din. Hafði ég minnst á ágæta
Lesbókarkynningu Matthíasar
Eggertssonar á Hólum í Hjalta-
dal, aldavinar míns og nárnsfélaga
í lestri milli lína hinnar áþreifan-
legu tilveru. Má bæta því við, sem
getið er í grein Matthíasar, að
séra Guðmundur Sveinsson flutti
útvarpserindi um de Chardin fyrir
10 árum.
Áhugi þeirra séra Guðmundar,
Matthíasar og Þorsteins á hugsuði
þessum ætti að vera nægileg
meðmæli og öðrum hvatning til að
íhuga stórbrotnar kenningar
þessa lærða guðfræðings og nátt-
úrufræðings.
Mér er ljúft og skylt að þakka
Þorsteini velvild í minn garð og
traust á dómgreind minni og
þekkingu, er hann leggur fyrir
kynnti mér heimspeki höfundar.
En þyngra vegur, að ég hætti að
hugsa um svipað leyti og sneri
mér að veðurfræði.
Æskuhrifning á viðfangsefnum
dr. Helga Pjeturss gerir að vísu
vart við sig hjá mér um þessar
mundir, en skynjun hans var
víðfeðm í tíma og rúmi líkt og
hugleiðingar de Chardins. Bið ég
Þorstein um 5 ára frest til að
ígrunda í frístundum kenningar
þessara spekinga með hliðsjón af
nýrri þekkingu.
Lýk ég með kveðju til Þorsteins
og ósk um góða vöku. Megi honum
vel vegna með hugvekjum sínum
um fjarlægan sjóndeildarhringinn
og stefnuna þangað — vel þrátt
fyrir villandi öldurót dægurmál-
anna efst í hugum manna.
Þór Játvarður Jakobsson
Vestur Norrtur
t Sp. l)oh)
Pass I llj.
Austur Surtur
Pass :i llj.
Allir pass |>ass
Vestur tók tvo fyrstu slagina á
spaða og spilaði síðan gosanum.
Af tómrí skyldurækni trompaði
austur og hiklaust trompaði suður
betur. En það bjó til hættu í
spiiinu. Enda lagði vestur kónginn
á þegar suður spilaði næst tromp-
gosanum og vörnin þannig orðin
örugg með slag á tromp.
Vinningsleið var þá fyrir hendi.
Sagnhafi gat tekið á tromþás og
drottningu, tekið slagina tvo á
tígul og síðan þrisvar lauf. Vestur
hefði þá getað trompað en um leið
dæmt sig til að spila næst út í
tvöfalda eyðu en þá hefði sagnhafi
trompað á annarri hendinni og
látið tígultapslaginn af hinni og
spilið unnið þar með. En suður
kom ekki auga á þessa aðferð og
gaf í allt fjóra slagi, einn á hvorn
rauðu litanna auk tveggja á spaða.
En það var í þriðja slag, sem
þúfan velti hlassinu. I stað þess að
trompa betur þriðja spaðann gat
suður næstum tryggt vinning með
því að láta tígul. Austur mátti fá á
trompsexið en vestur fengi þá
engan á tromp og spilið í rauninni
búið þar með.
Frestur til að ljúka lagfæringum
á vatnshitunartækjum að renna út
A UNDANFÖRNUM árum hafa
orðið sprengingar í íbúðarhúsum
af völdum rafhitaðra vatnshitun-
artækja. Þessar sprengingar hef-
ur mátt rekja til ófullnægjandi
öryggisbúnaðar hitatækjanna.
Árið 1978 voru gefnar út nýjar
reglugerðir um vatnshitunartæki
með rafhitun, svo sém miðstöðv-
arkatla og neysluvatnsgeyma,
ásamt vatnshitakerfum þeirra.
Helstu breytingar frá fyrri
reglugerðum voru að öryggisbún-
aður tækjanna var aukinn, ná-
kvæmari reglur voru settar um að
búnaður sé merktur framleiðanda
og að gerð tækjanna sé prófuð og
viðurkennd af Rafmagnseftirliti
ríkisins og Öryggiseftirliti ríkis-
ins. Einnig voru sett ákvæði um
reglubundnar prófanir á öryggis-
búnaði.
Þessar nýju reglur tóku gildi
árið 1978 fyrir ný vatnshitunar-
tæki og -kerfi, en festur til að
ljúka lagfæringum eldri vatnshit-
unartækja og -kerfa veittur til 1.
júlí 1980. Eftir þann tíma skulu
því einnig eldri vatnshitunartæki
með rafhitun og kerfi tengd þeim,
uppfylla kröfur um öryggisbúnað
samkvæmt þessum reglum.
Notendum og kaupendum not-
aðra vatnshitunartækja með
rafhitun skal sérstaklega bent á
að vatnshitunartæki, sem hafa
verið tekin niður t.d. vegna til-
komu hitaveitu, eru í mörgum
tilvikum ekki með tilskildum ör-
yggisbúnaði. Óheimilt er að setja
þessi tæki upp að nýju og taka í
notkun, nema þau uppfylli kröfur
um öryggisbúnað samkvæmt áð-
urnefndum reglum.
Nánari upplýsingar fást hjá
Rafmagnseftirliti ríkisins og Ör-
yggiseftirliti ríkisins, Siðumúla
13, Reykjavík og hjá rafmagnseft-
irlitsmönnum víðsvegar um land-
ið.
Frá lögreglunni:
Vitni vantar að ákeyrslum
SLYSARANNSÓKNADEILD lög-
reglunnar hefur beðið Morgunblað-
ið að auglýsa cftir vitnum að
cftirtöldum ákeyrslum í borginni.
Þeir, sem veitt geta upplýsingar,
eru beðnir að hringja í síma 10200.
Laugardaginn 26.4. á tímabilinu
frá miðnætti að hádegi var ekið á
bifreiðina R-9979, sem er rauður
Oldsmobile, við Vatnsstíg 4.
Laugardaginn 26.4. á tímabilinu
frá miðnætti til kl. 12.45 var ekið á
bifreiðina R-57613, sem er hvítur
Volkswagen, á bifreiðarstæði við
bensínsöluna Vitatorgi. Tjónvaldur
sennilega grænleit jeppabifreið.
Þriðjudaginn 29.4. á timabilinu
frá kl. 13.00—14.00 var ekið á
bifreiðina R-61791 sem er hvít
Citroen GS, í Vallarstræti við Aust-
urvöll. Tjónvaldur gul bifreið.
Fimmtudaginn 1.5. á tímabilinu
frá kl. 17.30—17.50 var ekið á
bifreiðina R-60038, sem er grænn
Datsun, á bifreiðastæði við Hraun-
bæ 49.
Föstudaginn 2.5. á tímabilinu frá
kl. 12.30—17.15 var ekið á bifreiðina
R-49781, sem er grænn Lancer, á
bifreiðastæði við verslunina Ellings-
en Ánanaustum.
Föstudaginn 2.5. á tímabilinu frá
kl. 12.00—15.00 var ekið á bifreiðina
R-4120, sem er rauður Ford Futura,
í bifreiðastæði við Laugardalshöll-
ina.
Sunnudaginn 4.5. á tímabilinu frá
miðnætti til 13.40 var ekið á bifreið-
ina R-6022, sem er rauður Fiat, við
Furugerði 1.