Morgunblaðið - 10.08.1980, Síða 48
Síminn
á algreiðslunni er
83033
Jfl*rj}imblaí>i&
jwgguiiltlðfeifr
'S Síminn á afgreióslunm er
83033
JKtronnblnbib
SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1980
Drukknir laxveiðimenn skutu fölsku blysi á loft:
Leitað í 10 klukkustundir
úr lofti, af landi og á sjó
Áfengisþjófarnir:
Stálu bíl
til að kom-
ast á brott
með þýfið
RANNSÓKNARLÖGREGLA
ríkisins handtók í fyrrinótt tvo
menn, sem stolió höfðu miklu
matrni af áfemri úr Glæsibæ
nóttina áður. I fórum þeirra
fundust 50 — 60 áfenKÍsflöskur en
Krunur lék á þvi að mennirnir
heföu haft meira upp úr krafs-
inu. Þe^ar þeir voru handteknir
voru þeir undir áhrifum af þýf-
inu, ef svo má að oröi komast ok
því ekki viðræðuhæfir.
Báðir þessir menn hafa marg-
sinnis komið við sögu hjá lögregl-
unni. Þá langaði mjög í áfengi á
fimmtudagskvöldið og urðu ásátt-
ir um að brjótast inn í Glæsibæ.
Þar komust þeir í feitt, náðu
tugum flaskna af áfengi og um 400
þúsund krónum í peningum. Svo
mikið var þýfið að þeir þurftu að
stela bíl til þess að komast með
það allt á brott. Grunur féll á
mennina og voru þeir gripnir
nóttina eftir.
í ískönnun-
arflugi við
Grænland
DANSKA ríkið hefur gert
samning við Flugleigu Sverris
Þóroddssonar um ískönnunar-
flug við Grænland.
Sverrir sagði í samtali við
Mbl. í gær, að reiknað væri
með því að flogið yrði tvisvar,
þrisvar í viku næstu einn og
hálfan mánuðinn eða tvo og er
tilgangurinn með fluginu að
gera ískort vegna olíuleitar við
Grænland. Sagði Sverrir, að
Dönum )>ætti brýn nauðsyn á
nýjum ískortum, þar sem þau,
sem þeir hafa nú undir hönd-
um, voru gerð af Þjóðverjum
og það nýjasta frá árinu 1943.
274 hvalir
hafa veiðst
ÞOKUR hafa verið á hvalamiðun-
um vestur af landinu að undan-
förnu og tafið veiðar. Engu að
síður er veiðin nú mun meiri en á
sama tíma og í fyrra og hafa alls
veiðst 274 hvalir.
Skiptingin er sú að veiðst hafa»
217 langreiðar, 51 búrhvalur og 6
sandreiðar. Þær eru nýlega komn-
ar á hvalamiðin við landið.
FJÖLDI manns leitaði í fyrrinótt
og fram á morgun í Kær. að
mönnum í sjávarháska, eftir að
neyðarblys hafði sést út af Akra-
nesi, í átt að BorKarfirði. Var hér
um að ra-ða rautt svifblys, ok hóf
varðskip þegar að leita á svæð-
inu, ok einnÍK voru leitarflokkar
kallaðir út.
Um klukkan sjö í gærmorgun
var síðan kölluð út þyrla til
leitarinnar, enda eru á þessum
slóðum fjöldi skerja sem erfitt er
FULLTRÚAR frá nýstofnuðu Út-
gerðarfélagi Norður-ÞinKeyinga
halda til Noregs í vikunni til þess
að kanna kaup á árs gömlum 467
tonna togara. en eigendur fyrir-
tækisins eru aðilar á Raufarhöfn
ok Þórshöfn. Áformaö er að hafa
samvinnu milli þessara tveKKja
staða um löndun á afla úr vænt-
að leita í nema úr lofti. Leitaði
þyrlan og leitarflokkur á landi á
Mýrum og þar í kring, allt þar til
klukkan 10 í gærmorgun. Upplýst-
ist þá að drukknir laxveiðimenn í
Laxá í Leirársveit höfðu skotið
blysinu upp.
Blysið sást um miðnætti aðfara-
nótt laugardags, og liðu því tíu
klukkustundir þar til uppgötvaðist
hvað gerst hafði. Þá höfðu sem
fyrr segir fjölmargir verið kallaðir
út til leitar, en auk þess sem blysið
anlegum togara og Rauðanúpi,
togara Jökuls á Raufarhöfn.
í samtali við Ólaf Kjartansson
framkvæmdastjóra Útgerðarfé-
lags Norður-Þingeyinga sagði
hann að ætlunin væri að reyna að
láta tvo togara landa sitt hvora
vikuna og skipta aflanum á milli
staðanna. Með því móti fengist
sást frá Akranesi, sá mjólkurbíl-
stjóri í Borgarfirði það og fólk í
Breiðholti í Reykjavík gerði einnig
viðvart um neyðarblysið.
Guðmundur Kærnested skip-
herra í stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar, sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær,
að varla þyrfti að taia um hve
alvarlegt mál væri hér á ferðinni.
Hefði tiltæki þetta valdið fjölda
manns óþægindum, auk þess
meiri stöðugleiki í hráefnisöflun
og vinnslu og stefnt er að sam-
ræmingu í útgerð togaranna.
Jökull á Raufarhöfn á 40% í
hinu nýja fyrirtæki, en 60% eiga
fjórir aðilar á Þórshöfn, Þórshafn-
arhreppur, Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar, Svalbarðshreppur, Kaup-
félag Langnesinga og Útgerðarfé-
lag Norður-Þingeyinga.
kostnaðar sem leit í margar
klukkustundir úr lofti, á landi og á
sjó óhjákvæmilega fylgir.
Þjófnaðarmálin:
Enn einn í
gæzluvarð-
hald í gær
RÚMLEGA tvítugur maður
var í gærmorgun úrskurðaður
í gæzluvarðhald til 13. ágúst
vegna rannsóknar á þjófnuð-
um úr allmörgum ibúðarhús-
um I Reykjavík að undan-
förnu. þar sem m.a. var stolið
miklu af borðbúnaði.
Fyrir sátu í gæzluvarðhaidi
tveir menn vegna rannsóknar
málsins. Hallvarður Ein-
varðsson rannsóknarlögreglu-
stjóri sagði í samtali við Mbl. í
gær að maður sá, sem úrskurð-
aður var í gæzlu í gærmorgun
væri hugsanlega í vitorði með
innbrotsþjófunum og hefði
þótt nauðsynlegt í þágu rann-
sóknar málsins að hefta för
hans. Unnið verður að rann-
sókn málsins um helgina.
Norður Þingeyingar:
Kaupa togara til að
samræma vinnslu