Morgunblaðið - 04.09.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980
47
íslendingar voru hársbreidd frá jafntefli
- Góður síðari hálfleikur nægði þó ekki
gegn sterku sovésku landsliði
Sovétmenn sigruðu íslendinga 2—1 i undankeppni HM i knatt-
spyrnu á LauKardalsvellinum i gærkvöldi, eítir að staðan í hálfleik
hafði verið 1—0 Rússum í vil. En það munaði ekki nema hársbreidd að
ísland nældi sér i annað stigið og hefði það að sjálfsögðu verið tíðindi
til næsta bæjar. Þannig var mál með vexti. að Rússarnir björguðu
tvívegis ævintýralega af marklínu á síðustu sekúndum leiksins. Þrátt
fyrir ágæta spretti í síðari hálfleik, hefði jafntefli þó varla verið í
samræmi við gang leiksins og aðeins ótrúleg markvarsla Þorsteins
Bjarnasonar framan af leiknum kom í veg fyrir að Rússarnir næðu
nokkurra marka forystu áður en tsland komst loks á blað með marki
Árna Sveinssonar á 75. mínútu. Varði Þorsteinn m.a. snilldarlega
vítaspyrnu. En Sovétmenn fengu ærlega að hafa fyrir sigrinum og
ísland sýndi það rétt einu sinni. að liðið á það til að standa sig með
miklum sóma þegar enginn gerir sér vonir sem eru utan seilingar
liðsins. Isiand náði næstum jafntefii. það hefði verið stórkostlegt, en
þrátt fyrir tap var frammistaðan góð og engin skömm að tapa með
einu marki gegn því ofurefli sem að sovéska liðið er gagnvart islenska
liðinu.
þar skellti Örn Óskarsson honum
flötum. Félagar Andrev fögnuðu
honum innilega og Buzjak stillti
knettinum upp á vítapunkti.
Island:
Rússland
Fyrri hálfleikur gaf sannarlega
enga vísbendingu um það sem
ísland sýndi síðan á köflum í
síðari hálfleik. Rússarnir höfðu þá
algera yfirburði og áhorfendur
létu fara lítið fyrir sér. Þetta var
mikið þreyfingar framan af hjá
Sovétmönnum og varnarmenn Is-
lands voru iðnir við að reka
tærnar í knöttinn á síðustu augna-
blikunum. Ef frá er talinn skalli
Oleg Blochin á 17. mínútu, skalli
sem fór yfir úr góðu færi, má heita
að fyrsta sovéska marktækifærið
hafi verið vítaspyrnan. Andrev
braust þá inn í vítateig Islands og
Enn
skoraði
Atli
Atli Eðvaldsson skoraði fyrra
mark Borussia Dortmund. er
liðið mætti og sigraði efsta liðið í
þýsku deildarkeppninni, Fortuna
Dusseldorf. Fyrir leikinn var
Fortuna með fullt hús stiga eftir
þrjár umferðir. En eftir leikinn
er Dortmund í sjötta sæti deildar-
innar með aðeins einu stigi
minna en efstu liðin, Fortuna og
fleiri.
Atli skoraði mark sitt strax á 2.
mínútu leiksins eftir að hafa
fengið stungusendingu inn fyrir
vörn Fortuna. Rudger Abramzick
skoraði síðan sigurmark Dort-
mund, eftir að Fortuna hafði náð
að jafna.
Þess má geta, að í gærkvöldi var
enn leikið í þýsku deildarkeppn-
inni. Þá urðu þau óvæntu úrslit, að
Hamburger sigraði Köln 3—0. Það
óvænta við sigurinn er, að leikið
var á heimavelli Köln. Ætti hagur
Skagamanna að vænkast við slík-
ar ófarir hjá Köln, möguleikarnir
á góðum úrslitum að verða meiri.
• Atli skoraði.
Spyrnti fast alveg út við stöng
hægra megin, en Þorsteinn gerði
sér lítið fyrir og varði snilldar-
lega. Aðeins 6 mínútum síðar varð
Pétur Ormslev fyrir meiðslum og
hvarf af leikvelli. í hans stað kom
inn á Sigurður Grétarsson.
Rússar héldu áfram uppteknum
hætti og langtímum saman komu
íslensku leikmennirnir varla við
knöttinn. Tveir Rússar voru bók-
aðir og á 35. mínútu kom fyrsta
mark leiksins. Kom markið eftir
slæm mistök Marteins Geirssonar
á miðjum eigin vallarhelmingi.
Rússi einn náði af honum knettin-
um og sendi inn í íslenska víta-
teiginn, þar sem Jourie Gavrilov
fékk knöttinn í algeru dauðafæri.
Skoraði hann örugglega. Rússar
sóttu áfram og íslendingar áttu
ekki skot á mark þeirra sem
talandi er um. Tvívegis ruku
þrumuskot þeirra rétt fram hjá og
það þriðja, frá Chivadse, varði
Steini meistaralega.
íslendingar áttu fyrstu umtals-
verðu aðför að marki í síðari
hálfleik, en Magnús Bergs skallaði
rétt fram hjá marki Sovétmanna.
En síðan virtist allt stefna í sama
farveginn. Bessonov skallaði
firnafast naumlega yfir markið og
Þorsteinn varði á ótrúlegan hátt
frá Oleg Blochin, sem kominn var
á auðan sjó fyrir miðju marki. En
íslendingar voru síður en svo
dauðir úr öllum æðum og um
miðbik síðari hálfleiks tóku þeir
að þjarma illa að Rússum. Albert
sendi laglega inn á Guðmund á 68.
mínútu, Guðmundur var í mjög
þokkalegu færi að sjá, en flýtti sér
heldur mikið og skaut hátt yfir.
Þremur mínútum síðar varði sov-
éski markvörðurinn meistaralega
vel tekna aukaspyrnu Árna
Sveinssonar af 25 metra færi. Og
aðeins fjórum mínútum síðar
jöfnuðu íslendingar og kom mark-
ið þrátt fyrir hinn nýja gang
leiksins, eins og þruma úr heið-
skíru lofti. Marteinn Geirsson
framkvæmdi þá aukaspyrnu á
miðjum véllinum og sendi háa
sendingu inn að marki Rússa.
Markvörðurinn Dasajev hljóp út
undir vítateigsbrún og kýldi
knöttinn hálfa leið til baka. Bolt-
inn lenti við fætur Árna Sveins-
sonar sem sendi hann umsvifa-
laust sömu leið með háu boga-
skoti. Var markvörðurinn ekki
kominn á sinn stað eftir úthlaupið
og kom engum vörnum við. Island
hafði jafnað og tóku áhorfendur
heldur betur við sér. Mínútu síðar
kom Kristján Olgeirsson inn fyrir
Sigurlás, sem var með takkaför
frá nára og upp á bringu.
En Rússarnir voru að vonum
ekki ánægðir með framvindu mála
og það tók þá aðeins 4 mínútur að
kippa málunum í lag sér í hag.
Sigurmarkið var glæsilegt, Bloch-
in hafði betur en Orn Óskarsson á
hægri vængnum, slapp að enda-
mörkum og sendi fyrir á höfuðið á
Andrev, sem skallaði hörkufast í
netið. Óverjandi með öllu. Rúss-
arnir reyndu nú að tefja leikinn og
fóru sér hægt. Þeir liðu næstum
fyrir það, því á síðustu sekúndum
leiksins slapp íslenska liðið i sókn.
Eftir langt innkast, barst knöttur-
inn til Sigurðar Grétarssonar,
hann kastaði sér fram og skallaði
að marki af stuttu færi, en á
ótrúlegan hátt tókst Rússa nokkr-
um að koma fæti fyrir á línunni.
Knötturinn sveif upp í loftið, í
góðu færi fyrir Magnús Bergs,
sem skallaði fast í bláhornið, en
Dasajev sýndi hvers hann var
megnugur og varði af mikilli
snilld. Sigurður meiddist nokkuð í
rimmunni og yfirgaf Laugardal-
inn á sjúkrabörum.
íslenska liðið sýndi á sér tvær
hliðar að þessu sinni, þá undir-
gefnu í fyrri hálfleik, þar sem
leikmenn reyndu þó allt sem þeir
gátu. Og síðan geysilegt baráttu-
þrek í síðari hálfleik, er þeir píndu
út úr sér meira heldur en þeir
sýna að öllu jöfnu. Síðari hálfleik-
ur var á köflum mjög vel leikinn
af hálfu íslenska liðsins. Bestu
menn varnarinnar voru Örn, Við-
ar og Þorsteinn, sem var stórkost-
legur í markinu. Tengiliðirnir
börðust allir vel og sérstaklega
komust Magnús og Guðmundur
vel frá sínu. Hlutskipti framherj-
anna var ekki öifundsvert frekar
en fyrri daginn. Þeir börðust þó að
kappi og Sigurður Grétarsson
sýndi mjög góðan leik, skilaði
knettinum vel frá sér og gaf
ekkert eftir. Sovéska liðið er
sterkt og erfitt að gera upp á milli
einstakra leikmanna. Gavrilov,
Blochin og Chivadse sýndust þó
allir afburða góðir knattspyrnu-
menn. Dómarinn írski var nokkuð
góður og athygli sérstaka vakti er
Rússar ætluðu að skipta inn á
leikmanni. Fyrsti varamaðurinn
fékl{ ekki að koma inn á vegna
fótabúnaðarins. Var eitthvað í
ólagi með takkana. Þá reyndi
annar, en fékk sömu útreið. Það
var ekki fyrr en sá þriðji brá sér í
lánsskó, að hann fékk að fara inn
á völlinn ...
í STUTTU MÁLI:
Undankeppni HM, 3-riðill: ísland
— Rússland 1—2 (0—1)
MARK íslands: Árni Sveinsson
(75)
MÖRK Rússa: Gavrilov (35) og
Andrev (79)
ÁMINNINGAR: Hiddiathullin,
Blochin og Schlakavedsje.
ÁHORFENDUR: 4190. - 88-
• Sigurður Grétarsson í baráttu við sovéskan varnarmann. Sigurður
sýndi margt gott i leiknum i gær, greinilega framtíðarmaður.