Morgunblaðið - 09.09.1980, Side 40

Morgunblaðið - 09.09.1980, Side 40
Síminn á afgreióslunni er 83033 JRtreonblabib Þak- gluggar #Nýborg? Armula 23 — Sími 86755 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 1980 Flugleidir: „Eignir verulega umfram skuldir44 „Snúum taprekstrinum í jákvæðan rekstur með eðlilegri kjölfestu,“ segir Sigurður Helgason „ÞAÐ hefur le^id í loftinu ok getgátur hafa verið um það að fjárhagsstaða Flugleiða væri mjög slæm,“ sagði Sigurður Heigason forstjóri Flugleiða á biaðamannafundi í gær þar sem forystumenn Flugleiða kynntu fjárhagslega stöðu félagsins og rekstraráætlun fyrir tímabilið 1. nóv. nk. til 31. okt. 1981 „en hið rétta er,“ hélt Sigurður áfram. „að fjárhagsstaða félagsins er mjög jákva*ð. í beinu framhaldi af þeim aðgerðum og samdrætti sem nú hefur verið ákveðinn, teljum við að unnt verði að koma félaginu á réttan kjöl, að taprekstrinum verði snúið í jákvæðan rekstur með eðlilegri kjöifestu. í umræddri skýrslu Flugieiða, sem send var Steingrími Ilermannssyni samgönguráðherra í gær, kemur fram að þrátt fyrir tap féiagsins á sl. ári og á yfirstandandi ári eru eignir Flugleiða veruiega umfram skuldir og endurmetið eigið fé fyrirtækisins er frá 30. júní sl. um 13 miíljarðar króna. Reiknað er með að Flugleiðir verði reknar með hagnaði á næsta rekstrarári.“ í skýrslunni kemur fram að meginástæðurnar fyrir tapinu á Norður-Atlantshafsfluginu séu gífurlegar eldsneytis- hækkanir samfara gífuríegri samkeppni, samdráttur í efna- hagslífi vesturlanda, minnk- andi flutningar og mikil verð- bólga á Islandi. Þá segir í skýrslunni að stjórnin telji tryggt að myndaður hafi verið öruggur rekstrargrundvöllur fyrir áframhaldandi starfsemi Flugleiða innan þeirra marka sem fyrirhuguð eru. í bréfinu til samgönguráð- herra, en afrit af því voru send forsætisráðherra, utanríkis- ráðherra og fjármálaráðherra, kemur fram að samkvæmt þeirri áætlun sem nú liggur fyrir um rekstur Flugleiða frá 1. nóv. nk. til 1. nóv. 1981, verði hann jákvæður um 900 millj- ónir kr. Afskriftir á tímabil- inu eru þá reiknaðar 3 millj- arðar króna, en tekið er fram að hér sé um varfærnislega áætlun að ræða þar sem höf- uðáhersla er lögð á að komast út úr taprekstri að undan- förnu. Þá kom fram á fundinum að stjórn Flugleiða hefur óskað eftir viðræðum við ríkisstjórn íslands um úrlausn vegna erf- iðrar greiðslufjárgetu félags- ins, þar sem m.a. verði fjallað um aðstoð ríkisins til að breyta skammtímaskuldum í föst lán. .. „ S)á bls. 3. BHM samdi án grunn- kaupshækkana SAMNINGAR hafa tekizt milll fjármáiaráðherra og launamálaráðs Bandalags há- skólamanna um nýjan kjara- samning til eins árs. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að um væri að ræða kjarasamning i fullu samræmi við stefnu ríkis- stjórnarinnar og kjarasamn- ing BSRB um láglaunabætur, þannig að i þessum kjara- samningi Bandalags háskóla- manna væri ekki gert ráð fyrir neinni kauphækkun. Ragnar Arnalds vildi ekki tjá sig frekar um samninginn við Bandalag háskólamanna, en kvað fréttatilkynningu verða senda út um hann í dag. Samkvæmt því, sem líklegt má telja, má gera ráð fyrir, að samningurinn við BHM geri ráð fyrir þvi, að ríkissjóður tryggi félagsmenn BHM, verði þeir atvinnulausir og þeir fái sambærilegar breytingar um lífeyrisréttindi, 95 ára regluna og að samningstími bandalags- ins þurfi ekki að vera 2 ár að lágmarki. Útflutningur SÍF: Starfsbródur heilsað Ljósm.: ól.K.M. Ortodoxir prestar sem hingað eru komnir til viðræðna sungu messu í Dómkirkjunni í Reykjavík sl. sunnudag. Fjölmenni var við messuna og meðal viðstaddra voru biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson og frú. Mynd þessi var tekin er Sigurbjörn heilsaði starfsbróður sínum frá Finnlandi, Jóhannesi metropolitan, er hann kom til guðsþjónustunnar. Sjá nánar á bls. 20. Tillögur Steingríms um aðstoð við Flugleiðir: Lendingargjöld felld niður fram yfir 1981 Aðstaðan á Keflavíkurflugvelli verði félaginu að kostnaðarlausu STEINGRÍMUR Hermannsson samgönguráðherra mun á ríkis- stjórnarfundi i dag leggja fram tillögur sinar um aðstoð ríkisins við Flugleiðir, sem meðal annars fela i sér niðurfellingu lend- ingargjalda vegna Atlantshafs- flugsins, að minnsta kosti fram yfir 1981, og að Flugleiðum verði ekki gert að greiða fyrir aðstöðu á Keflavikurflugvelli. en hún mun kosta Flugleiðir nú hátt i 100 milljónir króna á ári. Steingrimur hefur óskað eftir þvi við stjórnvöld i Luxemburg, að fyrirhuguðum viðræðum is- lenzkra og þarlendra stjórnvalda verði frestað fram í næstu viku. Verðmætið 50 milljarðar f yrstu 8 mánuði ársins VERÐMÆTI útflutnings á veg- um Sölusambands islenzkra fisk- . framleiðenda var nálægt 50 millj- örðum islenzkra króna, að þvi er segir i frétt frá fyrirtækinu i tilefni umræðna um fisksölumál i Portúgal. SÍF hefur á þessu ári samið um sölur á 45—47.000 tonnum af blautsöltuðum saltfiski af hinum ýmsu stærðar- og gæðaflokkum. Af þessu magni voru um 20.000 tonn af þorski seld til Portúgal auk nokkurs magns af öðrum og ódýrari tegundum, sem vart finnst markaður fyrir annars staðar, eins og fram kemur í fréttinni frá SÍF. Afskipanir upp í þessa samn- inga hófust strax í ársbyrjun og til loka ágúst hefur verið afskipað af framleiðslu þessa árs til Portúgal 19.600 tonnum, til Spánar 10.000 tonnum, til Ítalíu rúmlega 5.000 tonnum og til Grikklands 2.300 tonnum. Auk þess hafa farið til Þýzkalands 1.000 tonn af söltuðum ufsaflökum og rúmlega 1.000 tonn af söltuðum þorskflökum hafa verið seld, einkum til Ítalíu. Sjá fréttatilkynningu SÍF á bls. 19. en stjórnvöld i Luxemburg höfðu svarað tilmælum islenzku ríkis- stjórnarinnar um viðræður á þann veg, að af þeim gæti orðið i þessari viku. Steingrímur Hermannsson sagði í samtali við Mbl. í gær- kvöldi, að ástæða þess að hann hefði óskað eftir fresti á viðræð- unum fram í næstu viku, væri, að enn væri svo margt óljóst varð- andi málin hér heima. Nefndi Steingrímur sem dæmi, að hann hefði ekki séð skýrslu Flugleiða um fjármál félagsins, sem honum var send í gær, og einnig virtust mál miklum breytingum undir- orpin, þar sem fyrst hefði verið rætt um að fella flug milli Lux- emburg og Ameríku niður, en nú virtist sem Flugleiðir hygðust halda einhverju flugi uppi. „Það þýðir ekkert að hefja viðræður við stjórnvöld í Luxemburg, fyrr en við erum búnir að ákveða, hvernig við viljum halda á málunum," sagði Steingrímur. Mbl. spurði Steingrím álits á þeirri hugmynd, að lausaskuldum Flugleiða verði breytt í langtíma- lán. „Ég skal hvorki játa henni né neita að svo stöddu," svaraði Steingrímur. „Það er greinilega ýmislegt sem þarf að ræða og fá á hreint, áður en við getum tekið ákvörðun úm það, hvernig við viljum standa að þessum málum í framtíðinni."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.