Morgunblaðið - 21.10.1980, Síða 44

Morgunblaðið - 21.10.1980, Síða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1980 KA tapaði með einu marki eftir hörkuleik að Varmá AFTURELDING í Mosfellssveit bar sigurorð af liði KA 16—15 síðastliðinn laugardag er liðin mættust í fyrsta leik sínum í íslandsmótinu í handknattleik í 2. deild. Leikur liðanna var æsi- spennandi og vel leikinn, og gaf sumum þeim leikjum sem fram hafa farið í 1. deild ekkert eftir hvað gæði handknattleiksins snertir. Bæði þessi lið sýndu að þau eiga eftir að vera meðal efstu liða í 2. deild. Þau hafa góðum handknattleiksmönnum á að skipa og reyndir þjálfarar eru með liðin. Lið Aftureldingar þjálfar Pétur Bjarnason og lið KA Birgir Björnsson. rA- 16:15 • Einar Magnússon, fyrrum landsliðsmaður í handknattleik, sést hér skora fyrir sitt gamla félag Víking. Nú leikur Einar með liði Aftureldingar í Mosfellssveit í 2. deildinni. Einar skoraði 9 mörk á móti KA. Hart barist í lok leiksins Þegar aðeins þrjár mínútur voru til leiksloka í leik UMFA og KA var staðan í leiknum jöfn 15—15. Erlingur Kristinsson hafði jafnað metin fyrir KA með góðu skoti. Leikmenn UMFA hófu sókn og léku skynsamlega og héldu boltanum. KA lék vörnina vel og varðist af krafti en varð fyrir því óhappi að missa einn leikmann útaf og léku því einum færri síðustu mínútur leiksjns. Gústaf náði að brjótast í gegn um vörn KA en var óheppinn með skot sitt sem mistókst. Nú átti lið KA möguleika á að krækja í sigurinn þar sem rétt rúm mínúta var til leiksloka er þeir hófu sína síðustu sókn. UMFA brá á það ráð að taka Gunnar Gíslason úr umferð og fjórir leikmenn KA sóttu því gegn fimm varnarmönnum UMFA. Var leikur þeirra ekki nægilega ákveð- inn og fyrir hreinan klaufaskap misstu þeir boltann. Steinari Tómassyni tókst að krækja honum frá einum leikmanni KA, komst í hraðaupphlaup en brotið var á honum. Var það nokkuð strangur dómur að dæma vítakast á brotið eins og gert var. Úr vítakastinu skoraði svo Einar Magnússon og innsiglaði naumlega sigur UMFA, við mikil fagnaðarlæti fjölda áhorfenda. Jafn leikur Leikur liðanna var allan tímann mjög jafn. Afturelding hafði for- ystuna framan af í fyrri hálfleikn- um en síðan seig lið KA á og náði forystunni um miðjan fyrri hálf- leik. Framan af leiknum voru leikmenn KA óheppnir með skot sín og ágæt marktækifæri af línunni. Staðan í hálfleik var 9 mörk gegn 8 fvrir KA. í síðari hálfleik var hart barist og jafnt var fyrstu 16 mínútur síðari hálfleiks en þá seig lið UMFA framúr og náði um tíma þriggja marka forystu 15—12. KA tókst þó með góðri baráttu að jafna metin og jafntefli hefði ekki verið ósanngjörn úrslit leiksins. Liðin Lið Aftureldingar lék vel. Varn- arleikur þeirra var góður og markvarsla Emils góð allan leik- inn. I sóknarleiknum bar mest á fyrrverandi landsliðskappa úr Víkingi, Einari Magnússyni, sem nú leikur með Aftureldingu. Skor- aði Einar 9 mörk af 16 mörkum liðsins. En leikmenn UMFA eiga að varast að stóla um of á Einar í sókninni. Þá var Steinar Tómas- son góður í sókninni. Lið UMFA á án efa eftir að ná langt í 2. deild í vetur. Lið KA sýndi ágætis leik. Vörn liðsins var nokkuð góð en sóknar- leikurinn gæti verið beittari. Lið- inu virðist vanta skyttur. Þeir Gunnar Gíslason og Friðjón voru hættulegastir í sókninni. Línuspil og hornamenn nýttust ekki nægi- lega vel. Liðinu verður mikill styrkur að fá Erlend Hermanns- son til liðs við sig í næsta leik, en hann lék ekki með á laugardag. Lið KA verður án alls vafa meðal efstu liða í 2. deild í vetur, og verða erfiðir heim að sækja ef að líkum lætur. Mörk UMFA. Einar Magnússon 9, 3 v, Steinar 4, Gústaf, Þórður og Ingvar 1 mark hver. Mörk KA: Gunnar Gíslason 8, 2 v, Friðjón 4, Magnús, Guðbjörn, og Erling 1 mark hver. Dómarar í leiknum voru þeir Guðmundur Magnússon og Ingvar Viktorsson og dæmdu þeir erfiðan leik með miklum sóma allan tímann. - þr rbianflsnmiö 2. flelld Ármann átti aldrei von KA VAR ekki í vandræðum að næla sér í tvö stig gegn mjög slöku liði Ármanns i 2. deild íslandsmótsins í handknattleik um helgina. Lokatölur leiksins urðu 23—17, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12—8. KA virðist hafa þokkalegu liði á að skipa, þó að líklegt sé að fjarvera Alfreðs Gíslasonar hafi veikt liðið til muna frá síðasta keppnistímabili. Ármann hefur einnig orðið fyrir umtalsverðri blóðtöku, Jón Viðar og Heimir Gunnarsson hættu hjá félaginu og stórskyttan Friðrik Jóhannesson lék ekki með liðinu. Ármenningar máttu engan veginn við þeim missi og við blasir erfiður vetur. Eins og liðið lék gegn KA er ekkert framundan annað en fall- barátta. Ástæðulaust er að fara orðum um gang leiksins, KA hafði for- ystu allan tímann. Gunnar Gísla- Ármann — KA 17—23 son var atkvæðamestur hjá KA, einnig voru Þorleifur og Friðjón drjúgir. Hjá Ármanni bar mest á Einari Eiríkssyni, en aðrir voru beinlínis slakir. Mörk Ármanns: Einar Eiríks- son 5, Björn Jóhannesson 4 (2 víti), Haukur Sigurðsson, Kristinn Ingason og ívar Jósafatsson skor- uðu tvö mörk hvor og Atli Jósa- fatsson skoraði eitt mark. Mörk KA: Gunnar Gíslason 7 (3 víti), Þorleifur Ananíasson 6, Friðjón Jónsson 3, Björn Frið- þjófsson og Magnús Guðmundsson 2 hvor, Magnús Birgisson og Erlingur Sigurðsson eitt hvor.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.