Morgunblaðið - 21.10.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.10.1980, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1980 Sijfurvegararnir. SÍKurður «k Hilmar, á fullri ferð. IJosmynd Mbl. Kristinn. „Rally special“ í fyrsta sinn hér á landi: Fimmtán bílar mættu til leiks „RALLY-Special keppni“ fór fram hér á landi í fyrsta skipti sl. lauKardaK. Keppnin fór íram á fluKvallarsvæðinu við llótel Loftleiðir ok tóku 15 hílar þátt í keppninni. „Rally speeial“ fer þannÍK fram. að afmarkaðar eru sér- stakar hrautir «k ekur einn híll hrautina í einu. Keppikeflið er að aka hrautina á sem skemmst- um tíma. SÍKurveKari í þessari fyrstu keppni varð SÍKurður Jórunds- s«n. en aðstoðarmaður hans var Ililmar B()ðvarss«n. Þeir óku Skoda RS 130. sem er sérbyKKð- ur til rallaksturs. í öðru sæti varð EKKert Sveinbjörnsson, sem ók á Mazda RX7. en aðstoðarmaður hans var MaKnús Jónasson. í þriðja sæti urðu svo ÁsKeir SiKurðsson «k aðstoðarmaður hans. InKÍmundur InKÍmundar- son, en þeir óku á Lada-híl. Við verðlaunaafhendinKuna, fv. MaKnús Jónasson. EKKert Svein- björnsson. SÍKurður Jörundsson, Hilmar Böðvarsson ok ÁsKeir SÍKUrðsson. (Ljúanynd Mbl. AS). Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks Norðurlandi vestra: Omar Halldórsson kjörinn formaður ÓMAR Halldórsson, SÍKlufirði, var um helKÍna kosinn formaður Kjör- dæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. en aðalfundur ráðsins var haldinn á HvammstanKa um helKÍna. Ómar sagði í samtali við Mbl., að fundurinn hefði verið fjöisóttur og fjörugar umræður hefðu farið fram. Aðallega hefðu verið til umræðu hefðbundin kjördæmismál. Með Ómari í aðalstjorn ráðsins voru kosin Óli H. Blöndal, Siglufirði, Friðrik J. Friðriksson, Sauðárkróki, Knútur Aadnegaard, Sauðárkróki og Stefán Jónsson, Kagaðarhóli, sem var formaður á sl. starfsári. í varastjórn voru kosin Sigurður Hafliðason, Siglufirði, Anna Herp- ervig, Siglufirði, Pálmi Jónsson, Sauðárkróki, Sigríður Guðráðardótt- ir, Sauðárkróki og Steingrímur Yngvason, Reykjum. Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks Norðurlandi eystra: Svanhildur Björgvinsdótt- ir endurkjörin SVANHILDUR Björgvinsdóttir. Dalvík. var um helgina endurkjorin formaður kjorda-misráðs Sjálfstæð- isflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra, en aðalfundur ráðsins var haldinn á Ilúsavik um helgina. Auk Svanhildar voru kjörin í aðalstjórn kjördæmisráðsins Hösk- uldur Sigurgeirsson, Húsavík, Sig- urður B. Björnsson, Ólafsfirði, Sig- urður Hannesson, Akureyri og Valdimar Kjartansson, Hauganesi. I varastjórn voru kjörin þau Helgi Óla'áson, Raufarhöfn, Sveinbjörn formaður Steingrímsson, Dalvík, Þórunnn Sig- urbjörnsdóttir, Akureyri, Tryggvi Pálsson, Akureyri og Guðmundur Frímannsson, Akureyri. Svanhildur sagði í samtali við Mbl. í gærdag, að aðalfundurinn hefði verið mjög vel sóttur og þar hefði ríkt góð stemmning. Hún sagði, að aðalmál fundarins hafi verið innri skipulagsmál sjálfstæð- ismanna heima í kjördæminu, en ennfremur hefðu mörg önnur mál verið rædd, s.s. skólamál og land- búnaðarmál. Ungur ísfirðingur varð fyrir voðaskoti ísafirði. 1K. okt. UNGUR ísfirðinKur varð fyrir skoti úr haglahyssu félaga síns skammt frá lai'num Laugarási í Skjaldfannardal í gær. Hann lÍKKur nú á Borgarspítalanum i Reykjavik með mikinn áverka á höfði. hálsi, herðum ok hrjóst- holi. Nánari tildrög eru þau að fjórir ungir menn, 17 og 18 ára, fóru frá Isafirði á fimmtudag til rjúpnaveiða inn í Djúp. Á föstudagsmorgun fóru þrír þeirra saman til veiða með eina rússneska haglabyssu númer 12. Sá, sem með byssuna var hæfði rjúpu, sennilega um klukkan 10,30 um morguninn. Þegar hann var að undirbúa byssuna fyrir næsta skot hljóp skotið úr henni án þess að hann gerði sér grein fyrir hvers vegna og í félaga hans, sem stóð í 10 metra fjarlægð. Flest höglin komu í höfuð piltsins við eyrað en eitthvað mun hafa farið í háls, herðar og brjósthol. Einn piltanna hljóp að bænum Laugarási og lét vita af slysinu. Þaðan var hringt í héraðshjúkrun- arkonu, sem býr í Djúpinu og á Unnar kjötvörur hækka í dag UNNAR kjötvörur munu hækka í verði frá og með deginum í dag og er hækkunin á bilinu 17—23%. Þessi hækkun er í samræmi við búvöruhækkun, sem ákveðin var í haust. Sem dæmi um hækkanir á algengum tegundum má nefna að kílóið af vínarpylsum hækkar í 3200 krónur og kílóið af kjötfarsi hækkar í 2050 krónur. sjúkrahúsið á Isafirði. Hjúkrunar- konan kom á vettvang um það bil klukkustund eftir að slysið varð. Veitti hún fyrstu hjálp en síðan var pilturinn fluttur með bíl á flugvöll- inn við Melgraseyri. Um líkt leyti lenti þar flugvél frá Örnum með Stykkishólmi. 19. október. í GÆR varð eldur laus í íbúðar- húsinu nr. 7 við Sundabakka í Stykkishólmi. en hús þetta er steinhús með timburlofti og -sperrum. Þá er og einangrun. Eldurinn virtist vera mestur eða allur i einu herbergi. Loft hafði orðið eldinum að bráð og varð slökkviliðið að rjúfa þekjuna til að komast fyrir hann. Það var um kl. 17, að brunakall barst um bæinn og strax kom slökkviliðið á vettvang og að dreif múgur manns. Húsið, sem er nýlegt og í nýju hverfi í útjaðri bæjarins, var umvafið reyk. Ung hjón áttu þetta hús og höfðu þau farið fyrir tveim dögum til Reykjavíkur í erindagjörðum og gengið vel frá húsinu. Þau voru nú á leið heim er þetta kom fyrir og komu þarna að öllu í ömurlegu ástandi. Nágranni þeirra hafði tekið eftir, að eitthvað var á seyði, þegar rúða í húsinu sprakk og eldur og reykur gusu út. Hringdi lækni frá Isafirði. Flugvélin fór með piltinn og lækninn til Reykjavíkur, þar sem sjúklingurinn var lagður á Borgarspítalann. Hann mun þrátt fyrir mikla áverka hafa verið með meðvitund mest allan tímann. —Úlfar. hann þegar í slökkviliðið. Gekk mjög greitt, eftir atvikum, að ráða niðurlögum eldsins, en þá voru skemmdir orðnar gífurlegar, bæði á innbúi og öllum viðum í húsinu. Er þetta margra milljóna tjón. Bæði hús og innbú var tryggt hjá Brunabótafélagi íslands, en innbú fremur lágt vátryggt. Matsmaður Brunabótafélagsins kom strax á vettvang að yfirlíta skemmdirnar og í dag er væntanlegur maður frá Reykjavík honum til aðstoðar við mat á tjóninu. Er þetta tilfinnanlegt fyrir ungu hjónin. Þau eiga þrjú börn, og verður því reynt að gera við skemmdirnar eins fljótt og auðið er svo fjölskyldan komist aftur í húsnæði sitt. Ekki var öruggt hver eldsupptök voru, en allt bendir til að þetta hafi verið út frá rafmagni. — Fróttarltarl Athugasemd Milljóna tjón í eldsvoða í Stykkishólmi Alfadans á Lækjartorgi SÍÐDEGIS í gær safnaðist saman nokkur mannfjöldi á Lækjar- torgi til að fylgjast með litskrúð- UKri uppákomu sem hljómsveitin Diabolus in musica stéW) fyrir. Fóru leikarar, klæddir kirtlum ok málaðir í framan i öllum reKnboKans litum, dansandi um ok héldu á stórum fánum. Fjallaði leikurinn um álfa og silfurbergsnámu er þeir áttu. Kom aðvífandi þurs, mikill og ljótur, sem rændi þá og vöktu gripdeild- irnar mikla reiði meðal álfanna, sem vænta mátti. Allt fór þó vel að lokum. Var þarna um að ræða kynn- ingu á nýrri hljómplötu, Lífið í litum, sem hljómsveitin Diabolus in musica mun gefa út innan skamms. Uppákoma á Lækjar- torgi var samin upp úr textunum, sem sungnir eru á plötunni, og hljómlist af henni leikin undir. Rúnar Guðbrandsson yfirfærði textana í leikritsform og leik- stýrði en meðlimir hljómsveitar- innar sáu um flutninginn ásamt vinum og vandamönnum. Hljómsveitina Diabolus in mus- ica skipa: Ágot Óskarsdóttir, Jóna Dóra Óskarsdóttir, Jóhanna Þór- hallsdóttir, Guðmundur Thorodd- sen, Sveinbjörn Baldvinsson og Tómas R. Einarsson. Útgefandi plötunnar er hljómsveitin sjálf. Virðulegi herra ritstjóri! Þann 10. október og 14. október sl., birtust í blaði yðar upplýsingar frá nokkrum fréttastofum, þar sem reynt var að rangfæra af- stöðu Sovétríkjanna í deilumáli írans og íraks. Þar er því haldið fram, að Sovétríkin hafi boðist til að selja Irönum sovésk vopn og að forsæt- isráðherra Irans hafi hafnað til- boðinu. Þessi útgáfa var ekki fyrr komin á prent, en höfundar henn- ar sendu frá sér nýja útgáfu, sem var sannarlega í öðrum dúr án þess að skammast sín fyrir slík vinnubrögð. Sovétríkin áttu að selja hinum styrjaldaraðilanum vopn, þ.e.a.s. írak. Okkur langaði að taka það fram, að í þessu tilfelli er algerlega rangt farið með staðreyndir. Eins og dagblaðið „Pravda“ skrifaði, var ekki um að ræða nein tilboð af hálfu Sovétríkjanna um vopnasölu til Irans og þar af leiðandi hafði forsætisráðherra írans engu að hafna. Sovétríkin eru mótsnúin því að skipta sér af deilumáli írans og Iraks, eða deilumálum, hvort sem um stórveldi er að ræða eða önnur ríki. Sovétríkin eru fylgjandi því, að deilan verði leyst sem fyrst, blóðsúthellingum aflétt og að íran og Irak leysi vanda sinn með samningaviðræðum og eftir póli- tískum leiðum. Sovéskir fjölmiðlar hafa fyrir löngu borið til baka ýmis konar uppspuna sem nokkrar fréttastof- ur hafa breitt út. Og hvað snertir fréttastofu APN á íslandi, þá hefur verið sent þaðan samsvar- andi efni til blaðs yðar. En þar sem það efni hefur ekki verið birt á síðum blaðs yðar, sem lætur sér nægja birtingu einhliða upplýsinga, bið ég um, að þetta bréf verði birt. Virðingarfyllst, Alexander Agarkov, forstöðumaður APN á íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.