Morgunblaðið - 21.10.1980, Side 40

Morgunblaðið - 21.10.1980, Side 40
HLJÓMTÆKI LITSJÓNVARPSTÆKI 100.000 kr. staðgr. afsláttur eða 300.000 kr. útborgun. Gildlr um öll littæki. GRUNDIG vegna gmöanna. 100.000 kr. staðgr. afsláttur eöa 300.000 kr. útborgun í flestum samstæöum. HágmAa taakni á góAu verði. JRingpisiMaMft BNESCOHF H NESCO HF ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1980 Skattlagningu á born lokið: Gert að greiða 3% út- svar og 7% tekjuskatt - auk sjúkratryggingargjalds og kirkjugarðsgjalds SKATTÁLAGNINGU á b<jrn undir 16 ára aldri er nú lokift í öllum kjördæmum landsins og álagningarseðlar eru íarnir að berast til greiðenda. Samkvæmt hinum nýju skattalögum er börnum undir 16 ára aldri nú gert að greiða 1% tekjuskatt, 3% útsvar, sjúkratryggingargjald og síðan kirkjugarðsgjald. Þá kveða lögin þannig á að ekki komi til neinn persónuafslátt- ur hjá börnunum. Morgunblaðinu tókst ekki í gærkvöldi að fá tölur yfir heildarálagningu á landinu, en ljóst er, að hér er um töluvert mikla fjármuni að ræða. Dæmi um álagninguna má nefna unga stúlku, sem á sl. sumri vann sér inn liðlega 198 þúsund krónur hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Henni er nú gert að greiða liðlega 14 þúsund krónur í tekjuskatt, enda fær hún ekki neinn persónuafslátt og skólaganga hennar kemur ekki til frádráttar. Gos í rénum Meöfylgjandi mynd tók Ijósm. Mbl., Krístján, yfir nyrstu gígunum, tveimur og hálfri klukkustund eftir upptök gossins. „AXEL Björnsson flaug yfir gosstöðvarnar eftir hádegi í dag og taldi hann, aö gosið heföi minnkaö frá því í gær, en ennþá gýs í nyrstu gígunum,“ sagði Bryndís Brandsdóttir á skjálftavaktinni í Reynihlíð í gærkvöldi. Bryndís sagði, að land væri enn ekkí farið að rísa á gosstöðvunum og engir skjálftar kæmu fram á mælum. Hún sagði, að ekki væri hægt að segja fyrir um hvenær gosið hætti, en þar nyrðra væri það þó aðeins talið tímaspursmál. Sjá frásögn og myndir á bls. 18 og 19. „Fyllti seðilinn út alveg út í loftið“ — sagði Lára Ólafsdóttir, sem vann 5 milljónir i getraunum í 9. LEIKVIKU Getrauna kom fram einn seðill með 11 rétta leiki og var vinningurinn fyrir hann kr. 4.946.000. Eigandi seðilsins reyndist vera skrifstofustúlka í Reykjavík og náði hún þessum árangri á einfaldan átta raða seðil, sem kostar 600 kr. Þetta er hæsti vinningur, sem komið hefur til útborgunar hjá Getraunum. „Ég átti von á að fá í mesta lagi tvö hundruð þúsund krónur fyrir ellefu rétta, en að fá á fimmtu milljón króna kom mér mjög svo á óvart," sagði Lára Ólafsdóttir vinningshafi, er Mbl. ræddi við hana í gærkvöldi. — Þetta kemur sér mjög vel, ég er nýgift og þar sem ég hef nýlokið BA-námi í Háskólanum get ég greitt námslánin með þessari upphæð. — Tildrög þess, að ég var með seðil var sú, að maðurinn minn gaf mér hann. Þetta er í þriðja sinn sem ég fylli út seðil og gerði það alveg út í loftið. Ég fylgist ekki með ensku knattspyrnunni og veit lítið sem ekkert um hana. Ég varð því meira en lítið undrandi þegar ég komst að því, að ég var með 11 rétta og átti ekki orð þegar ég vissi nú rétt áðan, hversu háa upphæð ég hafði unnið. Maðurinn minn var aðeins með sjö rétta, sagði Lára Ólafsdóttir. Þess er rétt að geta, að 29 raðir voru með 10 rétta og vinningur fyrir hverja röð 73.000 kr. Þátttaka í getraunum í síð- ustu viku var sú langmesta, sem verið hefur. Ljósm. Mbl. Kristján Lára og eiginmaður hennar, Sigurgeir Haraldsson, voru að vonum brosmild þegar þeim var tilkynnt um stóra vinninginn. Prentarar og bókbindar- ar felldu að fara í verkfall FÉLAGSFUNDUR í Hinu íslenzka prentarafélagi felldi í gær að fara í verkfall. Tvær tillögur voru lagðar fyrir fundinn. hin fyrri að farið skyldi i viðvarandi verkfall írá og með 29. október og hin síðari að farið skyidi i eins dags verkfall þann dag. Báðar tillögurnar féilu. Grafiska sveinafélagið samþykkti á félagsfundi i gær að fara i verkfall frá og með 29.. en i tillögunni var ákvæði um að endanleg ákvörðun yrði í höndum stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins. Félagsfundur i Bókbindarafélagi íslands ákvað í gærkveldi að fara ekki í verkfall. Sáttafundur milli ASÍ og VSÍ í dag Fyrsti,viðræðuíund- ur ASÍ og ríkisins verður í dag SÁTTASEMJARI ríkisins og sáttanefnd hafa boðað samn- inganefnd ASÍ og samninga- ráð VSÍ saman til sáttafund- ar i dag klukkan 17. Sátta- nefnd átti í gær fund með VSÍ klukkan 18.30 og ASÍ klukk- an 19.30 og varð þetta niður- staðan. í dag verður viðræðufundur milli samninganefndr ASÍ og nýskipaðrar samninganefndar ríkisins, en viðræður þessar hefjast í kjölfar viðræðufund- ar, sem fulltrúar ASÍ áttu með forsætisráðherra síðastliðinn föstudag. Af hálfu ríkisins munu ræða við ASÍ Þröstur Ólafsson, Þorsteinn Geirsson og .Tón Ormur Halldórsson. Fyllti 5 báta með síld úr einu kasti KskifirAi. 19. októbrr GKKERT lát er á sildveiöinni i fjörðunum hér fyrir austan og sannarlega er hægt að tala um mokveiði i þessu sambandi siöustu dægrin. I dag fékk nótabáturinn Faxi GK svo stórt kast hér i Reyöarfirðinum að nægði til að fylla fjóra aðra báta að auki. Fékkst aflinn um miðjan dag i gær við Flesjar við norðanverðan Reyðarfjörðinn. Faxi tók sjálfur þaö sem hann mátti af síldinni í nótinni til að fylla kvóta sinn. Þá fékk nótaskipið Alsey það sem á vantaði hjá þeim Faxamönnum til að fylla. Loks fengu þrír minni bátar frá Eski- firði, Þorsteinn, Guðmundur Þór og Örvar, 2-300 tunnur hver. Voru litlu bátarnir drekkhlaðnir er þeir komu að landi og einn þeirra var reyndar með svo mikið á dekki að hressilega flæddi ofan í lúkarinn. Ævar Félagsfundur HÍP var fjölsóttur og urðu á honum talsverðar um- ræður. Lögð var fyrir fundinn tillaga frá stjórn félagsins um að félagiö boðaði verkfall frá og með 29. október, sem stæði unz samn- ingar hefðu náðst. Tillagan féll með 80 atkvæðum gegn 46, en 4 seðlar voru auðir. Þá var borin upp tillaga um verkfall í einn dag, 29. október. Sú tillaga féll, með tillögunni voru 23, en á móti voru nálega 50 manns. Einn samninga- nefndarmanna, Magnús Einar Sigurðsson, sem verið hefur tals- maður bókagerðarfélaganna þriggja og er formaður væntan- legs Félags bókagerðarmanna, sem tekur við um áramótin, sagði sig úr samninganefnd félagsins að fenginni þessari niðurstöðu fund- arins. Á félagsfundi í Grafiska sveina- félaginu í gær var samþykkt að beina ákvörðun um verkfallsboðun til stjórnar og trúnaðarmanna- ráðs félagsins. Þó kom fram á fundinum að 20 manns voru hlynntir verkfalli, en 8 á móti. Allmargir fundarmanna sátu hjá. I dag mun verða haldinn fundur í stjórn og trúnaðarmannaráði Grafiska sveinafélagsins. Á fundi stjórnar og trúnaðar- mannaráðs HÍP í fyrradag var tillaga um langt verkfall felld með eins atkvæðis mun, en samþykkt að fara í eins dags verkfall hinn 29. Bókbindarar samþykktu í gær- kveldi svohljóðandi ályktun: „Al- mennur félagsfundur í BFÍ, hald- inn 20. október 1980, samþykkir kröftugar vítur á stjórn ASI vegna seinagangs og áhugaleysis á kröf- um BFI. Skorar fundurinn á stjórn ASÍ að sinna kröfum BFÍ af meiri festu og einurð." Samkvæmt upplýsingum Arn- kels B. Guðmundssonar, formanns Bókbindarafélags íslands ákvað fundurinn, að bókbindarar færu ekki í verkfall, en hann kvað stjórn og trúnaðarmannaráð áfram hafa heimild til boðunar verkfalls bókbindara. Tvær sölur ytra í gær TVÖ fiskiskip lönduðu afla sin- um erlendis i gær. Þórsnes II scldi 38 tonn i Hull fyrir 33,3 milijónir króna, meðalverð 877 krónur. Höfrungur III seldi % tonn í Cuxhaven fyrir 48,7 millj- ónir, meðalverð 508 krónur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.