Morgunblaðið - 13.01.1981, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.01.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981 13 Mik Magnús8on verður upplýs- ingafulltrúi Rauða krossins i Afriku næstu 3 mánuði. Mik Magnússon til starfa í Afríku MIK Magnússon, sem að undan- förnu hefur starfað sem blaða- fuiitrúi Varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli, er nýlega farinn tii Afriku á vegum Rauða krossins. Verður hann í Kenya og Uganda næstu 3 mánuði og starfar þar sem upplýsingafulitrúi. Meginverkefni Miks Magnús- sonar er að fylgjast með hjálpar- starfi á þessum slóðum og efla starfsemi Rauða krossins í þess- um löndum. Mik hefur starfað áður í Afríku, en hann var um skeið fréttamaður hjá brezka út- varpinu í London, BBC, og áður en hann hóf störf hjá Menningar- stofnun Bandaríkjanna í Reykja- vík annaðist hann m.a. fréttaþátt á ensku í íslenzka útvarpinu. Nú eru starfandi á vegum Rauða krossins erlendis Sigríður Guðmundsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, sem verður í Sómalíu næstu 5 mánuði, Anna Óskarsdóttir og Ingibjörg Nilsen hjúkrunarfræð- ingar, en þær verða í Thailandi til 31. janúar. Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.: Er hægt að breyta ákvörðun Kjaradóms með bráðabirgðalögum? Á undanförnum dögum hefur opinberlega komið til tals, að fjármálaráðherra beiti sér fyrir setningu bráðabirgðalaga, sem hnekktu ákvörðun- Kjaradóms um þingfararkaup alþing- ismanna og nokkrar aðrar greiðslur til þeirra, en um þessi efni tók Kjaradómur ákvörðun 2. janúar sl. Hefur m.a. komið fram, að fjármálaráðherra flutti á dögunum tillögu í ríkisstjórn- inni um setningu slíkra laga, og þá í því skyni að lækka greiðslur til þingmanna frá því, sem kveðið er á um á ákvörðun Kjaradóms. Morgunblaðið hefur óskað eft- ir því við mig, að ég léti blaðinu í té greinarstúf með sjónarmiðum um, hvort lagasetning af þessu tagi fengi staðizt stjórnskipulög landsins. Mun ég leitast við að verða við þessari ósk blaðsins. Með lögum nr. 75 frá 2. desember 1980 um þingfarar- kaup alþingismanna, sem birt voru í Stjórnartíðindum 17. des- ember 1980, er kveðið svo á í 12. gr. að Kjaradómur skuli ákveða þingfararkaup, húsnæðis- og dvalarkostnað og ferðakostnað alþingismanna. Skal ákvörðun gilda frá 1. október ár hvert til 30. september næsta ár. í bráða- birgðaákvæði laganna er mælt svo fyrir, að þegar eftir gildis- töku laganna skuli Kjaradómur taka ofangreind efni til ákvörð- unar, og skuli þær ákvarðanir giida frá 1. maí 1980 til 30. september 1981. Ákvörðun Kjaradóms frá 2. janúar sl. tekur til þessa tímabils og er, að því er virðist, að öllu leyti réttilega tekin samkvæmt ákvæðum laganna. I fyrsta lagi vil ég taka fram, að ég tel ljóst, að ef löggjafinn sjálfur má endurskoða ákvörðun Kjaradóms með lögum, þá geti forseti með atbeina ráðherra áður en þing kemur saman að nýju, einnig sett bráðabirgðalög um efnið að uppfylltu því skil- yrði fyrir setningu slíkra laga, að brýna nauðsyn beri til. Með öðrum orðum fer forseti á ábyrgð ráðherra með löggjafar- valdið milli þinga og í þingfrest- un, enda sé gætt þeirra skilyrða, sem stjórnarskráin setur við meðferð þessa valds. Löngu er viðurkennt að ráðherra hefur mjög rúmar heimildir til að meta, hvenær nauðsyn sé svo brýn að bráðabirgðalög megi setja. Við skulum því gera ráð fyrir, að skilyrðið um brýna nauðsyn standi ekki í vegi fyrir lagasetningunni. Þá er hér um sömu spurningu að ræða, eins og ef spurt væri, hvort löggjafinn geti sjálfur með setningu nýrra laga breytt til lækkunar um- ræddri ákvörðun Kjaradóms. Telja verður, að löggjafinn hafi skv. 2. gr. stjórnarskrárinn- ar almenna og víðtæka vald- heimild. Heimild þessi veiti löggjafanum vald til að skipa hvers kyns málefnum borgar- anna með lögum, nema sérstök undantekning sé þar á gerð í stjórnarskránni sjálfri eða öðr- um jafnhelgum heimildum. Er þá til athugunar, hvort einhverj- ar þær takmarkanir sé að finna í stjórnarskrá á heimild löggjaf- ans til lagasetningar, sem leiði til þess, að honum sé óheimilt að breyta ákvörðun Kjaradóms til lækkunar. Hér þarf að líta á 67. gr. stjórnarskrárinnar um frið- helgi eignarréttarins, sem m.a. kveður svo á, að enginn verði skyldaður til að láta eign sína af hendi, nema fullt verð komi fyrir. Að mínum dómi ber hér að gera greinarmun á greiðslum sem Kjaradómur ákvað alþingis- mönnum fyrir liðinn tíma (mið- að við gildistökudag hugsanlegra laga um breytingu á ákvörðun Kjaradóms) og svo þeim greiðsl- um sem gilda eiga í framtiðinni, þ.e. tii 30. september 1981. Tel ég að einstakir alþingismenn verði ekki með lögum sviptir þeim fjárkröfum, sem þeir hafa þegar eignast á hendur ríkissjóði á lögmætan hátt þ.e.a.s. greiðslom fyrir liðinn tíma. Slík skerðing væri eignarnám, og þyrftu fullar bætur fyrir að koma, en fullar bætur næmu í þessu falli ná- kvæmlega þeim fjárhæðum, sem eignarnámi væru teknar. Öðru máli gegnir líklega um greiðslur til alþingismanna vegna tímabilsins frá gildistöku- degi hugsanlegra laga til 30. september 1981, þ.e.a.s. greiðslur sem alþingismenn eiga eftir að vinna fyrir. Þykir mér líklegt, að eignarnámsákvæði 67. gr. stjórnarskrárinnar yrði ekki tal- ið standa í vegi fyrir slíkri iagasetningu, enda þekkjum við dæmi sambærilegra laga. Og sé sú niðurstaða rétt mætti ráð- herra skipa þessum þætti máls- ins með bráðabirgðalögum, enda væru hin almennu skilyrði slíkr- ar lagasetningar til staðar. Jón Steinar Gunnlaugsson. hrl. VÍKINGUR LUGI sunnudaginn 18. janúar kl. 20.00 Forsala þriðjudag — föstudag kl. 16.00—18.00 á eftirtöldum stöðum: Karnabær, hljómtækjadeild, Laugavegi 66 Samvinnuferöir, Austurstræti, Fálkinn, Háaleitisbraut 68. * LITASJONVÖRP 20‘ Verö kr. 7.910.- Tryggiö ykkur miða í forsölu, nú seljast allir miöar upp. í kvöld kl. 20.00 Víkingur — Þróttur 1. deild karla. með „Linytron Plus“ myndlampa er japönsk tækni í hámarki. þeir fremstu ve/ja i!i myndsegulband ^ ctonct ctrönm icti ■ ... stenst ströngustu krötur — örugglega. VC-6300 Video Cassett* Recordsr fflfl)' Auto Program Locate Deetce Verö kr. 15.650.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.