Morgunblaðið - 13.01.1981, Page 27
Vestmannaeyjar:
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981
27
flv
SNJÓÞYNGSLI voru mikil í Vestmannaeyjum yíir jólin
og var þar óvenjulega mikill snjór svo snemma vetrar. Að
kvöldi 6. janúar gerði mikla úrkomu með asahláku og
varð að fresta árlegri þrettándagleði sökum veðurfars.
Þrettándagleðin var siðan haldin að kvöldi 7. janúar i
ágætu veðri. Knattspyrnufélagið Týr stóð að venju fyrir
hátíðarhöldunum. en þau voru sérstaklega vel heppnuð
að þessu sinni. Týr minntist sérstaklega 60 ára afmælis
sins við þetta tækifæri. Ilófust hátíðarholdin með því. að
gengið var upp á Molda, þar sem nafn féiagsins var
tendrað i fjallshlíðinni. Þaðan gengu jólasveinarnir. 13
að tölu, niður í Hánna og þaðan var skotið skrautbiysum
og stóð skrauteldasýning stanzlaust i 20 minútur. Þá var
farið i gegnum bæinn i skrúðgöngu í fylgd Grýlu og
Leppalúða. álfa og fjölda forynja. Stanzað var við
ellihcimilið. en þaðan farið á iþróttavöllinn, þar sem
kveikt var í bálkesti og álfadans stiginn. Þrettándagleð-
inni lauk með þvi að gengið var að sjúkrahúsinu.
Meðfyigjandi myndir tók Sigurgeir fréttaritari Mbl. í
Eyjum.
■ •jIí ; -
Jólasveinaniir og íylgifiskar
innlyksa vegna veðurs
Þrettánda-
gleðinni
frestað
um einn
dag
InL