Morgunblaðið - 13.01.1981, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 13.01.1981, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981 + Eiginmaöur minn og faöir okkar MAREL ODOGEIR ÞÓRARINSSON, Einarshöfn, Eyrarbakka andaöist aö heimili sínu sunnudaginn 11. janúar, 1981. Sigríöur Gunnarsdóttir, Ingibjörg Marelsdóttir, Guöni Marelsson. + Eiginkona mín ÞORBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR frá Hvammstanga, andaöist á Hrafnistu sunnudaginn 11. janúar. Fyrir hönd vandamanna Björn Kr. Guömundsson. Móðir mín og tengdamóöir, ALDÍS ÓLAFSDÓTTIR, lést aö Sjúkrahúsi Keflavíkur 11. janúar. Oddný Valdimarsdóttir, Jón Arinbjarnarson. Faöir minn. + FRIÐJÓN GUÐMUNDSSON frá Fáskrúösfiröi, Boöaslóö 20, Vestmannaeyjum er látinn. Fyrir hönd aöstandenda, Ester Friöjónsdóttir. + Móöir okkar, GUDRUN HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Sólheimum, Hrunamannahreppí, lést aö Hrafnistu 11. janúar. Jóna Kr. Jónsdóttír, Guölaug Sjöfn Hannesdóttir. + Kveöjuathöfn um móöur okkar, JÓNU ÁGÚSTU SIGUROARDOTTUR frá Flateyri fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 14. janúar kl. 10.30 f.h. Börnin. + Eiginmaöur minn GUNNLAUGUR PÉTURSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 14. janúar kl. 3 e.h. Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna Þóra Aradóttir. + Móöir okkar, tengdamóöir og amma. INGIBJÓRG JÓNSDÓTTIR, Baldursgötu 22, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík miövikudaginn 14. janúar kl. 13.30. Jón Kjartansson, Ólafur Kjartansson, Hulda Kristinsdóttir, Aöalsteinn Kjartansson, Lilja Jónsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, og barnabörn. Arnfinnur Bertelsson Valgerður Guðnadóttir, Hafnarfirði - Minning Fædd io. júií 1899. jygspij Dáin 1. janúar 1981. Valgerður Jónína var fædd að Pálshúsum í Garðahverfi á Álfta- nesi 10. júlí 1899, dóttir hjóna er þar bjuggu og síðar í Nýjabæ í Garðahverfi, Guðna Jónssonar (bónda á Þorgrímsstöðum í Ölfusi, Jónssonar) og Hólmfríðar Þórðar- dóttur (bónda í Króki í Ölfusi, Jónssonar). Guðni andaðist 1908, tæplega fertugur að aldri, frá fjórum ungum börnum, en 5 börn höfðu þau Hólmfríður misst. Var Valgerður næstelst þeirra sem lifðu og upp komust, en hin voru: María, kona Guðbergs Jóhanns- sonar sjómanns í Hafnarfirði, Þorbjörg, ógift í Hafnarfirði, og Jón, pípugerðarmaður í Hafnar- firði. Eru tvö hin síðastnefndu enn á lífi. Eftir lát föður síns ólst Valgerð- ur upp með móður sinni á ýmsum stöðum og fór að vinna fyrir sér jafnskjótt og hún hafði aldur til; var í fiskvinnu og vistum og í síld fyrir norðan á sumrum. Hún giftist 5. nóvember 1927 Jens, syni Davíðs Kristjánssonar trésmiðs og bæjarfulltrúa í Hafn- arfirði, og konu hans, Ástríðar Jensdóttur úr Feigsdal í Arnar- firði. Þau bjuggu svo til alla tíð að Austurgötu 47 í Hafnarfirði. Jens hefur jafnan unnið í Dverg, vand- aður og traustur smiður, eins og hann hefur reynst á öllum sviðum, dagfarsgóður maður og mikið prúðmenni. Valgerður var mjög myndarleg húsmóðir. Vandvirknin var frá- bær að hverju sem hún gekk og smekkvísin í góðu lagi. Það sem hún vann í höndum, hvort sem um var að ræða útsaum eða hekl, eða annað, bera þessu órækt vitni. Bæði voru þau hjón gestrisin og SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Eg er ástfangin af giftum manni, en enginn veit það. Eg get ekki sleppt honum. þó að eg viti að eg ætti að gera það. Getið þér hjálpað mér? Þér eigið að játa synd yðar og snúa baki við henni. Annað sæmir ekki. Biblían kennir skýrt og greinilega að enginn hórkarl eða hórkona kemst inn í guðsríkið. Þér hafið gerzt sek um hræðilega synd. En Guð elskar syndarann og fyrirgefur syndir. Krjúpið á kné í bæn og segið Guði, að þér ætlið aldrei framar að gera þetta. Skrifið manninum strax eða hittið hann og segið honum, að þér ætlið ekki lengur að lifa fyrra syndalífi. Segið honum, að þér biðjið þess, að hann megi líka gera upp líf sitt frammi fyrir Guði. Karl eða kona geta ekki framið meira ódæði en að sundra hamingjusömu heimili. Bendið þessum „Dav- íð“ yðar á, að þó að sök yðar sé mikil, þá sé engin synd í allri Biblíunni, sem Guð fari eins hörðum orðum um og sú, er eiginmaður eða eiginkona reynast ótrú. Kona var staðin að verki, er hún syndgaði. Jesús sagði við hana: „Far þú, syndga ekki framar". + Eiginmaður minn, taöir okkar, tengdafaöir og afi SALÓMON MOSDAL SUMARLIÐASON, Skipasund 61, verður jarösunginn í dag þriöjudaginn 13. janúar frá Fíladelfíu- kirkju, Hátúni 2, kl. 13.30. Ingibjörg Jörundsdóttir, Gyóa Salómonsdóttir, Lilja og Hanry Van Beers, Hanna Sumarlióadóttir, Sigfús Sígurósson, Jóharin Salómonsson, Elsa Jóhannesdóttir, og barnabörn. + Kona mín, móöir, fósturmóöir, tengdamóöir og amma, JÓHANNA GUDMUNDSDÓTTIR, Rjúpufelli 21, er lést 31. des. sl. veröur jarösungin frá Fossvogskirkju í dag 13. jan. kl. 15. Jón Guómundsson, örlygur Þorkelsson, Þórdís Óskarsdóttir, Bennie Þorkelsson, Ester Magnúsdóttir, Þórdís Þorkelsdóttir, Jóhanna Karlsdóttir, Sigmundur Sigmundsson, og barnabörn. + Hjartkær móöir okkar, systir, tengdamóöir og amma ÁGÚSTA JÓNSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi miövikudaginn 14. janúar kl. 1.30 e.h. Hulda Þorbjörnsdóttir, Olga Þorbjörnsdóttír, Jón Þorbjörnsson, Elin Friðjónsdóttir, Marinó Þorbjörnsson, Una Jónsdóttir, Helga Pugh, og barnabörn. góð heim að sækja og greiðvikin ef til þeirra var ieitað. Ekki lét Valgerður mikið á sér bera utan heimilis, en var traust- ur liðsmaður í hverjum þeim félagsskap sem hún tók þátt í. Þannig var um Kvenfélag Hafnar- fjarðarkirkju. Mest starfaði hún þó fyrir kvenfélagið Hringinn, var þar tuttugu ár í stjórn (1938—58) og gjaldkeri þar af í 18 ár. Aldrei hefur hún legið á liði sínu við fjáröflun til Ííknarstarfsemi fé- lagsins, hvorki fyrr né síðar, og maður hennar ætíð stutt hana vel í þeim efnum. Minnast forystu- konur Hringsins hennar og starf- semi hennar fyrir félagið með miklu þakklæti og ljúka miklu lofsorði á trúmennsku hennar og ötulleik í störfum. Er það nefnt sem dæmi um hugsunarsemi hennar að hún gaf félaginu vand- aðan kistil til þess að varðveita í gerðabækur félagsins, en Jens smíðaði gripinn. Störf Valgerðar fyrir Hringinn voru í fullu samræmi við gerð hennar alla, svo ríkur þáttur var vandvirkni og trúmennska í fari hennar. Og vinfesti hennar og tryggð var söm gagnvart mönnum og málefnum. Heilsu Valgerðar var nokkuð farið að hraka síðustu árin. Nokkrar seinustu vikurnar dvald- ist hún á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og þar andaðist hún 4. janúar síðastliðinn, á 82. aldurs- ári. Mæt kona hafði lokið lífsstarfi sínu. ólafur Þ. Kristjánsson Höfn: Vestanátt- in hamlar veiðum Hðfn, 8. janúar. LÍNUVERTlÐIN hófst hér um síðustu helgi. Sjð bátar hófu þá vertíðina, en alls munu 15 bátar stunda linuveiðar hér fram að netum. Afiinn hefur verið frá 3,6 tonnum ti! 6,5 tonna. Gæftir hafa ekki verið upp á það bezta og bfða nú allflestir þessara 15 linubáta eftir að komast á sjó, en vestanáttin hefur hamlað veiðum nú siðustu tvo daga. SI. haust bættust tveir bátar við flota Hornfirðinga, en þá voru keyptir hingað bátarnir Ottó Watne NS 90, sem er um 105 tn stálbátur og er eigandi útgerðar- fyrirtækið Eskey hf. Síðan tóku sig saman nokkrir ungir dugnað- arforkar og keyptu bátinn Vísi ÍS 170, sem er um 130 tonna stálskip. Báðir þessir bátar eru byrjaðir á línuveiðum. Síldarsöltunarstöðin Stemma hf. gerðist hluthafi í útgerðarfyrirtækinu Gullfaxa sf., sem gerir út einn bát, Þóri SF 77, sem er um 130 tonna stálbátur og er fyrirhugað að hann hefji línu- veiðar nú fyrir helgi. Stemma hf. mun vinna allan aflann í saltfisk og skreið. Aðrir eigendur í útgerð- arfélginu Gullfaxa sf. eru Eiríkur Þorleifsson skipstjóri og Tryggvi Gíslason vélstjóri. Loks má geta þess að við Hornfirðingar áttum friðsæl jól eins og endranær, mikið var um ljósaskreytingar húsa, á gamlárs- kvöld var mikið um að vera hjá yngri kynslóðinni eins og vera ber. Fyrir þá fullorðnu voru dansleikir í Sindrabæ og Hótel Höfn og allt gekk þetta vel þrátt fyrir leiðinda- kulda og hálku. Á þrettándanum var álfabrenna í Nesjum eins og vant er það kvöld og er mikið um að Hafnarbúar fari með fjölskyld- una í ökuferð inn í Nes til að horfa á brennuna. Börnin hér á Höfn hafa mikið að gera um þessar mundir, því að öll eru þau að undirbúa sig fyrir árlegt grímuball, sem haldið verð- ur í Sindrabæ á sunnudaginn og er því mikið um leyndarmál hjá krökkunum, því ekki má vitnast um dulargervin fyrr en á sjálfu grímuballinu. Einar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.