Morgunblaðið - 13.01.1981, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANUAR 1981
Vilja fá upptökur
af samtölum milli
Nixons og Haigs
Wa.shintfton. 12. janúar. AP.
CHARLES Percy, formaður utanríkismálanefndar
bandaríska þingsins, undirritaði sl. sunnudaR skipun til
þjóðskjalasafnsins um að láta af hendi við nefndina
upptökur af samtölum Richard M. Nixons og Alexander
M. HaÍR.s. Lögfræðingar safnsins segjast ekki munu láta
upptökurnar af hendi fyrr en ollum nauðsynlegum
formsatriðum hefur verið fullnægt.
í yfirlýsingu frá Percy segir
að skipun þessi sé hluti sam-
komulags sem gert hafi verið
um að gera öllum þingheimi
kleift að greiða atkvæði um
útnefningu Haigs í embætti
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna þann 20. janúar nk.
Láti lögfræðingar þjóð-
skjalasafnsins ekki af þeirri
kröfu að fullnægja skuli öllum
formsatriðum áður en upptök-
urnar verða látnar af hendi
komast þær ekki í hendur
nefndarinnar fyrr en eftir 20.
janúar. En samkomulagið
kveður á um að einnig eftir
útnefninguna megi krefja
skjalasafnið um upptökurnar.
nefndinni gæti upphafist löng
lögfræðileg barátta sem hann
sagðist þó vilja komast hjá í
lengstu lög.
Næstkomandi miðvikudag
kl. 17 eiga þingmenn að vera
búnir að gera upp hug sinn
varðandi útnefningu Haigs. Er
talið nær öruggt að þingið
samþykki hana.
Átök urðu hvað hörðust i Santa Ana. vestur af San Salvador,
höfuðborg E1 Salvador. Á símamynd AP sést fallinn skæruliði.
Anderson
er efstur
í Hastings
lla.sfinvrs, EnKlandi. 11- janúar. AP.
LEV ALBURT, hinn landflótta
sovéski stórmeistari, lék illa af
sér i skák sinni gegn Svianum
Ulf Anderson á Hastingsskák-
mótinu. í jafnteflislegri stöðu lék
Alburt hrók i dauðann og varð að
gefast upp. Sigur Svians gefur
honum góða möguleika á að sigra
á mótinu i Hastings — þriðja
árið i röð.
Anderson hefur nú 9 vinninga.
Hefur hlotið einum vinningi meira
en Torre, sem er í öðru sæti. Þrjár
umferðir eru eftir og eiga þeir
Anderson og Torre eftir að mæt-
ast.
Úrslit í 12. umferð urðu annars:
Sunye, Brazilíu — Chandler, Nýja
Sjálandi 'k — 'h, Speelman, Bret-
landi — Pinter, Ungverjalandi
lk — lk, Ftacnik, Tékkóslóvakíu —
Lein, Bretlandi 'k — 'k, Bellin,
Bretlandi — Mestel, Bretlandi
'k — 'k, Torre, Filipseyjum —
Librzon, Israel 'k — 'k.
„Lokasókn“ skæruliða brot-
in á bak aftur í E1 Salvador
A upptökunum eru samtöl
Nixons og Haigs sem fram
fóru í Hvíta húsinu frá 4. maí
til 18. júlí 1973. Percy sagði á
fréttamannafundi að ef lög-
fræðingar Nixons settu sig
upp á móti því að upptökurnar
verði afhentar utanríkismála-
San Salvador, El Salvador. 12. janúar. AP.
SVO VIRÐIST sem „lokasókn“
vinstri sinnaðra skæruiiða í E1
Salvador hafi fjarað út. Ilerinn
segist hafa tögl og hagldir í
landinu. Barist var af hörku víðs
vegar um landið um helgina. Að
minnsta kosti 100 manns féllu i
bardögum. flestir skæruliðar.
Skæruliðar boðuðu „lokasókn“
sina fyrir helgina og þá hvöttu
þeir landsmenn til a> mæta ekki
til vinnu i dag. Hins vegar mætti
þorri íbúa landsins til vinnu og á
sárafáum vinnustöðum kom til
vinnustöðvunar.
„Vinstri sinnaðir öfgamenn
reyndu allt hvað þeir gátu í sókn
sinni um helgina, en hún er nú
runnin út í sandinn," sagði Jose
Napoleon Duarte, leiðtogi her-
stjórnarinnar. Að sögn hersins
féllu 8 hermenn í bardögum. Her-
inn segist nú hafa allt landið á sínu
valdi, utan fáa einangraða staði,
sem litiu máli skipta.
Bardagar voru harðastir í Santa
Ana, vestur af San Salvador, höf-
uðborg landsins. Þar féllu að
Murdoch hug-
leiðir að kaupa
The Times
Lundúnum, 11. janúar. AP.
RUPERT Murdoch, ástralski
blaðakóngurinn, hugleiðir nú að
kaupa Lundúnablaðið The Times.
„Við hugleiðum nú að kaupa blaðið,"
sagði Murdoch í viðtali við BBC í
Washington. Murdoch er eigandi
The New York Post í Bandaríkjun-
um. I Bretlandi á hann The Sun,
News Of The World, auk þess að
hann er stórtækur í blaðaútgáfu í
Ástralíu.
Dreifing „Now44 til
Frakklands stöðvuð
Lundúnum, 12. janúar. AP.
SIR JAMES Goldsmith, útgefandi brezka tímaritsins Now, hefur
afturkallað allar sendingar blaðsins til Frakklands vegna
greinar, sem birtist í tímaritinu um Valery Giscard D'Estaing,
Frakklandsforseta. Upphaflega vildi sir James afturkalla öll
eintök tímaritsins, að því er heimildir segja en hætt við. Sir
James stofnsetti Now í september 1979. Sagt er, að hann lesi
venjulega allar greinar hlaðsins fyrirfram. Sir James er alinn
upp í Frakklandi og er eigandi franska blaðsins L’Express.
Greinin, sem sir James hefur herra hans. Þá nefnir Jack Gee
sett sig upp á móti er skrifuð af
blaðamanninum Jack Gee. Engar
nýjar upplýsingar koma fram í
greininni en hún fjallar itarlega
um vandamál sem steðja að Gisc-
ard, Frakklandsforseta og þá erf-
iðleika sem nú blasa við honum
vegna forsetakosninganna.
I greininni segir, að hneykslis-
mál hafi loðað mjög við valdaferil
Giscards. Pólitísk hneykslismál
hafa sett hann í vanda, svo og
dularfull dauðsföll þriggja ráð-
gimsteinagjöf Bokassa, fyrrum
einræðisherra til Giscards. Bok-
assa, sem nú hefur verið steypt af
stóli sem keisara Mið-Afríku keis-
aradæmisins heldur því fram, að
hann hefði gefið Giscard og fjöl-
skyldu hans demanta að gjöf áður
en hann var hrakinn frá völdum.
Giscard hefur neitað ásökunum
þessum. Þá segir í greininni, að
Giscard lifi í allsnægtum og hóg-
lífi hans og fjölskyldu hans hafi
hneykslað marga Frakka.
1419 — Englendingar taka
Rúðuborg í Frakklandi herskildi.
1559 — Krýning Elísabetar I
Engiandsdrottningar.
1849 — Síkhar sigraðir við
Chillianwalla á Indlandi.
1898 — Emile Zola skrifar for-
seta Frakka bréf sitt „J’accuse"
(Ég ákæri) í Dreyfusmálinu.
1915 — 30.000 farast í jarð-
skjálfta á Mið-Ítalíu.
1928 — Eftirliti Bandamanna í
Búlgaríu lýkur.
1943 — Ráðstefna Churchills og
Roosevelts í Casablanca.
1945 — Her Rússa hefur sókn í
Slésíu.
1953 — Jósef Stalín sakar níu
iækna um samsæri um að myrða
sovézka ieiðtoga.
1959 — Umbætur í Belgísku
Kongó eftir uppþot.
1963 — Sylvanus Olympio for-
seti myrtur í Toho.
1970 — ísraelskar loftárásir á
fimm skotmörk í Egyptalandi.
1972 — Herbylting í Ghana.
Afmæli: Prosper de Crébiilion,
franskt leikritaskáld (1674—1762)
— Pietro Metastasic, ítalskt skáld
(1698-1782).
Andlát: 1691 George Fox, kvekari
— 1864 Stephen Foster, tónskáld
— 1941 James Joyce, rithöfundur
— 1977 Hubert Humphrey,
stjórnmálaleíðtogi.
Innlent: 1229 Sauðafellsför. Synir
Þorvaids Vatnsfirðings drepa
fimm menn og særa tólf — 1802 d.
Jón Sveinsson landlæknir — 1811
Viðarskip finnst rekið í Meðal-
landi — 1867 d. Gísli Hjálmarsson
héraðslæknir — 1923 Fárviðri
brýtur 150 m skarð í aðalhafnar-
garð Reykjavíkur — 1967 Vatns-
dæling á hraunrennsli í Surtsey —
1972 Farmannadeiia leyst — 1975
Guðm. Sigurjónsson verður stór-
meistari í skák — 1975 Flugskýli
FÍ eyðiieggst í eidsvoða — 1881 f.
Sigvaldi Kaldalóns — 1903. f.
Hannibal Valdimarsson.
Orð dagsins: Það er auðveldara að
yrkja miðlungsgott kvæði en að
skilja gott kvæði — Montaigne,
franskur rithöfundur (1533—
1592).
minnsta kosti 40 skæruliðar í
átökum. Þá kom til snarpra skot-
bardaga í höfuðborginni en her-
mönnum stjórnarinnar tókst að
ráða niðurlögum skæruliða þar
eftir nokkurra klukkustunda bar-
daga.
Tveimur fréttamönnum var vís-
að frá Santa Ana en þeir voru að
kvikmynda átök í borginni. Þeim
var gefinn tíu mínútna frestur til
að hafa sig á brott.
Skæruliðar hafa iýst því yfir, að
þeir muni gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að koma stjórn
landsins frá völdum fyrir 20. janú-
ar. I þessu skyni boðuðu þeir
„lokasókn". Ronald Reagan, verð-
andi forseti Bandaríkjanna, tekur
við embætti forseta þann 20. janú-
ar. Búist er við, að Bandaríkin
muni verulega auka stuðning sinn
við stjórn EÍ Salvador eftir valda-
töku Reagans.
Margrét II Danadrottning
*
Forseti Islands til veislu með
200 dönskum blaðamönnum
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti
íslands. mun á ferð sinni til
Danmerkur á næstunni m.a.
sitja kryddsildarveislu með um
200 dönskum blaðamönnum, að
því er segir í danska hlaðinu
Berlingske Tidende.
Margrét Danadrottning býður
til veislunnar og hyggst þar
svara spurningum fjölmiðlanna.
Blaðið segir, að á þessum
fréttamannafundi muni Vigdís
Finnbogadóttir einnig segja
blaðamönnum frá embætti sínu.
Alda réttarhalda og
ofsókna í hönd í Kína
Pekinf?, 12. janúar. AP.
EFTIR að dómur hefur verið
kveðinn upp yfir ekkju Maós
formanns og öðrum úr „fjór-
menningaklikunni“ hefst tíma-
hil réttarhalda og ufsókna i
Kína. segir i áreiðanlegum
fréttum þaðan.
Um 60 manns verða líklega
sakaðir um að eiga þátt í menn-
ingarbyltingunni á árunum
1966—1976. Ekki munu þó allir
verða dregnir fyrir rétt.
Meðal þessara 60 er frændi
Maós formanns, Mao Yuanxin.
Hann var m.a. varaformaður
byltingarráðsins.
Fréttir herma einnig að
frestað hafi verið um eina viku
að kveða upp dóminn yfir Jiang
Qing. Þykir það benda til þess, að
ekki séu allir á einu máli um
refsinguna, en einnig kann það
að eiga sök að máli, að forsætis-
ráðherra Kóreu og sendinefnd
frá japanska þinginu eru í heim-
sókn í Kína um þessar mundir.