Morgunblaðið - 13.01.1981, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 1981
43
Puerto Rico:
Eyðilögðu 9 banda-
rískar orustuþotur
Borgarstjóranum i Nablus á vesturbakkanum, Bassam Shakaa, sem missti báða fætur þegar honum var
sýnt banatilræði, var fagnað með dynjandi lófataki þegar hann gekk á nýjum gervifótum inn á fund með
kennurum, sem eru i verkfalli.
San Juan. Puertó Rico, 12. janúar. AP.
Hermdarverkamenn eyði-
iögðu niu bandariskar orrustu-
þotur og skemmdu þá tiundu á
Muniz-flugvellinum. sem er
skammt frá alþjóðaflugveilin-
um i San Juan á Puerto Rico.
Hermdarverkamennirnir komu
sprengjum fyrir undir flugvél-
unum. Engin meiðsli urðu á
mönnum. Hringt var til AP-
fréttastofunnar í San Juan og
rödd í sima sagði, að vinstri
sinnaðir sjáifstæðissinnar
bæru ábyrgð á sprengingunum.
Lögreglu tókst að gera tvær
sprengjur undir tveimur orrustu-
þotum óvirkar. Sprengingarnar
eyðilögðu benzínbíl sem var lagt
skammt frá orustuþotunum. Tjón-
ið er metið á 45 milljónir dollara.
Veður
víða um heim
Akureyri -« úrkoma
Amsterdam 5 skýjað
Aþena 14 heiðskírt
Berlin 6 heiðskírt
Brlissel 4 skýjað
Chicago 10 skýjað
Feneyjar 3 þokumóða
Frankturt 1 heiöskirt
Faereyjar vantar
Genl 1 heiðskírt
Helsinki 0 skýjað
Jerúsalem 6 rigning
Jóhannesarb. 24 heiðskírt
Kaupmannahöfn 1 snjókoma
Las Palmas 16 skýjað
Lissabon vantar
London S rigning
Los Angeles 21 skýjaö
Madrid 5 snjókoma
Malaga 10 léttskýjað
Mallorka 8 hálfskýjaö
Miami 19 heiðskírt
Moskva -9 heiöskírt
New York -7 heiöskírt
Osló -3 skýjað
París 2 skýjaö
Reykjavík -1 skýjað
Ríó de Janeiro 32 skýjaö
Rómaborg 3 skýjaö
Stokkhólmur 4 skýjað
Tel Aviv 15 rigning
Tókýó 8 heiðskírt
Vancouver 9 skýjað
Vínarborg -5 heiðskirt
Sænska fjárlagafrumvarpið lagt fram:
Kreppir að Sviiim
í efnahagsmálum
Stokkhólmf, 12. janúar. AP.
SÆNSKA rikisstjórnin lagði i dag fram
fjárlagafrumvarp sitt. í því er gert ráð fyrir
tæplega 68 milljarða sænskra króna halla, en
heildarupphæð frumvarpsins er 225 milljarð-
ar s.króna. Rolf Wirten, fjármálaráðherra.
fylgdi frumvarpinu úr garði og í ræðu sagði
Gösta Bohman, efnahagsmála-
ráðherra, varaði við miklum efna-
hagslegum og þjóðfélagslegum
óróa í landinu ef Svíum tækist
ekki að horfast í augu við efna-
hagslegar staðreyndir. Rolf Wirt-
en sagði, að áherzla yrði lögð á að
vernda almenningstryggingakerf-
ið í landinu og „sérstaklega hag
hinna lægst launuðu", eins og
hann orðaði það. Af einstökum
liðum frumvarpsins rennur mest
fé til velferðarmála, 60,7 milljarð-
ar s.króna renna til almennings-
tryggingakerfisins. Þá renna 30,3
milljarðar til menntamála og 19,9
milljarðar til varnarmála.
Gösta Bohman sagði, að búast
mætti við, að viðskiptahalli við
útlönd minnkaði eitthvað, en á
síðastliðnu ári nam hann 11,5
milljörðum. í fjárlagafrumvarp-
inu er gert ráð fyrir 10,5 milljarða
s.króna viðskiptahalla. Þá er gert
ráð fyrir í frumvarpinu, að út-
flutningstekjur aukist um 2,5% og
að innflutningur minnki um 1,5%.
Fjárfesting í iðnaði jókst á síðast-
liðnu ári um 16% og er vonast til,
að áframhald verði þar á. I
frumvarpinu er búist við að þjóð-
hann, að ástand efnahagsmála ætti eftir að
versna enn áður en rétti úr kútnum. Skatt-
heimta hins opinbera verður hin sama, en hún
er ein hin hæsta í heimi. Skuldir Svía við
útlönd jukust mjög á siðastiiðnu ári eða um 53
miiljarða króna og nema nú 192 milljörðum
sænskum krónum.
Svía aukist um sagði, að ríkisstjórnin hefðist lítt
reiknað með, að að í efnahagsvanda þjóðarinnar.
á „Getuleysi ríkisstjórnar Thor-
björns Fálldin leiðir til stöðugt
verri efnahags. Atvinnuleysi mun
aukast um 2% á komandi ári,
verðbólgan mun aukast og skuldir
þjóðarinnar við útlönd munu
aukast um áður óþekktar, stjarn-
fræðilegar tölur," sagði Palme
meðal annars í ræðu sinni.
arframleiðsla
0,7%. Þá er
verðbólgan hjaðni í 7% en
síðastliðnu ári nam hún 14%.
Olof Palme, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar, var mjög gagnrýn-
inn á frumvarp stjórnarinnar og
sagði, að úrræðaleysi ríkisstjórn-
arinnar í efnahagsmálum væri
meiriháttar efnahagsvandamál og
að þjóðinni stafaði hætta af. Hann
Ankara. 12. jan. AP.
TYRKNESK yfirvöld handtóku
sl. sunnudag 204 hryðjuverka-
menn sem allir eru meðlimir í
samtökum vinstrisinnaðra,
Dev-yol. Hinir handteknu eru
sakaðir um að hafa staðið að
morðum á 25 manns.
Ritstjóri stærsta dagblaðs í
Á vélsleðum yfir
Suðurskautslandið
Tyrklandi var handtekinn í dag en
ekki hefur verið gefin út nein
ákæra á hendur honum ennþá.
Blað hans er óháð stjórnmála-
flokkum og hefur undanfarið
gagnrýnt mjög ógnaröldina sem
ríkti í landinu áður en herfor-
ingjastjórnin tók völdin.
Frá því byitingin var gerð í
september sl. hefur herforingja-
stjórnin handtekið alls 32.741
mann sem grunaðir eru um morð
eða pólitísk hryðjuverk. Lítið sem
ekkert hefur verið um ofbeldis-
verk í landinu síðan í september
en áður voru um 20 manns myrtir
á nóttu hverri. Flestir hryðju-
verkamennirnir eru nú komnir
undir lás og slá, að því er segir í
fréttum frá Tyrklandi, en aðrir
hafa flúið land.
Vinstri sinnar hafa áður látið að
sér kveða á Puerto Rico. í desem-
ber 1979 réðust þeir á bandarískan
hermannabíl og felldu tvo banda-
ríska sjóliða og særðu tíu. Þá hafa
hermdarverkamenn gert banda-
rískum hermönnum fyrirsát þó
ekki hafi þeim tekist að fella
fleiri.
Ellefu
systkini
brunnu inni
St. Louíh, Illinois. 11. janúar. AP.
ELLEFU systkini brunnu inni
á heimili sínu i St. Louis sl.
sunnudag. Þau voru á aldrin-
um 10 mánaða til 11 ára og
hafði móðir þeirra, sem er 28
ára, skilið þau ein eftir heima.
I þrjá klukkutíma reyndu
slökkviliðsmenn að komast inn
í húsið til að bjarga börnunum
en án árangurs.
Er eldurinn hafði verið
slökktur fundust 9 lík á dýnum
sem börnin sváfu á í einu
svefnherbergi, eitt fannst í
öðru herbergi og hið ellefta á
stigapalli.
Að sögn opinbers talsmanns í
St. Louis höfðu yfirvöld haft
afskipti af móðurinni nokkrum
sinnum vegna þess hversu oft
hún skildi börnin eftir ein
heima.
Miklar handtök-
ur í Tyrklandi
Elsti karl-
maður Fær-
eyja látinn
ELSTI karlmaður I Færeyjum.
Andrass Poulsen. lést á jóladag
sl. Hann var 100 ára gamall er
hann andaðist.
Andrass var fæddur 9. febrúar
1880 á Ströndum. Tyítugur að
aldri fór hann til Islands og
stundaði sjóróðra frá Borgarfirði í
20 ár. Eftir það fluttist hann á ný
í heimabyggð sína og bjó þar til
æviloka.
Síamstvíburar
skildir sundur
Auckland, Nýja Sjálandi,
12. ian. AP.
1>RÍR Bretar luku sl. sunnu-
daB 75 daga ferðalagi yfir
þvert Suðurskautslandið á
vélsleðum. Leiðin, sem þeir
fóru, er um 3000 kílómetrar
(2.600 miiur).
Leiðangursmenn, sir Ranulph
Fiennes fyrrum herforingi,
Charlie Burton fyrrum liðþjálfi í
breska hernum og Oliver Shep-
herd fyrrum kráareigandi, fóru
m.a. um svæði sem enginn hefur
komið á áður, og ferð þeirra sú
lengsta sem farin hefur verið á
þessum slóðum. Aðeins einu
sinni áður hefur mönnum tekist
að ferðast yfir þvert Suður-
skautslandið. Sá hópur fór 2.158
mílna leið yfir landið og var 99
daga á leiðinni. Leiðtogi þess
hóps var sir Vivien Fuchs og sir
Edmund Hillary.
Eftir ferðina sagði leiðtogi
hópsins, Fiennes, að hún hefði
verið erfið en gengið vel. Komu
þeir á leiðarenda 40 dögum fyrr
en áætlað var. Hann sagði að
þeir hefðu ekki orðið fyrir mikl-
um skakkaföllum, þó hefði einn
sleðanna bilað og urðu þeir að
dveljast í tjöldum þar til við-
gerðarhópur kom þeim til hjálp-
ar. Þeir voru þá komnir mjög
nærri áfangastað.
Erfiðasta hluta leiðarinnar
sagði hann hafa verið það svæði
sem enginn hafði komið á áður.
Þar misstu þeir sleða niður í
sprungur og mættu ýmsum öðr-
um vandamálum. Sagði hann að
þeir vildu aldrei berja þann stað
augum á ný. „Við erum fegnir
því að vera komnir á áfanga-
stað.“
Þremenningarnir eru félagar í
samtökum sem skipuleggja ferð-
ir um þá hluta jarðarinnar sem
erfitt er að komast um. Næst á
dagskrá mun vera að ferðast yfir
þveran Norðurpólinn, 52.000 míl-
ur. Meira en 600 bresk fyrirtæki
standa straum að kostnaði við
ferðir félagsins.
Axheville, Norður-Karólinu,
12. janúar. AP.
SÍAMSTVÍBURAR sem fa-ddust
fyrir tæpu ári hafa verið skildir
sundur 1 sjúkrahúsi I Asheville. Lið
20 lækna og hjúkrunarfræðinga
vann við aðgerðina. sem tók 7Ví>
klukkustund. Að sögn dr. Fred-
ricks Recotrs, sem hafði umsjón
með aðgerðinni. virðist hún hafa
tekist i alla staði vel.
Tvíburarnir, tvær stúlkur, fædd-
ust með tvo fætur, eina þvagblöðru
og eðlilega þarma fyrir einn líkama.
Með plastaðgerð tókst að græða þau
svæði sem voru opin sár eftir
aðgerðina og þvagfærasérfræðingar
vinna nú að því að koma lagi á
þvagkerfið. Tóku sérfræðingarnir
þann kostinn að hafa blöðruna í
annarri stúlkunni, en hin verður að
lifa alla ævi með þvagpoka.
Foreldrar tvíburanna eru 15 og 21
árs frá bænum Forest í Norður-
Karólínu.