Morgunblaðið - 14.05.1981, Side 1
48 SIÐUR
106. tbl. 68. árg.
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Páfinn róle^ur og baðst
fyrir á leið í siúkrahús
Árangursrík aðgerð eftir tilræðið
Vatikaninu. New York. Ankara. 13. maf. AP.
JÓIIANNES Páll páfi annar var „mjög rólegur og baðst
fyrir“ á leið til Gemelli Policlinico sjúkrahússins eftir að
23 ára tyrkneskur hryðjuverkamaður sýndi honum
banatilræði í upphafi vikulegrar útisamkomu á Péturs-
torginu í Rómaborg. klukkan 15.19 að íslenzkum tíma í
dag. „Ilann var með fullri meðvitund þar til hann var
svæfður á skurðarborðinu,“ sagði formælandi Vatikans-
ins í kvöld. og lögreglumaður, sem stökk upp á
jeppabifreiðina sem páfi ók í er honum var sýnt
hanatilræðið, sagði: „Ilann þjáðist mjög af skotsárum
sínum. en hann fór með bænir.“
Tvær kúlur úr níu kalibera
sjálfvirkri skammbyssu af
BrowninK-Kerð hæfðu páfa í kvið-
arholið, hægri handlegg og vinstri
höndina. Hann hlaut sár á sex
stöðum. Honum var ekið í skynd-
ingu á sjúkrahús, þar sem gerð
var á honum mikil skurðaðgerð og
kúlurnar fjarlægðar. Aðgerðin tók
fjórar klukkustundir og er páfi nú
í gjörgæzlu, þar sem hann verður
hafður í tvo sólarhringa. Tals-
menn sjúkrahússins sögðu, að
alltaf væri hætta á sýkingu eftir
aðgerð af þessu tagi, en miklar
vonir eru bundnar við, að páfi nái
sér að fullu, þar sem engin líffæri
sködduðust alvarlega. Hann er
sagður heppinn, að ekki skyldi
verr hafa farið.
Svo virðist sem tilræðismaður-
inn, Mehmet Ali Agca, hafi hleypt
fjórum skotum af, þar sem tvær
konur í hópi 15.000 viðstaddra, þar
á meðal voru 100 pólskir pílagrím-
ar, særðust skotsári.
Tilræðismaðurinn, en í fyrstu
var talið að þeir hefðu verið þrír,
sýndi enga mótspyrnu þegar lög-
reglumenn og óbreyttir borgarar,
yfirbuguðu hann skömmu eftir
skotárásina. Hann er landflótta
Tyrki og eftirlýstur hryðjuverka-
maður, var dæmdur til dauða eftir
flótta úr fangelsi 1979.
Tyrknesk yfirvöld höfðu farið
þess á leit við vestur-þýzk yfirvöld
að hann yrði framseldur vegna
glæpa sinna í Tyrklandi, en því
var jafnan neitað á þeirri for-
sendu að hann væri kvæntur
þýzkri konu.
Yfirvöld í Ankará vöruðu ítölsk
yfirvöld jafnframt við honum, og
hugsanlegum hryðjuverkum hans,
þegar þau komust að því fyrir
tveimur vikum að hann væri
kominn til Rómar frá V-Þýzka-
landi.
Sendiherra Tyrklands hjá Sam-
einuðu þjóðunum gagnrýndi yfir-
völd í V-Evrópu í kvöld fyrir að
hafa að engu viðvaranir tyrkn-
eskra stjórnvalda og tillögur um
samstillt átak gegn tyrkneskum
hryðjuverkamönnum er væru
landflótta víða í Evrópu. Yfirvöld
í Tyrklandi hafa farið þess á leit
við ítölsk yfirvöld, að tilræðismað-
urinn verði framseldur til Tyrk-
lands þar sem hann eigi eftir að
taka út refsingu, þegar rannsókn á
tilræðinu er lokið.
Sjá nánari frásagnir á
miðopnu Morgunblaðsins i
dag.
Jóhannes Páll páfi nýtur aðstoðar ritara síns eftir að honum var sýnt banatilræði i upphafi útisamkomu á
Péturstorginu í Rómaborg i gær. Páfi hlaut sex skotsár i árásinni, en hélt samt fullri meðvitund þar til
hann var svæfður á skurðarborði á sjúkrahúsi. Gerð var mikil skurðaðgerð á páfa, er stóð i fjórar
kiukkustundir. Símamynd — AP.
Fólk felmtri slegið
um víða veröld
Pólska þjóðin harmi lostin
Varsjá. 13. maí. AP.
PÓI.SKA þjóðin var fclmtri siegin er fregnir bárust af tilræðinu við
Jóhannes Pál páfa og lögðust Pólverjar á ba n og báðu fyrir lífi hans.
Kania flokksleiðtogi. Jaruzclski forsa'tisráðherra og Jablonski
forseti gáfu út sameiginlega yfirlýsingu þar sem heðið var fyrir
skjótum bata páfa og hryggð þjóðarinnar lýst. Formælendur
kirkjunnar lýstu harmi sínum, og sögðu. að heðið yrði fyrir páfa í
öllum kirkjum og bænahúsum landsins. Kirkjur Póllands fylltust af
sorgbitnum Pólverjum skömmu eftir að fregnir bárust af tilra“ðinu.
okkar. En þeir tímar — að sýna
páfa banatilræði, pólskum páfa,“
hafði fréttastofan eftir annarri
konu.
Þegar fregnin um tilræðið
barst til Varsjár, gerðu bæði
útvarp og sjónvarp hlé á send-
ingum sínum og skýrðu frá at-
burðinum. Seinna meir sýndi
sjónvarpið kvikmynd af tilræðinu
aftur og aftur.
Fréttastofan PAP sagði, að
„hin þungbæra fregn" hefði bor-
ist um landið á leifturhraða og
vakið reiði og sorg. Hefði angist
manna verið mikil. „Jóhannes
Páll er ekki aðeins æðsti maður
kirkjunnar, heldur hið brennandi
hjarta Póllands, er stafar geisl-
um sínum út um jarðir allar,“
hafði PAP eftir konu. „Þetta er
mesti sorgardagurinn í sögu
PAP skýrði frá því, að allt
samkomuhald og skemmtanir
yrðu felldar niður á fimmtudag í
landinu, og sérstök messa, þar
sem samtímis yrði beðið fyrir
páfa, yrði haldin í öllum kirkjum
Varsjár og nágrennis kl. 18.
Þjóðarleiðtogar og kirkjunnar
menn um heim allan fordæmdu í
dag tilræðið við páfa, og Kurt
Waldheim framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði, að nú
gætu þjóðir heims ekki setið öllu
lengur aðgerðarlitlar og án sam-
stillts átaks gegn alls kyns
hryðjuverkastarfsemi.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti, er nýverið varð fyrir kúlum
tilræðismanns, varð skelfingu
lostinn er hann frétti af tilræð-
inu. Sendi hann páfa skeyti og lýsti
harmi bandarísku þjóðarinnar.
Sjá nánar á miðopnu.
Tilræðismaðurinn tekinn fastur — Tyrkneski tilræðismaðurinn í
strangri gæzlu ítalskra lögreglumanna örskömmu eftir að hann
reyndi að ráða Jóhannes Pál páfa af dögum á Péturstorginu í
Rómaborg. Sím.mynd AP.
Wyszynski þungt haldinn
Varsjá. 13. mai. AP.
HEILSU Stefáns Wyszynskis
kardínála, leiðtoga kaþólsku
kirkjunnar í Póllandi hefur hrak-
að mjög síðustu daga eftir lang-
varandi veikindi hans, og herma
áreiðanlegar heimildir, að óttast
sé um líf hans. í tilkynningu í dag,
fóru leiðtogar kirkjunnar þess á
leit, að þjóðin bæði sérstaklega
fyrir Wyszynski.
Læknir er jafnan við sjúkrabeð
kardinálans, sem liggur á heimili
sínu í Varsjá. Wyszynski er 79 ára
að aldri.
1