Morgunblaðið - 14.05.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.05.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ1981 Pólskir fangar í sel tl ívei r ki Eal i PÓIÍ5KA frétta.stofan PAP hefur staðfest fréttir um setuverkfall í fangelsi nálæKt Poznan og sejfir að fanxelsisstjórinn o« annar háttsettur starfsmaður fanKelsisins hafi verið sviptir störfum vcgna málsins. Panf'elsisstjórinn skipaði fanga- vörðum að beita gúmmíkylfum gegn 207 föngum þegar þeir neituðu að vinna. PAP segir að enginn fang- anna hafi þurft læknismeðferð, en Solidarnosc segir að einn fangi hafi særzt alvarlega. Fréttastofan segir rannsókn hafa leitt í ljós að engin ástæða hafi verið til að beita valdi gegn föngunum og yfirmennirnir hafi verið reknir fyrir að beita óheyrilega miklu valdi. Jafnframt segir Solidarnosc að Zýgmunt Goiawski úr samtökunum KPN hafi verið sleppt úr haldi. Hann hefur verið í hungurverkfalli í sex mánuði og neyddur til að matast. Varnarnefnd pólitískra fanga leitaði til Amnesty vegna málsins. Sextán leiðtogar Mafiunnar teknir Kom. 13. maí. AP. SEXTAN grunaðir leiðtogar Mafiunnar’og annarra neðanjarðarsamtaka glæpamanna voru handteknir i dag i samræmdum árásum i Róm, Mílanó. Catanzaro. Genúa. Padua. Frosinone og Messina að sögn itölsku lögreglunnar. Francesco Monastero ríkissak- sóknari sagði að allir þeir sem voru handteknir yrðu ákærðir fyrir mannrán, viðskipti með lausnar- gjöld, ólöglega flutninga verðmætra muna, hergagnasölu og eiturlyfja- smygl. Hann tilkynnti einnig að 12 aðrir, sem þegar sitja í fangelsi fyrir aðra glæpi, yrðu einnig ákærðir fyrir sömu sakir. Monastero sagði að í aðgerðunum hefði tekizt að góma einn helzta leiðtoga Mafíunnar í Calabria á Suður-Italíu, Paolo Di Stefano frá Mílanó, og Darmelo Bianco, sem er talinn guðfaðir glæpafjölskyldu ná- lægt Catanzaro í Caiabria. Hann sagði að hinir handteknu hefðu stjórnað neti mannræningja og „fjármálaráöunauta", sem stóðu í viðskiptum með fé sem var kúgað út úr fjölskyldum fólks er hafði verið rænt. Þeir voru einnig taldir hafa verið viðriðnir ólöglega flutninga á stolnum demöntum fyrir millgöngu útflutningsfyrirtækis, sem var að- eins til á pappírnum, og haft fé af kaupsýslumönnum á Italíu og í Belgíu. Lögreglan hafði áður skýrt frá handtökum 17 grunaðra Mafíu- manna í Palermo á Sikiley. Þeir eru ákærðir fyrir morð, mannrán, fjár- kúgun og ólöglegan vopnaburð. Okyrrð að nýju í Kosovo-héraði Brlxrad. 13. mai. AP. HÁSKÓLASTÚDENTAR í héraðinu Kosovo hundsuðu bann við því að fólk kæmi saman á almannafæri i gærkvöidi og gerðu hróp að vegfarendum og lögreglu i bamurn Pristina að sögn fréttastofunnar Tanjug i dag. Olætin stóðu fram undir miðnætti, en lögreglan virðist ekki hafa beitt sér. I marz áttu háskólastúdentar í Pristina upptök að óeirðum al- banskra þjóðernisinna, sem leiddu til þess að í það minnsta níu biðu bana og um 260 slösuðust. ip Broz Tito-menntamiðstöðinni“ í bænum Urosevac. Miðstjórn kommúnistaflokksins hefur samþykkt ályktun, þar sem önnur þjóðabrot eru vöruðu við að áreita Albani. Miðstjórnin krafðist rannsóknar á því hvaða leiðtogar kommúnista bæru ábyrgð á ástand- Stúdentarnir hrópuðu frá glugg- inu í Kosovo. um félagsmiðstöðvar stúdenta og svölum stúdentagarðs. Aðrir höfðu í frammi hróp og köll á götum úti og blístruðu að vegfarendum og öku- mönnum bifreiða heraflans, er komu nokkrum sinnum á vettvang. Yfirvöld virðast ætla að reka starfsmenn í félagsmiðstöð stúd- enta. Útgöngubanni hefur verið af- létt, en neyðarástand ríkir enn að öðru leyti. Nokkrir stúdentar og verkamenn í viðbót hafa verið reknir úr deild kommúnistaflokksins í „Jos- Rúmlega 100 hafa verið reknir úr flokknum síðan óeirðirnar í Kosovo hófust og Veli Deva hefur verið skipaður flokksleiðtogi i héraðinu í stað Mahmut Bakali. Bundinn hefur verið endi á öll menningarsamskipti við Albaníu. I ályktun miðstjórnarinnar er einnig hvatt til fækkunar stúdenta í Kosovo „í samræmi við þjóðfélags- legar þarfir" og sagt að efla verði öryggissveitir með auknum mann- afla og aukinni tækniþekkihgu. ASSOCIATED PRESS ÞRÁTT fyrir mikið atkvæðatap í fyrri umferð frönsku forseta- kosninganna, ætla franskir kommúnistar sér að ná miklum áhrifum i næstu rikisstjórn Frakkiands. Kjör jafnaðar- mannsins Francois Mitterands, sem fclldi Giscard d'Estaing forseta í síðari umferð forseta- kosninganna á sunnudag, hefur gefið franska kommúnista- flokknum — sem er fylgispakur við Sovétríkin — fyrstu fótfest- una, sem hann hefur náð innan stjórnarbúðanna þar í landi frá árinu 1947. Aðalritari flokksins, Georges Marchais, hefur boðað miðstjórn flokksins til fundar föstudaginn Georges Marchais, leiðtogi franskra kommúnista kvæðum sínum á frambjóðendur, sem engar sigurlíkur ættu. Sumir fréttaskýrendur telja að margir kommúnistar hafi yfir- gefið Marchais og kosið Mitter- and í fyrri umferð til að bola Chirac út úr úrslitakeppninni. Til að sanna styrk sinn verða kommúnistar í það minnsta að halda þeim 86 sætum, sem þeir hafa nú á þjóðþinginu, en alls eru sætin þar 491. Jafnaðarmenn, sem hafa nú 114 sæti, stefna að því að fá 160 sæti, og gera sér jafnvel vonir um að ná 200 sætum. Quiles kosningastjóri við- urkennir að vonlaust sé að gera sér vonir um hreinan meirihluta á þingi, án samvinnu við komm- únista. Hver sem úrslitin verða, er talið víst að kommúnistar sendi Mitterand reikning sinn fyrir Franskir kommúnístar hyggja á aukin áhrif 15. maí til að leggja línurnar fyrir samskipti kommúnista við Mitterand forseta, og ræða undir- búning fyrir þjóðþingskosn- ingarnar í næsta mánuði. Strax og úrslit forsetakosninganna voru kunn á sunnudagskvöld, tilkynnti Marchais að flokkurinn væri reiðubúinn að taka upp samningaviðræður við jafnað- armenn, og kvað kommúnista „reiðubúna til að axla ábyrgð sína gagnvart ríkisstjórninni". Jafnaðarmönnum virðist hins- vegar ekkert liggja á að hefja viðræður, og eru engan veginn á því að taka upp samninga um sameiginlega stefnu. Paul Quiles kosningastjóri jafnaðarmanna lýsti því yfir á þriðjudag að flokkur hans gengi til þjóð- þingskosninga „undir stefnu Mitterands", og gaf þar með í skyn að hugsanlegir samningar kommúnista og jafnaðarmanna yrðu að bíða betri tíma. Það fyrsta, sem Mitterand verður að einbeita sér að, er að binda enda á meirihluta hægri flokkanna á þingi, og tryggja að á næsta þingi eigi vinstri menn og samstarfsflokkar þeirra nægilegu fylgi að fagna til að styðja framgang þeirra róttæku efna- hagsbreytinga, sem hann hefur í huga. Kommúnistar leggja hinsvegar höfuðáherzlu á að bæta upp lélega frammistöðu sína í fyrri- hluta forsetakosninganna. Marchais hlaut aðeins 15,3% at- kvæða, og er það minnsta fylgi sem kommúnistar hafa fengið í rúma fjóra áratugi. Af tíu fram- bjóðendum varð Marchais í fjórða sæti á eftir Giscard d’Estaing með 28,3%, Mitterand með 25,9% og gaullistanum Jacques Chirac með 18%. Ýmsir fréttaskýrendur telja að veik staða kommúnista veiti Mitter- and verulegan styrk þegar að samningaviðræðum kemur. En ástæða er til að ætla að staða kommúnista sé ekki jafn veik og sumir álíta. Rétt fyrir fyrri umferð forseta- kosninganna sýndu úrslit skoð- anakannana mikla og öra fylgis- aukningu hjá Chirac, og bentu jafnvel til þess að hann kæmist upp fyrir Mitterand, svo það yrðu hann og Giscard d’Estaing, sem ieiddu saman hesta sína í síðari umferðinni. Varð þetta til þess að bæði forsetinn þáverandi og Mitt- erand skoruðu á kjósendur að greiða „gagnleg atkvæði", með öðrum orðum ekki að eyða at- stuðning í forsetakosningunum. Áætlað er að 88% kjósenda kommúnista hafi greitt Mitter- and atkvæði. Kommúnistar hafa krafizt ráðherrastóla í næstu ríkisstjórn og áhrifa innan ríkis- stjórnarinnar í laun fyrir stuðn- inginn. Það fer eftir styrk þeirra í þingkosningunum að hve miklu leyti Mitterand sér sér fært að ganga til móts við kröfurnar. Það ríkir enn djúpur ágreining- ur milli flokkanna tveggja, sér- staklega í utanríkismálum, þar sem kommúnistar eru andvígir Atlantshafsbandalaginu, og hafa stutt Sovétríkin rækilega varð- andi stefnu þeirra í Afghanistan. Einnig greinir flokkana á í inn- anríkismálum, þar sem kommún- istar krefjast til dæmis mun víðtækari þjóðnýtingar en jafn- aðarmenn. Áður en til nokkurra samninga kemur, liggur fyrst fyrir að reyna að vinna á einhvern hátt meiri- hluta á þingi. Fall hægri sinnaðs forseta leiðir ekki sjálfkrafa til sigurs í þingkosningum fyrir vinstri menn, og stuðningsmenn bæði Giscard d’Estaings og Jacques Chiracs eru ákveðnir í því að þeirra flokkar haldi meiri- hlutanum. Sovézk farþegaflugvél kyrrsett í Washington WashinKton. 13. mai. AP. BANDARÍSKIR tollverðir lögðu hald á á þrjú tæki í sovézkri Þráttað um líkið í sjö kliikkustundir liolfast. 13. mai. AP. BREZK yfirvöld neituðu i dag að afhenda lík hryðjuverkamannsins Francis Hughes. er lézt eftir hung- urverkfall í Maze-fangelsinu i Beifast í gær, þar til að fjölskylda hans hafði fallist á kröfur yfir- valda að líkið yrði flutt rakleiðis til heimaþorps Ilughes i stað þess að farin yrði likfylgd um kaþólsk hverfi Belfast og efnt til minn- ingarguðsþjónustu þar. Af þessum sökum var líkið ekki afhent fyrr en eftir sjö klukku- stunda þóf, og var því ekið í líkvagni rakleitt - tii Bellaghy, sem er 60 kílómetra norðvestur af Belf- ast. Er gert ráð fyrir að Hughes verði jarðsunginn þar á föstudag, með samskonar athöfn og þegar Bobby Sands var borinn til grafar. í ráði hafði verið að aka líkinu á bílpalli um Andersonstown- og Falls Roads-hverfi kaþólskra, og biðu þúsundir kaþólskra eftir því að líkfylgdin birtist. Þegar það svo spurðist út, að fjölskyldu hryðju- verkamannsins yrði ekki afhentur yfirráðaréttur yfir líkinu þar til hún hefði fallist á að því yrði ekið rakleitt til heimaþorps fjölskyld- unnar í fylgd lögreglu, brutust út óeirðir í vesturhluta Belfast. í dag lézt mjólkurpóstur er særð- ist í árás á föstudag, en kaþólsk ungmenni réðust á hvað sem fyrir varð til að hefna andláts Bobby Sands. Mjólkurpósturinn, sem var mótmælandi, var að keyra út mjólk í hverfi kaþólskra og naut hjálpar 14 ára sonar sins. Benzínsprengju var kastað á bifreið þeirra, og missti mjólkurpósturinn við það stjórn á bifreiðinni, sem ók á Ijósastaur. Sonur mjólkurpóstsins lézt samstundis. Mjólkurpósturinn er 2.101. fórnarlamb. átakanna á Norður-írlandi, en þau hafa staðið yfir í 12 ár. farþegaflugvél, sem þeir kyrr- settu í um fjóra tima á Dulles- flugvelli í Washington, og reynt er að ganga úr skugga um hvort útflutningsleyfi hafi verið fyrir þeim að sögn handariska utan- ríkisráðuneytisins í dag. Sovézka fréttastofan kallaði at- burð þennan í gærkvöldi dæmi um „alþjóðlega hryðjuverkastarf- semi“. Talsmaður ráðuneytisins sagði að tollverðir og starfsmenn FBI hefðu farið um borð í flugvél Aeroflot þar sem yfirvöld hafi haft ástæðu til að ætla að útflutn- ingsleyfi væru ekki fyrir farmi um borð. Útflutningsleyfi þarf fyrir tölvum, rafeindatækjum og ýms- um öðrum háþróuðum tækjabún- aði. Ráðuneytið hafði áður sagt að tækin, sem lagt var hald á, hefðu verið hernaðarlegs eðlis og bannað væri að flytja þau úr landi, en seinna var sagt að um rangtúlkup á upplýsingum gæti verið að ræða. þotunnar, Boris Murovenko, sagði fréttamönnum við komuna til Moskvu að bandarísku tollverðirn- ir og FBI-mennirnir hefðu ekki skýrt frá því að hverju þeir væru að leita og kvað áhöfnina „reiða" vegna framkomu þeirra. „Ég hef aldrei kynnzt öðru eins á 18 ára ferli í alþjóðaflugi," sagði hann. Yuri Logovoi, yfirmaður alþjóðaflugs Aeroflot, sagði fréttamönnum: „Við höfum aldrei sætt svona meðferð á nokkrum flugvelli." í flugvélinni voru 99 farþegar, þar á meðal 35 sem voru ekki Rússar. Tass sagði að ráðizt hefði verið á menn úr áhöfninni þegar leitin var gerð, en Morovenko neitaði því. Hann sagði að tollverðirnir hefðu ekki nefnt nokkrar ástæður fyrir leitinni og engar kröfur gert. Hann sagði að bandarísku emb- ættismennirnir hefðu lagt hald á siglingatæki, sem voru hluti af frakt, og tvö lítil sýnishorn af frakt frá Amtorg, sovézk-banda- Loftsi#lingafræðingur farþega- » rísku verzlunarfyrirtæki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.