Morgunblaðið - 14.05.1981, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.05.1981, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ1981 COSPER 71 o A3AX HOTEU InnileKar þakkir fyrir þetta, kæri vinur, svona vináttuvott kann é»? að meta! HÖGNI HREKKVÍSI HílOUR JMmiM ! ' Ast er... ... eltingaleikur TM Rag U.S. P»t OH -ill rtghts resanwd e 1981 Los Angaias Tlmas Syndicate Eina lausnin að lækka hitann á plötunni Heimdellingur skrifar: „Velvakandi. Síðastliðinn föstudag voru sýndir á skjánum fyrstu þættirnir sem Milton Friedman, Nóbels- verðlaunahafi í hagfræði, hefur gert. Ég og öll mín fjölskylda horfðum á þættina, sem voru í einu orði sagt frábærir, en þar fór saman málsnilli hagfræðingsins ásamt vönduðum og skýrum málflutningi. Það er lítið vafamál að stjórn- endur þessa lands geta margt af Friedman lært. Hann benti m.a. á það, að sífelldri aukningu pen- ingamagns fylgdi jafnan verð- bólga, en þessi sannindi heyrast sjaldan af vörum íslenskra ráða- manna. Meðal þeirra er einvörð- ungu rætt um „verðstöðvun", „að- hald að verðlagshækkunum" og síðan „hert aðhald". Allir sem hafa eitthvert smávit á hagfræði vita, að með slikum aðgerðum er ekki verið að ráðast að rótum verðbólguvandans, sem er fólginn í of miklu peninga- magni. Með sjónhverfingum eins og verðstöðvun er verið að leggjast ofan á pottlok með sjóðandi vatni undir, í stað þess að lækka hitann á plötunni, en það er að sjálfsögðu eina lausnin. Milton Friedman Ásgerður Jónsdóttir skrifar 7. maí: „Velvakandi. Það fær varla dulist þeim, er lesa að staðaldri tónlistargagn- rýni Jóns Ásgeirssonar tónskálds, hvílíka óbeit hann hefur á því að bera lof á Guðnýju Guðmunds- dóttur konsertmeistara. Þetta hef- ur vakið eftirtekt og undrun margra undanfarin ár. Nú kastar tólfunum í dómi um sinfóníutón- leikana 30. apríl sl. í dag, heilli viku frá tónleikum þessum, komu í Morgunblaðinu 47 eins dálks línur um þá frá hendi gagnrýnandans, Jóns Ásgeirssonar. Þar er lofið eins naumt skammtað og auðið er, en blendið í meira lagi. Misstu af miklu Það liggur á milli linanna, að Jóni Ásgeirssyni þyki Guðný Guð- mundsdóttir úr hófi kappsöm. En þurfa ekki listamenn að hafa kappsemi í fylgd sinni ef þeim á að verða eitthvað ágengt? Svo mun að minnsta kosti Jóni Ásgeirssyni þykja þegar aðrir eiga í hlut en Guðný Guðmundsd., því að á sömu síðu Morgunblaðsins skrifar hann næstum þrefaldan linufjölda um aðra tónleika og aðra listakonu, einnig unga og kappsama, sem vissulega hefur alla verðleika til þess að standa undir þeim lofkesti sem henni er hlaðinn þar. En ég er viss um að jafn næmri og ósvik- inni listakonu og Þorgerði Ingólfs- Þesslr hringdu . . . Get faldað gardínurnar fyrir Þórarin Rannveig Axelsdóttir hringdi og sagði: — Ég sá það í dálkunum hjá þér, að Þórarinn Björnsson er í vandræðum með gardínurnar sínar, að fá þær /aldaðar, en það er alveg sjálf- sagt, að ég taki verkið að mér fyrir hann. Hann getur hringt í síma 32434, ef hann er þá ekki þegar búinn að fá aðstoð. Þá langar mig til að nota tækifærið til að gera athuga- semd við það, sem Rannveig Tryggvadóttir segir um Nes- vagninn — leið 3, sem hún segir, að Reykvíkingar noti jafnmikið og Seltirningar. Auðvitað er ekki nema sjálfsagt, að Seltirn- ingar borgi sinn hlut í halla- rekstri á þessari leið, þó að Reykvíkingar noti vagninn líka, því að Seltirningar notfæra sér það áreiðanlega að fá skipti- miða í vagninum til framhalds- ferðar með vögnum sem Reyk- víkingar borga einir hallann af. Svo er rétt að minna á halla- rekstur Reykvíkinga af sund- stöðum sínum, sem Seltirningar Hver,skilur Jón Ásgeirsson? dóttur þykir lítill fengur að svona ósmekklegri uppstillingu eins og þessum tveimur dómum í sama ramma. Aö lokum vil ég geta þess, að það er álit allra, sem ég hef heyrt minnast á sinfóníutónleikana 30. apríl, að þeir hafi verið glæsilegir og fagrir og megi leita langt til samjafnaðar. Útlendingaaðdáend- urnir, sem voru fjarverandi þetta kvöld, misstu því af miklu.“ Ásgerður Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.