Morgunblaðið - 14.05.1981, Blaðsíða 3
3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ1981
Thorvaldsenssýning á Kjarvalsstöðum
ÁKVEÐIN hefur verið sýninn á
verkum myndhögKvarans
fra’tja Bertils Thorvaldsens á
Kjarvalsstöðum í aprilmánuði á
næsta ári. Koma frá Danmörku
frummyndir eftir myndhöjígv-
arann. sem Thorvaldsenssafnið
í Kaupmannahöfn lanar, en það
mun einnig sjá um uppsetningu
sýninsarinnar. Verða á sýninu
unni nokkrar höKKmyndir, lág-
myndir. brjóstmyndir, teikn-
in^ar og mikið ljósmyndasafn.
Verður þessi mikla sýning í
Kjarvalssal og stendur út maí-
mánuð.
Hugmyndin með þessari sýn-
ingu er að kynna á íslandi Bertil
Thorvaldsen og list hans tíma,
bæði á Rómarárum hans og
Kaupmannahafnarárum en
Verk lista-
mannsins
koma frá
Danmörku
hann var uppi 1770—1844. ís-
lendingum hefur ekki fyrr gefist
tækifæri til að kynnast svo
nokkru nemi verkum þessa
fræga myndhöggvara, sem var
að hálfu íslendingur, sonur
prestssonarins og myndskerans
Gottskálks Thorvaldsens úr
Skagafirði. Er á sýningunni lögð
áhersla á sögulegt og menning-
arsögulegt gildi verka Bertils
Thorvaldsens og á að gefa al-
menningi og þá ekki síst skóla-
fólki á Islandi tækifæri til að
kynnast þeim.
Þessi sýning á sér nokkuð
langan aðdraganda. Janus Palu-
dan, sendiherra Dana í Reykja-
vík, átti hugmyndina að henni og
bæði Kjarvalsstaðir og Thor-
valdsenssafnið í Kaupmanna-
höfn sýndu strax mikinn áhuga.
En þar sem slík sýning er dýrt
og mikið fyrirtæki, var það ekki
fyrr en menntamálaráðuneyti
beggja landanna voru komin í
málið, að því fór að miða. Hefur
forstöðumaður Thorvaldsens-
safnsins, Dyveke Helsted, m.a.
komið til Islands vegna sýn-
ingarinnar, sem safnið mun sjá
um uppsetningu á í samvinnu við
Kjarvalsstaði og menntamála;
ráðuneytin í báðum löndunum. í
íslenzku nefndinni eiga sæti dr.
Kristján Eldjárn, fyrrv. forseti,
Ingvar Gíslason, menntamála-
ráðherra, Einar Ágústsson,
sendiherra í Danmörku, og Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir, stjórnarfor-
maður Kjarvalsstaða. Samsvar-
andi nefnd er skipuð í Dan-
mörku, sem í eiga sæti stjórnar-
formaður Thorvaldsenssafnsins,
sendiherra Dana á Islandi,
menntamálaráðherra Dana og
Bent A. Koch ritstjóri. En list-
ráðunautar safnanna, Þóra
Kristjánsdóttir á Kjarvals-
stöðum og Dyveke Helsted í
Thorvaldsenssafninu, eru fram-
kvæmdastjórar sýningarinnar.
Sjálfsmynd eftir Bertel Thor-
valdsen. gerð 1910.
Kaupmáttur elli- og ör-
orkulífeyris lækkar
Stöplalinurit þetta sýnir þróun
kaupmáttar elli- og örorkulifeyris
að viðbættri tekjutryggingu miðað
við ársmeðaltal ársins 1971, sem
sett er 100. Útreikningarnir, sem
línuritið er gert eftir eru frá
Kjararannsóknanefnd.
Um er að ræða ársmeðaltöl.
Greinilega sést, hve kaupmáttur
þessi hækkar frá árinu 1977 til 1978,
en þá var Matthías Bjarnason heil-
brigðis- og tryggingaráðherra. Síð-
an tekur kaupmáttur elli- og
örorkulífeyris með tekjutryggingu
að dala og er á árinu 1980 aðeins 8,5
stigum hærri en hann var á árinu
1977 og 9 stigum lægri en hann varð
hæstur 1978.
Tillögur um tvö íbúðar-
húsahverfi í Laugardal
UNDANFARNA daga hafa verið
kynntar i viðkomandi nefndum
Reykjavíkurborgar tillögur að
byggð i Laugardal. sem Ingi-
mundur Sveinsson arkitekt hefur
unnið fyrir skipulagsneínd. Þar
er gert ráð fyrir tveimur ibúðar
hverfum i dalnum austan Múla-
vegar. Annars vegar 50 raðhús-
um og 20 einbýlishúsum upp á
lVz—2 ha“ðir i 6 þyrpingum
neðan Suðurlandsbrautar. Og
hins vegar ibúðir vestan f jölbýlis-
húsanna við Álfheima, þar sem
55 íbúðir verði í 2—4ra hæða
húsum.
Þegar hugmyndir komu fram
um meiri byggð í Laugarda) á sl.
ári, mótmæltu 9000 manns á
undirskriftalistum því að þrengt
yrði að þessu íþrótta- og útivistar-
svæði. Einnig skilaði samstarfs-
nefnd frá umhverfismálaráði,
æskulýðsráði og íþróttaráði um
nýtingu útivistarsvæða áliti, þar
sem nefndin telur augljóst að þörf
verði fyrir allt svæðið í framtíð-
inni til íþrótta- og útivistarat-
hafna í framhaldi af því sem
þegar er á áætlun.
Tillögur arkitektsins, þar sem
55% hækk-
un á verði
humars
VERÐ hefur verið ákveðið á
ferskum og slitnum humri og er
skiptaverðið 55% hærra en það
var síðastliðið sumar.
Verðið var ákveðið með sam-
komulagi í Verðlagsráði sjávar-
útvegsins á þriðjudag og miðast
við að seljandi afhendi humarinn
á flutningstæki við hlið veiðiskips.
Verðflokkun byggist á gæðaflokk-
um Framleiðslueftirlits sjávaraf-
urða.
Lágmarksverðið, sem ákveðið
var, er sem hér segir:
1. flokkur, óbrotinn humarhali, 25
gr og yfir, hvert kg kr. 56.00
2. flokkur, óbrotinn humarhali 10
gr að 25 gr og brotinn humarhali
10 gr og yfir, hvert kg kr. 27.00.
3. flokkur, humarhali, 6 gr að 10
gr, hvert kg kr. 11.00.
gert er ráð fyrir byggð í dalnum
sunnanverðum og austanverðum,
eru nú til umfjöllunar.
Kaupmáttur elli- og
örorkulffeyris að
viðbættri
tekjutryggingu.
(1971=KX))
Ársmeðaltöl
198.0
196.2
XX)
£J
1971
1977
1978
1979
1980
Lágheiði
enn ófær
VEGURINN um Lágheiði er enn
ófær og sagði Matthías fréttarit-
ari Mbl. á Siglufirði. að Siglfirð-
ingar væru undrandi á. að heiðin
skyldi ekki hafa verið rudd. Um
langan tíma hefði stórt og oflugt
snjóruðningstæki staðið ónotað
við Þrasastaði. Ef Lágheiði er
ekin styttist leiðin til Akureyrar
verulega ug munar einum til
einum og hálfum tíma ef hægt er
að fara heiðina.
Hjá Vegaeftirlitinu fékk Morg-
unblaðið þær upplýsingar í gær,
að búið hefði verið að moka að
Þrasastöðum, innsta bæ í Stíflu,
en leiðin þangað hefði lokast
aftur. Nú væri beðið eftir því að
tímabært þætti að ryðja heiðina.
Apple
þýöir viðskipti
segir framkvæmdastjórinn
.. ■ eins og Sir Freddie Laker
ForsetiogLRKER
framkvæmdastjori niRWRYS
„Ég tel að framkvœmdastj&rar þurfi
að hafa aðgang að nákvæmum upplýsing-
um til þess að geta tekið réttar ákvarðanir
fljótt í harðri samkeppni.
Mikill hluti þessara upplýsinga er
annað hvort af fjármálaeðlinu eða
tölfrœðilega og þar af leiðandi er Apple tölvan
kjörinfyrir vinnslu nauðsynlegra upplýs-
inga, sem hafa áhrif á afköstfyrir-
tœkis eða deildar. “
Ef þú framkvæmdastýrir eða stjórnar
fyrirtæki eða deild, þá getur Apple tölvan
hjálpað þér.
Apple þýðir ... þú hefur skjótan aðgang að mikilvægum
upplýsingum. Þú getur leiðrétt þessar sömu upplýsingar
auðveldlega, þannig að breytingar eru strax skráðar og þú getur
látið prenta þær út, upplýsingar sem þú vilt hratt og örugglega.
Þannig veitir Apple tölvan þér forskot í samkeppninni.
Apple þýðir ... leysa vanda, en ekki valda. Framkvæmdastjórar
geta haft gagn af Apple kerfinu sínu aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að þeir fá tölvuna í hendur. Þeir, sem annast
áætlanagerð komast í feitt með aðstoð Apple.
Apple þýðir ... áreiðanleiki, þjónusta og eins árs ábyrgð.
Apple þýðir ... þú getur valið um mörg tölvumál: BASIC,
PASCAL, FORTRAN, CIS COBOL og APPLE PILOT.
Apple þýðir ... þú getur notað Visi Calc forritið í tengslum við
Apple plot forritið, sem gerir mögulegt að prenta allar tölulegar
upplýsingar í línurit. Auk þess má tengja Desk/Top Plan forritið
við hin tvö, fyrir mjög stór áætlunarverkefni. Visi Calc er forrit
sem er geysi öflugt við áætlanagerð.
Apple þýðir ... fjölbreytileiki — með marga nytsama tengimögu-
leika í vísinda- og kennslunotkun.
Apple þýðir ... deildur vandi er leystur vandi, þegar þú deilir
honum með Apple umboðinu.
tappkz
pin'fnTTT'
| fc n n n
iEil
■•3 mimmn
tölvudeild, Skipholti 19’
Sími 29800.