Morgunblaðið - 14.05.1981, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.05.1981, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1981 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakið. Stöðnun í góðæri Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, staðhæfði á fundi um atvinnu- og efnahagsmál, sem sjálfstæðismenn í Breiðholti gengust fyrir á dögunum, að íslendingar byggju á líðandi stund við stöðnun í góðæri og að stjórnarstefnan gagnvart atvinnuvegunum í skatta-, verðlags- og gengismálum væri uppskrift að atvinnuleysi, ef fram héldi sem horfði. Geir sagði að Islendingar hefðu á flestan máta búið við hagstæð ytri skilyrði undanfarin misseri. Magn sjávarafurða hefði aukizt um 27% á síðustu tveimur árum. í ár væri gert ráð fyrir 420.000 tonna þorskafla, sem væri helmingi meiri afli en veiddur var fyrir aðeins nokkrum árum. Þrátt fyrir þetta blöstu samdráttarein- kennin við víðast hvar sem skyggnzt væri um í íslenzkum þjóðarbúskap. Það er staðreynd, sagði flokksformaðurinn, að þjóðarframleiðsl- an, sem jókst um 4,6% að meðaltali á síðastliðnum áratug, hefur síðustu tvö árin ekki aukizt nema á milli tvö og þrjú prósent. Og á yfirstandandi ári er komið það langt niður í öldudalinn að ekki er búizt við neinni aukningu þjóðarframleiðslunnar, sem hverju sinni setur þjóðinni lífskjararamma. Þjóðartekjur hafa staðið í stað síðastliðin tvö ár, og minnka nú á yfirstandandi ári. Það er því meira en tímabært að við spyrjum okkur sjálf, hvers vegna við búum við stöðnun í góðæri, hvort hér sé ekki um sjálfskaparvíti að ræða. Verðbólgan er sá vágestur sem er höfuðskaðvaldurinn og skýringin á þessari stöðnun, sagði Geir Hallgrímsson, en sofandahátturinn og hægagangurinn í undirbúningi og ákvarðana- töku orkuframkvæmda, sem og aðför að atvinnurekstri, m.a. á sviði skattamála, hefur þrengt möguleika þjóðarbúsins til afrakstrar í þágu þjóðarheildarinnar, bæði í bráð og lengd. Geir Hallgrímsson vakti athygli á því að þingmenn Sjálfstæðis- flokks hefðu flutt þrjú þingmál í tengslum við orkuuppbyggingu á yfirstandandi þingi. í fyrsta lagi frumvarp um stefnumörkun og skipulag orkumála. í annan stað frumvarp um þrjár stórvirkjanir á þessum áratug, Sultartangavirkjun, Fljótsdalsvirkjun og Blönduvirkjun. í þriðja lagi um uppbyggingu stóriðju í tengslum við þessar stórvirkjanir. Þessi þrjú þingmál tengjast ekki sízt þeim tilgangi að mæta vaxandi atvinnuþörf þjóðarinnar á næstu árum og áratugum og auka svo á þjóðarframleiðslu og þjóðartekjur að rísi undir sambærilegum lífskjörum hér á landi og nágrannar búa við. Þetta frumkvæði sjálfstæðismanna ýtti svo við stjórnarliðum, að nú, rétt fyrir þinglausnir, kom fram síðbúið stjórnarfrumvarp um orkuframkvæmdir, sem að vísu er stefnu- vana en þó skilningsvottur á nauðsynlegri framþróun í þjóðar- búskapnum. Skattastefna núverandi ríkisstjórnar gagnvart atvinnuvegunum mótast af því að hvergi megi betur gera en hanga á horriminni. Stjórnarfrumvarp, sem nú liggur fyrir Alþingi um þrengingu gildandi fyrningarreglna, gengur enn lengra í aðför að atvinnu- rekstri. Stefnt virðist að því að útiloka alla eiginfjármyndun í atvinnurekstri, sem er forsenda þess að fyrirtæki geti fært út kvíar, tæknivæðst og aukið framleiðni. Þannig gengur skatta- stefna ríkisstjórnarinnar þvert á almannahag, því rekstraröryggi atvinnuvega er hin hliðin á atvinnuöryggi almennings, og blómlegur atvinnurekstur er forsenda aukinnar þjóðarframleiðslu og aukinna þjóðartekna, sem er eina færa leiðin til bættra lífskjara. I stöðnun þjóðarframleiðslu og rýrnandi þjóðartekjum, sem eru eyrnamörk þjóðarbúskaparins á líðandi stund, átti ríkisvaldið að draga saman segl í ríkisútgjöldum og skattheimtu til að efla almenn umsvif í þjóðarbúskapnum. En ríkisstjórnin kaus og kýs að ganga enn frekar fram í skattaherferð sinni og hrifsa til sín enn stærri hlut af smækkandi þjóðarköku — á kostnað almennings og atvinnuvega. Það er greinilegt að Alþýðubandalag- ið, neitunarvaldsflokkurinn, er kompásinn eða stefnuvitinn á stjórnarheimilinu. Breiðholtið, sem var hugsað sem 15 til 20 þúsund manna byggð, reis á rúmum áratug — og er byggingarsögulegt afrek, bæði þess einkaframtaks hinna almennu borgara, er þar áttu hlut að máli, og þáverandi borgarstjórnarmeirihluta, sem byggði alla samfé- lagslega aðstöðu svo að segja samtímis því að borgarhlutinn var byggður. Þessi byggð var því viðeigandi bakgrunnur þeirrar áskorunar formanns Sjálfstæðisflokksins, sem hann beindi til áheyrenda sinna á tilvitnuðum fundi, að skera nú upp herör gegn því afturhaldi, sem ræður ríkjum í landinu undir forystu Alþýðubandalagsins og kommúnista. „Það er skylda okkar í samræmi við þá frjálslyndu og víðsýnu stefnu sem við höfum," sagði Geir Hallgrímsson, „að efla samtök okkar og samheldni, svo að betri tímar megi renna upp að nýju hér á landi." TILRÆÐIÐ VIÐ PÁFANN Hótaði að mi páfa í Tyrklí Ankara. 13. maí. AP. MAÐURINN, sem ítalska fréttastofan sagði að hefði skotið á Jóhanncs Pál páfa II flúði úr tyrknesku fangelsi á sinum tima og er sagður hafa strengt þess heit að myrða páfann þcgar páfi var í heimsókn i Tyrklandi 1979. Talið er víst í Ankara að maðurinn, sem ítalska fréttastof- an kallar Nehment Ali Hagca, sé Mehmet Ali Agca, sem var dæmd- ur fyrir tilræðið við aðalritstjóra dagblaðsins Miliyet, Abdi Ipekci, 1. febrúar 1979. Agca var fangels- aður skömmu eftir morðið á rit- stjóranum. Tyrknesk blöð sögðu að Agca hefði strengt þess heit að myrða páfa í bréfi sem hann skildi eftir þegar hann flúði úr Sagmalcilar- herfangelsinu í Istanbul skömmu eftir að páfi heimsótti Tyrkland haustið 1979. Liðsforingjar og undirforingjar, hægrisinnaðir í skoðunum, hjálp- uðu Agca að flýja úr fangelsi. Agca var í tengslum við öfgasinn- aðan hægriflokk þjóðernissinna, Baráttuflokk Baparslan T’urkes, sem var ásamt 219 öðrum flokks- Fyrirboði páfans Páfagarði. 13. maí. AP. FYRIR AÐEINS einni viku flutti Jóhannes Páll páfi II sérstaka messu fyrir nýja svissneska lífverði og sagði þeim að þeir yrðu ef til vill að fórna lífi sínu til að bjarga honum og lét í ljós þá von að „ofbeldi og ofstæki" yrðu utan veggja Páfa- garðs. „Hver sá sem lætur lífið fyrir mig mun finna það aftur. Því hefur sjálfur drottinn lofað," sagði páfinn. Engan svissneskan iífvörð sakaði í árásinni á páfann í dag, en þeir voru í hópi hinna fyrstu sem komu honum til hjálpar. mönnum ákærður fyrir tilraun til að kollvarpa tyrkneska ríkinu. Þeir eiga allir dauðadóma yfir höfði sér. Agca er sagður hafa búið í Vestur-Þýzkalandi og gengið að eiga þýzka konu. Tyrknesk yfir- völd hafa reynt að hafa hendur í hári hans og fá hann framseldan, en sagt er að Vestur-Þjóðverjar hafi hikað við það vegna stöðu hans í Þýzkalandi. Skv. fyrstu fréttum bar Agca engin persónuskilríki eða skjöl. Hann talar ensku reiprennandi og kveðst fæddur í Tyrklandi 9. jan. 1958. Hann sagðist fyrst vera stúdent í háskóla fyrir útlendinga í Perugia norðan við Róm, en fannst ekki á skrám. Fyrir sjö dögum varaði tyrkn- eska lögreglan við Agca og spáði því að hann kæmi fljótlega til Italíu. Tyrkneska fréttastofan Aðstoðarmenn páfa hlaupa honum til aðstoðar augnabliki eftir að tilraun páfa af dögum á Péturstorginu í gær. Á myndinni er jeppabifreiðin sem Beðið fyrir páfanum tilræðið sem vakti ski FRÉTTIN um tilræðið við páfa vakti skclfingu og ugg um allan heim í ga-r og víða voru haldnar sérstakar guðsþjónustur til að biðja fyrir páfa. „Ég mun biðja fyrir honum," sagði Ronald Reagan forseti, sem enn hefur ekki náð sér að fullu eftir banatilræðið sem honum var sýnt fyrir aðeins sex vikum. Hann hringdi í Terrence kardinála Cooke í New York til að lýsa bryggð sinni og bandarísku þjóð- arinnar. Kardinálinn lofaði að koma orðsendingu forsetans áleið- is til Páfagarðs. Kurt Waldheim, aðalritari SÞ, trúaður kaþólikki og vinur Jó- hannesar Páls, kvað fréttina fylla sig skelfingu og hryllingi og setti sig í samband við Páfagarð til að afla frekari upplýsinga. Elísabet Englandsdrottning lýsti einnig skelfingu sinni og hryllingi og sendi páfa samúð- arkveðjur aðeins nokkrum mínút- um eftir tilræðið. Páfi hyggst heimsækja Bretland um næstu mánaðamót. Messur voru sungnar í kvöld fyrir páfa í dómkirkjunum í Westminster og Liverpool. Erkibiskupinn af Kantaraborg, dr. Robert Runcie, sagði: „Ég og kristið fólk um allan heim mun biðja fyrir honum nú þegar hann gengst undir skurðaðgerð. Megi guð færa Jóhannesi Páli páfa fuljan bata.“ Áköf bænahöld fylgdu fljótlega í kjölfar skelfingar um þver og endilöng Bandaríkin. Þegar sjón- varpsstöðvar rufu útsendingar sínar til að segja frá fréttinni settist fólk þungbúið við sjón- varpstæki sín — rétt eins og fyrir sex vikum þegar skotárásin á Reagan var gerð. Sérstakar guðs- þjónustur fara fram í mörgum bandarískum borgum. „Við getum aðeins vonað að páfinn hafi með sér pólska heppni og nái sér eins og forsetinn," sagði vinur páfa, Edward Piszek, kaup- sýslumaður í Fíladelfíu. Erkibiskupinn í Boston sagði: „Hver er öruggur þegar þessi maður, sem berst fyrir mannkær- leika, réttlæti og friði, verður fyrir árás? Hann sagði að tilræðið væri sorglegt dæmi um dvínandi virð- ingu fyrir mannslífum og sagði: „Þegar guð er ekki lengur kjöl- festa lífs okkar fyllist tómarúmið fljótt af mannvonzku og brjál- serni." Á kirkjuþingi í Fíladelfíu heyrðust þær raddir að herða ætti á byssueftirliti. Pólski verkalýðsforinginn Lech Walesa heyrði fréttina í Japan þar sem hann er í heimsókn og hann sagði að sér væri mikið brugðið. í ísrael kallaði Menachem Begin forsætisráðherra banatilræðið „hræðilegar fréttir" og hvatti Israelsmenn til að biðja fyrir bata

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.