Morgunblaðið - 14.05.1981, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ1981
Kristín Aðalbjörns-
dóttir - Minning
Fa-dd 2. júní 1920.
Dáin 12. mars 1981.
Það hefur drepst lengur en ég
ætlaði að setja á blað nokkur orð
um frænku mína, Kristínu Aðal-
' björnsdóttur, en hún andaðist
fimmtudaginn 12. mars síðastlið-
inn.
Kristín fæddist 2. júní 1920 og
var dóttir hjónanna Þorbjargar
Grímsdóttur og Aðalbjarnar Stef-
ánssonar prentara. Hún ólst upp á
Skólavörðustíg 24A í stórum hópi
systkina. Föður sinn missti Krist-
ín ung að árum.
Mér þótti alltaf gott að hitta
Kristínu frænku mina. Hlýlegt
viðmót hennar og rólegt fas sgttu
mark sitt á umhverfið í kring um
hana. Hún lagði gott orð til flestra
manna og málefna og sá alltaf
góðu og björtu hliðarnar á því sem
um var fjallað hverju sinni.
Hverju verki sinnti hún af
samviskusemi og alúð og sam-
ferðamönnum hennar þótti vænt
um hana vegna trúmennsku henn-
ar og góðvildar sem voru einkenni
hennar í hverju verki og starfi.
Kristín var vel lesin og vel heima
um margvísleg málefni og var mér
þess vegna sérstök ánægja, þegar
ég átti þess kost að spjalla við
þessa frænku mína.
Kristín eignaðist eina dóttur,
Kolbrúnu Önnu Karlsdóttur. Hún
reyndist henni ástrík móðir og
t
Föðursystir okkar,
ADALBJÓRG JÓNSDÓTTIR
fv. símritari, Kaplaskjólsvegi 55,
lést í Borgarspítalanum 13. maí.
Guðrún Alfonsdóttir,
Jón Alfonsson.
t
GUÐMUNDUR SNÆLAND,
vistmaður á Elliheimilinu Hlévangi,
Keflavík,
andaöist í Borgarspítalanum þriöjudaginn 12. maí.
Hjálmtýr Jónsson.
———————————
t
STEFÁN MAGNÚSSON,
bókbindari,
veröur jarösunginn frá Sauöárkirkju laugardaginn 16. maí kl. 2
síödegis.
Vandamenn.
t
HJÖRTURÞORDARSON
frá Hjörsey
veröur jarösunginn frá Akrakirkju laugardaginn 16. maí kl. 14.
Bóm og kransar vinsamlegast afþökkuö, en þelm sem vildu
minnast hans er bent á Slysavarnarfélag Islands.
Steinunn Þorsteínsdóttir,
Ólafur Þórðarson, Ingibjörg Jóhannsdóttir.
+
Systir okkar,
ÞÓRDÍS GESTSDÓTTIR
frá Hjaröarholti í Kjós,
verður jarösungin frá Dómkirkjunni laugardaginn 16.maí kl. 10.30
f.h. Jarösett veröur aö Reynivöllum Kjós sama dag.
Stefanía Gestsdóttir, Grímur Gestsson,
Bjarni Gestsson, Gísli Gestsson,
Guðmundur Gestsson.
+
KATRÍN ÁRNADÓTTIR
frá Ásgaröi, Vestmannaeyjum,
Espigeröi 4, Reykjavík
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. þ.m. kl.
10.30.
Fyrir hönd vandamanna, Guörún Árnad6ttirj
Hilda Árnadóttir og fjölskylda,
Katrín Gunnarsdóttir og fjölskylda.
+
Minningarathöfn um móður okkar og fósturmóöur,
ÁGÚSTU I. SIGURDARDÓTTUR,
ÓLAFSVÍK,
veröur í Fossvogskirkju föstudaginn 15. maí kl. 13.30. Jarösett
veröur meö bæn frá Brimilsvallakirkju laugardaginn 16. maí
kl. 14.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Marta Kristjánsdóttir,
Kristbjörg Kristjánsdóttir,
Sigríöur Hallbjörg Kristjánsdóttír,
Hinrík Pálsson.
Iðjuþjálfafélag íslands:
Iðjuþjálfun er lög-
verndað starfsheiti
umhyggjusöm. Dóttirin, og síðar
eiginmaður hennar og barnabörn,
voru mikiil gleði- og hamingju-
gjafi í lífi Kristínar. Og oft
minntist hún þeirra, þegar við
vorum að tala saman og þá alltaf
með bæði stolti og þakklæti.
Trygglyndi og trúmennska
Kristínar kom ekki síst fram í því
hvernig hún hugsaði um sína
nánustu, dóttur sína, tengdason og
barnabörn, móður sína og bræður.
Þar nutu sín best góðir eðliskostir
hennar.
Sjúkdóm sinn bar Kristín með
jafnaðargeði og æðruleysi og vildi
lítið um hann ræða við aðra,
fannst það vera sitt vandamál að
bera og leysa.
Nú er Kristín Aðalbjörnsdóttir
horfin yfir móðuna miklu, burt
yfir landamæri lífs og dauða. En
minningin um hana lifir, fersk og
hlý. Ég þakka henni fyrir allar
samverustundirnar en móður
hennar, dóttur, tengdasyni og
barnabörnum, svo og öðrum ætt-
mennum hennar og vinum, sendi
ég hugheilar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Kristínar
Aðalbjörnsdóttur.
Stefán Trjámann Tryggvason
Iðjuþjálfafélag íslands hefur
sent frá sér eftirfarandi vegna
umsagnar forráðamanna Kópa-
vogshadis í sjónvarpi og út-
varpi 2. maí sl. og í dagblöóun-
um 8. maí.:
Iðjuþjálfun er lögverndað
starfsheiti og fá það eingöngu
þeir, sem hiotið hafa þriggja til
fjögurra ára menntun á há-
skólastigi í sérstökum iðjuþjálf-
unarskólum. Sækja verður um
löggildingu til Heilbrigðismála-
ráðuneytisins og verður Iðju-
þjálfafélag íslands að mæla með
veitingu hennar.
Félagið lýsir undrun sinni á,
að því skuli haldið fram í
fjölmiðlum, að 90 manns fái
iðjuþjálfun á Kópavogshæli, þar
sem enginn iðjuþjálfi er starf-
andi. Einnig var tekið fram í
sjónvarpi og útvarpi, að í iðju-
þjálfun fælist handavinna og
föndur, og teljum við að þetta
gefi ranga mynd af starfssviði
okkar, sem er fyrst og fremst að
hæfa og endurhæfa einstaklinga
með líkamleg, andleg og félags-
leg vandamál.
Afþreying sú sem höfðað var
til, og nefnd iðjuþjálfun, er
einungis örlítið brot af einu
sviði iðjuþjálfunar, þ.e.a.s. „at-
höfnum daglegs lífs", þjálfun,
sem miðar að því að auka
sjálfsbjargargetu einstaklinga. í
slíkri þjálfun felst: borðhald,
snyrting, klæðnaður, félagsleg
samskipti, heimilishald, starfs-
prófun og starfsþjálfun svo eitt-
hvað sé nefnt. Sem dæmi um
aðra þætti iðjuþjálfunar má
nefna: æfingar, sem miða að því
að auka vöðvastyrk, hreyfiferil
liðamóta, samhæfingu hreyf-
inga og þol, hjálpartæki og
spelkugerð, kennslu í starfs-
stellingum og liðavernd.
Um leið og við leiðréttum
þennan misskilning óskum við
aðstandendum og vistmönnum
Kópavogshælis til hamingju
með þennan nýja áfanga í upp-
byggingu hælisins.
Iðjuþjálfafélag íslands
DINE:
SPARNEYTIN
ELDAVÉL FRÁ
HUSQVARNA
4 hraösuöuhellur, þar af ein
stór fyrir steikarpönnuna.
Ofninn er sjálfhreinsandi.
Ofninn hitnar á minna en 6
mtn. Hitahólfiö fyrir neöan
ofninn er í sömu breidd og
ofninn. Er fáanleg í 4 litum.
Stjómborö (klukkuborö) er
hasgt aö kaupa sem aukahlut.
Aöeins 25% útborgun og rest-
in greiöist á 6—8 mánuðum.
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÁGÚST ÓSKAR SÆMUNDSSON,
rafvirkjameistari,
Skólabraut 1, Seltjarnarnesi.
Minningarathöfn veröur í Neskirkju laugardaginn 16. maí kl. 10.30.
Hann veröur jarösunginn frá Skaröskirkju f Landsveit sama dag kl.
17.00.
Þeir sem vilja minnast hins látna látl líknarstofnanir njóta þess.
Guóný Karlsdóttir,
Edda Ágústsdóttir, Halldór Ingólfsson,
Daði Agústsson, Halldóra Kristjánsdóttir,
Gústaf Ágústsson, Sara Ólafsdóttir,
Hrönn Agústsdóttir, Sigurbjörn Fanndal,
Baröi Ágústsson, Hrafnhildur Ingadóttir,
Auður Ágústsdóttir,
Hörður Ágústsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför bróöur okkar,
GUÐLAUGS BJÖRNS SIGURDSSONAR
frá Hafnarnesi.
Kristín Siguröardóttír,
Ragnheiöur Sigurðardóttir,
Valgerður Siguröardóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og auösýnda samúö vlö andlát og
útför eiginkonu mlnnar, móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og
langömmu,
SIGRÍDAR JEPPESEN.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki á deild 8 á Landspítalanum
fyrir góöa umönnun.
Alfons Oddsson,
Anna Alfonsdóttir, Harry Sampsted,
Guörún Alfonsdóttir, Hans Krag Júlíusson,
Bergsveínn Alfonsson, Þuríöur Sölvadóttír,
börn og barnabörn.
Vegna jarðarfarar
ÓLAFS HALLDÓRS ÞORBJÖRNSSONAR,
veröa verzlanir okkar og skrifstofur
lokaðar
á morgun, föstudaginn 15. maí frá kl. 14—17.
Verzlanirnar veröa opnar að nýju frá kl. 17—19.
Fálkinn,
Suðurlandsbraut 8, Laugavegi 24, Austurveri.
^unnai S&geiiMon Lf. a
Suðurtendsbraut 18 • 106 Raykjavlk - Simi 36200
Kynnum lt?Jl |
Legsteinn e varanlegt ir
mmmsmerKi
Framleiðum ótal tegundir legsteina. Allskonar stærðir og gerðir. Veitum fúsiega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina.
a j S.HELGASON HF STEINSMRÐJA 1 SKEMMUVEGI 48 SlMI 76677
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
AOALSTRETI • - SlMARi 171S2- 173SS