Morgunblaðið - 14.05.1981, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1981
Amin
Nafn á frummálinu: Risc and
fall of Idi Amin.
Handrit: Wade Huie.
Kvikmyndun: Harvey Ilarrison.
Tónlist: Christopher Cunning.
Leikstjórn: Sharad Patel.
Sýninjjarstaóur: ReKnboninn.
Menn gera kvikmyndir af
margvíslegum hvötum. Sumir
vilja koma á framfæri boðskap,
jafnvel frelsa þjóðir, aðrir til að
verða frægir, enn aðrir eru að
tjá sínar innstu hugsanir, en
flestir held ég að geri kvikmynd-
ir til þess að græða á þeim. Við
slíku er svo sem ekkert að segja:
peningarnir kaupa mönnum víst
vist í himnaríki hlutanna. í
mynd þeirra um Idi Amin sem
nú er sýnd í Regnboganum, er
gefið í skyn að kveikjan sé sú
hörmung sem þjóð Uganda varð
Kvlkmyndlr
eftir ÓLAF M.
JÓHANNESSON
að þola undir harðstjóranum.
Einhvern veginn finnst mér sú
yfirlýsing hljóma hjáróma. Líkt
og þegar mafían fær danska
lækna til að setja vísindastimpil
á klámmyndir.
Kvikmyndin um Amin er
hreinræktuð gróðamynd í stíl
þeirra mynda sem hafa selst
hvað best og fjalla um góðmenni
á borð við Adolf Hitler. Furðu-
legt hvað svona blóðuxar seljast
vel. Höfum við kannski lúmskt
gaman af atferli þeirra. I það
minnsta skemmti heimurinn sér
vel við uppátæki Amins á sínum
tíma og hélt hann mörgum
síðdegisblaðamanninum á góðu
kaupi. Vissulega voru tiltæki
Amins kostuleg og báru þess
vott að þar fór í senn slunginn,
frumlegur og geðveill morð-
hundur. Eru sum þessara til-
Dauðinn talar.
tækja sett á svið í myndinni og
vekja enn kátínu manns. Minnist
undirritaður glögglega hve þessi
tiltæki kitluðu hláturtaugar
hans þar til hann kynntist
ónefndum Tanganyikamanni. Sá
sagði mér eitt sinn frá því er
hann fór með nokkrum félögum
að fá sér bað í Viktoríuvatni. Sól
skein og vatnið virtist tært en er
þeir gengu nær sáu þeir í
vatnsborðinu fjögur uppblásin
lík, höfuðlaus. Fplkið sem bjó við
vatnið upplýsti að á hverjum
morgni rækju slíkir líkamir að
ströndu. Og nú býr Amin í
vellystingum hjá olíukóngunum
í Saudi-Arabíu. Kappinn nýtur
þar verndar vegna þess að hann
tók múhameðstrú. Sannarlega
eru vegir guðs órannsakanlegir.
Joseph nokkur Olita leikur
Amin í þessari mynd Regnbog-
ans. Hæfir leikarinn vel hlut-
verkinu, þótt hann skorti
hljómmikla rödd. Hins vegar
verður að segjast um aðra leik-
ara myndarinnar, að þar eru
ekki á ferðinni miklir bógar. Ef
menn vilja sannfæra sig um
yfirburði atvinnuleikarans ættu
þeir að sjá þessa mynd. Með
góðum leikurum og vandaðra
handriti hefði hún getað orðið
minnismerki um þau 500.000
sem létu lífið undir ógnarstjórn
Idi Amins. Þess í stað varð
myndin lágreistur minnisvarði
þeirrar gróðafíknar sem rak
framleiðandann út í ævintýrið.
Samband islenzkra hitaveitna:
Stjórnum hitaveitna verði
aftur gefnar frjálsar hend-
ur til að ákveða gjöldin
A AÐALFUNDI Sambands ís-
lenzkra hitaveitna. sem haldinn
var í Reykjavík mánudaginn 4.
maí. var svofelld samþykkt gerð:
„Aðalfundur Samhands íslenzkra
hitaveitna. haldinn í Reykjavík 4.
maí 1981, skorar á ríkisstjórnina
að hlutast til um. að stjórnum
hitaveitna verði aftur gefnar
frjálsar hendur til þess að ákveða
hitaveitugjöldin hverri á sínu
svæði.“
Formaður sambandsins, Jó-
hannes Zoéga, hitaveitustjóri,
setti fundinn, en síðan flutti
Hjörleifur Guttormsson, iðnað-
arráðherra, ávarp. Framsöguer-
indi fluttu Gunnar Kristinsson,
yfirverkfræðingur, sem talaði um
notkun hemla og mæla í hitaveitu-
kerfum, og Oddur Björnsson,
verkfræðingur, sem ræddi um val
á efni í aðveitulagnir hitaveitna.
Urðu á fundinum miklar um-
ræður um bæði þessi mál, segir í
frétt frá sambandinu.
Stjórn Sambands íslenzkra
hitaveitna var endurkjörin til eins
árs, en hana skipa Jóhannes
Zoega, hitaveitustjóri í Reykjavík,
formaður, Vilhelm Steindórsson,
hitaveitustjóri á Akureyri og Sig-
urður Pálsson, sveitarstjóri í
Hveragerði.
í lok fundarins var aðalfundar-
fulltrúum boðið að kynna sér
dælustöðvar og tölvubúnað hjá
Hitaveitu Reykjavíkur.
Aðalfundinn sátu 56 fulltrúar
24 af 25 hitaveitum, sem í sam-
bandinu eru, og 12 gestir.
Reyðarfjörður:
Heildarafli á ver-
tíðinni 830 tonn
Revðarfirði. 11. maí.
BÁTURINN Gunnar SU 139
hætti veiðum 6. maí síðastliðinn.
Heildarafli á vertíðinni var 830
tonn af fiski. aðallega þorski.
Fyrst framan af vertíðinni var
lítil veiði, en um miðjan mars
glæddist veiðin. Búið er að selja
Gunnar til Noregs, fór báturinn
héðan í gær suður til Akraness í
slipp og verður afhentur í Flekke-
fjord, Noregi, í júní.
20. júní verður afhentur í Nor-
egi togari sem hingað kemur í stað
bátanna Snæfugls og Gunnars, en
Snæfugl var seldur í fyrra. Togar-
inn væntanlegi mun heita Snæ-
fugl SU 20. Báturinn Gunnar var
keyptur hingað í maí 1959.
Nú er verið að pakka saltfiski
hjá GSR, sem fer um borð í
Eldvíkina á Eskifirði og þaðan til
Portúgals.
— Gréta.
Barna- og tjölskvldusíðan
Sigríður í essinu sínu með börnunum.
Brúðubíllinn á fleygi-
ferð um Reykjavík
Flestir krakkar þekkja brúðu-
bílinn, sem ferðast um á sumrin
milli gæsluvalla borgarinnar.
I byrjun mái hóf brúðuleik-
húsið starf sitt fimmta árið í
röð. Það eru þær Helga Steffen-
sen og Sigríður Hannesdóttir,
sem sjá um sýningarnar, en
handrit og stjórn er einnig í
þeirra höndum.
I upphafi „leikársins" fjallar
efnið um hann Grím og þorpið
hans. Ekki leikur nokkur vafi á
því, að nú bíða fjöldi barna
spennt eftir brúðubílnum, en við
birtum hér svipmyndir frá einni
sýningu þeirra Helgu og Sigríðar
frá síðastliðnu sumri.
Brúðubíllinn starfar í tvo
mánuði, mái og júní.
Ljónf jörugir náungar sungu með krökkunum.
Hugmyndaflug er mikilvægara en þekking. Albert Einstein (1879—1955).