Morgunblaðið - 14.05.1981, Side 47

Morgunblaðið - 14.05.1981, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1981 47 Tekid á móti matargestum med ókeypis lystauka, ostum og ödru góögæti. Magnús Jóns- son óperu- söngvari syngur nokkur létt ítölsk lög meöan á boröhaldi stend- Italskur matur Arrosto di maiale alla Rimini Verö kr. Undirleikari Ólafur Vignir Al bertsson. Skemmtiþáttur, Ragnar og Bessi Bjarnason. Ferðabingó, spilað um þrjár ítalíuferöir Fararstjórar Samvinnuferða—Land- sýnar verða til viðtals K - og sýna nýja V kvikmynd í \ hliðarsal. Diskótek, stjórnandi Þorgeir Ástvaldsson. WMjKM Hljómsveit v' Ragnars " pH \ Bjarnasonar Helena leika. Dansað til \ kl. 03. Kynnir Magnús^ \ Axelsson. « k\ Boröapantanir eftir W \ kl. 16.00 í dag í \ síma 20221. fyrsta skipti á íslandi FIAT umboöiö kyrtnir nýjan bíl í anddyri hótelsins FIAT 127 sport. Samvinnuferdir -Landsýn (_^—^ Tískuversíun H. Líndal. • Jóhannos Sæmundsson City og Tottenham reyna með sér á nýjan leik í kvöld MANCHESTER City o« Totten- ham leika aftur til úrslita um FA-bikarinn á Wembley-leik- vanginum i kvöld. en ekki fenjíust úrslit á lauj'ardajrinn þrátt fyrir framlengdan leik. Eftir þvi sem næst verður kom- ist, tefla félögin fram óbreytt- um liðum í kvöld oií léku til úrslita á lauKardajrinn. Fram hefur komið hujrmynd um að ljúka leiknum með vítaspyrnu- keppni fáist úrslit ekki cftir venjulcBan leiktíma auk fram- lengingar ef með þarf. Á meðfylgjandi mynd eru framkvæmdastjóri City, John Bond, og forsetinn, Peter Swales, til hægri. Eftir að Bond tók við félaginu í vetur hefur uppgangur liðsins verið með ólíkindum. Á myndinni virðist Swales vera í miðju hláturskasti, enda kannski ástæða til, þar sem lið hans skoraði sjötta mark sitt í deildarleik gegn Norwich aðeins fáeinum augnablikum áður en myndin var tekin. Bond er ekki eins kátur þrátt fyrir frækna frammistöðu liðs síns. Kannski vegna þess að hann var sjálfur stjóri hjá Norwich áður en hann tók City að sér og sonur hans Kevin er meðal leikmanna Nor- wich. Og leiðin hjá Norwich lá síðan niður í 2. deild. Tbilisi vann bikarinn SOVÉZKA liðið Dynamo Tiblisi sigraði FC Carl-Zeiss Jena frá A-Dýzkalandi í úrslitaleik Evrópu- keppni bikarhafa i gærkvöldi. Leiknum lauk með 2—1 sigri sovézka liðsins, en í hálfleik var staðan 0—0. Austur-Þjóðverjarnir voru fyrri til að skora, náðu forystunni á 64. mínútu með marki Hoppe. Sovét- menn jöfnuðu þremur mínútum seinna með marki Gussayevs, og á 87. minútu skoraði Darasselyia úr- slitamark leiksins. Talað hafði ver- ið um úrslitin sem „draugaleikinn", þar sem aðeins örfáir áhorfendur sáu þessi tvö austantjaldslið eigast Murdoch til Boro ENSKA knattspyrnuliðið Midd- leshrough hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra i stað John Neal sem var rekinn fyrir skömmu. Hinn nýi stjóri hcitir Bobhy Murdoch, en hann gerði garðinn áður frægan sem leik- maður með skoska meistaralið- inu Celtic. Murdoch hefur fengist við unglingaþjálfun siðustu árin. við á Rhein-vellinum í Dússeldorf, sem tekur 70.000 manns í sæti. Finnar töpuðu Búlgarir unnu Finna 4—0 í und- ankeppni heimsmeistarakeppninn- ar í knattspyrnu í Sofia í gærkvöldi. í hálfleik var staðan 1—0. Mörkin skoruðu Slavkov (10. mín. og 53. mín.) — Kostadinov (55. mín.) og Tsvetkov (88. mín.). Þá sigruðu Ungverjar Rúmena í sömu keppni í leik sem lyktaði 1—0 í Búdapest. Nær FH í sín fyrstu stig? VÍKINGUR og FII eigast við i 1. deild íslandsmótsins i knatt- spyrnu á Melavellinum í kvöld og hefst leikurinn klukkan 20.00. Er það þriðji leikur mótsins og annar leikur FH. FH-ingar töp- uðu fyrsta leik sinum gegn KR á sunnudaginn. en liðið lék þó alls ekki illa á köflum. Ugglaust gæti liðið velgt Vikingum undir ugg- um. en Ilæðargarðsliðið er óskrif- að blað enn sem komið er. Það má því bóka spennandi leik og von- andi verður einnig boðið upp á goða knattspyrnu. Jóhann Ingi Gunnarsson KR-ingar ráða Jóhann Inga og Jóhannes Sæmundsson - lið KR til V-Þýskalands í ágúst í æfingabúðir IIANDKNATTLEIKSDEILD KR hefur ráðið Jóhann Inga Gunnars- son sem þjálfara fyrir 1. deildarlið sitt næsta keppnistímabil. Þá hefur Jóhannes Sæmundsson verið ráðinn sem aðstoðarmaður Jóhanns Inga. Þeir félagar munu hafa eftirlit með þjálfun á öllum flokkum KR í handknattleik. Þá munu þeir standa fyrir þjálfaranámskeiðum hjá félaginu. Mikill hugur er í stjórn hand- knattleiksdeildar KR, og hyggja þeir á mjög öflugt vetrarstarf. Þeir Jóhann Ingi og Jóhannes munu fljótlega hefja séræfingar með leikmönnum meistaraflokks. En í byrjun júlí munu æfingar hefjast af fullum krafti og æft verður fjórum sinnum í viku. Þá mun vera ákveðið að meist- araflokkur félagsins fari í æf- ingabúðir til Vestur-Þýskalands í ágúst, og jafnframt leika þar nokkra leiki. Þá mun ekki vera loku fyrir það skotið að hand- knattleiksliði KR bætist góður liðsstyrkur á næstunni, en nokkrir kunnir leikmenn munu hafa hug á að ganga til liðs við félagið. Nú hafa flest 1. deildarliðin í handknattleik gengið frá ráðningu þjálfara. Geir Hallsteinsson mun þjálfa lið FH áfram. Ólafur H. Jónsson verður áfram með Þrótt. Sovétmaðurinn Boris Akbachev verður áfram hjá Val. Bogdan verður hjá Víkingi. Birgir Björns- son verður með lið KÁ sem kom upp í 1. deild. Og allt bendir til þess að Þorsteinn Jóhannesson verði áfram hjá HK. Lið Fram hefur enn ekki gengið frá ráðn- ingu þjálfara en þeir munu vera í viðræðum við Karl Benediktsson. Haukar hafa svo gott sem ráðið til sín rússneskan þjálfara, en lið þeirra leikur í 2. deild og ætlar sér ekkert annað en sigur þar. Það verða því þrír eriendir þjálfarar hér næsta keppnistmabil í hand- knattleik. Tveir Rússar og einn Pólverji. — ÞR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.