Morgunblaðið - 02.06.1981, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1981
Aðalfundur Neytendasamtakanna á Akureyri:
Endurskoðun á heildarskipu-
lagi Neytendasamtakanna
Flugfélag Austurlands
kaupir nýja flugvél
Stokkholmi. 2H. mai.
FLUGFÉLAG Austurlands hofur
fost kaup á nýrri fluKvél hér í
Svíþjóð. Vélin er sömu «orðar ok
vél som félanið átti áður. Pipor
Navajo PA 31.
Flugvélin tekur 8 farþega og
hún er búin öllum beztu tækjum,
sem völ er á. Vélin hefur aðallega
verið notuð til að flytja menn í
viðskiptaerindum og er hún öll hin
glæsilegasta. Hún ber einkenn-
isstafina TF-EGS.
Afhending vélarinnar fór fram
á Bromma-flugvelli við Stokkhólm
í dag. Þar var meðfylgjandi mynd
tekin. Við vélinni tóku fyrir hönd
Flugfélags Austurlands, Jóhann
D. Jónsson, Kolbeinn Arason og
Benedikt Snædal, en tveir þeir
síðarnefndu eru flugmenn. Ráð-
gert er að vélin hefji áætlunarflug
um mánaðamótin.
— Loftur
AÐALFUNDUR Neytendasam-
takanna á Akureyri og nágrenni
(NAN) var haldinn 9. maí sl. í
skýrslu stjórnar kom m.a. fram
að á árinu komu út 4 töiublöð
NAN-frétta. scm send voru fé-
lagsmönnum. Yfirleitt tókst að
leysa úr kvörtunarmálum er hár-
ust skrifstofunni. Minna var leit-
að til kvörtunarþjónustunnar en
áður. Útbúin var spjaldskrá um
efni fjögurra erlendra neytenda-
hlaða. sem NAN kaupir, «g er
fljótlegt að leita upplýsinga um
hvaðeina í henni.
Stjórn NAN var endurkjörin en
hana skipa: Steinar Þorsteinsson,
formaður; Stefanía Arnórsdóttir,
varaformaður; Jónína Pálsdóttir,
gjaldkeri; Valgerður Magnúsdótt-
ir, ritari; Stefán Vilhjálmsson,
meðstjórnandi. í varastjórn eru:
Margrét Ragúels, Sigríður Jó-
hannesdóttir, Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir og Þórarinn Þorbjarn-
arson.
Nú fer fram endurskoðun á
heildarskipulagi Neytendasam-
takanna. NAN eiga fulltrúa í
Amsterdamflug Flugleiða hefst 26. júní nk.:
Til Amsterdam og til
baka fyrir 1850 krónur
99
Á/CTLUNARFLUG Flugleiða til
Amsterdam hefst 26. júní nk., en
ekki hafði verið flogið þangað á
vegum félagsins síðan 1958. þeg-
ar Loftleiðir voru með fast áætl-
unarflug þangað. en það hafði
staðið frá 1959.
í tilefni þess, að Flugleiðir taka
nú upp Amsterdamflug að nýju,
þá hefur félagið ákveðið að bjóða
sérstakt fargjald í fyrstu ferðina.
Fargjaidið fram og aftur í þessa
fyrstu ferð verður 1.850 krónur, en
venjulegur ársmiði kostar 5.300
krónur.
Vegna þess að Amsterdamflugið
Sumarbústaðalönd
við Vatnaskóg:
Seljast trú-
lega upp á
næstu dögum“
NÝLEGA birtist hér í blaðinu
auglýsing frá eignamarkaðinum,
þar sem auglýst voru til sölu
sumarhústaðalönd við Vatna-
skóg.
I samtali við“Mbl. sagði Krist-
ján Knútsson hjá Eignamarkaðin-
um, að um væri að ræða u.þ.b. 81
hektars svæði, sem Reynir Vil-
hjálmsson landslagsarkitekt hefði
skipulagt og væri það vestasti
hluti Vatnaskógs.
„Við höfum þegar selt og tekið
frá um 25 lóðir og þær seljast
trúlega allar upp á næstu dögum
ef fer sem horfir," sagði Kristján.
Fólk virðist hafa mikinn áhuga
fyrir þessu, enda orðið harla erfitt
að komast yfir eignarland í ná-
grenni Reykjavíkur.
Alls er hér um að ræða 70
sumarbústaðalóðir og er hver
þeirra um og yfir einn hektari að
stærð — en 11 hektarar eru
sameiginlegt svæði. Eru þessar
sumarbústaðalóðir á verðbilinu
frá 55.000 kr. til 80.000 kr. Vegur
er upp að hverri lóð og einnig
vatnslögn — fylgir þetta með í
kaupunum ásamt rétti til afnota
af sameiginlega svæðinu."
verður aðeins einu sinni í viku,
hefur ennfremur verið ákveðið að
bjóða þessum farþegum að fara
heim í gegnum Luxemborg ef þeir
vilja.
Til Amsterdam verður í sumar
flogið síðdegis á föstudögum og til
baka aftur um kvöldið.
skipulagsnefnd, sem kosin var á
aðalfundi Neytendasamtakanna í
Reykjavík. Stefnt er að því að
stofna formlega í haust Lands-
samtök neytenda með aðild deilda
eða félaga um allt land.
NAN þurfa að víkja úr húsnæð-
inu í Skipagötu 18, og flytst
starfsemin eftir 1. júlí að Eiðs-
Landsmót UMFÍ
á Akureyri
LANDSMÓT UMFÍ verður hald-
ið á Akureyri dagana 10. —12.
júlí og verður m.a. keppt í skák.
13 fjögurra manna sveitir til-
kynntu þátttöku i forkeppni
mótsins og var þeim skipt í þrjá
riðla.
Tvær vinningshæstu sveitirnar
í hverjum riðli komast í aðal-
keppni Landsmótsins. Keppni í
A-riðli fór fram í Kópavogi og
tefldu þar 5 sveitir. UMF Bolung-
arvíkur sigraði í þeim riðli en í 2
sæti varð sveit UMS Kjalarnes-
þings. Keppnin í C-riðli fór fram
í Vik í Mýrdal. Fjórar sveitir
mættu til leiks og urðu tvær
sveitir efstar og jafnar að vinn-
ingum, sveit Úngmenna- og
íþróttasambands Austurlands og
Héraðssambandsins Skarphéð-
inn.
Keppni í Norðurlandsriðli fer
fram um næstu mánaðamót
væntanlega.
Ungmennasamband Eyjafjarð-
ar sér um framkvæmd þessa
landsmóts.
vallagötu 6. Félagar í Neytenda-
samtökunum eru alls rúml. 4.000
en þar af eru 300 í NAN.
EIÐFAX K7
5
S VðLVO V
Volvo á hringferð um landið
Volvoumboðið Veltir sýnir um þessar mundir nokkrar gerðir af vörubílum víða um landinu. en
sýningarferðin mun standa til 24. júní. í bílalestinni. sem fer um landið, eru vöruflutningabíll með
yfirbyggingu frá Bifreiða- og trésmiðju Kaupfélags Borgfirðinga, vörubíll með palli frá Málmtækni
hf. og Hiab Foco-krani, tveir vörubílar með mismunandi grjótpöllum og einnig verða með í för Volvo
Penta-bátavél. Volvo Lapplander-torfærubíll og Volvo 345-fólksbíll. í ferðinni verða starfsmenn
söludeildar. þjónustudeildar og varahlutadeildar.
-»«■5<áH
Nýtt tölublað
Eiðfaxa komið út
TÍMARITIÐ Eiðfaxi er nýkom-
ið út. fimmta toluhlað þessa
árs, og er það fjölbreytt að efni
sem fyrr. Blaðið er 36 síður að
stærð. prentað á vandaðan
pappir og prýtt fjölda mynda.
Á forsíðu er mynd af sjóböðun
hesta við Stokkseyri. eftir Sig-
urð Sigmundsson. sem jafn-
framt er ritnefndarfulltrúi og
ábyrgðarmaður ritsins.
Meðal greina í Eiðfaxa að
þessu sinni er grein eftir Björn
Sigurðsson um hestasýningar,
Páll A. Pálsson yfirdýralæknir
ritar grein um smitsjúkdóma og
hættur þeim samfara, Gílsi B.
Björnsson skrifar um sölumál
íslenskra hesta í Evrópu, viðtal
er við Sigurð Snæbjörnsson
bónda og hrossaræktarmann á
Höskuldsstöðum í Eyjafirði,
Sigurður O. Ragnarsson fjallar
um áhrif keppnisvalla á gang
brokkhesta og heilbrigði fóta og
viðtal er við Jóhann Friðriksson
um hvort „ungviðinu sé ofboð-
ið?“
Þá má nefna grein um beit-
armál eftir dr. Ólaf Dýr-
mundsson landnýtingarráðu-
naut, rabbað er við Ólöfu Guð-
brandsdóttur á Nýja-Bæ í Borg-
arfirði, sagt er frá aðalfundi
Eiðfaxa 1981, opið bréf til
Péturs Behrens er í ritinu eftir
Rosemarie Þorleifsdóttur, grein
eftir Hildi Sigurðardóttur og
margt fleira efni.
Útgefandi ritsins er samnefnt
hlutafélag, en í ritnefnd eru
þeir Árni Þórðarson, Björn Sig-
urðsson, Kári Arnórsson, Pétur
Behrens, Sigurður Ragnarsson,
Sigurður Sigmundsson og Sig-
urður Sæmundsson.
Víða heitt vatn í jörðu í Hreppunum
Syór*-I>an»<holti. 20. mai.
IIÉR í Hrunamannahreppi er
heitt vatn vírta í jörrtu. þó ekki
séu heitir hverir mjög vírta.
Borart hefur verirt eftir heita
vatninu á þó nokkrum störtum
á undanförnum árum og hefur
árangur yfirleitt verið já-
kva'rtur. þó ekki alls staðar.
Áriö 1978 var borað með
jarðbornum Ými á bæjunum
Kópsvatni og Reykjadal og
voru þá boraðar rúmlega 600 m
djúpar holur. Nú í vetur voru
þessar holur dýpkaðar með
jarðbornum Glaumi. Á Kóps-
vatni þar sem er tvíbýli koma
nú upp 2,2 sekúndulítrar af 82
gráða heitu vatni úr 1052 m
djúpri holu sem næst með
djúpvatnsdælu 30 m niður í. í
Reykjadal er mikið af heitu
vatni, sem þarf einnig að dæla
upp með djúpvatnsdælu.
Þá er verið að virkja jarðhita
fyrir bæina Skipholt og Kot-
laugar, en þar var lítið vatn en
heitur jarðvegur. Með því að
grafa um 9 m niður koma þar
nú 2 til 3 lítrar af 85 stiga heitu
vatni, sem er meira en nóg til
upphitunar á þessum bæjum,
en í Skipholti er tvíbýli. Það
hlýtur að vera eitt stærsta
hagsmunamál okkar íslend-
inga að hagnýta okkur jarð-
varmann þar sem það er mögu-
legt með sæmilega hagkvæmu
móti. Rannsóknir og fyrir-
greiðsla opinberra aðila þarf
enn að aukast á þessu sviði. Við
hljótum að búa að innlendum
orkugjöfum í framtíðinni eins
og mögulegt er.
Fréttaritari.
Frá framkvæmdum við Kutlaugahver.
Ljósm. Sík- Siífm.