Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.06.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1981 Ragnhildur Helgadóttir sjötug: „Eg verð sjálfstæðis- manneskja meðan ég dreg andann“ RaKnhildur IlelKadóttir á heimili sínu. RaKnhildur Ileljíadóttir veróur sjötuK í da>;. Hún var einn af stofnendum Sjálfstæð- iskvennafélaKs ísafjarðar. fyrrverandi formaður kvennafélaKsins lllífar á ísa- firði um 12 ára skeið ok félaKÍ í Ilvöt, félaKÍ sjálfstæðis- kvenna. Hún er fædd 2. júní 1911 á Laugarbóli í Laugardal í Ögur- hreppi. Foreldrar hennar voru þau Dagbjört Kolbeinsdóttir frá Ögri við ísafjarðardjúpi og Helgi Jónsson frá Snæfjöllum. „Ég ólst Upp á Laugarbóli til 12 ára aldurs," sagði hún í samtali við Mbl. í tilefni af afmæli hennar, „en þá brugðu foreldrar mínir búi og fluttu í Ögurnes, sem nú er reyndar lagst í eyði eins og svo mörg önnur byggð á Vestfjörðum. Þarna var mitt heimili þar til ég gifti mig 24 ára að aldri, en ég var alltaf við og við í Ögri þar sem móðir mín ólst upp hjá henni nöfnu minni þar. Ég er barnaskólalærð en fór snemma út í það að sauma kjóla og er kjólameistari óg hélt kjólasaumanámskeið um alla firði og var á tímabili kölluð „konan úr öllum fjörð- um“. Annars hélt ég flest af þessum námskeiðum mínum í Hlíf. Það kom alveg af sjálfu sér að ég fór að berjast fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þetta er í blóðinu. Það er agalega mikið sjálfstæðisfólk í minni ætt. í kvennfélagið Hlíf gekk ég 1935, minnir mig, en þá sem nú var það í því að hlúa að eldra fólki og vinna að hinum ýms- ustu félagsmálum og kirkju. Það voru haldnir basarar og skemmtikvöld fyrir gamla fólkið og voru þau oft fjöl- mennari en þorrablótin í þá daga og er þá nokkuð sagt. Þetta var allt saman afskap- lega huggulegt og við sendum þeim veitingar heim sem voru lasburða og gátu ekki komið. Og svo var ég í að stofna Sjálfstæðiskvennafélag ísa- fjarðar og var í því félagi í 40 ár. Þá var nú Isafjarðarbær kallaður „Rauði bærinn", þar réðu kratar lögum og lofum og var oft ansi heitt í kolunum á kosningafundum enda var þá kjördæmaskipunin ekki komin á og það var barist um hvern mann. Ég held að okkar stærsti sigur í félaginu hafi verið þegar við komum honum Kjartani Jóhannessyni á þing ’54 þar sem hann var 12 næstu árin. Þá iðaði bærinn af fjöri enda pólitíkin í þá daga mun skemmtilegri og fjörugri en nú. Það var engin lognmolla yfir Isfirðingum á þessum tím- um. Ég flutti til Reykjavíkur haustið 1975 og við hjónin erum ákaflega ánægð með að vera hér. Ég gekk strax í Hvöt og hef sótt núna þrjá fundi hjá þeim. Þegar við fluttum frá Isafirði hélt kvennafélagið Hlíf okkur veglegt samkvæmi og leystu okkur út með gjöfum og vil ég nota tækifærið núna og þakka þeim fyrir langt og gott farsælt samstarf. Ég verð sjálfstæðismann- eskja meðan ég dreg andann. Sameinaður Sjálfstæðisflokk- ur er eini bjargvættur íslensku þjóðarinnar að mínu mati. Þess vegna ríður á að allir séu víðsýnir, sáttir og réttlátir í öllum þeim málum er varða þjóð okkar til lands og sjávar sem og í lofti, og í öllu því sem til heilla horfir í landi okkar. Betri ósk á ég ekki til handa mínum flokki á þessum tíma- mótum lífs míns. Lítið var en lokið er, má segja um mig. Ekki má gleyma aldraða fólk- inu sem hefur lagt grunninn að velgengni þeirra sem lifa í blóma lífsins í dag,“ sagði Ragnhildur Helgadóttir að lokum. Áhugaljósmyndari tók þessa mynd af tveimur hryðjuverkamönnum irska lýðveldishersins i siðustu viku þar sem þeir höfðu komið sér fyrir i Beechwood-götu i Belfast. Myrtu lögreglu- þjón á sjúkrahúsi Belfast. 1. júnl. — AP. ÞRÍR hryðjuverkamenn írska lýðveldishersins (IRA) skutu lögregluþjón til bana á sjúkra- húsi í Belfast í gærkvöldi, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að brezkur hermaður lét lifið er bílsprengja sprakk. Formælandi lögreglunnar sagði, að þremenningarnir hefðu læðst inn á Viktoríusjúkrahúsið og skotið af skammbyssum af stuttu færi á lögregluþjóninn þar sem hann stóð vörð við gjör- gæzludeild sjúkrahússins. Þre- menningarnir, tveir karlar og kona, misstu skammbyssu á flótt- anum frá sjúkrahúsinu. Talið er, að þremenningarnir hafi valið lögregluþjóninn af handahófi og án tiliits til þess fanga er hann gætti á sjúkrahús- inu. Þær sögusagnir bárust út í gær að Verkamannaflokkurinn brezki hygðist endurskoða stefnu sína í málefnum N-írlands og lýsa fylgi við sameiningu héraðsins við írska lýðveldið. Sérstök nefnd sem vinnur að endurskoðun stefnu flokksins í þessum málum mun leggja til breytta stefnu og hvetja til sameiningar héraðsins við írska lýðveldið, að sogn heim- ilda úr röðum æðstu manna flokksins, en engin yfirlýsing hefur verið gefin af hálfu flokks- ins um þessar fregnir. Bretar hafa 11.000 hermenn staðsetta á N-írlandi í dag, og beinn fjárstuðningur við héraðið nemur 18 milljörðum króna á ári. Vitað er að 2.118 manns hafa týnt lífi af völdum óeirðanna í hérað- inu frá því 1969. Walesa á þing í Genf Genf. 1. júni. AP. Lech Walesa leiðtogi pólsku verkalýðshreyfingarinnar Samstöðu, mun sitja árlegt þing Alþjóða vinnumálastofnunarinnar í Genf þessa viku. Búizt er við, að hann ávarpi þingið á föstudag. Janusz Obodowski atvinnumálaráðherra Póllands er einnig í pólsku sendinefndinni á þinginu. Walesa sagði við komuna til Genfar, að hann vonaðist til að „læra mikið" á þinginu. Það sitja fulltrúar frá 145 löndum, en þingið stendur í þrjár vikur og verður sett á miðvikudag. Ítalía: Sósíalistar íhuga afstöðu sína til stjórnarmyndunar Róm. 1. júni. AP. ARNALDO Forlani. forsætisráð- herra á Ítalíu, hóf í dag viðræð- ur við frammámenn i itölskum stjórnmálum og eiga þær að standa næstu tvo daga. Tilgang- urinn með þeim er að reyna að binda enda á stjórnarkreppuna i kjölfar uppljóstrananna um P-2-frímúrarareKluna ok fá úr þvi skorið hvort það verður Forlani. sem veita mun forstöðu fyrir 41. rikisstjórninni á ítaliu eftirstríðsáranna. Forlani átti í dag tveggja stunda fund með Bettino Craxi, aðalritara Sósialistaflokksins, en Craxi sækist sjálfur eftir forsæt- isráðherraembættinu í næstu stjórn. Eftir fundinn sagði Craxi, að afstaða Sósíalistaflokksins yrði gerð lýðum ljós þegar hann hefði ráðfært sig við leiðtoga hans, trúlega á miðvikudag. Sósí- alistaflokkurinn er þriðji stærst- ur ítalskra flokka, á eftir kristi- legum demókrötum og kommún- istum, og má heita að hann hafi lykilaðstöðu við stjórnarmyndan- ir. Leiðtogar kristilegra demó- krata styðja Forlani heilshugar og sumir hafa haft á orði, að þeir vildu fremur nýjar kosningar en horfa upp á fyrstu ríkisstjórnina eftir 1945 undir forystu manns úr öðrum flokki. Búist er við, að Forlani bjóði sósíalistum valdamikil embætti í hugsanlegri stjórn, ef þeir fást til að styðja hana, og er nefnt til embætti utanríkisráðherra og innanríkisráðherra. Ef Forlani mistekst stjórnarmyndunin kann Sandro Pertini forseti að veita Craxi umboðið til hennar eða aðalritara Lýðveldisflokksins, Giovanni Spadolini. Arnaldo Forlani, (orsætisráðherra fyrir 40. rikisstjórninni á ítaliu eftir strið. en hún féll á dögunum vegna uppljóstrana um meint sam- særi félaga í P-2-frímúrarareKl- unni. Forlani hefur nú fengið um- boð til að mynda 41. rikisstjórnina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.