Morgunblaðið - 02.06.1981, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1981
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakið.
Löng leit
• •
Oll þjóðin fylgist af athygli með leitinni að flugvélinni TF-ROM, sem
hvarf á miðvikudagskvöldið í síðustu viku á leið frá Reykjavík til
Akureyrar. Þúsundir manna hafa lagt land undir fót og farið um holt og
hæðir í leit að mönnunum fjórum, sem í vélinni voru. I óteljandi
klukkustundir hafa leitarflugvélar flogið yfir eðlilega flugleið vélarinn-
ar og langt út fyrir hana. Þegar þetta er ritað, hefur ekkert til
vélarinnar spurst. Vonandi líður ekki á löngu, þar til úr því fæst skorið,
hver orðið hafa örlög ferðalanganna fjögurra.
Fram hefur komið í fréttum, að leitað hafi verið á tæplega helmingi
landsins eða á um 50 þúsund ferkílómetra svæði. Þessi staðreynd minnir
okkur á hve víðáttumikið land okkar er. Nú þegar sumarferðalög um
óbyggðir eru að hefjast, er nauðsynlegt að leggja á það ríka áherslu, að
fyilstu varúðar sé gætt. Menn tefli sér og sínum ekki í neina tvísýnu eða
glettist með óhæfilegum hætti við náttúruöflin. Nútímatækni gerir
mönnum kleift að kynnast íslandi með allt öðrum hætti en áður, en hún
gerir þá ekki óhulta gagnvart margvíslegum hættum, sem á leið þeirra
kunna að verða. Nú eins og áður verða ferðalangar að gæta sín á
straumhörðum ám og fljótum, vara sig á sandbleytu og jökulsprungum,
hafa hiiðsjón af duttlungum veðurguðanna og láta aðra vita, hvert
ferðinni er heitið, svo að eftirgrennslan verði auðveidari.
Umfangsmikil leitin að flugvélinni TF-ROM hófst um leið og vélin
hélt ekki þá áætlun, sem gerð var í upphafi ferðar. Hvergi er eins
nákvæmlega fylgst með ferðum manna eins og þegar þeir fara fljúgandi
milli staða. En landið er stórt og margt getur hindrað mönnum sýn.
Ekki má hætta hinni löngu leit, fyrr en hún ber árangur.
Endurtekning
Tilkynnt hefur verið, að frá og með, 1. júní hafi landbúnaðarvörur
hækkað um nokkra tugi prósenta. Hækkanafréttir af þessu tagi
eru hættar að koma okkur á óvart. Þær munu endurtaka sig svo lengi
sem ekki verður gripið til raunhæfra ráðstafana gegn verðbólgunni. Það
er dæmigert fyrir sýndarmennsku ríkisstjórnarinnar í átökunum við
verðbólguna, að í byrjun maí síðastliðins var látið sem svo að með
auknum niðurgreiðslum væri verið að lækka verð á landbúnaðarvörum
til einhverrar frambúðar. Stjórnarherrunum þótti sá blær nauðsynlegur
til að dylja raunverulegan tilgang sinn, sem var sá að leika á
vísitölukerfið, svo að laun manna hækkuðu minna nú um mánaðamótin
en annars hefði orðið.
Líklega hefur aukið fjárstreymi úr ríkissjóði til að greiða niður
landbúnaðarvörur leitt til þess, að fjármálaráðherra taldi nauðsynlegt
að hækka áfengi og tóbak. Hækkanir á þeim varningi hafa ekki bein
áhrif á verðbótakerfi launþega. Þess vegna er rekin sú fjármálapólitík af
ríkisstjórninni að halda launum manna í skefjum með því að greiða
niður landbúnaðarvörur í einn mánuð, á meðan vísitölubætur á laun eru
reiknaðar. Strax í mánaðarlok er sá reikningur ríkissjóðs gerður upp,
síðan er áfengisverslununum iokað og söluvarningur þeirra hækkaður
til að standa undir kostnaði við launalækkunina. Svo hækka
landbúnaðarvörur og einkasöluvarningur ríkissjóðs samtímis, þegar
þeim tiigangi hefur verið náð að „telja verðbólguna niður", eins og þessi
kúnst heitir hjá ráðherrunum.
, Gleðin ótvíræð
Olafur R. Grímsson þingflokksformaður Alþýðubandalagsins rakti í
Þjóðviljanum sl. fimmtudag gang mála á síðasta þingi. Enginn,
sem það viðtal les, getur efast um ánægju þingflokksformannsins með
hlut Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn dr. Gunnars Thoroddsens. Ólafur
R. Grímsson segir, að af „veigamikilli" lagasetningu, sem ríkisstjórnin
átti frumkvæði að, hafi verið „veigamestir" þeir máiaflokkar, sem
Alþýðubandalagið fer með í ríkisstjórninni.
Framsóknarmenn hafa talið sig eiga höfundarrétt á „niðurtaln-
ingarstefnunni" og sögðu um áramótin, að loksins væri niðurtalningin
hafin. Ólafur R. Grímsson er greinilega ekki sammála þessu. Hann segir
í Þjóðviljanum: „Efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar ber mjög svipmót
þeirrar afstöðu sem Alþýðubandalagið hefur haft síðan 1978. Sú afstaða
varð undir í ríkisstjórninni 1978—79. Nú hefur hins vegar verið tekið
tiliit til sjónarmiða Alþýðubandalagsins og árangurinn er að koma í
ljós.“
Þessi gleði þingflokksformanns Alþýðubandalagsins er í litlu
samræmi við þann harmagrát, sem Svavar Gestsson formaður flokksins
kýs að hafa uppi, þegar hann situr fyrir svörum í sjónvarpssal með
öðrum oddvitum stjórnarliðsins. Þá snýst talið um það, að ekki megi
útiloka flokk, sem hafi um 20% kjósenda á bak við sig og þar fram eftir
götunum. í sjálfsánægju sinni gleymir Ólafur R. Grímsson þeirri
staðreynd, sem jafnvel Svavar Gestsson mundi eftir, að Alþýðubanda-
lagið, sérviska þess og afturhaldssemi, er neikvæðasti þáttur þessarar
ríkisstjórnar og hið ríka tillit, sem tekið er til flokksins af
forsætisráðherra, stafar ekki af umhyggju fyrir þjóðarhag heldur
fastheldni á völdin.
Leitarmenn ösluðu aur og snjó upp að hnjám
Fórum liðlega
40 km á hálfum
sólarhring
— sagði Arngrímur Blöndahl, aðstoðarsveitar-
foringi Hjálparsveitar skáta í Reykjavík
ERFIÐ leitarskilyrði gcrðu björgunarsveitarmönnum og öðrum
mjög erfitt fyrir, meðan leitin að flugvélinni TF-ROM stóð yfir á
landi frá því á aöíaranótt fimmtudags, þar til í gær. Blaðamaður
Mbl. var á ferð með björgunarsveitarmönnum og var það mál
manna, að þessi leit væri með þeim erfiðari hin síðari ár. Ýmist
gengu menn upp í hné i krapa og snjó, eða örkuðu í aur og eðju. Það
fór því ekki hjá því, að menn væru orðnir heldur framlágir þegar
þeir loks fengu hvíld eftir mikið erfiði. Ekki var óalgengt, að
flokkar væru á ferðinni í 10—15 klukkutima án hvíldar og það við
erfiðustu skilyrði. Sumir voru á ferðinni allt upp í sólarhring i lotu.
Segja má, að margir leitarflokkanna hafi leitað án hvíldar i nærri
tvo sólarhringa til að byrja með, og voru velflestir með heldur litlar
matarbirgðir, sérstaklega síðari daginn, því yfirleitt eru menn
útbúnir með nesti til eins sólarhrings.
Svæðin óneitanlega
mjög erfið yfirferðar
„Þau svæði, sem okkar menn fóru
•um, voru óneitanlega mjög erfið
yfirferðar, vegna snjóa og aur-
bleytu, auk þess, sem þoka gerði
okkur mjög erfitt fyrir á stundum,"
sagði Erlingur Thoroddsen, formað-
ur björgunarsveitar Ingólfs frá
Reykjavík, í samtali við Mbl.
„Menn drifu sig af stað með
matarbirgðir fyrir daginn og voru
því orðnir ansi dasaðir eftir tveggja
daga hvíldarlitla leit. í raun voru
flestir okkar alveg matarlausir
annan dag leitarinnar," sagði Erl-
ingur ennfremur.
Sem dæmi um hversu lengi hver
leiðangur stóð yfir, sagði Erlingur,
að Ingólfsmenn hefðu farið af stað
eina nóttina upp úr eitt, en þeir
voru ekki komnir til baka fyrr en
tæpum sólarhring síðar.
Fóru liðlega 40 km á
hálfum sólarhring
Arngrímur Blöndahl, aðstoðar-
sveitarforingi Hjálparsveitar skáta
í Reykjavík, sagði í samtali við Mbl.,
að þetta væri með erfiðari leitum,
sem hann hefði tekið þátt í. — „Við
vorum á ferðinni nánast allan
sólarhringinn, og það í færi, sem
getur varla orðið miklu erfiðara.
Ymist var maður á kafi í snjó, eða
þá gengið var í aurbleytu upp í hné,“
sagði Arngrímur Blöndahl enn-
fremur.
Aðspurður um hversu langar
vegalengdir þeir hjálparsveitar-
menn hefðu farið, sagði Arngrímur,
að einn sólarhringinn hefðu þeir
farið liðlega 40 kílómetra, en það
var á Eyvindarstaðaheiði frammi á
Skagafirði. — „Eftir þá göngu voru
menn orðnir heldur framlágir, enda
ekki furða," sagði Arngrímur
Blöndahl, en til að gera mönnum
lífið enn leiðara, þá voru menn
yfirleitt mjög illa nestaðir eftir
fyrsta sólarhringinn, sem auðvitað
dregur úr krafti manna.“
Þá gat Arngrímur þess eins og
Erlingur, að veðrið hefði á stundum
gert þeim erfitt fyrir. — „T.d. voru
aðeins 50 metrar á milli manna,
þegar við vorum á ferð í Snjófjöll-
um á Holtavörðuheiði, og það sást
varla á milli þeirra," sagði Arn-
grímur Blöndahl ennfremur.
Einhver strembnasta
leit síðari ára
Gylfi Gunnarsson, félagi í Flug-
björgunarsveitinni í Reykjavík,
sgaði, að félagar sveitarinnar hefðu
lent í mjög misjöfnu landi. Oftast
hefði færið þó verið erfitt. —
„Sumir voru á ferðinni um hálfan
sólarhring stöðugt í aur og snjó til
skiptis, sem auðvitað reynir á þol-
rifin í mönnum," sagði Gylfi Gunn-
arsson ennfremur.
Gylfi sagði aðspurður, að þetta
væri einhver umfangsmesta leit að
flugvél hin síðari ár og jafnframt
einhver sú strembnasta.
Auk björgunar- og hjálparsveit-
armanna tóku þátt í leitinni bænd-
ur heima í héraði á hverjum stað.
Fóru þeir ýmist ríðandi eða fót-
gangandi. Var það mál þeirra, sem
blaðamaður Mbl. ræddi við, að
aðstæður til leitar hefðu verið mjög
slæmar. Hestarnir hefðu t.d. sokkið
mjög í aurleðju frammi á Skagafirði
og inni á hálendinu.
Leitajypenn taka sér stutta hvild á fjöllum
l.jósmyndir Brynjar örn.