Morgunblaðið - 02.06.1981, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 02.06.1981, Qupperneq 24
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JUNI 1981 Er sjúkrahótel Rauða krossins einskis virði? eftir Jórunni Ólafsdóttur frá Sörlastööum Fimmtudaginn þann 7. maí sl. var á dagskrá Ríkisútvarpsins báttur, sem bar heitið „Hjálpar- starf Rauða krossins". Mun honum hafa verið veitt rúm í útvarpinu vegna alþjóða- dags Rauða krossins, sem var daginn eftir (föstudaginn 8. maí). Umsjón með þætti þessum, sem stóð í um það bil klst., hafði Jón Ásgeirsson, fréttamaður. Ræddi hann við ýmsa, sem forystu hafa i málefnum RKI, m.a. Olaf Mixa, lækni, formann RKI, og Eggert Ásgeirsson, framkvæmdastjóra. Þá kom og þarna fram Sigurður Magnússon, og var að heyra á því, sem hann hafði að segja hlustend- um, að hann væri að taka við starfi hjá Rauða krossinum, sem sérlegur fulltrúi í sambandi við málefni aldraðra, sem þessi fé- lagsskapur hyggst nú, að manni skilst, ætla að fara að sinna af sérstökum áhuga og krafti — til samræmis við að næsta herrans ár — 1982 kvað eiga að vera tileinkað öidruðum alveg sérstaklega. Mun ekki af veita, önnur eins rama- kvein og ailtaf eru upp rekin í sambandi við öldrunarmálin svo að notað sé hið útþvælda og afar leiðinlega orð. Sannleikur mun það vera, að þar sé víða pottur brotinn og verulegra úrbóta þörf, og er það Greinarhöfundur ber mikið lof á sjúkra- hótel Rauða krossins, Skipholti 21 — það sé griðastaður sjúkum og öldnum, hlekkur í festi fjölþættrar hjálparstarfsemi vissulega, verðugt verkefni fyrir Rauða krossinn, sem hefur Sam- hjálp og líknarþjónustu á stefnu- skrá sinni fyrst og fremst og löngum sýnt það í raunhæfu verki. Er Rauði krossinn virðingar- verður félagsskapur, sem hefur unnið ómetanlegt starf á sviði heilbrigðismála og mannúðar, allt frá því að hann var formlega stofnaður í Genf árið 1863 upp úr hinni ægilegu styrjöld á milli Frakka og Austurríkismanna 1859. Einkunnarorð aðalforgöngu- manns að stofnun Rauða krossins, Henry Dunant, og félaga hans, sem unnu í sjálfboðavinnu án afláts við að bæta úr mesta bölinu, voru: „Allir eru bræður.“ Þessi fögru orð hafa fylgt Rauða krossinum síðan og í anda þeirra hefur margt ómetanlegt verið unnið á þeirri rúmu öld, sem liðin er frá því að Rauði krossinn varð til. Hugsjónir hans eru víðtækar og framar öllu göfugar. Ekki er farið í manngreinarálit, ekki gjörður munur á þjóðerni, kyn- þætti, trú, stétt eða stjórnmála- skoðunum. Rauði krossinn hefur löngum látið til sín taka að fá þar einhverja bót á ráðið, sem hung- ursneyð og hernaður hefur sett brennimark bölsins á þrautpíndar þjóðir og minnir þar að vissu leyti á hinn stórmerka félagsskap Amnesty International. Rauði kross Islands, sem var stofnaður árið 1924, hefur á allra síöustu árum verið á meðal þeirra félaga innan Alþjóða Rauðakross- ins, sem helga sig þessu verkefni í allríkum mæli og lagt þar fram bæði fjármagn og starfandi hend- ur. Er skemmst að minnast þeirra forgöngu, sem RKÍ hafði um flutning flóttafólks frá Víetnam hingað til lands og að bera veg og vanda af veru þess hér. Er að visu rétt að viðhafa góð orð um fram- kvæmd þessa. En ekkert höfuðaf- rek er hún þó út af fyrir sig og mun mörgum finnast að RKI sé merkari fyrir ýmsa aðra hluti, sem hann hefur gjört. En óspart var þessu hampað í nefndum útvarpsþætti og mikil áherzla lögð á ágæti RKI í sambandi við þátttöku hans í hjálparstarfi í þágu sveltandi og þjáðra þjóða úti í hinni víðu og válegu veröld. Og sem löngum, bæði fyrr og síðar, gleymdist þessi holla ábending: „Maður, líttu þér nær“! Minnst var að vísu á starfsemi RKÍ hér heima, m.a. getið um þátttöku hans og umsjón með sjúkraflutningum (samanber störf hinna ýmsu deilda) o.fl. skylt. Rætt var og við tvær konur, Stjórn Sinawik i Reykjavík ásamt fulltrúum Umsjónarféiags Einhverfra Barna. Einhverf böm fá meðferðarheimili í SL. VIKU afhentu Sinawik- konur í Reykjavík (eiginkonur Kiwanismanna) Umsjónarfé- lagi einhverfra harna gjöf að fjárhað 7.000,- kr. Þessu fé er ætlað að renna til meðferðar- heimilis einhveríra (geðveikra) harna að Trönuhólum 1 í Breið- holti. Umsjónarfélag einhverfra barna var stofnað 1977. Stofnfé- Við birtingu greinarinnar „Skylt er að leiðrétta" hér í Morgunbiaðinu á sunnudaginn urðu þau slæmu mistök, sem beðist er afsökunar á, að nafn lagar voru nokkrir foreldrar einhverfra barna og starfsfólk á Geðdeild Barnaspítala Hrings- ins. Nú eru í félaginu um 100 manns sem eru aðstandendur einhverfra einstaklinga og fólk sem vinnur að velferð þeirra. Meginverkefni Umsjónarfé- lagsins er að stuðla að bættum meðferðarmöguleikum fyrir ein- hverf börn. Þau þurfa flest greinarhöf. féll hreinlega niður. Greinina skrifaði frú Hulda Á. Stefánsdóttir. Biður blaðið hana að afsaka mistökin. ævilanga meðferð sem foreldrar einir geta ekki veitt. Félagið hefur beitt sér fyrir því að koma upp meðferðarheimili fyrir þessi börn. Félagið hefur aflað fjár með ýmsu móti í þessu skyni, og m.a. fengið viðurkenningu skattyfirvalda á skattfrelsi framlaga til heimilissjóðs fé- lagsins. Nánari upplýsingar um Umsjónarfélag einhverfra barna veitir stjórn þess, en hana skipa: Alda Sveinsdóttir, Lára Björnsdóttir og Sveinn Sigurðs- son. Ríkið hefur fest kaup á hús- eigninni Trönuhólum 1 og verð- ur þar starfrækt meðferðar- heimili fyrir einhverf börn, hið fyrsta sinnar tegundar á land- inu. „Skylt er að leiðrétta“ fráfarandi og nýkjörinn formann Kvennadeildar RKÍ varðandi starfsemina á vegum deildarinn- ar, s.s. bókasöfn, verzlanir, sem deildin á og annast og í tengslum við Sjúkrahús í höfuðborginni. Er það mikið nytjastarf og vinsælt. Þá var minnst á sjúkravinaþjón- ustu, sem er ein grein starfsemi Kvennadeildarinnar. En fremur fljótlega var yfir þetta farið, eins og það skipti ekki verulegu máli að kynna það neitt nákvæmlega fyrir almenningi. Og leið mistök voru það í sambandi við gerð þessarar dagskrár, að henni lauk svo, að ekki var minnst með einu orði á sjúkrahótel RKÍ, sem stendur við Skipholt 21. Rvík, og gegnir svo mikilvægu hlutverki, að það er án efa á meðal beztu og þörfustu stofnana á landi hér. Munu margir verða til að undirstrika þá um- sögn, þó að umsjónarmanni út- varpsþáttarins sem fyrst og fremst var kynning á „hjálpar- starfi“ Rauða krossins, og þeim ráðamönnum félagsskaparins, sem þar komu fram til viðræðna — þætti ekki taka því að nefna það. Eða var þetta e.t.v. gleymska?! Öll rök mæltu með því, að jr Steinar Oskarsson vélstjóri - Minning Meú tryKKÚ tll máls ok manna á mátt hins góúa ok sanna þú trúúir traust ok fast. Hér er nú starfsins endi. í æöri stjórnarhendi er þaó. sem heitt í huK þú barst. (Einar Benediktsson) Hinn 21. maí síðastliðinn lést Steinar Óskarsson, vélstjóri, á Landspítalanum. Það er þungbært að horfa á bak mönnum í blóma lífsins og þá ekki síst, þegar um er að ræða slíkan mannkosta mann, sem Steinar var. Orð segja lítið, en mig langar til að minnast hans í fáeinum kveðjuorðum. Steinar fæddist í Reykjavík 1. apríl 1934. Foreldrar hans eru hjónin Ólöf Daníelsdóttir og Óskar Halldórsson. Árið 1960 lauk Steinar vél- stjóranámi og starfaði síðan sem vélstjóri á ýmsum skipum til dauðadags. Síðast var hann 1. vélstjóri á togaranum Engey. Steinari kynntist ég fyrst, þegar ég kvæntist yngri systur hans. Alla tíð sýndi hann mér og fjölskyldu minni einstaka velvild og vinsemd, sem seint verður þökkuð. Margar góðar minningar geymast um samverustundir, sem þó urðu alltof fáar eins og títt vill verða, þegar sjómennska, með langdvölum fjarri heimili, er ann- ars vegar. Mér varð fljótt ljóst, að Steinar var mjög hæfur í sínu starfi og fylgdist vel með öllum nýjungum. Þau störf, sem honum voru falin, rækti hann af einstakri samvisku- semi og snyrtimennsku, svo mik- illi að orð fór af. Steinar var dulur að eðlisfari, en tryggur og traustur því fólki, sem honum féll við. Skapmaður var hann, en sáttfús og vildi aldrei halla réttu máli. Steinar var afar barngóður og kom það best í ljós gagnvart systrasonum hans tveim, sem hann hafði mikið dálæti á. Steinar var ókvæntur og barn- laus, en bjó alla tíð á heimili foreldra sinna. Þeirra missir er mikill. Nú um nokkurt skeið hafði hann glimt við erfiðan sjúkdóm og kom karlmennska hans og kjarkur vel í ljós í þeirri baráttu, sem þó varð styttri, en til stefndi. Að lokum vil ég þakka Steinari samfylgdina, sem var alltof stutt, og bið ég guð að gefa foreldrum hans, systrum og vinum styrk í sárri sorg. Far þú 1 friði. friðtir Guft» þi({ blessi, hafftu þftkk fyrir allt ok allt. (Vald. Briem) Þ.B.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.