Morgunblaðið - 02.06.1981, Page 33

Morgunblaðið - 02.06.1981, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1981 41 Hvernig væri að fá einn góðan vestra? Ilermikráka skrifar: „Velvakandi. Undanfarna daga hef ég verið að lesa bréf frá tveim mönnum, senor Zýkúrta og hr. Flink. Ég er sammála hinum fyrrnefnda, ég vil láta endursýna þáttinn með Jethro Tull (þar sem ég missti af honum) og sýna þátt með Led Zeppelin, ef hann er til. Svo vil ég láta endursýna þættina um al- þýðutónlistina, sem sýndir voru hérna fyrir nokkrum árum. Hvernig væri svo að fá einn gamlan og góðan (og helst gam- ansaman) vestra í kassann? Það er langt síðan maður hefur fengið slíkan. Og að lokum skora ég á sjónvarpið að sýna eitthvað annað en væmnisrusl eins og Dallas og þvíumlíkt." Dennis Weaver sem Poteet rekstrarstjóri í Landnemunum. Þessir hringdu . . . Sundhöll Hafn- arfjarðar þjónar þremur hópum Ingvi Baldvinsson, íþróttafulltrúi í Hafnarfirði, hringdi og hafði eftirfarandi að segja vegna athuga- semdar hér í dálkunum um Sund- höll Hafnarfjarðar: — Það er rétt, að Sundhöll Hafn- arfjarðar verður lokuð frá 20. júlí og þar til endurbótum og viðgerðum verður lokið, sem vonandi verður í lok ágústmánaðar. Endurbæturnar miðast fyrst og fremst við það að gera hreyfihömluðum auðveldara að nota sér sundlaugina. Sundhöll Hafnarfjarðar leitast við að veita þremur aðilum sem besta þjónustu. Þeir eru: nemendur í skólum bæjarins, almenningur og sundfélag. Skýrslur sýna, að minnst röskun verður á þessari þjónustu með því að loka í ágústmánuði. Af þeirri einu ástæðu hefur þessi lokunartími verið valinn. Sundhöllinni lokað þegar sLst skyldi IUtaíirðtn*«» hrin«di Þ*ð er kurr í okkur faatagMtum Sundhallmrinnar hér i Firðinum Við erum alveg I undrandi á þvi að loka eigi eina ■undataðnum hér I b» frá miðj- ■ júli til áffúatloka. á beaU tima aumaraina, eða þegar list akyldi. Sundhöllin nýtur geyai- legra vinaælda off er til d*mia ” ð aðtt af ffifftarajúklingum, eiffa allt aitt undir haitu I pottunum Er ekki að efa að I marffur þeirra mun aakna þeaa að geU ekki liðkað aiff þar fyhr Kkki veit 1» um þw M að baki liagja hjá foravaramönnum Sundhallar- innar, nema verið aé að horfa I það að borffa aumarfólki Ásta Gunnars Lapergola og Lára II. Clarke við mynd eftir Ingunni Eydal. íslensk gralík í Fíladelfíu Ásta Gunnars Lapergola. Al- gard St., Fíladelfíu, skrifar: „Velvakandi. Mér datt í hug að senda þér þessar línur vegna sýningar 17 íslenskra grafíklistamanna, sem opnuð verður 21. maí nk. í Sænska listasafninu hér í Fíladelfíu — þó ekki væri til annars en listamenn- irnir vissu, hvar verk þeirra eru nú stödd á leið um Bandaríkin, því að ákveðið var á síðustu stundu að setja þessa sýningu upp hér. Send verða út um 1000 boðskort, svo að við erum að vonast eftir að fjölmenni verði við opnunina, en þá verður boðið upp á létt vín, osta og kex, kaffi og rjómapönnukökur. Við Anna Bohlin, Lára H. Clarke og ég höfum verið á safninu í þrjá daga við að hengja upp myndirnar, pússa glerin, laga til og undirbúa sýninguna, sem vonandi á eftir að verða fjölsótt. Hérna eru nokkrar línur úr fréttatilkynningu sem sýningar- nefndin sendi fjölmiðlum vegna sýningarhaldsins: „Frá 21. maí til 30. júní verður haldin í Sænska listasafninu sýn- ing á verkum 17 íslenskra grafík- listamanna. Þar verða sýnd 35 verk eftir listafólk, sem flest er ungt að árum. Verkin eru ætingar, aquatintur, dúkskurður, silki- þrykk og steinþrykk. Enda þótt grafíklist sé ung listgrein á ís- landi, bera verkin vott um þrosk- aða list, sem endurspeglar jafnt sterka vitund um þúsund ára menningu íslendinga sem og sí- breytilegan umheiminn. Tólf hinna sautján listamanna eru konur og mun ýmsum þykja við hæfi, þar sem Islendingar kusu nýlega konu í embætti forseta í fyrsta sinn. Bæði listakonurnar tólf, svo og hinir 5 karlkyns félagar þeirra, eru víða þekkt í Evrópu og sum þeirra hafa meira að segja tekið þátt í sýningum í fjarlægum löndum eins og Japan. Þá eru verk eftir þau í eigu opinberra safna um alla Skand- inavíu." Með bestu kveðju héðan frá Fíladelfíu." Anna Bohlin að hengja upp mynd eftir Valgerði Bergsdóttur. Lundarhólmi i Lundarreykjadal Sumarhúsiö Lundarhólmi í Lundarreykjadal, Borgar- firöi, ásamt tilheyrandi landi er til sölu. Allar nánari upplýsingar gefur: Málflutningsskrifstofa, Guðmundar Péturssonar, Axels Einarssonar, Aðalstræti 6, sími 26200. Tölvuskólinn, Borgartúni 29, sími 25400. Tölvunámskeið hefjast 15. júní. Byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið á örtölvur. Á námsskránni er m.a. ★ Námskeiö í BASIC fyrir byrjendur. ★ Framhaldsnámskeið í BASIC. ★ Upplýsingaleit í tölvumiðstöðvum erlendis. ★ Stjórnun tækja og ferla og aflestur mælitækja meö örtölvu. ★ Fyrirtækjabókhald. ★ Assembler og vélamál. ★ Notkun diskettustöðvar og prentara. ★ Forritunarverkefni. Sími Tölvuskólans er 25400. Innritun stendur yfir. International TD-8B (Seria 22) Vel með farin TD-8B jaröýta árgerö 1976 til sölu. Nánari upplýsingar veita sölumenn véladeildar í síma 81299. Bílaborg hf. Smiöshöföa 23.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.