Morgunblaðið - 27.10.1981, Síða 1

Morgunblaðið - 27.10.1981, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 240. tbl. 68. árg. ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sprengjuárás í Oxfordstræti l/ondon, 27. október. Al*. SPRENGJUSÉRFRÆÐINGUR Scotland Yard beið bana í dag þegar hann reyndi að gera óvirka sprengju, sem skseruliðar írska lýðveldishersins (IRA) komu fyrir á veitingastaðnum Wimpy við Oxford-stræti í Lundúnum. Sporhundar lögreglunnar fundu aðra sprengju í stórverzluninni Debenhams, 365 metra neðar í sömu götu, en hún var gerð óvirk. Maður, sem talaði með írskum hreim, tilkynnti í síma að sprengj- unum hefði verið komið fyrir og 175 viðskiptavinum og starfs- mönnum veitingahússins var skip- að að fara út. En sprengjusérfræð- ingurinn beið bana þegar sprengj- an, sem hafði verið komið fyrir niðri í kjallara, sprakk. „Provisional“-armur IRA kvaðst bera ábyrgðina á sprengj- unum í yfirlýsingu frá Belfast, þar sem sagði: „Brezka þjóðin ætti að þrýsta á stjórnina að hörfa frá landi okkar, þá verða engar sprengjur í Lundúnum og friður á írlandi." Ennfremur sagði, að írsk börn fengju ekki viðvaranir þegar þau yrðu fyrir brezkum kúlum og því skyldi fólk taka mark á viðvörun- um skæruliða framvegis. Þetta bendir til að skæruliðar hyggi á fleiri árásir í Lundúnum. Spreng- ingin í dag var þriðja árás IRA í höfuðborginni síðan 10. okt. Fyrr í dag gerði lögregla óvirka íkveikjusprengju, sem tilkynnt hafði verið um í ráðningarskrif- stofu brezka hersins rétt hjá leið- inni sem Karl prins og Díana prinsessa fara um í þriggja daga ferð um Wales í vikunni. Velskir þjóðernissinnar eru grunaðir um að hafa komið sprengjunni fyrir. Maðurinn, sem beið bana í dag, er annar sprengjusérfræðingur lögreglunnar sem hefur týnt lífi í sprengjuárásum IRA síðan skær- uliðar gerðu fyrstu árás sína í borgum á meginlandinu 1972. LjÓNm. Jan ('ollins FB. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, kom í gær til Svíþjódar í opinbera heimsókn og var þessi mynd tekin í sænsku konungshöllinni í gær af forsetanum og sænsku konungshjón- unum Karli Gústaf og Silvíu. Lögreglumaður í Oxford-stræti, þar sem sprenging varð á hamborgarastaðn- um Wimpy og sprengiefnisérfræðingur Scotland Yard beið bana við rann- sókn málsins Dollar hækkar lAtndon, 27. októbor. Al*. DOLLARINN hækkaði gagnvart öllum gjaldmiðlum í gær, aðallega vegna þess að verðbólgan í Bandaríkjunum hefur aukizt um 1,2 af hundraði. Gull lækkaði um allt að sex dollara únsan. Þar sem verðbólgan í Banda- ríkjunum eykst meira en búizt hefur verið við er talið að vextir verði áfram háir í Bandaríkjun- um. Spenna í Póllandi var einnig talin spila inn í, þótt hún hefði ekki áhrif á gullverðið. Dollarinn hækkaði um tæp 2 cent gagnvart pundi, sem seldist á 1,8040 dollara. í Tokyo seldist dollar fyrir 234,95 yen, tæplega 2 yenum meira en á föstudaginn. Gullverð í Zúrich lækkaði í 426. 50 dollara únsan, úr 432,50 á föstudag. í London seldist gull á 425,875 dollara, miðað við 429,50 á föstudag. Silfur lækkaði einnig í 8,935 dollara únsan í London mið- að við 9,1250 á föstudaginn. - AP. Dulbúin hótun um herlög í Póllandi \ arsjá, 27. október. AF. LEIÐTOGAR pólskra kommúnista báru fram dulbúna hótun um herlög, er þeir gagnrýndu harðlega í gær fyrirhugað landsverkfall, í sama mund og þúsundir hermanna tóku sér stöðu í bæjum og þorpum til að búa landsmenn undir veturinn og „halda uppi lögum og reglu“. Leiðtogarnir birtu yfirlýsingu sína á sama tíma og félög Sam- stöðu á ýmsum stöðum boðuðu ný mótmæli í trássi við kröfur ríkis- stjórnarinnar og flokksins um að verkföllum verði hætt. í yfirlýsingunni segir að fyrir- huguð mótmæli á miðvikudaginn séu ógnun við „pólitískar, efna- hagslegar og hernaðarlegar undir- stöður tilveru Póllands“. Þess vegna verði þeim „mætt með gagn- ráðstöfunum, sem verði í réttu hlutfalli við alvöru ógnunarinnar." En sagt er að vandamálin sé „að- eins hægt að leysa með skynsam- legum viðræðum og eflingu hins lýðræðislega sósíalistaríkis" og öll „skynsamleg öfl“ verði að vinna saman. Bandarískt herlið eflt við Persaflóa \Va.shington, 27. októbvr. AF. REAGAN-STJÓRNIN kvedst ætla að ári til eflingar hcrnum svo að hann olíusvæðin við Persaflóa. „Við ætlum að nota þann liðs- afla, sem fyrir er á svæðinu, og auk þess liðsauka frá Bandaríkj- unum til að mæta hótun sem er í þróun," segir í yfirlýsingu utanrík- is- og landvarnaráðuneytisins til efnahagsnefndar beggja þing- deilda. Henry Reuss nefndarformaður, demókrati frá Wisconsin, sem kvað yfirlýsingarnar „mikilvægar og uggvænlegar", sagði: „Þeir sem halda að Reagan-stjórnin hafi þeg- biðja þingið um fjárveitingu á næsta geti staðizt algera innrás Rússa í ar stungið upp á verulegri upp- byggingu herafla okkar geta orðið undrandi. Hvað þarf margar millj- ónir í viðbót á Persaflóa?" í yfirlýsingunum sagði, að „hættulegasta hugsanlega ógnunin við bandaríska hagsmuni á svæð- inu yrði sovézk árás, kannski að beiðni einhvers deiluaðila í ríki á svæðinu, eða undir einhverju yfir- skini í því augnamiði að hagnast á ótryggu ástandi í heimshlutanum." Arthur A. Hartman sagði þegar hann afhenti í gær skilríki sín sem sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu að Bandaríkin ættu ekki annars úrkosti en svara „stór- felldri og ástæðulausri" hernaðar- uppbyggingu Rússa, en hét því að samskiptin við Moskvu yrðu bætt. Hann sagði að Rússar yrðu að sýna stillingu í stefnu sinni og gerðum, fordæmdi hryðjuverk og undirróður, skoraði á Rússa að hætta stuðningi við aðgerðir Kúbumanna gegn „fullvalda ríkis- stjórnum" og sagði að Afghanistan yrði að vera hlutlaust land er byggi við öryggi og þyrfti ekki að óttast utanaðkomandi afskipti. Hin vaxandi verkfallsalda virð- ist sú alvarlegasta síðan Samstaða var stofnuð. I yfirlýsingu leiðtog- anna segir að verkfall og verk- fallshótanir þjóni engum tilgangi. Samstaða kvaðst í yfirlýsingu mundu aflýsa verkfallinu, ef yfir- völd samþykktu kröfur um efna- hagsráð til að stjórna efnahagslíf- inu og hættu áreitni gegn verka- mönnum. Flokkurinn sagði að mótmæli mundu aðeins gagna þeim sem „færu ekki lengur dult með þá ætlun sína að kollvarpa sósíalisma og taka völdin". Nokkur árangur virðist hafa náðst í viðræðum um lausn lang- vinnra deilna í Zyrardow vestur af Varsjá og Zielona Gora í Suð- vestur-Póllandi. Um 830 þriggja og fjögurra manna sveitir liðsforingja og her- manna verða sendar til um 2.000 þorpa og smábæja, þar sem skort- ur er á matvælum og eldsneyti og fólk sér fram á harðan vetur. Hupalowski hershöfðingi, ráð- herra umhverfismála, sagði að hermennirnir ættu að „leysa úr læðingi orku og framtak borgar- anna til að sigrast á vandanum“. Haft yrði eftirlit með sendingu matvæla og eldsneytis til og frá sveitahéruðum, heilbrigðisþjón- ustu, húsnæðismálum, flutningum og aðstoðað við að „halda uppi lög- um og reglu og hamla gegn stað- bundnum deilur.i". Tilgangurinn er að efla miðstýr- ingarvald Jaruzelski hershöfð- ingja, hins nýja flokksleiðtoga. „Nú eru hermenn alls staðar," sagði málgagn hersins, „í námun- um, á ökrunum, í orkuverum, að baka brauð, safna timbri fyrir vet- urinn og tala við fólk í verksmið- jum.“ Hermenn og lögregla eru á verði í Konin þar sem 65.000 verkamenn lögðu niður vinnu í dag og hyggja á fjögurra tíma verkfall á miðviku- daginn. Hópar 12 til 15 liðsforingja og hermanna rifu niður og eyði- lögðu veggspjöld, borða og fána Samstöðu, en ekki kom til átaka eins og í september. Svíar ákæra friðarmann Slokkhólmur, 27. oklóhor. Al*. NÝ-SJÁLENZKUR friðarrann sóknarmaður, Owens Wilkes, var áka'rður í Stokkhólmi í gær fyrir ólöglega leyniþjónustustarfsemi. Opinbert heiti ákæru K.G. Svenssons ríkissaksóknara á hendur Wilkes er „gróf misnotk- un le.vnilegra upplýsinga" og gæti haft í för með sér allt að fjögurra ára fangelsi. Wilkes var handtekinn um miðjan ágúst þegar gögn um sænsk hernaðarmannvirki höfðu fundizt við leit á heimili hans. Wilkes neitaði því að hann væri sekur um nokkurn glæp. Hann er starfsmaður Alþjóð- legu friðarrannsóknarstofnunar- innar í Stokkhólmi (SIPRI), en kveðst hafa stundað sjálfstæðar rannsóknir í eigin þágu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.