Morgunblaðið - 27.10.1981, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981
21
LjÓNm. Kmiiía.
• Fjórir leikir fóru fram í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik um helgina. FH og KR háðu harða baráttu og einnig KA og
Þróttur. Þá urðu mjög óvænt úrslit í leik HK og Vals. HK gerði sér lítið fyrir og sigraði Val örugglega. Á myndinni hér að ofan
sem tekinn var í leik FH og KR má sjá þá Pálma Jónsson og Friðrik Þorbjörnsson kljást um knöttinn. Sjá allt um
íslandsmótið í handknattleik á bls. 23—24—25.
HIVI í kraftlyftinqum öldunga:
Jóhannes Hjálmarsson
varð heimsmeistari
KRAr rLYFTINtiAKAPPINN Jóhannes Hjálmarsson frá
Akureyri keppti um síðustu helgi á heimsmeistaramóti öld-
unga (50 ára og eldri) í Chicago í Bandaríkjunum. Jóhannes
keppti í 100 kg þyngdarflokki og sigraði mjög örugglega í
sínum flokki. Lyfti samanlagt 597,5 kg. Eða 37,5 kg meiri
þyngd en næsti keppandi sem hlaut silfrið. Árangur Jóhann-
esar er sérlega glæsilegur. Hann hafði undirbúið sig af mik-
illi kostgæfni fyrir keppnina og uppskar ríkulega fyrir allt
erfiðið og æfingarnar. Jóhannes sem er 51 árs gamall, setti
heimsmet í réttstöðulyftu í sumar á landsmóti ungmennafé-
laganna en það var í 110 kg flokki. Jóhannes hafði létt sig
en hann helt utan til
í 100 kg flokki.
í kraftlyftingakeppninni er
keppt í þremur greinum. Hné-
beyííju, bekkpressu, og réttstöðu-
lyftu. Jóhannes byrjaði á því að
lyfta 200 kg í hnébeygjunni og
lyfti þeirri þyngd örugglega. Þá
reyndi hann við 210 kg og lyfti
þeirri þyngd tvívegis. En eit.thvað
sáu dómararnir athugavert við
lyfturnar og dæmdu þær ógildar.
I bekkpressunni varð Jóhannes
að fara varlega af stað. Hann
byrjaði á 127,5 kg. Þeirri þyngd
lyfti hann í annarri tilraun. Og
bætti veruiega um betur er hann
lyfti 130 kg á bekknum í þriðju og
síðustu tilraun.
í og keppti eins og áður sagði
Lyftlngar 1
Þá var komið að síðustu grein-
inni, réttstöðulyftu. í fyrstu til-
raun lyfti Jóhannes 230 kg, í ann-
arri 255 kg og í þeirri þriðju fór
hann upp með 257,5 kg. Saman-
lagður árangur hans varð því eins
og áður sagði 597,5 kg. Heims-
meistaramótið var mjög fjöl-
mennt og keppt var í 11 þyngdar-
flokkum. Arangur Jóhannesar er
mjög góður og gæti margur yngri
lyftingakappinn verið ánægður ef
hann lyfti jafn miklu. Þá hefur
Jóhannes sýnt ótrúlega mikla
eljusemi og dugnað við æfingar og
þær hafa fært honum öðru fremur
þennan glæsilega árangur.
- ÞR.
• Jóhannes Hjálmarsson heimsmeistari öldunga í 100 kg
flokki í kraftlyftingum.
„Þetta var
sanngjarn sigur“
- sagði þjálfari HK
„ÞETTA var sanngjarn sigur miðað
við gang leiksins, Yalsmenn komu
með því hugarfari að þeir færu létt
með að sigra okkur og ná sér í tvö
auðfengin stig, sú varð bara ekki
raunin" sagði þjálfari IIK, Þor
steinn Jóhannesson, eftir að HK
hafði komið á óvart í I. deildinni og
sigrað Val örugglega.
— Það sást greinilega á undir-
búningi Valsliðsins fyrir leikinn
að þeir tóku þetta ekki alvarlega.
Við í HK höfum sett stefnuna á að
halda okkur í 1. deild. Við gerum
okkur ánægða með 6. sætið. Við
verðum að reyta stig af toppliðun-
um ef það á að takast. Spá mín er
sú að mótið verði frekar jafnt.
Fimm lið, Víkingur, Valur, FH,
Þróttur og KR munu berjast um
þrjú efstu sætin. Lið HK, KA og
Fram munu he.vja hörkubaráttu
um botnsætin, sagði Þorsteinn
þjálfari.
— ÞR.
Staðan í
1. deild
Staðan í I. deild íslandsmótsins í
meistaraflokki karla er nú þessi:
Víkingur
FII
KK
Þróttur
Valur
HK
KA
Fram
4 3 0 1 88:73 0
4 30 1 101:88 6
3 2 0 1 73:59 4
3 20 1 63:61 4
3 2 0 1 55:54 4
3 1 0 2 60:70 2
3 0 0 3 63:72 0
3 003 58:84 0
Nú verður nokkurt hlé á 1. deild-
arkeppninni vegna keppnisferðar
landsliðsins til Tékkóslóvakíu.
Næstu leikir verða ekki fyrr en 14.
nóv.
Markahæstir leikmanna deildarinn-
ar eru þessir:
Kristján Arason, FH 30/15
Alfreð Gíslason, KK 25/12
Þorbergur Aðalsteinss., Vík. 21/1
Sigurður Sveinss., Þrótti 20/6
Ottar Mathiesen, FH 20
Páll Ólafsson, Þrótti 18/1
Friðjón Jónsson, KA 16/3
Páll Björgvinsson, Vík. 16/4
Jón P. Jónsson, Val 16/10
Sæntundur Stefánsson, FH 16
Pálmi Jónsson, FH 15
Sigurður Sigurðss., KA 15
Rýr uppskera
hjá Pétri
og Arnóri
KKKI gekk sérlega vel hjá íslensku
knattspyrnumönnunum í belgísku
knattspyrnunni um helgina, tap á
heimavelli hjá Arnóri og félöguni, en
markalaust jafntefli á heimavelli hjá
Pétri og félögum hans hjá Ander
lecht. llrslit leikja urðu sem hér seg-
ir:
Anderlecht — Beringen 0—0
Waterschei — FC Liege 1—0
Standard — FC Brugge 1—0
Tongeren — Lierse 0—1
Ixtkeren — Kortrijk 1—2
Waregem — Winterslag 1—0
Mechelin — Beveren 0—0
Antwerp — Ghent 1 — 1
Cercle Brugge — Molenbeek 1 —2
Fjögur félög eru nú efst og jöfn
í deildinni með 14 stig hvert. Eru
það Standard Liege, Ghent, And-
erleeht og Lierse. Kortrjik hefur
12 stig. Lokeren er í öldudal um
þessar mundir og er í 9. sæti nteð
10 stig.
Knaltspyrna 1