Morgunblaðið - 27.10.1981, Side 43

Morgunblaðið - 27.10.1981, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1981 23 mm 0% Víkingar unnu stóran sigur á ósannfærandi liði Fram Víkingar unnu stóran sigur á Frömurum í 1. deildarkeppninni í hand- knattleik í Laugardalshöll á sunnudagskvöld. Lyktaði viðureign félaganna með 31 marki gegn 17, en staðan í hálfleik var 10—8 fyrir Víkinga. Vfkingar höfðu ætíð frumkvæðið í leiknum, komust í 4—0, en leikur beggja liða var þó fálmkenndur fyrsta kortérið, einkum leikur Framara, sem skoruðu ekki mark fyrr en á 14. mínútu. Virtust Framarar hreinlega hræddir við Víkingana og léku ósannfærandi, en gott lag komst þó á leik þeirra eftir að Hannes Leifsson, bezti maðurinn hjá Fram, skoraði laglega með gegn- umbroti á 14. mínútu. Hannes skoraði samskonar mark aðeins einni mínútu seinna og þriðja markið skoraði hann á 16. mínútu. • Línumaðurinn snjalli Guðmundur Guðmundsson kominn í gott skotfæri á markteignum. Þessi sprettur Hannesar virkaði sem vítamínssprauta á Framara, sem tóku sig nú saman og léku ákveðið það sem eftir var hálf- leiksins, bæði i vörn og sókn. Þá stóð Sigurður Þórarinsson í marki Fram sig mjög vel í hálfleiknum og varði hvert skotið af öðru frá Víkingum. En Adam var ekki lengi í Para- dís, segir máltækið, því á 10 mín- útna kafla í fyrrihluta seinni hálf- „Atli hélt Briegel alveg niðri" — sagði Jorge Berger eftir sigurleik Fortuna Dusseldorf gegn Kaiserslautern, Atli lagöi upp 2 mörk Fortuna Diisseldorf lék sinn besta leik á keppnistímahilinu, er liðið sigraði Kaiserslautern 4—2 á heima- velli sínum Rheinstadion á laugar daginn. „Þetta var það besta sem við höfum sýnt á keppnistímabilinu. Atli Eðvaldsson lék þarna sinn fimmta leik með okkur og hann er þegar orðinn geysimikilvægur fyrir liðið. Hann er mikill baráttuforkur og fékk það hlutverk að þessu sinni að leika gegn landsliðsmanninum Hans Peter Briegel. Hann gerði það vel, bæði í sókn og vörn og hélt Briegel alveg niðri,“ sagði Jorge Berger, þjálfari Fortuna í samtali við fréttamann Morgunblaðsins, sem ræddi einnig við Atla Eðvaldsson. Hann sagði: „Það var erfitt að lcika gegn Briegel, hann er geysilega sterkur leikmaður og lykilmaður í liði Kaiserslautern. Hann er fyrst og fremst varnarmaður, en skæður einnig er hann tekur þátt í sókninni og hann skorar yfirleitt mikið af mörkum." Þess má geta, að Atli flutti í gær frá Ahlen, í útjaðri Dortmund, til Mettmann, smáborg- ar í útjaðri Diisseldorf. Til þessa hef- ur Atli orðið að aka 130 kílómetra dag hvern til að sækja æfingar hjá Diisseldorf. Aður en lengra er haldið skulum við glöggva okkur á úrslitum leikja. Karlsruhe — E. Braunschw. 2—1 Darmst. 98 — FC Niirnberg 2—1 Arm. Bielef. — Hamburg. SV 1—1 Mönchengl.bach — Duisburg 4—2 F. Diisseld. — Kaiserslaut. 4—2 Werder Brem. — Bor. Dortm. 2—0 Bayer Leverkusen — FC Köln 1—1 Bochum — Stuttgart 3—3 Bayern Miinch. — Frankfurt 3—2 Ef vikið er nánar að leik Dússel- dorf og Kaiserslautern, þá náði Wenzel forystunni fyrir heimalið- ið úr vítaspyrnu á 11. mínútu leiksins. Hofdietz jafnaði 11 mín- útum síðar, en Amand Theis náði aftur forystunni á 38. mínútu, eft- ir undirbúning Atla. Wenzel skor- aði þriðja mark Fortuna áður en blásið var til hálfleiks, staðan því 3—1 í hálfleik. Hans Peter Briegel minnkaði muninn með því að skora úr vítaspyrnu á 50. mínútu, en fjórum mínútum síðar splundr- aði Atli vörn Kaiserslautern, sendi á Amand Theis, sem skoraði fjórða mark Fortuna. Urðu það lokatölurnar. Bayern Múnchen sigraði Ein- trakt Frankfurt 3—2 á heimavelli sínum, en Ásgeir Sigurvinsson lék ekki með liðinu að þessu sinni. Lowe náði forystu fyrir Frankfurt snemma í fyrri hálfleik, en Kraus var fljótur að jafna með skalla eftir hornspyrnu. Rumenigge og Niedermayer bættu við mörkum fyrir leikhlé, en Lotterman skor- aði eina markið í síðari hálfleik. Köln hélt efsta sætinu þrátt fyrir jafntefli gegn Bayer Lever- kusen, sem náði forystu í upphafi leiksins. Tony Woodcock jafnaði forystu, en alltaf jafnaði Stutt- gart. Oswald, Schreier og Abel skoruðu mörk Bochum, en Dieter Múller, Beck og Didier Six jöfnuðu jafn harðan. Bold og Weisner skoruðu mörk Karlsruhe gegn Braunschweig, sem svaraði með marki Ronnie Worm. Og mörk Darmstadt 98 gegn Núrnberg skoruðu þeir Hahn og Mattern. Botnliðið svaraði með marki Eggert. Staðan er nú þessi í þýsku deildarkeppninni: STAÐAN • Atli Eðvaldsson átti mjög góðan leik um helgina með liði sínu For tuna Diisseldorf. Atli lagði upp tvö mörk í leiknum. 1. K Köln II 7 2 2 22:9 16 Werder Bremen 11 6 3 2 19:12 15 Bayern Miinchen 11 7 1 3 26:20 15 Bor. Mönchengl. II 6 3 2 21:19 15 Ilamhurger Sv. 11 5 4 2 27:14 14 YFL Bochum 11 5 3 3 22:1H 13 1. K< kaiserslault rn 11 3 5 3 23:31 11 Kinlr. Krankfurl II 5 1 5 22:20 II karlsruhc S<’ 11 4 3 4 20:19 11 VKB Sluttgart II 4 3 4 17:IH 11 Baycr Leverkusen II 4 3 4 16:23 11 Bor. Dortmund II 4 2 5 16:14 10 Korluna Diisseld. 11 3 3 5 1H-22 9 Kinlr. Braunschweig II 4 0 7 I6:IH H MSY Duisburg 11 3 2 6 IH:2H H Darmsladt 9H 11 2 4 5 13:23 H Arminia Bielefeld 11 1 4 6 H:17 6 1. K<’ Niirnberg 11 2 2 7 12:23 6 með fallegu marki á 22. mínútu, eftir undirbúning Rainers Bonhof og þar við sat. Leikurinn þótti daufur. Hamburger SV rann niður í 5. sætið við jafnteflið gegn Armenia Bielefeldt. AB skoraði snemma leiks, Manfred Schock, og það var langt liðið á leikinn, er Jurgen Miljewski tókst að jafna metin með þrumuskoti af 20 metra færi. 30.000 manns mættu á völlinn í leiðindaveðri. Werder Bremen er í 2. sæti deildarinnar eftir 2—0 sigur sinn gegn Borussia Dortmund. Erwin Kostedde og Bernd Grúber skor- uðu mörk Bremen. Borussia Mönchengladbach er á mikilli uppleið eftir nokkurra ára lægð og liðið sigraði Duisburg örugglega um heigina. BMG komst í 3—0 með mörkum Kurt Pinkall (2) og Theo Mill, áður en að Bernd Dietz tókst að svara fyrir Duisburg. Kempe minnkaði muninn síðan enn meir, en Mill átti síðasta orðið, er hann bætti við fjórða marki BMG. Leikur Bochum og Stuttgart var leikmönnum Bochum ekki til sannrar gleði. Þrívegis náðu þeir leiksins skoruðu Víkingar hvorki fleiri né færri en sjö mörk í röð og gerðu út um leikinn. Sýndu Vík- ingar það þá hverjir eru Islands- meistarar í handknattleik, léku skemmtilega og skoruðu ýmist af línu, með gegnumbrotum eða úr langskotum. Á sama tíma var varla heil brú í sóknarleik Fram- ara og vörnin heldur lek. Víkingar komust á þessum tíma í 18—9 og var því nánast forms- atriði fyrir þá að ljúka leiknum. En þeir slökuðu lítið á klónni og skoruðu 13 mörk síðasta kortérið, flest úr gegnumbrotum eða hraðaupphlaupum, sem gengu flest upp á þessu tímabili. Fengu fleiri leikmenn að spreyta sig síð- asta kortérið og mátti á tímabiii sjá fjóra leikmenn úr byrjunarlið- inu á bekknum, en það virtist skipta litlu máli. Skiptimennirnir stóðu sig vel og skoruðu skemmti- lega, einkum Heimir Karlsson og Hilmar Sigurgíslason. Framarar byrjuðu seinni hálf- leikinn á svipaðan hátt og þann fyrri, skoruðu aðeins eitt mark fyrsta kortérið. Og þeir léku á köflum heldur ósannfærandi, Víkingur 01.17 Fram ||li I ! nema helzt Hannes. Þeir skoruðu þó átta lagleg mörk síðasta kort- érið, en það var um seinan, Vík- ingar höfðu unnið leikinn og setti það svip á leik Framara, sem höfðu sætt sig við tap. Meira virð- ist búa í liði Fram en það sem sást í þessum leik. Mikil varnarharka einkenndi leik beggja liða og voru gul spjöld dómaranna oft á lofti og bókanir nokkrar. Þá var Víkingum fimm sinnum vikið af leikvelli fyrir grófan varnarleik og Frömurum fjórum sinnum. Þrátt fyrir þessa hörku verður tæpast hægt að segja að varnarleikur liðanna hafi verið góður, því markverðir beggja félaganna vörðu mörg skot og komu í veg fyrir að enn fleiri mörk yrðu skoruð á báða bóga. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild, Laugar- dalshöll: Víkingur 31 — Fram 17 (10-8). Mörk Víkings: Óskar Þor- steinsson 7 (1 v.), Þorbergur Aðal- steinsson 6 (3 v.), Páll Björgvins- son 4 (3v.), Ólafur Jónsson 4, Steinar Birgisson 4, Heimir Karlsson 3 (1 v.), Hilmar Sigur- gíslason 3, Guðmundur Guð- mundsson 1. Mörk Fram: Hannes Leifsson 8 (2 v.), Egill Jóhannesson 4, Björn Eiríksson 3, Dagur Jónasson 2. FH vann nauman sigur gegn KR FH SIGKAÐI KR naumlega í 1. dcild kvenna í handknattleik á sunnudagskvöldið, er liðin áttust við í íþróttahúsinu í Hafnarfirði. Þess- um mikla baráttuleik lauk með eins marks sigri FH, 16—15, eftir að staðan í hálfleik hafði verið jöfn, eða 8—8. Það skipti miklu fyrir FH í þessum leik, að aðalmarkaskorari liðsins, Margrét Theodórsdóttir, var útilokuð frá leiknum eftir að hafa lent í erjum við dómara. Þar með fór mikill broddur úr leik FH-liðsins. KR-dömurnar fundu FH — KR 16:15 það og voru hálfu aðgangsharðari fyrir vikið. Var allt í járnum allt til leiksloka og skammt til leiks- loka, er FH læddi inn sigurmark- inu. Karólína var drýgst í marka- skoruninni hjá KR, skoraði 6 mörk, en Kristjana skoraði mest fyrir FH, 5 mörk. Staðan í hálfleik var 17—1 • Erna Lúðvíksdóttir, Val, átti góð- an leik með liði sínu. Hún er ein styrkasta stoð meistaraflokks Val. Ljósm.Emilía. ÞAD kemur ekki oft fyrir í hand- knattleiksleikjum að markatalan í hálfleik sé 17-1. En sú var staðan í leik Vals og ÍA á sunnudag er liðin léku í Islandsmótinu í meistara- flokki kvenna. Lið Vals hafði algjöra yfirburði yfir hinu unga og greini- lega óreynda liði fA. Lokatölur leiks- ins urðu svo 24-6, fyrir Val. Það sem af er leikjum 1. deildar kvenna hcndir allt til þess að þrjú félög, FH, Fram og Valur, berjist um titilinn í ár. Önnur félög konia nokk- uð á eftir hvað getu snertir. Mörk Vals í leiknum skoruðu þessar: Erna Lúðviksdóttir 5, 1 v., Valur — IA 24—6 Magnea Friðriksdóttir 5, I v„ Sigrún Bergmann 4, Marcn Tómasdóttir 3, Karen (■uðmundsdóttir 3, llarpa Sigurðardóttir 2 og Elín Kristins- dóttir 2. Mörk ÍA: Ragnheiður Jónsdóttir 3, 2 v„ Erna Sigurðardóttir 2 og Hrefna Guðjónsdóttir I. - I*R.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.