Morgunblaðið - 03.12.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
unar með hrúðurkörlum og gíghól-
um.« Myndlist Ragnheiðar er
býsna margræð. »Þó að Ragnheið-
ur tali um einföld tákn,« segir
Thor, »og að hún vilji vekja ákveð-
in viðbrögð hjá áhorfandanum eða
þátttakandanum þá hygg ég að
táknin séu flóknari en í fyrstu
kann að virðast og margræðari
svo sem jafnan fer um góða lista-
menn.«
Lestina rekur svo Indriði G.
Þorsteinsson sem skrifar um Eirík
Smith. Fer vel á því að Eiríkur
skipi hér heiðurssætið þar sem
hann er hinn eini íslenskra nú-
tímamálara sem kalla mætti kon-
unglegan hirðmálara vegna mynd-
ar þeirrar sem hann málaði fyrir
ríkisstjórnina til að gefa Karli
Bretaprins í brúðkaupsgjöf. Ekk-
ert slíkt þurfti þó til að lista-
unnendur hefðu mætur á málverk-
um Eiríks Smith. Indriði segir að
1 istferli hans megi »að nokkru
líkja við hamfarir, bæði í afköst-
um á síðari árum og þá ekki síður
vegna afdráttarlausra umbreyt-
inga, sem hafa miðað að því að
losa hann við allar viðjar stefnu-
miða og isma í listinni.*
Mörg ár eru nú liðin síðan
Helgafell gaf út sínar miklu lista-
verkabækur með myndlist eftir
okkar litríku stórmálara sem
gerðu íslenska málaralist að
áhrifaríkum veruleika á fyrri
hluta aldarinnar. í þann mund
sem þær sáu dagsins ljós voru
listamenn þessarar bókar ýmist á
barnsaldri ellegar rétt að hefja
feril sinn og þá ekki taldir nein
stórmeistaraefni. En tíminn líður.
Og maður kemur í manns stað.
Hvort sem nú þeir ágætu lista-
menn, sem kynntir eru á síðum
þessarar bókar, jafnast á við þá
gömlu og góðu eða ekki er svo mik-
ið víst að hér gefur að líta fulltrúa
nútímalistarinnar eins og hún
gerist best.
Útgefandi hefur gert sitt til að
bókin yrði glæsileg og efninu hæf-
andi. Setning og prentun sýnist
mér í góðu lagi en get þó ekki stillt
mig um að minna setjara og próf-
arkalesara á að til er lesmerki sem
heitir band og annað sem heitir
strik og eru sitt hvort. Þegar efnt
er til útgáfu öndvegisrits sem
þessa verða jafnvel smæstu atriði
að vera í lagi. En sem sagt að allri
smámunasemi slepptri: falleg,
skemmtileg og vönduð bók.
Basar Húnvetninga-
félagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík
verður með, laugardaginn 5. des.,
köku- og munabasar kl. 14.00 í Fé-
lagsheimilinu. Félagar eru minnt-
ir á að kökur eru vel þegnar, svo
og góðir munir. Tekið verður á
móti kökum og munum kl. 10 til 12
sama dag.
11
I FALLEG HEIIVIILI
FALLEG
'^ltölsk
sófasett
með
■ tau- og
leðuráklæði
G /- | •
i urvali
'Xx&’éÍÍjBr
PREMJO
LINEA DORO
EX.>ign& f
St\Ic
1 Gullverðlaun
l fvrir
\ •
[ hönnun & stíl
KM-
HUSGOGN, Langholtsvegi 111, R. símar 37010 — 37144
(
Ritsafn GuÖmundar Daníelssonar
I
Guðmundur Daníelsson, frásagnameistari í 48 ár.
Ritsafn Guðmundar Daníelssonar er 10 bækur. öll verkin eru frá
árunum 1948-1970 og sum þeirra hafa verið ófáanleg um hríð.
í ritsafninu eru skáldsögumar Blindingsleikur, Musteri óttans,
Hrafnhetta, Húsið, Turninn og teningurinn. Sonur minn Sinfjötli
og Spítalasaga, skáldverk utanflokka í bókmenntunum.
Einnig ferðasagan Á langferðaleiðum, veiðisagan Lands-
hornamenn - sönn saga í há-dúr og smásagnasafnið Tapað stríð.
Viðfangsefnin eru margvísleg og tekin fjölbreytilegum tökum, en
þróttmikill stíll og hröð og lifandi frásögn eru samkenni á öllum
verkum Guðmundar Daníelssonar.
Ritsafninu fylgir ellefta bindið með ritgerð dr. Eysteins
Sigurðssonar um verk Guðmundar; og skrá um útgáfur, ritdóma og
heimildir þeirra, sem Olafur Pálmason hefur tekið saman.
Góð bókmenntaverk í vönduðum búningi.
lögberg Bókaforíag
Þingholtsstræti3, simi: 21960