Morgunblaðið - 03.12.1981, Blaðsíða 21
21
Ritstjóri „Der Spiegel", herra
Wild, varpaði í upphafi þáttarins
fram þeirri fullyrðingu, að „nú
ætluðu Bandaríkjamenn að sýna
Sovétmönnum í tvo heimana með
kúrekann Reagan í forsetastóli".
Fréttaritarinn í Washington,
herra Sonnenfeld, vísaði þessari
fullyrðingu afdráttarlaust frá.
(Sonnenfeld var í Washington, og
sjónvarpsáhorfendur hér gátu séð
hann á skerminum, en hann sá
ekki viðmælendur sína.) Sonnen-
feld sagði hins vegar hið sama og
Schmidt hafði sagt í viðræðdm
sínum við Breschnew, að Banda-
ríkjamenn væru orðnir þreyttir á
orðagjálfri einu og af þeirra hálfu
væri ekki um að ræða að sýna ein-
um eða öðrum í tvo heimana. Hins
vegar yrði að gæta hagsmuna
vestrænna ríkja. Sovétmenn hefðu
hins vegar komist upp með að
hegða sér eins og þeim sýndist
bæði gagnvart öðrum þjóðum svo
og í hervæðingu. Hann benti á Ví-
etnam og öll mótmælin í því sam-
bandi eins og þegar Víetnam var
efst á baugi. Sonnenfeld tók ýmis
önnur dæmi um yfirgang og ógnir
Sovétmanna. Hann benti enn-
fremur á, að undanfarin 20 ár
hefði hernaðarmáttur Sovétm-
anna rúmlega tvöfaldast, en á
sama tíma hefði hernaðarmáttur
Vesturveldanna varla staðið í
stað. (þ.e. útgjöld til hermála
væru nú yfirleitt hlutfallslega
minni í vestrænum ríkjum en þau
hefðu verið fyrir 20 árum, en Sov-
étmenn verðu nú meira en helm-
ingi meiri fjármunum til hervæð-
ingar nú en þá).
Sovéski þátttakandinn maldaði
í móinn og vitnaði í ræðu Breschn-
ews þar sem aðalritarinn talaði
um vígbúnaðarstopp nú. Hinir
voru fljótir að benda á, að sama
hefði Breschnew sagt þegar hann
kom hingað 1979. Sovéski full-
trúinn svaraði þá á móti, að
Breschnew hefði heimsótt
V-Þýskaland 1979 áður en NATO-
samþykktin frá sama ári hefði
verið gerð. (Þar var tekin sú ein-
dregna afstaða, að Sovétmenn
skyldu semja við vestræn ríki
fyrir 1983 ella vígbyggjust Vestur-
veldin á sama hátt og Sovétríkin.
Menn skyldu gera sér ljósa þá
merkingu, er felst í orðum sovéska
þátttakandans.) Breschnew var
MQRQUNBLAÐÍÐ, FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1981
Formaður Sjúkraliðafélags íslands Sigríður Kristinsdóttir heldur hér ræðu
við afhendinguna. Við hlið hennar situr Ásgeir Jóhannesson formaður söfn-
unarstjórnar Hjúkrunarheimilisins í Kópavogi en við hlið hans situr Ingi-
björg Guðmundsdóttir stjórnarmaður í Sjúkraliðafélagi íslands.
Sjúkraliðafélagið gef-
ur Hjúkrunarheimili
Kópavogs veglega gjöf
því skv. orðum sovéska þátttak-
andans stikkfrí gagnvart yfirlýs-
ingum, sem hann gaf „fullur
bræðrahugar" áður en NATO-
samþykktin var gerð. Talsmaður
v-þýsku stjórnarinnar benti á, að
nauðsynlegt væri að vestræn ríki
gætu treyst Sovétríkjunum betur.
I því sambandi yrði Sovétstjórnin
að vera opnari. Hann varpaði
fram þeirri spurningu, hvers
vegna ekki væri um að ræða bein-
ar útsendingar frá t.d. sovéska
þinginu, eins og væri í þingum í
öllum ríkjum hins vestræna
heims. Sovéski fulltrúinn kaus að
láta þessu ósvarað. Þýski talsmað-
urinn hélt hins vegar áfram og
minnti á sovéskan málshátt, sem
hljóðar eitthvað á þessa leið: Ef þú
heldur hendinni fyrir aftan bak,
veit viðmælandi þinn ekki, hvort
þú ert með stein eða blóm í hend-
inni.“ Þessu mætti snúa í orðsins
fyllstu merkingu upp á Sovét-
menn. Sá sovéski svaraði til, að
Vesturveldin tryðu því vart upp á
Sovétríkin að þau hefðu eitthvað
óhreint í pokahorninu. Frekar
gætu Sovétríkin vantreyst vest-
rænum ríkjum. í því sambandi
benti hann á, hversu illa Sovét-
menn hefðu farið út úr seinni
heimsstyrjöldinni og væri full ást-
æða, af sovéskri hálfu að sýna var-
úð! Þó viðurkenndi hann, að Sov-
étmenn væru e.t.v. full varkárir.
Þátturinn endaði eins og spenn-
andi umræður enda vanalega:
tímahrak og þættinum varð að
ljúka. Sennilega hefur sovéski
þátttakandinn verið feginn.
Stjórnmálasigur
kanslarans
Heimsókn aðalritarans hefur
trúlega styrkt samningsaðstöðu
vestrænna ríkja gagnvart Sovét-
ríkjunum. Menn bíða nú spenntir
eftir framvindu mála á ráðstefn-
unni í GENF í næstu viku. Hvort
Schmidt hefur tekist að gera Sov-
étmönnum ljósa alvöruna verður
framtíðin að skera úr um. En
heimsókn Breschnews var mikill
stjórnmálasigur fyrir Schmidt,
sem bæði af andstæðingum og
samherjum er talinn einn besti
stjórnmálamaður, sem Þjóðverjar
hafa átt. Vitna má í fyrirsögn í
dagblaði í dag. 25.11.: Schmidt
fekk 10 í einkunn fyrir frammi-
stöðuna!
HJÚKRUNARHEIMILI Kópavogs
barst nýlega myndarjeg peningagjöf
frá Sjúkraíiðafélagi íslands að upp-
hæð krónur 80.000.-. Peningarnir,
sem Sjúkraliðafélagið gaf eru úr
Styrktarsjóði aldraðra, sem stofnað-
ur var af Sjúkraliðafélaginu á 10 ára
afmæli þess árið 1976.
Segir í skipulagsskrá sjóðsins að
veita skuli styrki úr sjóðnum
fimmta hvert ár. I fyrsta sinn á 15
ára afmæli Sjúkraliðafélagsins
þann 21. nóvember árið 1981 og
var ákveðið að fyrsti styrkurinn
úr sjóðnum rynni til Hjúkrunar-
heimilisins í Kópavogi.
Stofnfé sjóðsins var 200.000.-
gamlar krónur, sem var ágóði af
sölu afmælisplatta félagsins. Síð-
an hefur fjár verið aflað til sjóðs-
ins með því að selja jólakort fé-
lagsins víðsvegar um landið.
í skipulagsskrá sjóðsins segir að
tilgangur hans sé að styrkja aldr-
aða og einstaklinga, félög og
stofnanir, sem vinna að bættum
aðbúnaði eldra fólks.
Það var Hjördís Karvelsdóttir,
sem afhenti Asgeir Jóhannessyni,
formanni söfnunarstjórnar þessa
góðu gjöf, en Hjördís var upphafs-
maður að stofnun Styrktasjóðs
aldraðra.
Jóhanna Egils-
dóttir sæmd stór-
riddarakrossi
FORSETI íslands hefur sæmt frú
Jóhönnu Egilsdóttur stórriddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu,
að því er segir í frétt frá skrifstofu
forseta Islands.
Kristniboðshá-
tíð f Búðardal
á sunnudag
„Á SUNNUDAGINN kemur, 6.
desember kl. 2 e.h., verður haldin
kristniboðshátíð í Félagsheimilinu
Dalabúð í Búðardal, til að minnast
þúsund ára afmælis kristniboðs í
landinu.
Þar munu kirkjukórar í Dala-
sýslu syngja undir stjórn organ-
ista sinna. Prófastur, sr. Ingi-
berg J. Hannesson á Hvoli flytur
ávarp, ræðu flytur sr. Valdimar
Hreiðarsson á Reykhólum og sr.
Friðrik J. Hjartar í Búðardal
flytur lokaorð. Þá verður flutt
Sólhjartarljóð eftir Matthías Jó-
hannessen er hann orti í tilefni
kristniboðsársins og nemendur
úr Tónlistarskóla Dalasýslu leika
á hljóðfæri. Þannig verður í tali
og tónum minnst kristniboðs-
ársins, og mun þetta verða 11.
kristniboðshátíðin, sem haldin er
í landinu á þessu ári.“
Reykjavíkurskákmótið verður
haldið að Kjarvalsstöðum í feb.
STJÓRN SÍ hefur þegar sent út um
ailan heim upplýsingar um X. alþjóð-
lega Reykjavíkurskákmótið, sem ha-
Idið verður á Kjarvalsstöðum 9. —
21. feb. 1982.
Mótið verður að þessu sinni
opið, og verða tefldar 11 umferðir
skv. svissneska kerfinu. Fyrstu
verðlaun eru $6.000, önnur verð-
laun $4.000, þriðju verðlaun
$3.000, fjórðu verðlaun $2.000 og
fimmtu verðlaun $1.000. Þátttöku-
rétt eiga allir erlendir skákmenn
með 2300 Elo-skákstig eða meira,
og allir íslenskir skákmenn með
2200 Elo-skákstig eða meira. All-
margir erlendir skákmenn hafa
látið í Ijós áhuga á þátttöku s.s.
Bent Larsen, Robert Byrne, G.
Forintos, A. Soltis o.fl. Sovézka
Skáksambandið hefur spurt um
það sérstaklega, hvort Viktor
Korchnoi muni tefla á mótinu.
Stjórn SÍ hefur boðið V. Korchnoi
á mótið, og hefur hann þekkzt það.
„Mikilvægasta athuga-
semdin var um götumyndina
vestan Aðalstrætis. Við töld-
um ófært að festa til fram-
búðar þessa ósamstæðu
mynd, sem nú blasir við. Á
þetta sjónarmið var fallist og
samþykkt að húsaröðin vest-
an Aðalstrætis skyldi felld
inn í verðlaunasamkeppni,
sem samþykkt hefur verið að
hafa um kvosina.“
einu. Að vísu kostaði það einhver
átök innan meirihlutans, en niður-
staðan varð sú að margar athuga-
semdir okkar voru teknar til
greina.
Mikilvægasta athugasemdin var
um götumyndina vestan Aðal-
strætis. Við töldum ófært að festa
til frambúðar þessa ósamstæðu
mynd, sem nú blasir þar við. Á
þetta sjónarmið var fallist og
samþykkt að húsaröðin vestan Að-
alstrætis skyldi felld inn í verð-
launasamkeppni, sem samþykkt
hefur verið að hafa um kvosina.
Niðurstaðan varð sú, að okkur
sjálfstæðismönnum fannst það
langt gengið til móts við okkar
sjónarmið við afgreiðslu málsins í
borgarráði og í borgarstjórn, að
við greiddum atkvæði með tillög-
unum. Grundvallarstefnumótunin
byggðist jú einnig á hugmyndum
sjálfstæðismanna frá því í des-
ember 1977.
VAX teppasusan
erkomin
til Teppalands
/ /
Héðan i frá munu ryksugur
og teppahreinsarar tilheyra særdeginum
VAX-teppasugan sameinar notagildi þriggja
véla í einni.
VAX er öflug ryksuga til venjulegra heimilis-
nota.
VAX sýgur upp vökva sem hellast nidur, áður
en þeir þoma og ná að mynda bletti, nær stíflu
úr vaski og þurrkar gólflð ef flóð verður af
einhverjum orsökum.
VAX er teppahreinsari, sem á engan sinn hka:
Hún djúphreinsar teppin með hreinsivökva,
sýgur óhreinindin og bleytuna jafnóðum upp og
skilar teppinu þurru og sem nýju.
Soluaðilar:
Kf. Skaftfellinga, Vík
K.A.Sk. Höfn Homafirdi
Kf. Berufjardar
Kf. Faskrúðsfjaröar, Faskrudsflrúi
Teppaland, Akureyri
Kf. Skagfirúinga, Saudárkróki
Kf. Hunvetninga, Blonduosi
Kf. \ -llunvetninga, Hvammstanga
Litabúdin, Olafsvik
Versl. Flisar Gudnasonar, FskiHrði Malningarþjonustan, Akranesi
Kf. Fram, Neskaupstað Brímnes, V estmannaeyjum
Kf. V opnafjarúar. Vopnafirdi Dropinn, Keflavík
Kf. Iléraösbua, FgUsstödum PensiUinn, ísafiröi
Stalbúdin, Seydisfiröi Jón Fr. Finarsson, Bolungamk
Hagkaup
Finco Siglufirdi.
Tepprlrnd
Grensásvegi 13
Símar: 83577 - 83430