Morgunblaðið - 26.01.1982, Síða 1

Morgunblaðið - 26.01.1982, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 19. tbl. 69. árg. ÞRIÐJUDAGUR 26. JANIJAR 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dollar styrkist htndon, 25. januar. Al'. Randaríkjadoilar styrktist í sessi gagnvart ollum helztu gjaldmiðlum heims í dag og gullverð lækkaði og hefur ekki verið lægra í London í 28 mán- uði. Dollárinn hækkaði vegna fregna frá Washington um að peninga- magnið í umferð hefði aukizt frá því í fyrri viku, en búizt hafði ver- ið við að það mundi minnka. Einn- ig var búizt við vaxtahækkunum vestanhafs. Við lok viðskipta kostaði dollar- inn 2,3410 mörk, og sterlingspund- ið kostaði 1,85 dollara. Sterlings- pundið hefur ekki verið jafn verð- lítið gagnvart dollar frá því 29. október sl. Þá var dollarinn verð- meiri í Japan í dag en síðustu tíu vikurnar. Gullúnzan kostaði 372 dollara í London í kvöld, 367,48 dollara í París, 375 í Frankfurt og 371,5 dollara í Ziirich. Þá lækkaði silfur einnig í verði. Utan brautar Brak DC-10 þotu World Airways á slysstað við Logan flugvöll í Boston. Þotan rann fram af braut 33, sem var glerhál en allir þeir 208 sem um borð voru komust af, og hlaut enginn þeirra tcljandi meiðsli. Flugstjórnarklefinn brotnaði frá skrokknum í brotlendingunni, eins og gert er ráð fyrir við hönnun IK'-IO, og marar í hálfu kafi. f baksýn lendir Lockheed Tri-Star frá Eastern. Sjá nánar á bls. 19. simaimnd \i>. Jaruzelski boðar slökun á herlögum í febrúarlok Varsjá, 25. janúar. Al*. JARUZELSKI, forsætisráðherra Pól- lands, réðist harkalega að Kamstöðu, Bandaríkjunum og bandamönnum þeirra og gaf í skyn að herinn myndi stjórna námum og verksmiðjum um ófyrirsjáanlega framtíð þótt hægt yrði að slaka örlítið á herlögum undir lok febrúar, er hann flutti ræðu í pólska þinginu í dag, í fyrsta skipti frá því herlögum var lýst í l’óllandi, 13. des- ember síðastliðinn. Jaruzelski sagði að ef „ólögmætar athafnir" Samstöðu héldu áfram, yrði ekki ha-gt að létta hömlum á athafna- frelsi þjóðarinnar. Og þótt þeim yrði lyft mundi herstjórnin fara áfram með völd og vinna að endurreisn pólsks efnahagslífs. „Við okkur blasti efnahagshrun og þjóðin rambaði á barmi borgara- styrjaldar og þá greip ríkisráðið inn í. Ógnunin var augljós, öfgaöflin í Samstöðu sáu hilla undir æðsta takmark sitt, sem var hrun komm- únistasamfélagsins. Þessi öfl löm- uðu allt starf stjórnarinnar með gerðum sínum, þau brutu lög hvað eftir annað og stefndu öryggi þjóð- arinnar í hættu," sagði Jaruzelski. Utvarpið í Varsjá sagði þingsali og áhorfendastúkur hafa verið þéttsetin og andrúmsloftið raf- magnað. Fjórum slnnum hefði hershöfðinginn þurft að gera hlé á 90 mínútna langri ræðu sinni vegna fagnaðarláta. Jaruzelski sagði m.a. í ræðunni að 4.549 Pólverjar hefðu verið fangels- aðir frá því herlög gengu í gildi og hefðu 1.768 þeirra verið látnir laus- ir, en samkvæmt öðrum heimildum hafa tugþúsundir Pólverja verið fangelsaðir. Sagði ráðherrann fang- ana fljótt látna lausa, en „lögbrjót- um“ yrði hegnt grimmilega. Þrír félagar í Samstöðu voru dæmdir í allt að þriggja og hálfs árs fangelsi í dag fyrir að skipuleggja verkföll í áburðarverksmiðju í Lubl- in-héraði 14. —19. desember, og hafa þá hátt í 200 félagar í Samstöðu hlotið fangelsisdóma af svipuðu til- efni. í dag hófust í Tékkóslóvakíu sam- eiginlegar æfingar hersveita frá Sovétríkjunum, Ungverjalandi og Tékkóslóvakíu, og taka þátt í þeim um 25 þúsund hermenn úr lofther og landher viðkomandi ríkja. Æfing- unum stjórnar Kulikov, yfirmaður herafla Varsjárbandalagsins, en þær standa yfir fram að næstu helgi. Pólskur embættismaður spáði því í dag, að draga mundi úr landbúnað- arframleiðslu á þessu ári vegna refsiaðgerða Bandaríkjamanna, og yrði alvarlegur skortur á kornfræi og kartöfluútsæði með vorinu. Einn- ig væru fyrirsjáanlegir erfiðleikar í allri grænmetisræktun og skortur væri fyrirsjáanlegur á áburði og skordýraeitri, en allt þetta mundi gera að verkum að landbúnaðar- framleiðslan mundi dragast stór- lega saman. Pólska kirkjan hvatti til þess um helgina að herlögum yrði aflétt og haldið áfram þjóðfélagsumbótum þeim sem hófust með stofnurr Sam- stöðu síðla sumars 1980. Jóhannes Páll páfi lagði kirkjunni lið í þess- um efnum. Þá lýstu fastafulltrúar Atlantshafsbandalagsríkjanna í Brussel því yfir að ástandið í Pól- landi hefði versnað til muna, og að búast mætti við nýjum refsiaögerð- um gagnvart Rússum á næstunni. Flýði undir kúlnaregni Mum hen, 25. janúar. Al*. TVÍTUGUR austurþýzkur landamæravörður flýði yfir til VesturÞýzkalands árla í dag við landamærastöð norður af Wiirzburg, og slapp hann ósærður, þótt aðrir landamæraverðir skytu ákaft að honum af vélbyssum. Að sögn lögreglu hjálpaði það landamæraverðinum að enn hafði ekki birt af degi. Aðrir a-þýzkir landamæra- verðir urðu flótta hans fljótt varir. Flóttamaðurinn var í einkennisklæðum er hann flýði, en skildi eftir vopn þau er hann jafnan bar við skyldustörf. Gromyko neitar að ræða um ástandið í Póllandi (ienf, 25. janúar. Al*. ANDREI tíromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði við komuna til Genfar í dag, að hann mundi neita að ræða ástandið í Póllandi og valdatöku hersins þar á fundi með Alexander llaig, utanríkisráðherra Itandaríkj- anna, en þegar Haig heyrði þessi um madi í dag, spáði hann stuttum fundi. „Ég mun nota tækifærið til að skýra Gromyko milliliðalaust frá þeim viðbjóði sem vestræn ríki hafa á ofbeldisverkum herstjórnarinnar í Póllandi,“ sagði Haig. Hann hjóst við því að viðræður þeirra Gromyk- os myndu snúast að verulegu leyti Kjörmenn kjósa Koivisto forseta llelsinki, 25. janúar. Al*. MAUNO Koivisto sneri til Ilels- inki í dag úr skíðaleyfi í Lapplandi, en á morgun, þriðjudag, koma kjörmenn saman og útnefna hann næsta forseta Finnlands, hinn fyrsta scm kemur úr röðum finnskra jafnaðarmanna. Ilrho Kekkonen er of þjakaður til að vera viðstaddur kjörmanna- samkunduna og einnig athöfnina á miðvikudag, þegar Johannes Vir olainen þingforseti tekur af Koiv- isto embættiseiða, að sögn formæl- anda forsetaembættisins. Heilsu Kekkonens hefur hrak- að verulega síðustu vikurnar, æðakölkunin hefur aukist og jafnframt þjáist hann af út- brotaveiki. Jafnaðarmenn unnu 145 kjör- menn af 301 í kosningum um fyrri helgi, og ljóst var að Koiv- isto yrði næsti forseti Finnlands þegar 21 kjörmaður úr hófsam- ari helmingi finnska kommún- istaflokksins lýsti stuðningi við hann og einn kjörmaður Lands- byggðarf lokksi ns. I dag mættu kjörmennirnir allir til sérstakrar skráningar, en í þeim hópi eru bæði eigin- kona Koivistos og dóttir hans, Assi, 21 árs nemi í hagfræði við Uppsalaháskóla. Enginn kjör- maður hefur hlotið jafnmörg at- kvæði í kjörmannakjöri og kona Koivistos, og dóttir þeirra hjóna var einnig mjög atkvæðamikil. um ástandið í Póllandi. Haig og Gromyko ræðast við á tveimur tveggja klukkustunda fundum á þriðjudag og fara viðræð- urnar fram innan veggja sendiráða ríkianna í Genf Haig sagðist einnig numdn drepa á málefni Afganistan. þar sem Sovétríkin heldu áfram hernaði sín- um, „og ég er viss um að Gromyko hefur eitthvað í pokahorninu, sem hann vill koma að,“ bætti hann við. Dean Fischer, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins til- kynnti formlega í dag, að Haig færi 9. febrúar næstkomandi til Madríd, þar sem hann mundi fara þess á leit við ríkin er undirrituðu Helsinki- sáttmálann, að þau fordæmdu Sov- étríkin og lýstu þau ábyrg fyrir að herlögum var lýst yfir í Póllandi. Bæði Haig og Reagan forseti hafa sagt herlögin og aðför herstjórnar- innar að Samstöðu vera brot á mannréttindakafla sáttmálans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.